Þjóðviljinn - 27.02.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 27.02.1985, Blaðsíða 1
AWNNUUF MENNING Hvalveiðar Veiðibannið að bresta Bandaríkjamcnn hafa ákveðið að þeir muni ekki beita Japani efnahagslegum þvingunum þó þeir brjóti bann Alþjóða hval- vciðiráðsins við veiðum á búr- hveli og hrefnu. En refsiaðgerðir Bandaríkjamanna voru af vernd- unarsinnum taldar eina leiðin til að knýja Japani til að halda bann- ið og þarmeð að tryggja að bann við öllum hval veiðum taki gildi að loknu þessu ári. Samkvæmt ákvörðun Alþjóða hvalveiðiráðsins eiga allar veiðar á hvölum að hætta frá og með næsta ári. Mikil hvalfriðunaralda reis í Bandaríkjunum á sínum tíma sem lyktaði með því að sam- þykkt voru lög sem gáfu stjórnvöldum vald til að skera niður um helming fiskveiðikvóta í bandarískri landhelgi hjá þjóð- um sem hygðust halda upptekn- um hvalveiðum í blóra við bann- ið. Japanir veiða fisk í bandarískri landhelgi fyrir 500 miljónir doll- ara, og með því að beita þá ofan- greindunt lögum var talið að þeir myndu hlíta hvalveiðibanninu, annars ekki. Með hinum skjótu sinnaskiptum Bandaríkjanna er ljóst, að þeir munu stunda hval- veiðar enn um sinn. Talið er að Norðmenn og Sovétmenn muni fylgja í fótspor þeirra og þar með er mikil hætta á að bannið falli um sjálft sig. Að sögn breska blaðsins Observer telja bandarískir verndunarsinnar að stjórnvöldum sé skylt að framfyl- gja banninu og hafa dregið þau fyrir lög og dóm til að knýja á um beitingu refsiaðgerðanna. Japanir hyggjast láta kné fylgja kviði og hafa lagt til að fyrir- komulagi Alþjóðahvalveiðiráðs- ins verði breytt þannig að úr áhrifum verndunarsinna verði dregið, að því er Observer hermdi, en völd virkra hvalveiði- þjóða aukin. fslenskir embættismenn, sem haft var samband við, vissu lítið um ákvörðun bandarísku stjórnvaldanna og gátu ekkert um hana sagt síðdegis í gær. Japanir œtla ekki að hlíta hvalveiðibanni Alþjóða hvalveiðiráðsins. Leggja til að áhrifverndunarsinna í ráðinu verði minnkuð Bankaleynd Þótt sjávarútvegur á Suðurnesjum sé nú að veslast upp vegna fjármagnsskorts er ekki hægt að segja það sama um hernaðarfram- kvæmdir og framkvæmdir við flugstöðvarbyggingu á Keflavíkurflugyelli. Mynd þessi var tekin af framkvæmdum við flugstöðvarbygg inguna í fyrradag, en þar veröur unnið fyrir 271 miljón á þessu ári. Flugvélinsemflýguryfireraf gerðinni Orion^-3, enþaðeru þærvélar sem bera eiga kjarnorkudjúpsprengjurnar sem áformað er að flytja til Keflavíkur á hættutímum. Sjá fréttir af atvinnulífi á Suðurnesjum á bls. 3, 5 og 6. Ljósm.: E.ÓI. Blaðauki AB-fréttir Með Þjóðviljanum í dag fylgir sérstakur blaðauki sem Alþýðu- bandalagið gefur út og ncfnist AB-fréttir. Þar er að finna út- skýringar flokksins á því hvað sé að gerast í íslensku þjóðfélagi undir hægri stjórn og um leið bent á úrræði Alþýðubandalags- ins. Þar kemur m.a. fram að flokkurinn vill að vextir verði lækkaðir verulega, að skattar á skrifstofu- og verslunarhúsnæði hækki verulega, að bankar greiði hærri skatta og að gróði Seðla- bankans verði nýttur til að lækka fjármagnskostnað húsbyggjenda og atvinnuvega, að innflutnings- verslunin verði tekin til sérstakr- ar rannsóknar og að margháttað- ar kerílsbrey tingar verði gerðar á trygginga- og olíudreifingarkerfi. Sjá miðopnu Alþingi neitað um upplýsingar Ríkisbankarnir, jafnt og einka- bankar og sparisjóðir, neita að gefa alþingi tölulegar upplýs- ingar um stærstu útlán sín. Bera þeir við bankaleynd og trúnaði sem starfsmenn þess og stjórn- endur séu bundnir. Til harðra orðaskipta kom vegna þessa á al- þingi í gær þegar Matthías A. Mathiesen viðskiptaráðherra lagði blessun sína yfir þessa af- stöðu bankanna og kvaðst ekki sjá neitt athugavert við hana. Það var Jóhanna Sigurðardótt- ir sem spurði hver heildarfyrir- greiðsla viðskiptabanka og þriggja stærstu Sparisjóða hefði verið 1983 og 1984 til fimm stærstu lántakenda hvers banka. Viðskiptaráðherra las svör bank- anna sem öll voru á einn veg: Þeir telja sér ekki skylt eða fært að veita alþingi slíkar upplýsingar vegna trúnaðar við viðskipta- menn sína. Jóhanna Sigurðardóttir, Guð- rún Helgadóttir og Eiður Guðna- son mótmæltu þessum fyrirslætti harðlega. Guðrún lýsti því yfir að hún myndi ekki taka þátt í kjöri bankaráðsmanna oftar og alþingi ætti að leggja af þann sið að senda þingmenn inn í þessa frímúrara- reglu fjármálavaldsins. Bankaráðsmennirnir Valdi- mar Indriðason og Garðar Sigurðsson sneru bökum saman í þessari umræðu. Sagði Garðar fyrirspurnina bera vott um ómerkilega forvitni og Valdimar sagðist ekki vita til þess að hann hefði verið kosinn í bankaráð til að veita alþingi upplýsingar,- ÁI Sjá bls. 3 Blankheit Forsala á frumsyningu Fjársvelti íslenskra kvikmyndagerðarmanna tekur á sig ýmsar myndir. Yfirleitt reyna þeir þó að vera það stórir í sniðum að bjóða fullu húsi á frumsýningar mynda sinna. Blankheitin gera það hins vegar að verkum að íslenska kvikmyndasamsteypan hefur ákveðið að selja miða á frumsýningu myndarinnar Hringurinn sem verður á laugardaginn kemur kl. 16 í Háskólabíói. Mynd þessi er allnýstárleg því hún sýnir útsýnið úr bíl sem ekið er eftir hringveginum. Myndavélin er tölvustýrð og tekur mynd á 12 sekúndnafresti sem þýðir að hringferðin er farin á hljóðhraða. Forsala aðgöngumiða á frumsýningu Hringsins er hafin og á hún sér stað í Háskólabíói, Fálkanum og Gramminu við Laugaveg. í næstu viku kemur út hljómplata með tónlistinni úr myndinni en hún er eftir Lárus Grímsson. - ÞH

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.