Þjóðviljinn - 21.04.1985, Síða 13
________________SKÁK_______________
Skákþing íslands
Karl Þorsteins íslandsmeistari
Um síðustu helgi lauk keppni í
landsliðsflokki á Skákþingi ís-
lands 1985. Skákmeistari fs-
lands 1985 varð Karl Þorsteins.
Karl sigraði með miklum yfir-
burðum, hlaut 10 vinninga af 13
mögulegum!
í þetta skipti tók enginn titil-
hafanna okkar (að undanskildum
Hauki Angantýssyni) þátt í mót-
inu og var því flokkurinn ekki
eins sterkur og „vera ber“. En
sökum fjarveru sterkustu skák-
mannanna fengu hinir ungu og
efnilegu tækifæri til að spreyta sig
í landsliðsflokkunum.
Það má segja að sigur Karls
hafí ekki komið á óvart, því að
hann var langstigahæstur kepp-
enda.
í öðru sæti varð Þröstur Þór-
hallsson með 8 vinninga. Þröstur
er aðeins 16 ára gamall og hefur
þegar skipað sér sess meðal sterk-
ustu skákmanna þjóðarinnar.
3.-4. sætinu deildu með sér Ró-
bert Harðarson og Davíð Ólafs-
son, báðir með IVi vinning. Ár-
angur Davíðs er einnig mjög góð-
ur og hafa þeir félagar Þröstur og
Davíð svo sannarlega sýnt að þeir
áttu fullt erindi í flokkinn.
Úrslit urðu annars þessi:
1. Karl Þorsteins 10 af 13
2. Þröstur Þórhalsson 8
3. -4. Róbert Harðarson IVi
3.-4. Davíð Ólafsson IVz
5.-9. Lárus Jóhannesson 6V2
5.-9. Benedikt Jónasson 6V2
5.-9. Dan Hanson 6V2
5.-9. Hilmar Karlsson 6V2
5.-9. Haukur Angantýss. 6V2
10.-11. Ásgeir Þór Árnas. 6
10.-11. Andri Áss Grétarss. 6
12. Halldór G. Einarss. 5'/2
13. Pálmi Pétursson 4V2
14. Gylfi Þórhalsson 3V
Hér kemur ein skemmtileg
skák frá mótinu:
Hvítt: Pálmi Pétursson
Svart: Benedikt Jónasson
Enski leikurinn
1. Rf3 c5 2. c4 bó 3. g3 Bb7 4. Bg2
Rf6 5. Rc3 g6 6.0-0 Bg7 7. d4 cxd4
Staðan sem nú er komin upp er
vel þekkt. Nú hefur hvítur um tvo
leiki að velja: 8. Dxd4 Rc6 9. Df4
Hc8 10. Hdl og hvítur stendur
örlítið betur. Pálmi velur hina
leiðina.
8. Rxd4 Bxg2
9. Kxg2 0-0
Hér er 9. - Dc8 einnig góður
leikur. T.d. 10 b3 Db7+ 11. f3
Rc6 12. Bb2 0-0 13. e4 a6 með
óljósu tafli.
10. e4 Dc7 11. b3 Rxe4!
Benedikt er greinilega vel inni í
„fræðunum", því þetta er talin
besta leið svarts til tafljöfnunar.
Svona tefldist m.a. 13. einvígis-
skák Karpovs og Kasparovs í
haust.
12. Rxe4 De5 13. Df3 Dxd4 14.
Hbl?
Upphafið á rangri áætlun.
Framhaldið í áðurnefndri skák
sovésku meistaranna varð: 14.
Ba3 Rc6 15. Hadl De5 16. Hxd7
Da5! 17. Bxe7 Re5 18. Ddl Rxd7
19. Dxd7 Dxa2 og skákinni iauk
með jafntefli.
14. - De5 15. Bf4
Ekki 15. Bb2 Dc7 16. Rf6+?
Bxf617. Dxa8 Rc6 og hvíta drott-
ningin fellur.
15. - Df5 16. Rf6+ Bxf6 17. Dxa8
Rc6 18. Db7
Þó svo að svartur sé skiptamun
undir stendur hann greinilega
betur. Hvíta drottningin er út úr
leiknum í bili og svartur getur því
hafíð sókn á hendur hvíta kóngin-
um.
18. - g5! 19. Bc7
Ef 19. Be3 Hb8 20. Da6 De4+
21. Kgl Re5 og svartur vinnur.
19. - h5 20. h3 g4 21. h4 Df3+ 22.
Kh2 d6!
Eftir þennan skemmtilega
„línurofsleik" er hvíta staðan
töpuð. Hvíta drottningin og bisk-
upinn eru aðeins áhorfendur að
framhaldinu.
23. c5 bxc5 24. Hbcl Bxh4! 25.
gxh4 Dh3+ 26. Kgl g3 27. fxg3
Dxg3+ 28. Khl Kh8! 29. Dxc6
Hg8
Þó svo að hvítur hafi hrók og
mann yfir er staða hans í molum.
Hann verður að gefa mikið lið til
baka til að komast hjá máti.
30. Hf2 Dxf2 31. De4 Hg4 32.
Dxg4 hxg4
Og hvítur gafst up, enda er
frekari barátta vonlaus.
Skemmtileg sóknartaflmennska
hjá Benedikt!
-HL
BRIDGE
íslandsmótið í tvímenning
Metþátttaka
Frá Bridge-
sambandi íslands:
íslandsmótið í tvímennings-
keppni, undanrásir, verða spilað-
ar nú um helgina í Tónabæ í
Reykjavík.
Til leiks eru skráð 110 pör (220
manns). Er þetta því stærsta
bridgekeppni sem hér hefur farið
fram til þessa, hér á landi. Að
líkindum er þetta einnig meðal
stærstu tvímenningsmóta sem
hafa verið spiluð á Norður-
löndum til þessa.
Spilað verður í sjö sextán para
riðlum, með tveimur spilum milli
para, 30 spil í hverri umferð, alls
90 spil í þremur umferðum.
Slönguraðað verður eftir árangri
í 2. umferð og 3. umferð mótsins.
24 efstu pörin ávinna sér rétt til
þátttöku í úrslitakeppninni, sem
spiluð verður hélgina 4.-5. maí á
Hótel Loftleiðum.
Nv. íslandsmeistarar í tví-
menningskeppni eru þeir Hörður
Blöndal og Jón Baldursson. Þeir
spila ekki lengur saman, en báðir
eru mættir til leiks, Hörður á
móti Guðmundi Péturssyni og
Jón á móti Sigurði Sverrissyni.
Þessir fjórar spilarar eru allir ný-
bakaðir íslandsmeistarar í
sveitakeppni, sem lauk á pásk-
um.
Fjölmargir utanbæjarspilarar
eru skráðir til leiks að þessu sinni,
og verður fróðlegt að fylgjast
með baráttu þeirra við reykvísku
spilarana, sem einokað hafa öll
íslandsmót til þessa.
Góð aðstaða er fyrir hendi fyrir
áhorfendur í Tónabæ, á meðan á
undankeppninni stendur. Mótið
hefst kl. 13 á laugardag, 2. um-
ferð verður spiluð á laugardags-
kvöldi og 3. umferð hefst kl. 13 á
sunnudag.
Keppnisstjóri er Agnar Jörg-
ensson.
Landsliðs-
keppnir 1985
Stjórn Bridgesambands ís-
lands hefur valið (samþykkt)
eftirtalda þátttöku í landsliðsfor-
vali 1985:
í opnum flokki munu 12 pör
keppa.
I kvennaflokki munu 16 pör
keppa.
I flokki yngri spilara munu 10
pör keppa.
Forkeppnin í flokki yngri spil-
ara verður helgina 26.-28. apríl
n.k., 12 spil milli para, alls 108
spil með Butler-útreikningssniði.
Forkeppnin í Opna og kvenn-
aflokknum verður spiluð aðra
helgi í maí, 10.-12. í Opna
flokknum verða 12 spil milli para,
í kvennaflokknum 8 spil milli
para. í Opna flokknum því spiluð
132 spil og í kvennaflokknum
spiluð 120 spil.
Tvö efstu pörin úr ÖLLUM
flokkunum öðlast síðan rétt til að
velja sér par úr hópi þátttakenda,
sem síðan mynda tvær sveitir (A
og B-sveitir). Þessar sveitir munu
síðan heyja einvígisleik, sem
verður 124 spila langur, um sigur.
Þeir er standa uppi sem sigurveg-
arar, eru síðan þarmeð komnir í
landslið, auk þriðja pars í Opna
flokknum og kvennaflokknum,
sem valið verður í samráði við
sigurvegara.
Verkefni landsliðanna í Opna
flokknum og kvennaflokknum,
verður síðan Evrópumótið í
Salsmaggiore á Ítalíu, dagana 22.
júní-6. ’ júlí. Landsliðið í yngri
flokknum fer hins vegar til
Odense í Danmörku, til þátttöku
í Norðurlandamóti yngri spilara.
Fyrirliði þess liðs verður Ólafur
Lárusson, sem einnig mun
stjórna landsliðsforkeppni í yngri
flokknum. Hermann Lárusson
mun stjórna í Opna og kvenna-
flokknum. Spilað verður í Drang-
ey v/SíðumúIa, Skagfirðinga-
heimilinu.
Frá Bridgefélagi
Akureyrar
Eftir 12 umferðir í Board-a-
match Minningarmótinu um
Halldór Helgason, hefur sveit
Arnar Einarssonar tekið afger-
andi forystu. 22 sveitir spila.
Staða efstu sveita er þessi:
stig
1. Öm Einasson 250
2. Páll Pálsson 217
3. Eiríkur Helgason 201
4. Jón Stefánsson 201
5. Gunnlaugur Guðmundsson 191
6. Halldór Gestsson 188
7. Anton Haraldsson 188
8. Haukur Harðarson 186
9. Zarioh Hamadi 182
Meðalskor er 168 stig.
Aðalfundur
löju, félags verksmiöjufólks, veröur haldinn í
Domus Medica miövikudaginn 24. apríl kl.
17.00 síðdegis.
DAGSKRA:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Reglugerð sjúkrasjóös Iðju.
3. Önnur mál.
Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir árið 1984
liggja frammi í skrifstofunni.
Stjórn Iðju.
Aðalfundur Málarafélags Reykjavíkur verður haldinn í
Lágmúla 5, mánudaginn 29. apríl 1985 kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Fóstrur
Fóstrur vantar til starfa á dagheimilinu Rauðagerði,
Vestmannaeyjum. Nánari upplýsingargefurforstöðu-
maður í síma 98-1097.
Forstöðumann vantar við Leikskólann Kirkjugerði,
Vestmannaeyjum, frá 1. ágúst 1985.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 98-
1098.
Félagsmálaráð Vestmannaeyjabæjar.
Náttú ruverndarráð
óskar eftir nýjum eða notuðum 15/25 kgWatta raf-
magnsvatnshitara til kaups innan eins mánaðar.
Nánari upplýsingar veitir Indriði Arnórsson, Verk-
fræðistofunni Önn s/f, Skipholti 17A, Sími 26825.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Þorgrímur G. Guðjónsson
Rofabæ 29,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. apríl
kl. 13.30.
Lilja Björnsdóttir
Ragnheiður Þ. Anderson Mats Anderson
Hrafnhildur Þorgrímsdóttir Rafn Kristjánsson
Björn Ingi Þorgrímsson Jóhanna Jósefsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum sem auðsýndu okkur sam-
úð, hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa
Haraldar ísleifssonar
Skólastíg 28,
Stykkishólmi.
Kristín Cecilsdóttir
Cecil Haraldsson
Gylfi Haraldsson
Kristborg Haraldsdóttir
tengdabörn og barnabörn.
Sunnudagur 21. apríl 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13