Þjóðviljinn - 21.02.1985, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 21.02.1985, Blaðsíða 14
Hestöfl sem um munar RACINGMINERAL Hestamenn Vorum aö fá hina viðurkenndu EVOS-RACING vitamin- og steinefnablöndu í 20 kg sekkjum G UÐBJÖRN GUÐJÓNSSON SUÐURLAND HEILDVERZLUN P. O. Box 1003 - Reykjavík Þrátt fyrir endurnýjaðan tækjakost fékk þessi gamla tvíbökuskurðarvél að fylgja með í flutningunum, enda segir Sævar yfirbakari að hún standi fyllilega fyrir sínu og meira en það. Mynd: eik. ORMSSON HF. LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820 AEG ALVEG EINSTÖK GÆÐI AEG RYKSUGAN ER ALLTAF TIL í SLAGINN AEG ryksugan er hörkudugleg heimilishjálp. Rafeindastýrð og 1000 watta. Verðið er ótrúlegt. Frá kr. 5.987.- Brauðgerð KÁ í nýju húsnæði með endurnýjaðan tækjakost „Bylting frá því sem áður var“ segir Sævar Ástráðsson bakarameistari Nú er rétt ár liðið síðan Brauð- gerð Kaupfélags Árnesinga flutti úr gamla húsinu við Eyrarveg í nýtt og endurbætt húsnæði á bak við gamla Kaupfélagshúsið við Austurveg. Samhliða flutning- num voru nær öll tæki brauðgerðarinnar endurnýjuð og m.a. keyptur nýr plötuofn og tveir stikkofnar auk brauðasam- stæðu. Vegna þess aö Kaupfélagsbak- aríið á Selfossi er undirrituðum náskylt var ekki um annað að ræða en líta við í nýju húsakynn- unum þegar við vorum þar á ferð- inni á dögunum og heilsa uppá Sævar Ástráðsson yfirbakara og annað starfsfólk. Markaðssvæði brauðgerðar- innar er mjög víðfemt, nær allt frá Þorlákshöfn austur á Hvols- völl auk uppsveita. Þá eru einnig flutt einu sinni í viku glóðvolg brauð úr bakaríinu til Þingeyrar. „Þetta er allt að fara á fulla ferð núna þegar vertíðin byrjar. Þá eykst mjög brauðsalan niður í sjávarplássin,“ segir Sævar, en alls eru að hans sögn bökuð á milli 800-1000 brauð daglega. Alls vinna 10 starfsmenn í bakarínu, tveir bakarar, einn lær- lingur og sjö aðstoðarmenn. Þegar við litum inn skömmu eftir kl. 10 um morguninn var vinnudagurinn langt liðinn hjá starfsfólkinu. „Við byrjum klukkan þrjú á nóttinni aliir bakaramir og klukkan fimm koma tvær stúlkur til aðstoðar. Það vilja allir fá rjúkandi brauð í morgunsárið og við þurfum því að vera búin með allan brauð- baksturinn klukkan átta á mor- gnana þegar bílarnir koma úr pakkhúsinu", segir Sævar. Þegar bakaríið flutti um set fyrir ári var verslunin lögð niður en vörurnar settar upp í nýju kaupfélagsversiuninni. „Draumurinn er að fá sérstaka brauðverslun í nýja vöruhúsinu og það er nú á umræðustigi. Við erum mjög ánægð með aðstöð- una héma, þetta er í raun bylting frá því sem áður var“, segir bak- arameistarinn og býður síðan ferðalöngum upþá kaffi og ný- bökuð vínarbrauð. -Ig- Gnúpverjahreppur Fimmtíu heimili með hitaveitu í Gnjúpverjahreppi hefur ver- ið unnið að því að leggja hita- veitulagnir frá Þjórsárholti á 30 bæi í sveitinni og var vatni hleypt á fyrstu húsin eftir miðjan nóv- ember. í Þjórsárholti hefur verið hitað upp með jarðhita í hálfa öld, en árið 1980 var borað þar og fengust þá 30-40 sekúndulítrar af 66° heitu vatni, og var þá fljótlega lögð hitaveita að Árnesi og hús- um í næsta nágrenni. Nýja veitukerfið er 32 km á lengd og losar áætlaður kostnað- ur 16 miljónir króna. Vatns- magnið er um 18 sekúndulítrar. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN 1 Flmmtuda9ur 21 ’ febrúar 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.