Þjóðviljinn - 01.02.1985, Síða 8

Þjóðviljinn - 01.02.1985, Síða 8
BOWIE... Framhald af bls. 7 Bowie notaöi lögin á „Diamond Dogs“. Nýr Bowie Eftir það fór hann í hljómleika- ferð um Bandaríkin og þá birtist aðdáendum nýr Bowie, ljóshærð- ur og ómálaður í ljósum jakkaföt- um. Tónlistin breyttist einnig, meiri soul-áhrifa gætti og rokkið varð mildara. Þá kom hann með lagið „Fame“ sem komst á „Topp-tíu“ í Bandaríkjunum. Þá flutti Bowie til Los Angeles og má segja að hann hafi ráðið ríkj- um í ameríska poppheiminum um skeið, auk þess sem hann lék aðalhiutverkið í kvikmyndinni „The man who fell to earth“ (1976). Eftir þrjú ár sneri hann aftur til Bretlands. Settist hann síðan að í Berlín þar sem hann einbeitti sér að tónlist, málaralist og upptökum með Brian Eno (Roxy Music). Árið 1979 sneri Bowie til New York þar sem hann tók upp plötuna „Ashes to Ashes" en hún er eins konar framhald af plötunni „Space Oddity" (1972). Bowie kom síðan aftur fram á sviði árið 1980 í bandarískum sjónvarpsþætti og lék í leikritinu um Fílamanninn sem sýnt var á Broadway. Árið 1981 vann hann með hljómsveitinni Queen að laginu „Under Pressure" og 1982 gerði hann ásamt Giorgio Moroder tónlistina við myndina „Cat Pe- ople“. Einnig útsetti hann tónlist sem notuð var í myndinni „Dýr- agarðsbörnin", auk þess sem hann lék aðalhlutverkið í kvik- myndinni „Hunger" ásamt Cat- herine Denevue. Veldur ekki vonbrigðum Með plötunni „Let’s Dance“, sem kom út 1983, vann Bowie sinn stærsta sigur til þessa, en hún komst í efstu sæti vinsældalista um allan heim. í kjölfar þess fór Bowie í hljómleikaferðir um Evr- ópu og Bandaríkin í fyrsta sinn í sjö ár. Nýjustu tónsmíðar Bowie er svo að finna á plötunni „Ton- ight“. Svo mikið er víst að ef Bowie heldur sínu striki þá hefur hann ekki sungið sitt síðasta og mun líklega ekki valda aðdáendum sínum vonbrigðum í framtíðinni. Þýtt og endursagt miðvikudag- inn 16. jan. 1985. Með hvellum og skellum frá Fellahelli. M.S.,K.K./ss Þær eru góðar í „splitti" og „spígati"! Sara Stefánsdóttir: íslandsmeistari í „freestyle" dansi 10-12 ára. Déjoð 84, tónlistarhóp Fella- hellis hefur áður borið á góma á þessum síðum. Glætan króaði af Kristin Kristinsson, annan leið- beinanda hópsins og fékk hann til að segja meira af Déjoð. - Félagar í hópnum eru tíu auk tveggja leiðbeinenda, mín og Halldórs Þorgeirssonar. Við starfrækjum diskótek Fellahellis, sjáum um tónlistarkynningar, tökum þátt í hljómplötukaupum og höfum milligöngu um hljóm- sveitarráðningar. Hópurinn starfar sem ein heild og ráða fast- ir fundir hans á miðvikudögum stefnunni. - Við skiptum með okkur kvöldunum, vinnum saman tveir og tveir og erum þá ábyrgir fyrir diskótekinu og eigum þess. Þeir sem sjá um diskótekið hverju sinni eru einráðir í lagavali nema auðvitað þegar músíkkynningar eru, þegar vinsældalistinn er kynntur og þegar klúbbar eru með uppákomur. Markmiðið með þessum tónlistarkynningum einu sinni í viku er að kynna lítið þekktar eða lítið spilaðar hljóm- sveitir. Hér í diskótekinu er alltaf beðið um sömu lögin og erfitt að koma inn nýjum lögum. Það verða engin lög vinsæl hér nema þau hafi fyrst heyrst svona 4-5 sinnum á Rás 2. Þetta er sama sagan í öllum diskótekum, það er tekið mið af rásinni. Auk þess að vera félagi í Déjoð er Kristinn fastráðinn starfsmað- ur félagsmiðstöðvarinnar og má segja að hann hafi stundað stað- inn í 10 ár. Kristinn er innfæddur Breiðhyltingur stundar nám í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, æfir handbolta og fótbolta og eins og hann segir sjálfur- lifir lífinu. Hér er fjörið! Undir þessari fyrirsögn geta les- endur Glætunnar héðanifrá barið augum allt það helsta sem boðið er uppá um helgar fyrir ungt fólk. Gjörið svo vel. Föstudagur 1. febrúar Ársel: Diskótek kl. 8-11.30. Bústaðir: Diskótek kl. 8-12. Fellahellir: Diskótek kl. 8-12. Tónabær: Diskótek kl. 8-11. Þróttheimar: Diskótek ki. 8-12. Laugardagur 2. febrúar Agnarögn: Diskótek kl. 9-1. Traffic: Diskótek föstudags- laugardagskvöld kl. 9-3. og ATHUGID! ATHUGID! Látið Glætuna vita ef úr glæðist í menningar- og skemmtanalífi unglinga. Allar ábendingar eru vel þegnar og þið fáið jafnframt ókeypis auglýsingu. Þið getið skrifað Glætunni, Þjóðviljanum, Síðumúla 6, eða hringt í 8 13 33. Tónlistarhópurinn Déjoð ’84 Dansað fyrír Eþíópíu Dagana 12. 13. og 19. jan. var sjaldin í Þróttheimum forkeppni í ,Treestyle“ dansi fyrir aldurshóp- ana tíu til tólf ára, og var keppt um Islandsmeistaratitilinn í einstaklings- og hópdansi. Úr hverri forkeppni komust þrír einstaklingar og þrír hópar í úrslit, en alls tóku 160 manns þátt í forkeppninni. í úrslit sem haldin voru í Þróttheimum 20. jan. kepptu því níu einstaklingar og níu hópar. íslandsmeistari í einstaklings- keppni varð Sara Stefánsdóttir, í öðru sæti varð Ingvar Jónsson og í þriðja sæti varð Birna Karen Björnsdóttir. íslandsmeistarar í hópadansi varð hópurinn „Fjórir í takt“ en þær eru Birna Hafstein, Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Eygló Björk Kjartansdóttir og Karen Þóra Sigurkarlsdóttir, í öðru sæti urðu Jórunn Sólveig Ólafsdóttir, Sigríður Margrét Ólafsdóttir, Davíð Ólafsson og Vignir Már Sævarsson, en í þriðja sæti hafn- aði hópur sem kallar sig „Svart og hvítt“ en hann skipa þær Elma Lísa Gunnarsdóttir og Gyða Gunnarsdóttir. Þeir sem stóðu að þessari keppni voru eftirtaldir klúbbar sem starfandi eru í Þróttheimum „Pælandi englar“, „Vindverkir“, „Skríðandi köngulær“, „Blikk- andi ljósaperur“, „Gæjar og píur“, og „Brjálaðir bananar", og eru meðlimir á aldrinum 13 tií 16 ára. Ástæðan fyrir því að þessir klúbbar héldu þessa keppni var tvíþætt, annars vegar til að minna á ár æskunnar og hins vegar að styrkja Eþíópíusöfnun Hjálpar- stofnunar kirkjunnar, en allur ágóði af keppninni rann í söfnun- ina. Klúbbarnir söfnuðu með þess- um hætti 50.006 kr. sem Sara síð- an afhenti fulltrúa hjá Hjálpar- stofnun kirkjunnar í lok keppn- innar. Klúbbarnir vilja koma á framfæri þakklæti til þeirra sem styrktu söfnunina, og dómnefnd- arinnar sem gaf alla sína vinnu. Að lokum langar klúbbana að geta þess, að fyrir söfnunarféð voru keypt tvö tonn af matvælum sem þegar eru á leið til Eþíópíu. 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. febrúar 1984

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.