Þjóðviljinn - 21.02.1985, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 21.02.1985, Blaðsíða 15
SUÐURLAND Nýtt íþróttahús fullkláraö í Hverageröi „Kvörtum ekki undan áhugaleysi“ segir Kjartan Kjartansson íþróttakennari og húsvörður „Þa3 eru ekki undir 130 manns sem stunda badminton reglulega hérna í bænum en það er um 10% af bæjarbúum. Það segir sína sðgu um áhugann“, sagði Kjartan Kjartansson íþróttakennari og húsvörður í nýja íþróttahúsinu í Hveragerði. Jú vissulega er ekki útí bláinn að tala um nýtt íþróttahús, því þótt húsið hafi að hluta til verið í notkun frá árinu 1978, komst það ekki í fullnaðarstærð fyrr en í des- ember sl. þegar síðari áfanginn var kláraður og hsuið var endan- lega vígt með mikilli viðhöfn. * Það vakti athygli blaðamanna sem litu við í íþróttahúsinu eitt síðdegið fyrir skömmu að þangað lá straumur barna og unglinga með badmintonspaða í höndum. Inni í húsinu var spilað á öllum völlum og Kjartan gekk á milli og Það var fríður hópur íþróttafólks sem gaf sér tíma til að stilla sér upp fyrir myndatöku í hinu glæsilega íþróttahúsi í Hveragerði. Mynd: eik. leiðbeindi jafnt byrjendum sem og þeim sem lengra voru komnir í íþróttinni. „Ungmennafélag Hveragerðis og Ölfuss stendur fyrir íþrótta- starfi hér og við höfum ekki þurft að kvarta undan áhugaleysi. í badmintoni er fólk á öllum aldri, börn og uppí fimmtugt og húsið er fullbókað fram að miðnætti á hverju kvöldi. Þetta hefur verið geysimikil upplyfting fyrir allt íþróttalíf í bænum að fá þetta hús í gagnið,“ sagði Kjartan. ->g- Þorlákur Björnsson: ... þegar hann stoltur heim í hlað... Mynd: eik. Þorlákur Björnsson fer með vísur „Ásetan er mjúk og mild“ „Þið verðið að spjalla aðeins við hann Þorlák, hann er svo tjandi hress enda er ég viss um að hann mun lifa þrjár aldir“, sagði Sævar bakari þegar hann vísaði okkur inn á kaffistofuna. Jú, mikið rétt, þar sat öldun- gurinn og saug í nösina. Einn af fastagestunum í bakaríinu og hef- ur alltaf frá einhverju skemmti- legu að segja. Þorlákur Björnsson landsþekkt- ur hestamaður hefur nú búið á Selfossi um árabil og þar kann hann vel við sig. Hann fæddist að Varmá í Mosfellssveit árið 1899 og fór snemma á sjóinn. Reri á vertíð frá Eyjum og var um tíma á þýskum togurum. „Nei, við skulum ekkert vera að ræða þá tíma en ég skal fara með fyrir ykkur hestavísu". Ásetan er mjúk og mild, mörgum svanna á beði skyld. Miðlar hann af hreinni snilld, hverjum manni eftir vild. Þessi er eftir Pál á Hjálmsstöð- um í Laugardal. - Já, þú ert mikill hestamaður. Þeir segja hérna að þú hafir átt einn frægasta klár síns tíma, sjálf- an Sindra, sem Hestamannafé- lagið í Vík er kennt við? „Jú, það var góður hestur. Hann Haraldur læknir orti þessa vísu á fimmtugsafmælinu mínu en þá var Sindri nýlega fallinn: I huganum ég horfi á það, af hrifni augun tindra, þegar hann stoltur heim í hlað, hleypir næsta Sindra. Sindri er heygður í Eyhólum en Þorlákur fluttur uppá Selfoss. Þar er enginn Sindri, en hægt að spjalla í staðinn við hressa bakara í morgunsárið. -lg 1 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 I Luxor Litasjónvörp SHARP • Hljómtækja- • Örbylgjuofnar • Ferðatæki samstæður • Litasjónvörp • Videotæki flD PIONEER Hljómtækja- samstæður MM BÚÐIN Eyrarvegi 1 Selfossi Sími (99)-1131

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.