Þjóðviljinn - 21.02.1985, Qupperneq 24
ilsími: 81333. Kvöldsfmi: 81348. Helgarsími: 81663.
DJÓÐVIUINN
Fimmtudagur 21. febrúar 1985 43. tölublað 50. árgangur
Sjómannaverkfallið
Allur flotinn
á leið í land
Verkfallsbrot með vitund útgerðar-
manna stöðvuð. Skipstjórar hlýddu
skipun frá stéttarfélagi sínu um að
hœtta veiðum. LÍÚ braut gerða
samninga um veiðar í verkfalli
Igær varð ljóst að allur fiski-
skipaflotinn, sem enn var á sjó
þrátt fyrir verkfall, bæði undir og
yfirmanna, er hættur veiðum og á
leið í land og þar með er sjómann-
averkfallið orðið algert. Ástæða
þess að samninganefndir sjó-
manna í kjaradeilu þeirra ákvað
að kalla skipin inn var sú að LIU
braut gerða samninga um veiðar í
verkfalli og gerði ekkert í því þótt
skip héldu til veiða eftir að verk-
fallið var skollið á.
Samkvæmt samningum mega
skip ljúka veiðiferð í verkfalli en
ekki halda út til veiða, né breyta
um veiðiaðferð til dæmis úr dag-
róðrum yfir í útilegu þegar verk-
fall er að skella á eða eftir að það
er hafið. Þetta gerðist þó núna.
Útgerðarmenn sögðust ekkert
vita um málið, þeir hefðu engan
hvatt til verkfallsbrota. Það er
hinsvegar ljóst að enginn skip-
stjórnarmaður rær í óþökk út-
gerðarmanns, sagði Þórður
Sveinbjörnsson hjá Skipstjóra-
og stýrimannafélaginu Öldunni í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Þórður sagði ennfremur að
eftir að tilkynningin um að skipa
flotanum í land hafði verið gefin
út, var haft samband við þá skip-
stjóra sem voru á miðunum.
Tóku þeir allir sem einn vel í það
að sigla inn. _ s
Sjómannadeilan
Við hefðum
ekki talað við þá
Samningafundi sem halda átti í gœr
var frestað. Ekkert við útgerðar-
menn að tala meðan þeir brjóta
verkfallið
Síðustu loðnubröndunum landað, verkfall er hafið og verðmesti hluti loðnuaflans allur óveiddur, loðnan til frystingar.
(Ijósm. EÓI.)
Samningafundi sem halda átti í
sjómannadeilunni í gær var
frcstað þar til í dag. Ástæðan
skiptir ekki máli í sjálfu sér, við
hefðum ekki talað við útgerðar-
menn í dag á meðan þeir stunda
verkfallsbrot. Nú er flotinn allur
á leið í land og þá er hægt að hefja
viðræður á ný, sagði Þórður
Sveinbjörnsson hjá Öldunni í
samtali við Þjóðviljann.
Hafþór Rósmundsson hjá
Sjómannasambandinu sagði að
ýmis sérmál sjómanna á Vest-
fjörðum, sem ganga þyrfti betur
frá hefðu verið höfuð ástæðan
fyrir frestun fundarins í gær.
Hann sagði að varðandi kauplið
samninganna stæði allt jafn fast
og óhaggað og eftir tilboð samn-
inganefndar sjómanna um síð-
ustu helgi, útgerðarmenn hefðu
ekki hreyft sig.
Þórður Sveinbjörnsson sagði
útgerðarmenn ætíð gera saman-
burð á kauptryggingu sjómanna
og verkafólks í landi. Það væri
bæði óréttlátt og beinlínis rangt,
þar sem kauptrygging sjómanna
er greidd fyrir ómældan vinnu-
tíma. Vissulega væri krafan há ef
prósentureikningur væri notað-
ur, en í raun væri kauptryggingar-
hækkunin ekkert stórmál fyrir út-
gerðarmenn, því sem betur fer
næði stærsti hluti sjómanna hlut.
Kauptryggingin væri fyrst og
fremst til að tryggja sjómenn
gegn því að vinna kauplaust, þeg-
ar skipum er haldið úti í eða á
vonlausum veiðum.
- S.dór
Pjóðminjar
Kvikmyndir að skemmast
Margar myndir Óskars Gíslasonar aðeins í einu eintaki.
k að er búið að gera upp fjórar
r myndir Óskars Gíslasonar, en
jað er heilmikið eftir óunnið af
nyndum hans, sagði Erlendur
sveinsson hjá Kvikmyndasafn-
inu. Sjónvarpið sýndi í gær síðari
áluta heimildarmyndar sem Er-
lendur gerði um feril Óskars og
kom þar ma. fram að erfitt hefði
reynst að afla fjár til að bjarga
myndum Óskars frá skemmdum.
- Óskar sótti um fé úr Menn-
ingarsjóði árið 1975 til að láta
endurvinna myndir sínar en sjóð-
urinn hafði lítið fé til umráða og
treysti sér ekki til að sinna þessu
verkefni; hann styrkti eingöngu
nýjar kvikmyndir. Árið 1978 var
Kvikmyndasafnið stofnað og var
þá hafist handa við björgun
myndanna í samvinnu við Þjóð-
hátíðarsjóð sem styrkti verkefn-
ið. Nú er búið að bjarga Reykja-
víkurævintýri Bakkabræðra, Síð-
asta bænum í dalnum, Nýju hlut-
verki og myndinni um Lýðveldis-
hátíðina 1944, sagði Erlendur.
Það er meira verk en margur
heldur að bjarga gömlum mynd-
um frá skemmdum. Það þarf að
búa til negatífa filmu eftir frum-
myndinni og vinna hljóðið, ef
það er til staðar, upp af stálþræði
sem notaður var við hljóðupp-
tökur lengi framan af.
- Það er til mikið safn af
ísafjörður
Eldvamarhurðir í smíðum
Innkaupastofnun: Endurhœfingardeildin tilbúin mjög fljótlega
Það er verið að smíða eldvarn-
ar hurðir og ganga frá þessum
málum, sagði Skúli Guðmunds-
son forstöðumaður framkvæmd-
astofnunar Innkaupastofnunar
sem hefur umsjón með byggingu
Fjórðungssjúkrahússins á Isfirði.
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í
gær, hafa slökkviliðsstjórinn á
staðnum og byggingafulltrúinn
tilkynnt stjórn sjúkrahússins að
óheimilt sé að taka í notkun
endurhæfingadeild sem til stóð
að opna núna um miðjan þennan
mánuð. Er það vegna þess að
ekki hefur ennþá verið gerðar úr-
bætur á brunavörnum á
deildinni. Höfðu fulltrúi Bruna-
málastofnunar ríkisins og
slökkviliðsstjórinn á ísafirði gert
margvíslegar athugasemdir við
aðstæður og aðbúnað á deildinni,
en því hefur í engu verið sinnt.
-Ig-
Reykjavíkurmyndum eftir Óskar
sem ekki hafa verið hreyfðar,
margar þeirra þöglar. Við höfum
farið þess á leit við Reykjavíkur-
borg að hún keypti það sem ekki
væri búið að endurvinna og léti
gera það, en sú beiðni hefur enn
ekki hlotið fyrirgreiðslu. Safnið
hefur ekkert fé til ráðstöfunar í
þessu skyni. Á fjárlögum þessa
árs fær safnið 892 þúsund krónur
af fjárlögum en auk þess er okkur
ætlað að afla eigin tekna að upp-
hæð 248 þúsund. Mér er það hul-
in ráðgáta hvernig við eigum að
fara að því. Safnið hefur hálfan
starfsmann og þegar búið er að
greiða laun, húsaleigu og annan
fastakostnað er ekki mikið eftir.
- Er mikið til af myndum hér á
landi sem liggur undir skemmd-
um?
- Já, við erum með margar
myndir hér í safninu sem eru í
allskonar ásigkomulagi. Þar á
meðal eru litmyndir sem eru bók-
staflega að hverfa af filmunni.
Það er því full þörf á að gera átak
til að bjarga þessum myndum,
sagði Erlendur.
- ÞH