Þjóðviljinn - 02.02.1985, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 02.02.1985, Blaðsíða 4
LEIÐARI Lýðræði í Suður-Ameríku Nokkuð hefur að undanförnu verið skrifað um þá jákvæðu þróun til þingræðis sem átt hefur sér stað í Rómönsku Ameríku. Fyrir nokkrum árum ríktu herstjórar yfir öllu meginlandinu sunnan við Kólumbíu og Venezúelu, en nú eru aðeins tveir slíkir þar eftir, Stroessner í Paragu- ay og Pinochet í Chile. Ecuador fékk borgara- legastjórn 1979, Perú 1980, Bolivía 1982, Arg- entína 1983 og nú hrekjast herforingjastjórnir frá Uruguay og svo stórveldi álfunnar, Brasilíu. Þetta er að mörgu leyti ánægjuleg þróun, fyrst og fremst vegna þess, að undanhald her- foringjanna og þær kosningar sem farið hafa fram í þessum löndum hafa komið á eftir bæði víðtækum þiýstingi af hálfu almennings, merki- legri mannréttindabaráttu og svo kreppu, sem herstjórarnir hafa komið sér í: þeir gerðu tilkall til þess að kunna betur með mál þjóða sinna að fara en stjórnmálamennirnir, en stjórnir þeirra hafa reynst enn spilltari og dugminni en þær kjörnar stjórnir sem þeir veltu úr sessi. Hitt er svo ekki nema rétt, að lýðræði í þessari álfu er víða mjög í skötulíki. Til dæmis má taka Kolumbíu þar sem herforingjar hafa ekki verið við völd síðan 1957. Þar er með reglubundnum hætti efnt til forsetakosninga, en öllu valdi er fyrirfram skipt milli tveggja borgaralegra flokka og eiga margir erfitt með að greina umtalsverð- an mun á milli þeirra. Enda hefur kosningaþátt- taka einatt farið undir fimmtíu prósent. Og þótt herinn haldi sig nokkuð baksviðis hefur hann mikil áhrif. í ýmsum héruðum er lýst neyðará- standi, ekki síst vegna pólitískrar ókyrrðar, og þar fer herinn í raun og veru með öll völd. Og þar eru framin mannréttindabrot sem engu skárri eru en þau sem alræmd herforingjastjórn í Arg- entínu stundaði þar til henni var sópað frá völd- um í hitteðfyrra. í Mexíkó hefur sami flokkur einokað ríkisvald- ið allar götur frá 1929 - enda heitir hinn ríkjandi flokkur því undarleg nafni Stofnsetti byltingar- flokkurinn. En þareru haldnarkosningarsvo að ytri formum lýðræðis telst vera fullnægt. Engu að síður er ástæða til að fagna því, að herstjórar gerast úr heimi hallir: þeim fylgir ein- att sú grimmdarkúgun, sem treystir á mannrán, pyntingar og fleira djöfullegt. Hin lýðræðislegu form gætu orðið vísir að betra þjóðfélagi. Það er hinsvegar enganveginn tryggt, að sú þróun haldi áfram. Lönd Rómönsku Ameríku skulda samtals um 400 miljarði dollara. Flest lönd eru svo illa sett að afborganir og vextir gleypa meira en helming útflutningsteknanna. Þetta þýðir að enn minna svigrúm verður en ella til innri upp- byggingar og kjarabóta. Og skilmálar erlendra ilánadrottna koma jafn verst niðurá þeim fátæk- justu í þessum löndum. Ríkisstjórnirnar verða æ jháðari Alþjóða gjaldeyrissjóðnum út á við og herforingjunum heima fyrir og mun háðari þess- um aðilum en þeim kjósendum sem kusu þærtil valda. Það er því bæði freisting og möguleiki sem sjaldan er skammt undan í löndum að kippa kjósendum aftur úr sambandi. Og enn mjög langt í land með að almenningur í þessum löndum njóti einhverra þeirra áhrifa, sem setja stórt strik í reikninga hinna gráðugu og grimmu yfirstétta álfunnar. -áb Ó-ÁLÍT svo þarf ekki annað en að ýta á annan takka, og þá gengur KAPTEINN SAMVISKA endanlega frá Ijóta kallinum." njðmnuiNN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Utg«fandl: Útgáfufélag Þjóðviljans. Rft*tjórar: Ámi Bergmann, össur Skarphóðinsson. Rft*tjóm*rfulltrul: Oskar Guðmundsson. Fréttástfórl: Valþór Hlóðversson. Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Guðjón Friðriksson, Jóna Pólsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir). yósmyndlr: Atli Arason, Einar Karlsson. Utllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrtta- og prófarkalostur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvaomdastjóri. Guðrún Guðmundsdóttir. Skrff*tofu*tjórl: Jóhannes Harðarson. Auglýslngastjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgrelðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmœður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð. Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðvlljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 30 kr. Sunnudagsverð: 35 kr. Áskriftarverð á mánuði: 330 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. febrúar 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.