Þjóðviljinn - 27.02.1985, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 27.02.1985, Blaðsíða 6
AWINNUUF Frá Ljósmæðraskóla íslands Kennsla hefst í Ljósmæðraskóla íslands 2. september 1985. Inntökuskilyrði eru próf í hjúkrunarfræði. Umsóknir sendist skólastjóra Ljósmæðraskóla ís- lands fyrir 1. júní nk. ásamt prófskírteinum og heilbrigðisvottorði. Umsóknareyðublöð fást í skólanum. Nánari upplýsingar eru veittar í skólanum á mánu- dögum frá kl. 9 - 16 og fimmtudögum kl. 13 - 16. Reykjavík, 15. febrúar 1985. Skólastjóri. 26. leikvika - leikir 23.2 1985 Vinningsröð: 22X-1 1 1-22X-XX1 1. vinningur: 12 réttir, kr. 131.965,- 976 38717(4/11) 42281(4/11) 2. vinningur: 11 réttir, kr. 3.029,- 221 11092 35716 42229 57583 87392 92946 227 19258 35721 45380 58524 87780(2/11)93482+ 1691 19285 36079 48638+ 62000+ 88381 95051 6621 35366 36340 49123+ 62839 88515 95375 6862 35624 38612 49153+ 85354 90166+ 9985 35708 39733 57092+ 87127 90504(2/11) 10844+ 35713 39833 57096+ 87390 90573 Kærufrestur er til 18. mars 1985 kl. 12.00 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsinc 'r um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. * GETRAUNIR - iþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK ATH:. 27. leikvika - 2. mars 1985 Leikurinn ARSENAL - WEST HAM hefst kl.11.30. Útfylltir seðlar verða að hafa borist fyrir þann tíma. GETRAUNIR 1X2 1X2 1X2 Notum ljós í auknum mæli — í ryki, regni,þoku og sól. UMFEROAR RÁÐ Lausar stöður Eftirtaídar stöður eru lausar til umsóknar í heimspeki- deild Háskóla íslands: Dósentsstaða í frönsku. Lektorsstaða í íslenskri málfræði Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf um- sækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, og skulu þær hafa borist fyrir 20. mars n.k. Menntamálaráðuneytið, 19. febrúar 1985. Gjöf Jóns Sigurðssonar Samkvæmt reglum skal veita fé úr sjóðnum Gjöf Jóns Sigurðssonar „til verðlauna fyrir vel samin vísindaleg rit og annars kostar til þess að styrkja útgáfur merki- legra heimildarita". Heimilt er og að „verja fé til viður- kenningar á viðfangsefnum og störfum höfunda, sem hafa vísindarit í smíðum“. Öll skulu rit þessi „lúta að sögu (slands, bókmenntum þess, lögum, stjórn og framförum". Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar auglýsir hér með eftir umsóknum um fjárveitingar úr sjóðnum. Skulu þærstílaðartil verðlaunanefndarinnar, ensend- ar forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsi, 101 Reykjavík, fyrir 15. apríl n.k. Umsóknum skulu fylgja rit, ritgerðir eða greinagerðir um rit í smíðum. Reykjavík, 22. febrúar 1985. Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar Bjarni Guðnason Magnús Már Lárusson Sigurður Líndal 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 27. febrúar 1985 Fast þeir sóttu... að byggja á Helguvík vinnur nú her manns, og er langt komið með að byggja undirstöður tveggja risastórra olíutanka, auk þess sem búið er að reisa dælu- hús, sem er að stærstum hluta neðanjarðar. Samkvæmt skýrslu Öryggismálanefndar er áætlað að olíugeymarnir í Helguvík muni kosta um 4,9 miljarða króna. Höfnin sem þar verður byggð mun kosta aðra tvo miljarða sam- kvæmt sömu heimild. Þá er langt komið byggingu 9 sprengjuheldra flugskyla, sem er áætlað að kosta muni yfir 800 miljónir króna. 271 miljón í flugstöð Á fjárlögum fyrir árið 1985 er áætlað að verja 271 miljón króna til flugstöðvarbyggingar á Kefla- víkurflugvelli, sem er að hluta til byggð fyrir bandarískt fé. t*jóð- viljamenn komu á staðinn í fyrra- dag og voru framkvæmdir í full- -<um gangi. Er hér um gríðarlegt mannvirki að ræða eins og með- fylgjandi myndir gefa einhverja hugmynd um. Auk framan- greindra framkvæmda hafa bandaríkjamenn sett fram áætl- anir um að byggja á Keflavíkur- flugvelli sprengihelda stjórnstöð, sem á að geta staðið af sér eitur- efnahernað í 7 daga, og er áætlað að bygging hennar kosti um 2,3 miljarði króna. Þess má því vænta að þótt hinir stoltu sjó- sóknarar af Suðurnesjum kunni að neyðast til að leggja árar sínar í bát, þá sé ekki öll von úti um að þeim bjóðist vinna á næstunni hjá Kanarium. Áformað er að fram- kvæmdum í Helguvík ljúki í byrj- un næsta áratugar, og þess er að vænta að aðrar framkvæmdir í kringum herstöðina muni ganga greitt fyrir sig, þar sem ekki mun fjármagnsskortinum þar fyrir að dreifa. Spurningin er bara hvað hinir stoltu sjósóknarar eiga að taka sér fyrir hendur þegar hern- aðarframkvæmdum lýkur og skipin eru annað hvort brotin eða seld. Við þessar aðstæður minntu sjómenn á Suðurnesjum blaða- mann Þjóðviljans á þau ummæli sjávarútvegsráðherra á síðasta fiskiþingi, að ef draga ætti saman í útgerð, þá skyldi það gert á suð- vesturhorninu, þar sem framboð á annarri atvinnu væri fyrir hendi. Voru það hernaðarfram- kvæmdirnar sem sjávarút- vegsráðherrann átti við? úlg. Hraðfrystihús Keflavíkur Sigríður Þráinsdóttir: Fiskverkunarkonur í Keflavík búa við ótrygga atvinnu. Unnið á háiíum afköstum Hráefnisskortur hamlar starfseminni Hraðfrystihús Keflavíkur er eina frystihúsið, sem nú er starf- rækt í Keflavík. Á síðast ári voru þau tvö, og fyrir nokkrum árum mun fleiri. Hraðfrystihúsið í Keflavík vinnur hins vegar aðeins með hálfum afköstum að sögn Karvels Heiðarssonar verkstjóra, og stafar það eingöngu af minnkandi framboði á fiski eftir að búið er að selja úr byggðar- laginu skip, sem samanlagt höfðu um 9000 tonna aflakvóta. Það var verið að verka karfa á Rússlandsmarkað og Banda- ríkjamarkað þegar Þjóðvilja- menn komu í fiskverkunarsalinn og hitti að máli þau Sigríði Þrá- insdóttur trúnaðarmann í bónus- vinnunni og Karvel Heiðarsson verkstjóra. Karvel Heiðarsson verkstjóri: Eftir að skipin voru seld úr Garðinum er ekkert framboð á aukafiski. Sigríður sagði að almennt væri atvinnuástandið mjög slæmt fyrir fiskverkakonur í Keflavík, þótt þær mættu teljast heppnar, sem ynnu hjá Hraðfrystihúsinu. Þær voru þó í stoppi frá 17. desember til 9. janúar. Nú væri unnið frá 8 til 5 um eftirmiðdaginn, en vinnslu verður hætt í lok þessarar viku vegna verkfallsins. Áðspurð sagðist Sigríður ekki geta sagt til um hversu langt stoppið yrði, en það tæki togarana alltaf viku til tíu daga að ná inn afla eftir að skrifað hefði verið undir samn- inga. Karvel Heiðarsson verkstjóri sagði að vinnusalurinn væri ekki hálfnýttur, enda hefði framboð á hráefni stórminnkað við að skip- in í Garðinum voru seld úr byggð- arlaginu. Nú vinna um 60 konur að staðaldri í Hraðfrystihúsinu í Keflavík, og er um 40 heilsdagss- törf að ræða, þar sem sumar kon- ur vinna bara hálfan daginn. í vinnslusalnum var japanskur umboðsmaður að fylgjast með vinnslunni. Við spurðum Karvel hvort þeir væru farnir að selja karfa til Japans. - Nei, ekki ennþá, en það standa vonir til þess að sá mark- aður fari að opnast. Þeir vilja kaupa karfann heilfrystan og hafa hann eldrauðan. íslenski karfinn hefur hins vegar ekki þann lit, sem þeir hafa viljað, það er hreinlega um aðra karfategund að ræða, og ég held að þeir séu að átta sig á þessu. Það ætti að ráðast á næstunni, hvort af samningum getur orðið. ólg.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.