Þjóðviljinn - 21.04.1985, Síða 5

Þjóðviljinn - 21.04.1985, Síða 5
Bara að prófa eitthvað nýtt segir Sigga í Kikk sem flyturtil Noregs ó þriðjudag með þarlentsöngtilboð upp ó vasann Sigríður Beinteinsdóttir ó engan bróðursem heitir Sveinbjörn, en Sveinbjörn ó hinsvegar systur sem heitir Sigríður. Sú semur Ijóð. Sigríður Beinteinsdóttir, þessi sem semur ekki Ijóð er ungt ogfagurtfljóð.fœtt 26.7.1962 og hefur hlotið þó nóðargjöf í arf að vera söngvin mikið og vel. Nafna hennar Sigrfður hin hefur eflausttekið lagið ó góðri stund með alsherjargoðanum bróður sínum en ó kannski ekki framtíðfyrirsérf þoppheiminum eins og hún Sigga í Kikk, eins og hún er stundum kölluð, en maður veit þó aldrei... Þjóðviljinn hitti Siggu að móli eina kvöldstund í vikunni sem er að líða en ekki mœtti Sigga einsömul. Stór og þrekinn umþoðsmaður hennar mœtti einnig ó staðinn blaðamannitil mikillar gremju. Mótti maður nú ekki rekja garnirnar úr Siggu í friði fyrir einhverjum verndandi engli? Ég ákvað að sýna hörku og vís- aði umboðsmanninum inn í ann- að herbergi ásamt nokkrum poppbókum og vel völdum orð- um í hans garð. Þá loks gat samtal okkar Siggu hafist. (Mig langaði til að byrja á að spyrja hana hvort þessi manneskja fylgi henni hvert sem hún færi en ákvað að tefja tímann ekki lengur.) Sigga, þú lýstir þvíyfir í viðtali ú Rás 2 í vikunni aðþú vœrir á leið til Osló í Noregi. Hvað í veröld- inni býður þín þar? Það er ekkert fastmótað enn- þá. Þetta kom nú eiginlega allt- saman í gegnum systur mína sem býr þarna úti. Hún hafði sam- band við forstjóra Phonogram plötufyrirtækisins og lét hann hafa upptökur á bandi af því sem ég hef verið að gera undanfarið og einnig af plötunni Kikk. Hon- um leist vel á og er tilbúinn að koma mér á framfæri. Er þá einhver framavon útí Noregi? Ég er ekki eingöngu að fara út vegna þessa tilboðs, ég er bara að prófa eitthvað nýtt. Það getur vel verið að maður komi heim eftir 3 mánuði, það fer eftir því hvort manni leiðist eða ekki. Erþá hljómsveitin Kikk úrsög- unni? Já hún er hætt. Hvernig byrjaði ferill þinn í poppinu? Það hefur kannski alltaf verið ■draumurinn að verða söngkona, en ég bjóst í rauninni ekki við að það yrði eitthvað úr því. Þetta byrjaði eiginlega allt með auglýs- ingu í blaði. Það var vinkona mín sem hvatti mig til þess að svara henni. Ég ætlaði varla að þora að taka af skarið. En sló til og svo hefur þetta bara þróast. Ég fór í annað band, Meinvillinga, og við tókum þátt í músíktilraunum SATT. Tveir strákar úr Kikkinu sáu mig þar og buðu mér í Kikk. Klassísk spurning: Er popp- bransirin karlaheimur? Já, hann er það, það er allt of fátt kvenfólk í þessum bransa. Það eru til margar stelpur sem geta t.d. sungið vel, en þær þora ekki að prófa. Það er líka æðis- legt stress fyrir stelpur að koma fyrst fram. Strákarnir fá meiri hvatningu en þær. Strákar byrja svo ungir að fikta á einhver hljóð- færi, ég held að hver einasti strák- ur fái einhverntíma á ævinni æði fyrir einhverju einu hljóðfæri og dreymi um að verða poppstjarna. Það eru eflaust margar stelpur líka sem byrja að fikta á hljóð- færi, en þær eru bara óframfærn- ari. Peningar og eigin rassar Attir þú ekki að taka þátt í Litlu hryllingsbúðinni upphaflega? Jú. Páll B. Baldvinsson hringdi í mig og spurði hvort ég væri til í að syngja í rokksöngleik sem Hitt leikhúsið væri að setja á svið. Og, jú, jú, ég ætlaði að athuga málið og var til í að mæta í prufu. Sem ég geri og er tekin inn í dæmið. Ég átti að vera ein af „stelpunum". En svo eitt sinn er ég kem á æfingu tilkynnir Páll mér að ein- hver önnur hefði verið fengin í minn stað, og ég þurfi ekki að mæta aftur, hann hefði fundið einhverja menntaðri. Var þér sagt að þetta vœri reynslutími? Nei, mér var aldrei sagt neitt um það. Ég hélt ég væri bara ráðin í þetta en svo ekki söguna meir. Þeir hafa þó vœntanlega borg- að þér fyrir þœr œfingar sem þú eyddir tíma í? Nei. Þú söngst vinsœlasta lag sum- arsins ’84, Veru ekki að plata mig Sigríður Beinteinsdóttir söngkona. Myndina tók E.ÓI. sl. fimmtudagskvöld í Eiðisgrandafjörunni. með HLH flokknum, ekki satt? Jú, nótnalaust, ekkert mál... En hvernig var samstarfið við HLH? Það var í lagi til að byrja meö. Það vær æðislega gaman að taka upp lagið á vídeó. En hinsvegar fannst mér ekki í lagi að vinna 13 tíma og ekki vera boðin nein borgun fyrir, það var ekki einu sinni nefnt á nafn: en dansararnir fengu borgað. Það var Sól h/f sem stóð að baki vídeó-myndarinnar. Þá fóru HLH út um allt land með teipið af laginu og þeir buðu mér enga borgun fyrir. Alltaf þegar röðin kom að mér að syng- ja sneru þeir baki í áhorfendur. Einu sinni var Kikk á balli á sama stað og HLH átti að koma fram. Við spiluðum fyrst og seinna tóku þeir við og urðu náttúrulega að spila Vertu ekki að plata mig. Það var það vinsælt að þeir gátu ekki sleppt því. Þegar kom að mér í laginu sneru þeir baki í áhorfendur og ég stóð fyrir fram- an sviðið og hlustaði á sjálfa mig syngja á teipinu! En höfðu þeir leyfi til að snið- ganga þig svona peningalega? Nei, en ég komst ekki að því fyrr en ég fór að garfa í þessu sjálf hjá FÍH. Þar komst ég að því að þeir höfðu ekki leyfi til þess að spila lagið án þess að tala við mig fyrst eða bjóða mér borgun fyrir. Hljóðfæraleikararnir sem spil- uðu með þeim fengu borgun eftir samkomulagi. Fékkstu leiðréttingu á þessu? Það eina sem ég fékk voru 3000 krónur. Mér skildist á þeim að þetta ætti að vera innborgun fyrir alla þessa vinnu, bæði vídeó- myndina og tónleikahald þeirra útá landsbyggðinni. En það kom í ljós að þetta var heildarsumman fyrir allt saman. En hinsvegar fékk ég vel greitt fyrir stúdíóvinn- una við lagið frá Steinum. Var það einhver sárabót? Að vissu leyti, en mér finnst að þessir gæjar hugsi bara um rassgatið á sjálfum sér. Ég ráð- legg öllum þeim sem eiga eftir að starfa í þessum bransa að gera helst skriflega samninga við hvort tveggja plötufyrirtæki eða ein- staklinga áður en samstarf hefst. Ertu dáldið súr útí HLH? Ég er ekkert vond út í þá þann- ig, en þeir voru búnir að bjóða mér borgun fyrir samstarfið munnlega en sviku það svo. Og það er það sem ég er sár útaf. Maður leggur mikið á sig að gera vel, tekur sér frí úr vinnu og tíminn fer allur í þetta á meðan á þessu stendur. Svo er þetta bara svindl og svínarí. Að lokum, Sigga, áttu þér eitthvert uppáhald í íslenskri popptónlist? Já, Ragnhildi Gísladóttur. Ég held æðislega upp á hana. Hún er meiriháttar söngkona og æðis- lega góð týpa. -L.mar. Rafurmagnaðar gleraugna- linsur Gleraugnalinsur úr fljótandi kristal hafa verið búnar til í Jap- an. Þeim er stjórnað gegnum raf- hlöðu og þannig er breytt um „fókus“. Bæði nær- og fjarsýnir njóta góðs af þessari uppgötvun. Mismunandi veðurfar Munurinn á loftslagsbeltum í Sovétríkjunum er svo mismun- andi, að bakteríur sem notaðar eru til að hamla gegn olíumengun þurfa að þola frá 50 gráða kulda til 70 gráða hita. Sunnudagur 21. apríl 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.