Þjóðviljinn - 27.02.1985, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 27.02.1985, Blaðsíða 13
VIÐHORF Lánskjaravísitalan eftir Olaf Jónsson Ef stjórnvöld bregðast ekki við af myndugleik og með margvíslegum ráðstöfunum, er veruleg hætta á að erfiðleikarnir breytist í verðhrun. í þeim umræðum sem fram hafa farið að undanförnu í fjöl- miðlum og meðal almennings um vandamál húsbyggjenda og ann- ara sem skulda verðtryggð lán virðast næstum allir sammála um að ástandið sé að verða óviðun- andi. Þúsundir einstaklinga sem keypt hafa íbúðir eða byggt á síð- astliðnum árum sjá nú fram á mikla erfiðleika eða gjaldþrot og missi eigna sinna. Um ástæðurn- ar fyrir þessu ástandi eru menn ekki eins sammála þó að flestir viðurkenni að samdráttur í at- vinnulífinu og óviðunandi launa- kjör valdi þar mestu. Að sjálfsögðu hafa margir ver- ið djarfir í lántökum og ekki raunhæfir í áætlunum um greiðslubyrði lána, en flestir voru tilneyddir að byggja eða kaupa íbúð fyrir sína fjölskyldu. Um aðra kosti hefur ekki verið að ræða í húsnæðismálum. Ef stjórnvöld bregðast ekki við af myndugleik og með margvís- legum ráðstöfunum til aðstoðar við einstaklinga í þessum erfið- leikum sem nú blasa við, þá er veruleg hætta á því, að erfiðleik- arnir breytist í verðhrun og veru- legar eignatilfærslur í þjóðfé- laginu. Verður þá þröngt fyrir dyrum hjá mörgum sem nú þegar eru með bogið bak eftir íbúðar- byggingar. Ráðgjafarþjónusta og viðbót- arlán Húsnæðisstofnunar ríkisins eru jákvæðar og sjálfsagðar ráð- stafanir, en fleira þarf að gera ef forða á lántakendum frá þeim erfiðleikum sem við blasa. Eitt af því sem gera þarf nú þegar er að breyta svonefndri lánskjaravísi- tölu, sem almennt er nú kölluð ránskjaravísitala. Þegar hún var upp tekin samkvæmt tillögu frá Seðlabanka íslands árið 1979 virtist hún ekki óeðlilega upp byggð, og fyrstu þrjú árin náði hún þeim tilgangi að verðtryggja lánsfé, bæði innstæður og útlán nokkurnvegin í samræmi við verðlag fasteigna og byggingar- kostnað í landinu. f>að jafnvægi og hófleg vaxtastefna var á góð- um vegi með að sætta þjóðina við þá illu nauðsyn að verðtryggja allt lánsfé í ótryggu efnahagsást- andi og verðbólgu. Með efnahagsráðstöfunum og stjórnarháttum núverandi ríkis- stjórnar hefur þessu jafnvægi ver- ið raskað mjög verulega. Vegna lækkunar á niðurgreiðslum á matvöru og vegna skattlagningar á nauðsynjavörur og þjónustu hefur framfærsluvísitalan hækk- að miklu hraðar en byggingar- kostnaður. Á sama tíma hefur verðlag fasteigna lækkað að raungildi. Svo sem kunnugt er þá er lánskjaravísitalan byggð upp að 2/3 hlutum með framfærsluvís- itölunni og að 1/3 hluta með vísi- tölu byggingakostnaðar. f>ví hef- ur lánskjaravísitalan hækkað öll lán mjög verulega umfram verð- lag fasteigna, sem þau áttu þó fyrst og fremst að miðast við. Sem dæmi um þetta mikla mis- ræmi má nefna að lán sem tekið er óþolandi var í febrúar 1983 að fjárhæð 1.000.000 krónur og enn ekki ver- ið greitt af, hefur hækkað sam- kvæmt vísitölu byggingarkostn- aðar í kr. 1.850.000. Framreiknað með vísitölu láns- kjara hefur sama lán hækkað í kr. 2.050.781 Mismunurinn er kr. 200.781. í sama hlutfalli hækkar svo lánskjaravísitalan árlegar afborg- anir og verðbætur af láninu. Við þetta bætist svo sá baggi að raun- vextir hafa hækkað á sama tíma úr 2% í 5% á verðtryggðum lán- um. Þessar vaxtahækkanir og sú hækkun verðbóta sem lánskjara- vísitalan veldur, umfram verð- hækkun fasteigna í landinu, jafngildir því að lántakendur greiði nú 15% raunvexti af lánum sínum. Slíkt vaxtaokur þolir að sjálfsögðu enginn húsbyggjandi eða venjulegur atvinnurekstur. Til þess að sýna hvert þessi þró- un stefnir væri æskilegt að setja upp línurit til frekari skýringa. Ef einhver heldur að hér sé að- eins um verðsveiflu að ræða sem jafnist út á nokkrum tíma þá vil ég benda á þann ásetning stjórnvalda að taka hér upp virð- isaukaskatt sem leggst af fullum þunga á allar matvörur og stór- hækkar þar með framfærsluvís- itöluna. Niðurstaða þessara hugl- eiðinga er því sú að lánskjaravísi- talan eins og hún er nú byggð upp sé óþolandi og að henni verði að breyta nú þegar. Tillögur um nýja lánskjaravísitölu verða að bíða eftir næsta pistli. ___Lán að fjárhæð kr. 1.000.000 tekið í febr. 1983 er nú: framreiknað með vísitölu byggingarkostnaðar 185/100 kr. 1.850.000 framreiknað með vísitölu lánskjara 1050/512 kr. 2.050.781 Mismunur kr. 200.781 Ef skuld Byggingasjóðs ríkisins við Ríkisábyrgðarsjóð og Seðlabankann, sem um síðustu áramót var 1 miljarður króna, hefði staðið óhreyfð frá febr. 1983 til febr. 1985, hefði hún hækkað 200 miljónum meira framreiknuð með vísitölu lánskjara en samkvæmt vísitölu byggingarkostnaðar MINNING Ámi Bergmann Þórðarson Fœddur 8. september 1919 - Dáinn 17. febrúar 1985 í dag kveðjum við elskulegan föður, tengdaföður og afa með miklum söknuði og trega í hjört- um. Þegar slíkur harmur slær okkur duga orðin ein skammt til að lýsa tilfinningunum. Pabbi, hann fæddist í Sæbóli á Hellissandi. Móðir hans var Mar- ía Sigurgeirsdóttir og faðir Þórð- ur Arnason sjómaður. Missti hann föður sinn kornungur. Ekkjan sat nú uppi með stóran barnahóp, sem á þeim árum var býsna algengt á Hellissandi, þar sem sjómenn reru á opnum bát- um, beint út á úfið úthafið. í bar- áttunni við Ægi konung í sínu æg- ilegasta veldi fórnuðu margir hraustir sjómenn lífi sínu, við að sækja lífsbjörgina við kröpp kjör. Konur og börn biðu í landi. Var honum komið í fóstur hjá þeim sæmdarhjónum Önnu Kristínu Björnsdóttur og Sveinbirni Pjeturssyni sjómanni, er þá bjuggu í Skáleyjum. Þau lifa nú fósturson sinn í hárri elli í Stykkishólmi. Hún er 90 ára en hann 94 ára. Með honum ólst upp fóstursystir hans, Ólöf Hannes- dóttir (Lóa), sem nú harmar fóst- urbróður sinn. Þau reyndust hon- um bestu foreldrar og sýndu hon- um mikla ást og umhyggju. í eyjunum sleit pabbi barns- skónum við leik og störf. Á þess- um árum urðu börn að vinna. Heyjað var í landi (Gufudalssveit og Múlasveit) á sumrum. Róið var á opnum bátum um Breiða- fjörðinn með fé því nýta varð eyjabeitina vel. Hrís var sótt til eldiviðar og komust þeir oft í hann krappan á þessum árum. Náið samband var ævilega milli hans og fósturforeldra hans. Um 1937 fluttist pabbi til Reykjavíkur á heimili móður sinnar að Bergþórugötu 31. Móð- ir hans endurheimti son sinn sem hún hafði saknað öll þessi ár. Miklir kærleikar urðu með þeim mæðginum ætíð síðan og systkin- in voru geysilega samhent og mikill kærleikur þeirra í milli. Komu þau oft saman til að gleðj- ast á hátíðarstundum. Nú síðast hittust þau öll 5. janúar í jólaboði og var pabbi sérstaklega ham- ingjusamur þetta kvöld. Mestu gæfuspor hans voru er hann giftist mömmu í júlí 1945. Mamma, Katrín Guðgeirsdóttir, og pabbi áttu sérlega gott og far- sælt hjónaband og áttu því láni að fagna að geta staðið saman í góð- ærum og á erfiðleikatímum, því oft var lífsbaráttan erfið. Við systkinin erum þrjú. Þeir bræður mínir Kristbjörn og Þórður og undirrituð. Pabbi var sjómaður á yngri árum og starfaði síðan í nokkur ár í gömlu Mjólkurstöð- inni. Nú síðari ár starfaði hann óslitið í 39 ár hjá Ó. Johnson & Kaaber í kaffibrennslunni. Síð- ustu 20 árin var pabbi búinn að vera mikill sjúklingur og oft frá vinnu þess vegna. Hafði hann oft orð á því hversu vel þeir reyndust honum í öllum þessum veikind- um sínum. Aldrei drógu þeir af honum laun öll þessi ár þrátt fyrir margar og langar sjúkrahúslegur. Hvöttu þeir hann til þess að taka sumarleyfi á hverju sumri þrátt fyrir veikindin. Það sem vel er gert ber að þakka. Þeir gerðu miklu meira en þeim bar og verð- ur það aldrei fullþakkað. Ekki má gleyma vinnufélögum hans sem studdu hann öll þessi ár. í Kópavogi reisti hann fjöl- skyldu sinni hús. Var það meira þrekvirki en margt ungt fólk nú á tímum getur órað fyrir. Gerðust þau ein af mörgum frumbyggjum í Kópavogi 1953. Hjá þeim ólumst við upp til fullorðinsára, uns við stofnuðum okkar heimili og eignuðumst börn. 10. barnabarnið fæddist nú 14. febrúar. Pabbi lagði mikið á sig til þess að sjá vel um fjöl- skyldu sína. Barnabörnunum sýndi hann mikla ræktarsemi, sem honum einum var lagið. Hann bókstaflega bar þau á höndum sér. Bestu stundir okkar voru um jólin í faðmi pabba og mömmu. Pabbi, þér þakka ég fyrir allt sem þú gafst okkur af þínu mikla örlæti. Læknum og hjúkrunarliði vil ég þakka allt, sem þau gerðu fyrir hann. Guð vaki yfir þér og leiði í himnasælu, elsku pabbi minn. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (P. Foersom. - Sveinbjörn Egilsson). Svanhildur Árnadóttir og fjölsk. wm - ^ Utboð Bæjarsjóður Garðabæjar óskar eftir tilboðum í gerð innréttinga og innveggja tveggja deilda leikskóla við Kirkjulund í Garðabæ. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Garðabæjar, Sveinatungu, Garðabæ. Tilboðin verða opnuð mánudaginn 11. mars kl. 11.00 í fundarsal bæjarskrifstofunnar, Sveinatungu, Garða- bæ. Bæjartæknifræðingur. Samstaða Kennarar slyðja kennara KÍ-menn hóta einnig uppsögnum fáist ekki kjarabœtur „Menntamálaráðherra til- kynnti framhaldsskólakenn- urum um framlengingu upp- sagnarfrests með aðeins 17 daga fyrirvara. Með því sýndi ráðherra hlutaðeigandi kenn- urum fádæma tillitsleysi og draga verður í efa að ákvörð- un ráðherra hafi verið lögleg“. Hér talar stjórn Kennarasambands íslands (kennarar í BSRB) sem á laug- ardag samþykkti ályktun um stuðning við félaga í HÍK (kennarar í BHM). „KÍ skorar á félagsmenn að styðja kennara í HÍK dyggilega", segir í ályktun stjórnarinnar. Með úrskurði kjaradóms um breyttan launastiga hafi opnast leið til að leiðrétta kjör ríkis- starfsmanna. „í sérkjarasamn- ingum HÍK mun ráðast hvort stjórnvöld ætla að standa við gef- in fyrirheit um bætt kjör og starfs- réttindi kennara og girða þar með fyrir upplausn í skólum landsins. ... Á næstunni mun því ráðast hvort viðunandi lausn fæst á kjara- og réttindamálum eða hvort búast megi við enn víðtæk- ari uppsögnum kennara“. - m ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.