Þjóðviljinn - 21.02.1985, Qupperneq 1
AWINNUUF
ÞJÓÐMÁL
SUÐURLAND
HEIMURINN
S jómannadeilan
Atvinnulíf að stöðvast
Áhrifa sjómannaverkfallsins fer að gœta affullum krafti um eða eftir helgina
Ljóst er að atvinnulífið úti á landi lamast algerlega um eða
strax uppúr næstu helgi vegna sjómannaverkfallsins.
Síðustu fiskiskipin eru væntanleg að landi í dag og á morg-
un og sumsstaðar getur sá afli sem berst að landi enst í
vinnslu rétt fram yfir helgina, annarsstaðar mun atvinnu-
lífið lamast fyrr.
Jóhanna Friðriksdóttir formaður Verkakvennafél. Snót
í Vestmannaeyjum sagði að atvinnurekendur hefðu ætlað
að segja kauptryggingu verkafólks í fiskvinnslu upp nk.
föstudag en ljóst væri að það gæti breyst. Hún sagðist eiga
von á því að vinna héldist í fiskvinnslunni í Eyjum fram í
byrjun næstu viku.
Vetrarvertíð er nú sem kunnugt er í fullum gangi, um
það bil 100 þúsund lestir eru óveiddar af loðnukvótanum
og hver dagur dýrmætur til þeirra veiða nú þegar hrygning
loðnunnar nálgast. Hann er því þjóðarbúinu dýr hver dag-
urinn, sem útgerðarmenn neita að semja við sjómenn og
halda flotanum í landi.
-S.dór
Sjá bls. 4, 5, 6 og 24
Kœrumál
Neitar
að gefa
skýrslu
Ingibjörg Hafstað:
mun ekki gefa skýrslu
vegna kœru Páls
Magnússonar fyrr en
úttekt hefur verið
gerð á umfjöllun
Sjónvarpsins um störf
Alþingis
Ingibjörg Hafstað fulltrúi
Kvennaiistans í útvarpsráði
hefur neitað að gefa skýrslu hjá
Rannsóknarlögreglunni vegna
kæru Páls Magnússonar frétta-
manns hjá Sjónvarpinu á hendur
henni. Segist Ingibjörg ekki geta
gefið skýrslu fyrr en búið sé að
gera úttekt á umfjöllun Sjón-
varpsins um störf Alþingis eins og
hún krafðist í ráðinu.
III MT%W% A | í gær var öskudagurinn og mikið um dýrðir hjá yngstu kynslóðinni.
fl/i m Kötturinn sleginn úr tunnunni á barnaheimilinu Ósi í gær. Kattarkóngurinn sýnir tunnubúann til vinstri. (E.OL).
Ingibjörg gerði kröfu um þessa
úttekt í haust og lét við það tæki-
færi þau orð falla að í umfjöllun
Sjónvarpsins um störf Alþingis
væri 3. gr. útvarpslaganna, þ.e.
hlutleysisreglan, brotin. Páll
Magnússon þingfréttamaður tók
þessi orð óstinnt upp og kærði
Ingibjörgu fyrir brot á 108. gr.
almennra hegningarlaga þar sem
kveðið er á um allt að þriggja ára
fangelsi fyrir hvern þann sem
„hefur í frammi skammar-
yrði... móðganir... eða ærumeið-
andi aðdróttanir við opinber-
an starfsmann, þegar hann er að
gegna skyldustarfi sínu...“.
Kæran var send ríkissaksókn-
ara sem sendi hana áfram til
RLR. Síðan hefur Ingibjörg þrí-
vegis verið kvödd til yfirheyrslu,
en hún segist ekki geta gefið
skýrslu fyrr en áðurnefnd úttekt
liggi fyrir.
- Það nýjasta sem ég hef frétt af
málinu er að fyrrverandi útvarps-
stjóri sagði að úttektin hefði ekki
verið hafin þegar hann lét af
störfum um áramót, sagði Ingi-
björg. Þjóðviljinn innti núver-
andi útvarpsstjóra eftir úttekt-
inni. Hann kvaðst ekki hafa feng-
ið neinar niðurstöður en ætlaði
að kanna málið hjá starfsmönn-
um Sjónvarpsins.
-ÞH
Borgin
Flytjum Reykjavíkurflugvöll
Tillaga AB í borgarstjórn í kvöld. Sigurjón Pétursson:
Rétt og skynsamlegt að flytja flugvöllinn
Við teljum að ef annað flugvall-
arstæði finnst í nágrenni
borgarinnar eða ef hægt er að
koma á fót nógu greiðfæru sam-
göngukerfi við Keflavík, þá sé
rétt og skynsamlegt að flytja fiug-
völlinn, sagði Sigurjón Pétursson
í gær.
Tillagan er svohljóðandi:
„Borgarstjórn samþykkir að gerð
verði ýtarleg könnun á mögu-
leikum á nýju flugvallarstæði
fyrir innanlandsflug í nágrenni
borgarinnar. Leitað verði sam-
starfs við samgönguráðuneytið
og flugmálayfirvöld og könnun-
inni hraðað svo sem unnt er.
Jafnframt verði kannaðir kostir
og gallar þess að flytja innan-
landsflugið til Keflavíkurflugvall-
ar með hraðsamgöngum við um-
ferðarmiðstöð í Reykjavík."
-ÁI
Akranes
Krabbavinnsla í undirbúningi
Nýtt fyrirtœki œtlar að hefja vinnslu á trjónukrabba og beitukóngi
Á fundi borgarstjórnar í kvöld
verður fjallað um tillögu AB um
ýtarlega könnun á nýju flugvall-
arstæði í nágrenni Reykjavíkur
og sagði Sigurjón að tillagan væri
flutt þar sem fram væri komin
skipulagstillaga frá flugmála-
stjórn sem gerir ráð fyrir að
lengja flugbrautir á Reykjavík-
urflugvelli og reisa þar varan-
legar byggingar. „Áður en í slíkt
er ráðist er nauðsynlegt að taka
ákvörðun um hvort flugvöllurinn
á að vera þarna til frambúðar eða
ekki,“ sagði Sigurjón.
AAkranesi er verið að stofna
fyrirtæki, Sjávarréttagerðina
sf. og er ætlun þess að vinna
trjónukrabba og beitukóng, en
þessar tegundir eru í hópi ófríðra
sjávardýra og því ekki verið tal-
inn mannamatur á íslandi til
þessa. Frá þessu er skýrt í Bæjar-
blaðinu á Akranesi.
Hér er um mjög athyglisverða
tilraun að ræða, þar sem krabbar
eru einhver dýrasti og eftirsótt-
asti matur sem til er víðast hvar
um heiminn. Mikið er af þessum
krabbategundum nærri Akra-
nesi, og má sem dæmi nefna að
þessar tegundir angra mjög
hrognkelsveiðimenn, því óhemja
af þessu kröbbum kemur í net
þeirra og veldur tjóni.
Ljóst er að íslendingar eru nú
að vakna til vitundar um þær fjöl-
mörgu sjávardýrategundir sem til
þessa hafa ekki verið taldar
mannamatur hér á landi, en ann-
arsstaðar lostæti.
-S.dór