Þjóðviljinn - 27.02.1985, Side 16

Þjóðviljinn - 27.02.1985, Side 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Miðvikudagur 27. febrúar 1985 47. tölublað 50. órgangur DJÓÐVIUINN Seyðisfjörður Tankurinn tómur í tvö ár Olíufélögin deila um hagkvœmni olíubirgðarstöðvar á Seyðisfirði. Olís: Sparar 5,5 -7,5 miljónir á ári. Esso og Shell: Ohagkvœmt og eykur kostnað Olíubirgðageymir Olís á Seyðisfirði hefur nú staðið tómur í tvö ár. Síðast var landað gasolíu í tankinn í október 1982 og hann hefur staðið tómur frá því í febrúar 1983. Ástaeðan er ágrein- ingur milli olíufélaganna um hag- kvæmni birgðarstöðvarinnar á Seyðisfirði. Olíuverslun íslands sem á tankinn telur að innflutnings- Blaðrið 1204 miljónir út á 5 dögum Gjaldeyrissalan 5 daga fyrir gengis- fellingu þriðjungur af mánaðarsölu! Á síðustu 5 dögum fyrir gengis- fellinguna 17. nóvember s.l. runnu út úr viðskiptabönkunum 1203.8 miljónir króna. Ef út- streymið úr Seðlabankanum, 109.8 miljónir, er meðtalið, nam gjaldeyrissalan þessa daga 31,1%, af gjaldeyrissölu nóvemb- ermánaðar. Þetta kom fram í skriflegu svari viðskiptaráðherra við fyrirspurn Ragnars Arnalds á alþingi í gær. í svarinu kemur fram að út- streymið fer hraðvaxandi dag frá degi, eftir að forsætisráðherra gaf gengisfellinguna til kynna. 12. nóvember fóru 184 miljónir út og þann 16. fóru 271,4 miljónir út. - ÁI London Stórkostleg upplifun! Tónlistarhúsið eignaðist sínafyrstu mynd Frá Inga R. Helgasyni í London „Þessir hljómleikar voru stór- kostleg upplifun, sérstaklega söngur Elísabetar Söderström og leikur Fílharmóníunnar í 9. sym- fóníu Dvorsjak,“ sagði Ingi R. Helgason í samtali við Þjóðvilj- ann frá London í gærkvöldi. Mikil stemning var í salnum, og að afloknum hljómleikunum afhenti forstöðumaður Royal Festival Hall Vigdísi Finnboga- dóttur forseta innrammaða mynd af tónleikahöllinni með þeim orðum að skila henni til réttra að- ila svo koma mætti henni fyrir í anddyr tónlistarhússins í Reykja- vík þegar það væri risið. Tónlist- arhúsið hefur þannig nú þegar eignast sína fyrstu mynd. Að loknum hljómleikunum bauð íslenski sendiherrann í London fólki úr Fílharmóníu- hljómsveitinni og öðrum að- standendum hljómleikanna til samkvæmis. Þar voru einnig mættir íslendingar búsettir í London, sem þarna fengu tæki- færi til að heilsa upp á Vigdísi forseta. Ingi sagði að lokum að ekki væri vitað hversu miklir pen- ingar hefðu safnast á hljóm- leikunum, en sá hugur og sá sið- ferðilegi stuðningur sem þessi at- burður sýndi væri ekki minna virði. —ólg. stöðin á Seyðisfirði spari þjóðar- búinu 5,5 - 7,5 miljónir króna á ári, því hann komi í veg fyrir nið- urgreiddan flutningskostnað á olíu frá Reykjavík austur á firði úr verðjöfnunarsjóði olíu. Olíufélagið og Skeljungur sem neitað hafa að landa í tankinn telja hins vegar að kostnaður vegna stöðvarinnar á Seyðisfirði sé meiri en mismunur á dreifing- arkostnaði frá Reykjavík austur á firði og frá Seyðisfirði. Einnig nefna félögin að stöðin muni auka birgðahald og þar með fjármagnskostnað. „Við sjáum ekki að notkun á þessum geymi þurfi að auka birð- gahaldið um einn dropa. Okkar álit er alveg óbreytt, en við getum ekki endalaust barist fyrir þess- um tanki meðan það fær engar undirtektir og því spurning hvað við höldum þessu áfram“, sagði Þórður Ásgeirsson forstjóri Olís í samtali við Þjóðviljann í gær. Þessi mál komu til umræðu á Alþingi í fyrravor er Hjörleifur Guttormsson spurði viðskipta- ráðherra um afstöðu hans til deilu olíufélaganna. Matthías Á. Undirbúningshópur samtaka um kjarnorkuvopnalaust Island: Fr. v.: Árni Hjartarson, Brynjólfur Eyjólfsson, Oddur Benediktsson, Helga Jóhannsdóttir, Hólmfríður R. Árnadóttir, María Jóhanna Lárusdóttir, Sigurður Örn Brynj- ólfsson (hönnuður veggspjalds) og Sólveig Georgsdóttir. Ljósm. - E.ÓI. Samtök um kjarnorkuvopnalaust ísland Sprengjan fer ekki í manngreinarálit Stofnfundur á Hótel Borg 3. mars Sunnudaginn 3. mars nk. verður haldinn á Hótel Borg stofnfundur samtaka um kjarn- orkuvopnalaust íslands. Markmið samtakanna er að Ajþingi íslendinga gefi bindandi yfirlýsingu um að ísland muni aldrei taka við eða leyfa öðr- ym ríkjum að koma fyrir kjarnorkuvopnum á landinu né fara með slík vopn um lögsögu lands- ins. Hyggjast samtökin beita sér fyrir því að kjarnorkufriðlýsing landsins verði sett inn i stjórnarskrá lýðveldisins. Að stofnfundi sámtakanna stendur hópur fólks úr ýmsum friðarhreyfingum og hefur hann unnið að stofnun samtakanna síðan í friðarviku 1984. Stofnfundinum er valinn þessi dagur með tilliti til þess að á mánudag 4. mars hefst hér þing Norðurlandaráðs. Um öll Norðurlönd er í gangi mikil umræða um myndun kjarnorkuvopnalauss svæðis á Norðurlöndum. Færeyjar og Grænlend- ingar hafa gengið þar á undan með góðu fordæmi og friðlýst lönd sín. Er það von undirbúnings- hópsins að með stofnun samtakanna verði auðveldara að koma á framfæri ósk íslendinga um að lenda ekki utan við slíkt svæði. Sagðist undirbúningshópurinn vera þess fullviss að flest- ir hefðu tekið afstöðu til málsins og með stofnun samtakanna væri öllum gert kleift að starfa að friðlýsingu íslands þvert á flokkalandamæri því eins og ein úr hópnum komust að orði: „sprengj- an lendir bæði á hægri og vinstri mönnum“. aró Mathiesen lýsti því þá yfir að ekki væri réttlætanlegt að greiða úr verðjöfnunarsjóði flutning á gas- olíu austur á firði eins og málum væri háttað og einnig lagði hann áherslu á öryggi birgðastöðvar- innar fyrir Austfirði. En olíufé- lögin deila ennþá og tankurinn stendur tómur og ónotaður. -•g- Sjómenn Ríkis- stjómin að koma inní málið Sáttasemjari á löngum fundi með ráðherrum í gær Að sögn fulltrúa sjómanna og útgerðarmanna í gær, ríkti þá al- ger kyrrstaða í samningamálun- um. Ljóst var að menn vörðust allra frétta, þótt allir vissu að á- kveðnir hlutir væru að gerast. Þannig gerðist það í fyrrakvöld að Jón Sigurðsson forstjóri Þjóð- hagsstofnunar kom að máli við fulltrúa sjómanna til að þreifa fyrir sér fyrir hönd ríkisstjórnar- innar um hvað ríkisstjórnin gæti boðið til liðka fyrir samningum. Þá gerðist það líka í gær að LÍÚ boðaði til formannafundar um hádegið og stóð sá fundur fram undir kl. 16. Þar var staðan rædd og einnig sú mikla pressa sem komin er á LÍÚ að semja frá fjöl- mörgum útgerðarmönnum úti á landi. Loks gerðist það svo að um miðjan dag í gær fór sáttasemjari Guðlaugur Þorvaldsson á fund ráðherra. Veltu menn því fyrir sér hvort í uppsiglingu væri sátta- tillaga frá honum, þar sem inn kæmi eitthvað frá ríkisstjórninni. Ljóst er af öllu þessu að ein- hver hreyfing er komin á málin. En eins og einn fulltrúi sjómanna orðaði það í gær: Það verður erf- itt að fjá sjómenn út aftur fyrir eitthvað lítið, fyrst þeir á annað borð eru komnir í verkfall og samstaðan jafn mikil og raun ber vitni. _ s.dór Toyota Loðna og ull til Japan? Toyota-umboðið P. Samúelsson hefur að undanförnu verið að kanna möguleika á útflutningi á bæði fiskafurðum og iðnaðar- varningi til Japan í gegnum innkaupafyrirtæki Toyota hér- lendis. „Við eigum von á mjög hátt- settum manni frá Toyota í vor hingað til lands og hann er mjög áhugasamur og jákvæður fyrir því að finna vörur hér“, sagði Páll Samúelsson forstjóri Toyotaum- boðsins í gær. Það er einkum loðna sem horft er til af sjávarafurðum en að sögn Páls hafa Toyotaverksmiðjurnar verið einn stærsti kaupandi af heilfrystri loðnu héðan á liðnum árum. En það eru ekki eingöngu sjávarafurðir sem koma til greina, heldur er mögulegur út- flutningur á alls kyns gæða iðnað- arvöru og hafa ullarvörur komið þar sterklega til greina. „Við erum vongóðir og erum að leita fyrir okkur um hugsan- legar útflutningsvörur", sagði Páll Samúelsson. -lg-

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.