Þjóðviljinn - 02.02.1985, Page 1
SUNNUDAGS-
BLAÐ
MENNING
Mótorskip
Umframorkulandið
Margar
bíla-
tegundir
Stjórnarmaður
Mótorskips: Veit
ekkert umfyrirtœkið
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans munu innflutningssvik
Mótorskips hf ekki einungis
tengjast innflutningi á Toyota bif-
reiðum heldur einnig bflum af
tengundunum Packard, Buick og
Chrysler.
Þjóðviljinn náði tali af einum
stjórnarmanna Mótorskips hf og
sá upplýsti að fyrirtækið hefði
ekki haldið aðalfund sína í mars
1983. „Ég er að visu í stjórn Mót-
orskips hf“, sagði viðmælandi
blaðsins, „en ég veit hreint ekk-
ert hvað það er sem fyrirtækið
flytur inn“.
Málið er enn á frumstigi rann-
sókna hjá rannsóknarlögregl-
unni. Eins og Þjóðviljinn greindi
frá í gær er framkvæmdastjóri
Mótorskips hf í gæsluvarðhaldi
og búið er að leggja hald á alla
pappíra fyrirtækisins.
S.dór/ÖS.
Keilunni
kastað
í gær var nýja keiluspilahúsið í
Öskjuhlíðinni vígt að viðstöddu
Qölmenni. I vígsluræðu sinni,
sagði eigandinn, Jón Hjaltason,
að vonast væri til að húsið yrði
Reykvíkingum til skemmtunar og
. sá segull sem dregið gæti almenn-
ing að útivistarsvæðinu í Öskju-
hlíð.
Steingrímur Hermannsson
kastaði fyrstu kúlunni og síðan
silkihúfurnar hver af annarri: Da-
víð borgarstjóri, Inga Jóna út-
varpsráðsformaður, Sveinn for-
seti ÍSÍ. Myndin sýnir hins vegar
skáldið og júdókappann Thor
Vilhjálmsson reyna sig í þessari
nýju íþrótt. (E.Ol.).
ABR
Þorra-
blótið
íkvöld
Hið vinsæla Þorrablót ABR
verður í kvöld að Hverfisgötu 105
og hefst klukkan 19.30. Klassísk-
ur þorramatur verður fram-
reiddur auk annarra rétta.
Skemmtikraftar koma fram og
síðan munu veislugestir sveiflast í
ljúfum dansi fram eftir morgni.
Athugið, að hægt er að kaupa
miða einungis inn á dansleikinn
og sleppa matnum. -RÞ.
Gjaldskrá Landsvirkj-
unar endurskoðuð
Forstjóri Landsvirkjunar staðfestir frétt Þjóðviljansfrá í gœr.
Telur diselkeyrslu Rarik óhagkvœma.
Fulltrúi Rarik mótmœlir þeirrifullyrðingu
Forstjóri Landsvirlyunar Hall-
dór Jónatansson staðfestir í
athugasemd sem hann hefur sent
Þjóðviljanum frétt blaðsins frá í
gær um að Landsvirkjun hafi
mótmælt þeirri ákvörðun for-
ráðamanna Rarik að keyra disel-
vélar til þess að framleiða raf-
magn í stað þess að kaupa frá
Landsvirkjun. Jafnframt lýsir
hann því yfir að hér sé um þjóð-
hagslega óhagkvæmni að ræða og
enginn viti fyrr en árið er á enda
hvort Rarik hagnist á þessari
diselkeyrslu.
Guðmundur Guðmundsson
verkfræðingur hjá Rarik mót-
mælir þessari yfirlýsingu Hall-
dórs og segir að keyrslan á disel-
vélunum hafi verið til hagsbóta
fyrir Rarik enda hefði ekki verið
farið út í þær aðgerðir að öðrum
kosti.
í athugasemd Halldórs Jónat-
anssonar sem birt er í blaðinu í
dag kemur einnig fram að Lands-
virkjun krafðist fundar með for-
ráðamönnum Rarik í iðnaðarráð-
uneytinu í fyrradag vegna þessa
máls eins og Þjóðviljinn skýrði
frá í gær. Einnig upplýsir Halldór
að gjaldskrá Landsvirkjunar hafi
verið tekin til endurskoðunar
m.a. með tilliti til vægis milii afl-
gjalds og orkugjalds.
Sjá bls. 2
-ig-
Ríkissaksóknari
Ofnotkun ákæruvaldsins
Jónatan Þórmundssonprófessor í refsirétti: Hálfpólitísk lyktafákæru
ríkissaksóknara.
Óeðlilegt að auglýsa kœru án þess að kröfurséu birtar sakborningum
að er rétt að ég hef veitt full-
trúum starfsmanna RÚV ráð-
gjöf vegna ákæru saksóknara.
Astæðan er sú að mér fínnst hálf-
pólitísk lykt af málinu og að hér sé
að mínu mati um ofnotkun á-
kæruvaldsins að ræða, sagði Jón-
atan Þórmundsson, prófessor í
refsirétti, í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Það sem mér finnst gagnrýni-
vert við málsmeðferð ríkissaks-
óknara er í fyrsta lagi fjölmiðla-
birtingin. Það er að vísu ekki
einsdæmi að ákærur séu birtar
mönnum í fjölmiðlum, en slíkt
hefur ávallt mælst illa fyrir.
Raunverulega veit enginn ennþá
hvaða kröfur ríkissaksóknari ger-
ir, t.d. hvort farið er fram á rétt-
indasviptingu eða greiðslu skaða-
bóta. Það er í hæsta máta óeðli-
legt að sakborningur fái tilkynn-
ingu í fjölmiðlum um ákæru frá
ríkissaksóknara án þess að fá að
vita hvaða kröfur eru gerðar á
hendur honum. Kröfurnar hafa
verið ákveðnar fyrir nokkrum
vikum, en ríkissaksóknari er einn
um að vita hverjar þær eru.
Þá tel ég það einnig ámælisvert
að fréttatilkynning um ákæruna
hafi verið spyrt saman við ákæru
út af ólöglegum útvarpsstöðvum
sem er aðskilið mál.
Samkvæmt þeirri lagagrein
sem hér er kært eftir er um alvar-
legt brot að ræða, sem varðar allt
að þriggja ára fangelsun. Þó er
hægt að beita sektum ef um máls-
bætur er að ræða, en ekki er hægt
að ganga út frá því á þessu stigi að
dómsstólar telji þær fyrir hendi.
Sjá bls. 3.
-ólg.
Mannshvarf
Pilturinn
enn ófundinn
Ekkert hefur enn spurst til
unga piltsins sem hvarf að heiman
frá sér úr Reykjavík fyrir nærri
tveimur vikum síðan.
Að sögn Arnþórs Ingólfssonar
aðalvarðstjóra sem hefur umsjón
með leitinni hafa lögregla og
björgunarsveitir síðustu daga
fínkembt Mýra- og Borgafjarð-
arsýslur án árangurs. Eina vís-
bendingin sem menn hafa fengið
um ferðir Hafþórs Haukssonar
frá því að hann fór að heiman er
að til hans sást að öllum líkindum
í Borgarnesi.
Engin skipuleg leit fer fram
þessa stundina en lögreglan hefur
uppi eftirgrennslan um all land.
-is.