Þjóðviljinn - 02.02.1985, Síða 2
FRETTIR
Landsvirkjun
Díselkeyrslan óhagkvæm
Halldór Jónatansson: Höfum mótmœlt aðferðum Rarik.
Gjaldskráin í endurskoðun
Vegna fréttar í Þjóðviljanum í
dag um keyrslu Rafmagns-
veitna ríkisins á dísilstöðvum til
lækkunar á álagstoppum leyfi ég
mér að fara þess á leit að blaðið
birti eftirfarandi athugasemd í
blaðinu á morgun:
í Þjóðviljanum í dag er birt
frétt þess efnis að Rafmagns-
veitur ríkisins noti dísilvélar til
framleiðslu rafmagns í stað þess
að kaupa rafmagn frá Lands-
virkjun. Það er rétt að Rafmagns-
veiturnar hafa notað dísilvélar
sínar lítillega s.l. mánuði til að
lækka álagstoppa í viðskiptum
við Landsvirkjun. Landsvirkjun
hefur mótmælt þessari notkun
Rafmagnsveitnanna á varastöðv-
um sínum sem þjóðhagslega
Díselkeyrslan
Víst komið
til góða
Guðmundur
Guðmundsson
Rarik: Þetta hefur
verið okkar hagur
„Við erum alveg klárir á því að
þessi keyrsla á díselvélunum hef-
ur verið okkar hagur, enda vær-
um við ekki að því að öðrum
kosti“, sagði Guðmundur Guð-
mundsson verkfræðingur hjá
RARIK er Þjóðviljinn bar undir
hann þau ummæli í athugasemd
Halldórs Jónatanssonar forstjóra
Landsvirkjunar að enginn vissi
fyrr en árið er á enda hvort dís-
elkeyrslan kemur Rafmagns-
veitunum til góða.
„Ég mótmæli því algerlega að
þessi díselkeyrsla hafi ekki komið
Rafmagnsveitunum til góða“,
sagði Guðmundur. -Jg.
Landbúnaður
Ráðunauta-
fundur
Hinn árlegi ráðunautafundur
Búnaðarfélags íslands og
Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins verður í Bændahöllinni
4.-8. febrúar n.k.
Á fundinum verða flutt 40-50
erindi og teknir fyrír flestir þættir
landbúnaðarins. í 16 erindum
verður fjallað um hinar svo-
nefndu „vaxtarbúgreinar“,
(aukabúgreinar): kanínurækt,
fiskeldi, svína- og alifuglarækt og
hlunnindi. Gert er ráð fyrir að
þátttakendur í fundinum verði
um 100. -mhg
Náttúruverndarráð
Ráðherra
brýtur lög
1 ályktun sem Náttúruverndar-
ráð samþykkti í gær segir að
ráðið líti svo á að það hafi tví-
mælalaust heimild til að banna
hvers konar umsvif við Mývatn
og Laxá samkvæmt verndunar-
lögum um svæðið.
Ráðið telur að iðnaðarráð-
herra hafi með Ieyfi sínu til kísil-
gúrnáms „faríð út fyrir sitt vald-
svið“, og er Náttúruverndarráð
„staðráðið í því að láta reyna á
það hvort umrætt leyfi fái staðist
að lögum“. -m
óhagkvæmri ráðstöfun, sem eng-
inn veit heldur fyrr en árið er á
enda hvort kemur Ragmagns-
veitunum til góða í uppgjöri á raf-
magnskaupunum.
Af framangreindum ástæðum
óskaði Landsvirkjun eftir fundi í
iðnaðarráðuneytinu til að fjalla
um þetta mál og var sá fundur
haldinn í gær ásamt fulltrúum
Rafmagnsveitna ríkisins. Á fund-
inum varð að samkomulagi milli
Landsvirkjunar og Rafmagns-
veitnanna að leitað yrði ráða til
að bæta samrekstur stöðva fyrir-
tækjanna og koma í veg fyrir
aukakostnað Rafmagnsveitn-
anna af því að þurfa að framleiða
rafmagn með dísilvélum þegar
flutningskerfi þeirra getur ekki
annað flutningi rafmagns frá
Landsvirkjun. Jafnframt féllust
Rafmagnsveiturnar á að hætta
framleiðslu rafmagns með dísil-
vélum sínum til lækkunar álag-
stoppa.
Varðandi gjaldskrá Lands-
virkjunar skal tekið fram, að á
s.l. sumri var hafin endurskoðun
hennar m.a. með tilliti til vægis
milli aflgjalds og orkugjalds. Er
stefnt að því að endurskoðun
þessari ljúki fyrir lok þessa árs.
Virðingarfyllst
Halldór Jónatansson
forstjóri
Ég er nú farinn að halda að inn-
flutningur borgi sig.
Fertugsafmæli Reykjalundar var haldið hátíðlegt í gær. Fyrir 40 árum hófst á Reykjalundi
starfsemi fyrir berklasjúklinga. Nú er þar alhliða sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun. Eftir hátíðasamkomu á
Reykjalundi ígærhittum viðþettalífsglaða fólkísundi. Þau heitafrá vinstri: Elín Sigurbergsdóttir, Jóhanna
Þórólfsdóttir, Þóra Þorvarðardóttir, Guðmundur Guðmundsson, María Guðmundsdóttir, Anton Ármannson
og Guðmundur Jónasson. Við hittum fjölda annarra vistmanna og starfsmanna á vinnuheimilinu og segjum
frá því í mannlífi í næstu viku. Mynd -eik.
Skyldusparnaðurinn
Mun meira fer út en inn
82 miljón kr. halli á liðnu ári. Innheimtan ígóðu lagi
en undanþáguheimildir nýttar tilfullnustu
Astæðan fyrir þessum mikla
halla á skyldusparnaðar-
reikningnum á síðasta ári er ein-
faldlega sú að undanþáguheim-
ildir samkvæmt lögum eru svo
margvíslegar að þær gefa því
fólki sem vill ná sínu út aftur góða
möguleika til þess, sagði Jens Sö-
rensen deildarstjóri hjá Veðdeild
Landsbankans í samtali við Þjóð-
viljann.
Eins og skýrt var frá í blaðinu í
gær varð hallinn á skyldusparn-
aðarreikningi Húsnæðisstofnun-
ar 82 miljónir á liðnu ári en
stjórnvöld höfðu upphaflega
reiknað með að skyldusparnað-
urinn gæfi af sér 45 miljónir í
húsnæðissjóði landsmanna.
Aðspurður hvort ástæðan fyrir
þessum mikla halla væri sú að
skyldusparnaðurinn skilaði sér
ekki til veðdeildar, sagði Jens að
svo væri ekki. Nýlega hefði verið
gerð könnun á innheimtunni og
hún komið jafnvel betur út en
menn áttu von á. „Ég held að
skýringarinnar sé ekki að leita
þar, heldur að það er alltof
auðvelt að ná þessum peningum
aftur út“, sagði Jens.
-Jfi-
BJ
Landsfundur
um helgina
Landsfundur Bandalags jafn-
aðarmanna stendur um þessa
helgi. Fundurinn var settur á
Hótel Loftleiðum kl. 21 í gær-
kvöldi og sátu þingmenn banda-
lagsins fyrir svörum.
f dag eru stjórnmálaumræður í
þremur „málstofum", sem af-
markast af málaflokkum. Einnig
verða frjálsar umræður „á kass-
anum“ í klukkutíma. Á morgun,
sunnudaginn, verða skipulags-
mál og stjórnmálaályktun af-
greidd. Áætlað fundinum verði
slitið kl. 16.00. -óg
Kísiliðjan
Öll kurl ekki komin til grafar
Þorgrímur Starri: Hver vill bera ábyrgð á að kippa
lífríkinu til baka um 2000 ár?
Fyrst af öllu vil ég leiðrétta það,
sem stendur í Þjóðviljanum í
gær, að iðnaðarráðherra hafi
ákveðið að veita Kísilgúrverk-
smiðjunni við Mývatn 10 ára
starfsleyfi. Hið rétta er að ieyfið
hljóðar upp á 15 ár, sagði Þor-
grímur Starri er blaðið hafði
samband við hann í gær.
- Égvillíkaaðþaðkomitram,
að það eru ekki bara landeigend-
ur hér, sem hlut eiga að undir-
skriftunum undir það mótmæla-
skjal, sem sent var iðnaðarráð-
herra, heldur og aðrir heimilis-
menn. Og því fer fjarri að öll kurl
komi þarna til grafar því þessum
undirskriftum var safnað á einni
dagstund.
Það, sem hratt þessum undir-
skriftum af stað var, að hrepps-
nefnd Skútustaðahrepps sendi
iðnaðarráðherra einskonar bæn-
arskrá þar sem beðið var um „í
það minnsta 15 ára leyfi“, fyrir
verksmiðjuna. En 15 ára leyfi
þýðir það, að ytri flóinn í vatninu
nægir ekki og þá verður farið í
syðri flóann, sem er stærsti hluti
vatnsins og mun dýpri. Og það er
alveg ljóst, að ef farið verður að
herja á setlögin í syðri flóanum
verður lífríki Mývatns kippt til
baka um 2000 ár eða meir. Hver
vill bera ábyrgð á því athæfi?
spurði Þorgrímur Starri. -mhg
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. febrúar 1985