Þjóðviljinn - 02.02.1985, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 02.02.1985, Qupperneq 3
Laugardagur 2. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Smokkurinn Kemur um miðjan mánuðinn Óvenju góðargœftir og mikil línuveiði og bátarnir nœr beitulausir Mikið hefur verið spurst eftir Falklandseyjasmokknum sem er væntanlegur til landsins um miðj- an mánuðinn, en útgerðir línu- báta víða um land eru í miklum vandræðum vegna þess að nær smokklaust er í landinu. „Mér skilst að það sé ákaflega lítið til og það hefur töluvert ver- ið spurt eftir og gerðar pantanir á smokk hjá okkur“, sagði Daníel Þorsteinsson hjá Netasölunni í Reykjavík sem á von á smokkfisk frá Falklandseyjum. „Jú, þetta verður eitthvað dýrari smokkur en fengist hefur hér heima, en ég er að gera mér vonir um að geta komið kg verðinu undir 30 kr.“ sagði Daníel. Þessi smokkur er um 150-200 gr. og veiddur af pól- skum frystiskipum við Falklands- eyjar. Ástæðan fyrir beituskortinum nú á miðri loðnuvertíðinni, eru óvenju góðar gæftir í janúar og mikill línuafli. Margir bátar hafa því stundað línuveiðar mun lengur en ella og nær eingöngu verið beitt með smokknum sem kom upp að landinu sl. haust og hann því nær uppurinn. -•g- i — hæðir og brýr eru vettvang- ur margra um- ferðarslysa. Við slíkar aðstæður þarf að draga úr ferð og gæta þess að mætast ekki á versta stað. UMFEROAR llXF Sínubruni í janúar. Myndin vartekin í Breiðholtinu á dögunum, og ertil marks um veðurblíðuna syðraí janúarmánuði. (E.OI.). FRÉITIR Ríkissaksóknari Sýndum mikla nærgætni Þórður Björnsson: Jónatan Þórmundsson er ekki helgur maður. Má halda það sem hann vill. Einungis stjórnarmenn starfsmannafélaganna verða lögsóttir Ég hef nú ekki ákæruna fyrir framan mig, en ég held að ég megi fullyrða að í ákærunni sé ekki far- ið fram á annað en að ákærðu sæti refsingu samkvæmt lögum og greiði sakarkostnað, sagði Þórð- ur Björnsson ríkissaksóknari í gær, þegar Þjóðviljinn spurði hann hvaða kröfur væru gerðar á hendur stjórnarmanna starfs- mannafélaga ríkisútvarpsins. Er það ekki óeðlUegt að gefin sé út fréttatilkynning í ijölmiðlum um ákæru ríkisvaldsins án þess að kröfur séu birtar sakborning- Það heyrir til undantekninga, og hefur nær eingöngu gerst þeg- ar um mál hefur verið að ræða sem fjölmiðlarnir hafa verið að velta sér uppúr. í þessu tilviki var hins vegar látið hjá líða að birta nöfn einstaklinga og við teljum okkur hafa sýnt þessu fólki mikla nærgætni. Hér er ekki verið að vega að neinum einstaklingum, kæran gæti eins verið á hendur Jóni Jónssyni. En ákæran nær að- eins til stjórnarmanna stafs- mannafélaganna. Ég vissi reyndar ekki um hvaða einstak- linga var að ræða fyrr en ég undir- ritaði ákæruskjalið. Nú hafa fleiri lýst sig samseka í þessu máli. Verða þeir ekki lög- sóttir líka? Nei, það fer fyrir þeim eins og Jóni Hreggviðssyni, þeir munu missa af glæpnum. Hefur þú séð þá gagnrýni sem Helgarpósturinn hefur eftir Jón- atan Þórmundssyni prófessor um málsmeðferð saksóknara? Nei, Jónatan Þórmundsson má halda það sem hann vill. Hann er ekki helgur maður í mínum augum. ólg. Elo-skákstig Kasparov ofar Karpov Margeir Péturson stigahœstur íslenskra skákmanna Garry Kasparov er stigahæstur allra skákmanna í heiminum í dag, samkvæmt Elo-stigalista Al- þjóðaskáksambandsins sem út kom nú í janúar með 2717 Elo- stig. Næstur honum er svo heimsmeistarinn Anatoly Karpov með 2705 stig. Þessir tveir skák- jöfrar eru lang efstir að stigum í heiminum í dag og þeir einu scm eru með meira en 2700 Elo-stig. I 3. sæti á listanum er Hollending- urinn Jan Timman með 2650 stig. Stigahæstur íslenskra skák- manna er Margeir Pétursson með 2535 stig og er hann í 5. sæti á lista FIDE. Næstur er Jóhann Hjart- arson með 2530 og Helgi Ólafsson þriðji með 2515 Elo-stig. Samkvæmt fslenska skákstig- alistanum sem var að koma út er Jóhann Hjartarson efstur með 2550 stig, næstur Helgi Ólafsson með 2545 stig, þá Friðrik Ólafs- son með 2530 stig, Jón L. Áma- son með 2510 stig, Margeir Pét- ursson með 2510 stig. Aðrir em fyrir neðan 2500 stig. Til gamans látum við fylgja hér lista yfir þá skákmenn sem hafa 2600 Elo-stig eða meira hjá FIDE: 1. Garry Kasparov Sovétr. 2717 2. Anatoly Karpov Sovétr. 2705 3. Jan Timman Hoilandi 2650 4. Rafael Vaganian Sovétr. 2640 5. Alexander Beliavsky Sov. 2635 6. Lajos Portisch Ungverjal. 2635 7. Victor Kortsnoi Sviss 2630 8. Lev Polugaevsky Sovét.. 2625 9. John Nunn Englandi 2615 10. Zoltan Ribli Ungverjal. 2615 11. Robert Hubner V-Þýskal. 2605 12. Vassily Smyslov Sovétr. 2600 -S.dór Húsavík Húsbyggjendur gjaldþrota Fjöldi húsbyggjenda að missa eignirsínar á uppboðum. „Vorum svikin um skuldbreytingu og lenginu lána. Málið er mjög heitt ogþolir Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í gær er hafln á Húsavík undir- skriftasöfnun meðal bæjarbúa þar sem lýst er ábyrgð á hendur stjórnvöldum fyrir sofandahátt í húsnæðismálum. Fjöldi hús- vískra íbúðabyggjenda stendur nú frammi fyrir gjaldþroti og uppboði húseigna sinna og hafa fyrstu uppboðin þegar verið aug- lýst. Hér er í öllum tilfellum um að ræða svokallaða „verðtrygg- ingarkynslóð“ húsbyggjenda sem hefur orðið hart úti í viðskiptum sínum við stjórnvöld og yflrvöld bankamála á staðnum, þá sér í lagi Landsbankans. Einn af forvígismönnum undir- skriftasöfnunarinnar hefur þegar fengið tilkynningu um annað og síðara uppboð húseignar sinnar. I samtali við Þjóðviljann sagðist hann einungis vera efstur á nagl- anum, miklu fleiri biðu eftir upp- boðstilky nningum. engabið‘ Eignalaus og stórskuldugur „Mín húsbyggingasaga er nokkuð dæmigerð fyrir þá að- stöðu sem fjöldi ungs fólks er kominn í,“ sagði þessi ungi mað- ur og fimm barna faðir. „Húsið mitt er metið í byggingarkostnaði á 5 miljónir en hægt að fá 2,8 fyrir það á frjálsum markaði. Nú þeg- ar dæmið er gert upp, á ég ekki krónu í húsinu og skulda að auki nær 500 þús. kr. Eg hef leitað um fyrirgreiðslu til Landsbankans hér á Húsavík og lagt fram veð í tveimur skuldlausum eignum. Mér er lofað fyrirgreiðslu með því skilyrði að annar maður taki lánið, húsið verði selt og bankinn taki alla útborgunina uppí skuldir. Auðvitað get ég ekki gengið að slíkum afarkjörum“. Hann sagði ástæðuna fyrir því að svo væri komið fyrir sér og fleirum vera þá að engin skuld- breyting hefði fengist á skammtímalánum hjá Lands- bankanum. „Okkur var neitað um það. Við fengum á sínum tíma lán upp í væntanlegt hús- næðislán sem lét á sér standa. Þegar það loksins kom tók bank- inn af því fyrir sínu láni og lét okkur hafa það litla sem eftir var. Við áttum að fá óskert húsnæðisl- án en sitjum uppi með skamm- tímalán á allt öðrum kjörum. Krefjumst svara Mér er spurn: Verður þetta virkilega látið viðgangast? Eigum við ekki að fá neina fyrirgreiðslu með framlengingu og skuldbreyt- ingu lána eins og stjómvöld höfðu iofað? Við heimtum svör því þetta er mjög heitt mál hér og þolir enga bið“, sagði viðmælandi Þjóðviljans. -Ig.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.