Þjóðviljinn - 21.02.1985, Blaðsíða 23
OL 1992
Áhugi í
London
Thatcher spennt
fyrir gróðanum
Borgarstjórn London íhugar
nú gaumgæfilega að sækja um að
fá að halda Ólympíuleikana eftir
sjö ár, 1992. Ákvörðun þar að
lútandi verður tekin fljótlega en
þegar hafa sex borgir sótt um að
fá leikana, þar á meðal París og
Barcelona.
Margrét Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, hefur fengið
mikinn áhuga á málinu. Sá áhugi
er ekki íþróttalegs eðlis, heldur
sér hún í leikunum mögulega
gróðalind og bendir á hinn mikla
hagnað sem varð af Ólympíuleik-
unum í Los Angeles sl. sumar og
rann allur í botnlausa vasa
Bandaríkjamanna.
___________________-VS
England
Robson
ekki með
Það verður ekkert af því að Bryan
Robson, fyrirliði Manchester United
og enska landsliðsins, leiki með Man.
Utd gegn Arsenal á laugardaginn og
með Englandi gegn N.írlandi á mið-
vikudaginn kemur, eins og vonir voru
bundnar við. Hann meiddist á ökkla á
æflngu í fyrrakvöld en hann var að ná
sér eftir meiðsli á öxl sem hann varð
fyrir í síðasta mánuði.
/ kvöld
ÍS-Valur
Einn leikur fer fram í úrvalsdetlinni
í körfuknattleik í kvöld. ÍS og Valur
leika í íþróttahúsi Kennaraháskólans
og hefst leikurinn kl. 20.15.
Fimleikar
Unglingamót
um helgina
Unglingamót FSÍ verður hald-
ið í Laugardalshöll næstkomandi
laugardag, 23. febrúar. Mótið fer
fram í tveimur hópum, fyrri hóp-
urinn hefur keppni kl. 13.30 en sá
síðari kl. 16. Keppt verður eftir
íslenskum fimleikastiga og er það
í fyrsta sinn á mótum FSI.
B-keppnin
Norðmenn
úr leik?
B-keppnin í handknattleik
hófst í Noregi í fyrradag. Ekkert
var um óvænt úrslit á fyrsta
leikdegi - markverðast gerðist að
Norðmenn töpuðu 17-16 fyrir
Spánverjum og eiga því sáralitla
möguleika á að ná einu af efstu
sætunum sex og þar með sæti í
A-kcppninni.
Úrslit urðu þessi:
A-rlðill
Spánn-Noregur.................... 17-16
Tékkóslóvakía-ltalía..............26-15
B-riöill
Frakkland-Kongó...................34-16
Sovétríkin-Finnland...............30-19
C-rlðill:
Búlgaría-Kuwait....................21-11
A. Pýskaland-Holland...............25-11
D-riðill:
Ungverjaland-USA...................19-13
Pólland-lsrael.....................30-16
ÍÞRÓTTIR
Þessi stóri hópur var i gærkvöldi sérstaklega heiðraður af Kópavogsbæ fyrir unnin íþróttaafrek á síðasta ári. Þarna er að
finna fólk úr fjölmörgum íþróttagreinum en Kópavogsbúar náðu víða góðum árangri á árinu 1984. Mynd: EÓI.
England
Engin grið á Anfield
Liverpool vann York 7:0. Wark með þrennu.
Snarlegur endir var bundinn á
sigurgöngu 3. deildarliðsins York
City í ensku bikarkeppninni í
knattspyrnu í gærkvöldi. York
sótti þá heim Englands- og Evr-
ópumeistara Liverpool á Anfield
Road en eins og menn muna
skildu liðin jöfn í York á laugar-
daginn, 1:1. Nú gáfu meistararnir
Þýðingarmikill leikur í 1. deild
karla í handknattleik fer fram í
Laugardalshöllinni í kvöld. Vík-
ingur og Valur eigast þar við og
hefst leikurinn kl. 20. Víkingar
þurfa á sigri að halda til að
styrkja stöðu sína í efri hluta
deildarinnar og Valur má ekki við
því að tapa fleiri stigum til að
heltast ekki úr lcstinni í barátt-
engin grið og gjörsigruðu Jórvík-
inga, 7:0.
Liverpool sýndi snilldarknatt-
spyrnu í gærkvöldi og fá lið hefðu
staðist slíkt. Kenny Dalglish, Ian
Rush, John Wark og Ronnie
Whelan voru hver öðrum betri en
sá skuggi féll á stórsigurinn að
unni um meistaratitilinn.
Á eftir þessum leik, kl. 21.15,
leikur b-lið Valsmanna, einnig
nefnt „landslið Vals“, gegn 1.
deildarliði Breiðabliks í bikar-
keppninni. Gömlu Valsararnir
sigruðu Akurnesinga í 1. umferð
og fróðlegt verður að sjá hvernig
þeim vegnar gegn botnliði 1.
deildarinnar.
þeir Rush og Alan Hansen
meiddust báðir í leiknum.
Fyrsta markið kom eftir 15
mínútur. Wark sendi fyrir mark
York og Whelan afgreiddi bolt-
ann í netið. Á 28. mínútu skoraði
Wark sjálfur með þrumuskoti,
2:0 í hálfleik. Whelan skoraði
með enn kraftmeira skoti á 55.
mínútu og þar með var hetjuleg
barátta leikmanna York endan-
lega úr sögunni. Wark skallaði í
netið, 4:0, og síðan var komið að
bakverðinum kunna, Phil Neal,
að skora, 5:0, en hann varð ein-
mitt 34 ára í gær. Wark skoraði
sitt þriðja mark, 6:0, og lokaorð-
ið átti Paul Walsh, 7:0. Liverpool
leikur á útivelli gegn Southamp-
ton eða Barnsley í 6. umferð.
Þetta var eini leikurinn í Eng-
landi í gærkvöldi, öðrum var
frestað vegna slæmra skilyrða,
þar á meðal leik Chelsea og
Sunderland í undanúrslitum
Mjólkurbikarsins.
- VS
í kvöld
Víkingur-Valur
Bikarinn
Þrífram-
lengt í
Keflavík
67 mörk í Sandgerði
Fylkismenn þurftu þrjár fram-
lengingar til að sigrast á 3.
deildarliði ÍBK í bikarkeppni HSÍ
í Keflavík í gærkvöldi. ÍBK leiddi
13-9 í hálfleik en staðan að lokn-
um venjulegum leiktíma var 20-
20. Þá var framlengt og ekki feng-
ust úrslit, áfram jafnt, nú 22-22.
Aftur framlengt og þá jafnaði
Fylkir þegar 10 sek. voru eftir,
25-25. Þegar 10 sek. voru eftir af
þriðju framlengingu og staðan
var 27-26 fyrir Fylki fékk ÍBK vít-
akast, en Jóni Olsen brást boga-
listin og Fylkir hrósaði sigri og
sæti í 8-liða úrslitunum. Gunnar
Baldursson skoraði 8 mörk fyrir
Fylki, Jón Levy 5, Kristinn Sig-
urðsson og Einar Einarsson 4
hvor. Einvarður Jóhannsson og
Freyr Sverrisson gerðu 6 mörk
hvor fyrir IBK, Einar Sigurpáls-
son 5 og Sigurður Björgvinsson 4.
I Sandgerði unnu Þróttarar
sigur á 3. deildarliði Reynis í
miklum markaleik, 35-32. Þrótt-
ur varyfiríhléi, 18-14, ognáði 12
marka forystu í seinni hálfleik en
Sandgerðingar löguðu mjög
stöðuna í lokin. Páll Ólafsson
skoraði 11 mörk fyrir Þrótt,
Sverrir Sverrisson og Konráð
Jónsson 7 hvor. Þórir Gíslason
skoraði 11 mörk fyrir Reyni og
Arinbjörn Þórhailsson 9.
-VS
Kastað upp
tvívegis
Kastað verður upp um a.m.k. tvo
leiki á getraunaseðiinum fyrir 26.
leikviku, nú á laugardaginn. Það eru
leikur nr. 3, Norwich-Sheff.Wcd. og
nr. 6, Watford-Ipswich. Þessum
leikjum hcfur verið frestað þar sem
Ipswich og Norwich leika á laugar-
daginn í undanúrslitum Mjólkurbik-
arsins. Síðan ráða veður og vindar
öllu um hvort kastað verður upp um
úrslit fleiri leikja.
EM 1988
Vafalítið í
V.-Þýskalandi
Vestur-Þjóðverjar standa lang-
best að vigi með að fá til sín úrslit í
Evrópukeppni landsliða árið
1988. Þann 15. mars mun fram-
kvæmdanefnd UEFA skera úr um
hvar leikið verður en þegar hefur
komið fram að henni líst best á
aðstæður í Vestur-Þýskalandi, að
sögn bresku útvarpsstöðvarinnar
BBC.
í V.-Þýskalandi eru margir frá-
bærir knattspyrnuvellir með
bestu hugsanlegri aðstöðu. Það
kom best í ljós þegar lokakeppni
HM var haldin þar í landi árið
1974 en hún tókst með afbrigðum
vel, ekki síst þar sem úrslitaleik-
urinn var leikinn á hinum glæsi-
lega Ólympíuleikvangi í Múnc-
hen.
Helstu keppinautar V. Þjóð-
verja hafa verið Englendingar
sem sóttu fast að fá keppnina til
sín. Þar vega þungt, Englending-
um í óhag, skrílslætin sem iðulega
eiga sér stað á knattspyrnu-
leikjum í landinu og margoft hafa
sett ljotan blett á enska knatt-
spyrnu.
Hollendingar sóttu einnig um
gestgjafahlutverkið en þeir höfðu
sjálfir takmarkaða trú að verða
fyrir valinu. UEFA lét kanna
velli í landinu fyrir skömmu og í
ljós kom að einungis tveir þeirra
uppfylltu allar kröfur, velli Ajax
og Feyenoord í Amsterdam og
Rotterdam.
Loks sóttu fjögur Norðurland-
anna, Danmörk, Svíþjóð, Finn-
land og Noregur, um að fá að
halda keppnina í sameiningu.
Ekkert fordæmi er fyrir slíkri um-
sókn og hún á fáa fylgismenn
utan þessarra landa. Þar er gert
ráð fyrir að leikið yrði í Stokk-
hólmi, Gautaborg, Malmö,
Kaupmannahöfn, Osló og Sta-
vangri og að úrslitaleikurinn færi
síðan fram á Ólympíuleikvanginn
í Finnlandi.
Vestur-Þjóðverjar eru sigur-
vissir í þessari baráttu og það er
nánast öruggt að þeir verða fyrir
valinu.
+ RAUÐI KROSS
ÍSLANDS
efnir til námskeiös fyrir fólk sem hefur hug á aö taka
að sér hjálparstörf erlendis á vegum félgsins.
Mámskeiöiö veröur haldiö í Munaðarnesi dagana
8.-14. apríl nk.
Umsækjendur þurfa aö uppfylla skilyröi sem sett
eru af Alþjóða rauða krossinum og RKÍ og eru m.a.:
1. Lágmarksaldur 25 ár.
2. Góö menntun.
3. Góð enskukunnátta.
4. Gott heilsufar.
5. Reglusemi.
6. Nauðsynlegt er aö geta farið til starfa meö stutt-
um fyrirvara ef til kemur.
Leiöbeinendur á námskeiðinu veröa frá Alþjóða-
sambandi rauða kross félaga, Alþjóöaráöi rauöa
krossinsog Rauðakrossi íslands. Kennslaferfram
á ensku.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu RKÍ aö Nóa-
túni 21. Þar eru einnig gefnar nánari upplýsingar,
sími 26722.
Námskeiðið er ókeypis en fæðis- og húsnæöis-
kostnaður er kr. 3000 sem þátttakendur greiða
sjálfir.
Umsóknum ber að skila fyrir 8. mars nk.
Rauði Krosslsiands
Fimmtudagur 21. febrúar 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 23