Þjóðviljinn - 21.04.1985, Side 19
stjórnar fulltrúa að standa á fætur
til að minnast hans, en ég neitaði
því og sagðist ekki standa upp
fyrir borgarstjóra íhaldsins, lif-
andi eða dauðum. Nú, ég bar
fram ýmsar tillögur í atvinnumál-
um, en þær voru allar felldar. Ein
tillaga sem felld var fyrir mér
gekk þó aftur. Hún var um vern-
dun Örfiriseyjar. Tók íhaldið
hana upp litlu síðar.
- Hvað er þér minnisstœðast
frá fyrstu árum Kommúnista-
flokksins?
Einhugur og eldmóður á meðal
félaganna.
Stofnuð Iðja
- Hvenœr var Iðja stofnuð?
Iðja var stofnuð í október
1934. Þegar verkafólki í iðnaði
fór að fjölga fékk ég áhuga á að
stofna stéttarfélag á meðal þess.
En fyrsti vísir að því var vinnu-
staðarfélag í Kexverksmiðjunni
Frón. Tvær stúlkur stóðu fyrir
því, Margrét Árnadóttir síðar
kona Hallgríms Jakobssonar og
Vilborg Sigurðardóttir, síðar
kona Gunnars Sigmundssonar,
en þau bjuggu í Vestmannaeyj-
um. En þær voru reknar og fé-
lagið lognaðist út af. Ég vann þá í
Sápugerðinni Hrein. I kaffistof-
unni ræddi ég við Sigurbjörn
Knudsen og Jónu Pálmadóttur
um að koma á félagsskap. Alþýð-
usambandið og Alþýðuflokkur-
inn sem um það heyrðu, sendu til
liðs við mig Jón Sigurðsson erind-
reka og Sigfús Sigurhjartarson.
Boðuðum við sameiginlega til
fundar á Hótel Heklu um stofnun
félags iðnverkafólks. Á þeim
fundi fengust 16 stofnfélagar og
var hann kallaður fyrri stofnfund-
ur. Á hinum síðari urðu félags-
menn á milli 30 og 40 að mig
minnir. Á þeim fundi var sam-
þykkt að félagið gengi í Alþýðu-
samband íslands en á hinum fyrri
hafði það verið fellt. Félagið var
nefnt Iðja. Runólfur Pétursson
var kjörinn formaður og ég ritari
og hélst sú verkaskipting á milli
okkar fram til 1940 að Runólfur
sagði af sér.
- Óx Iðju snemma fiskur um
hrygg?
í Iðju fjölgaði furðanlega
fljótt. Fyrstu samningana gerð-
um við sumarið 1935 við tvær
smjörlíkisgerðir, Smára og
Ljóma. Nutum við til þess vel-
vildar Ragnars Jónssonar og Þor-
valdar Thoroddsen, sem þá áttu
Smjörlíkisgerðina Smára. Þótt
þær borguðu laun eins og hæst
gerðust í iðnaði, 300 krónur á
mánuði fyrir karla og 150 krónur
fyrir konur, hækkuðu þær þau
um 10 krónur á mánuði upp í 310
krónur og 160 krónur. Smjör-
líkisgerðin Svanur hafði vífilengj-
ur í frammi og fór svo að hún
sagði upp 2 stúlkum sem gengið
höfðu í Iðju og án efa af þeirri
ástæðu. Þær sneru sér til Iðju og
við leituðum stuðnings Alþýðu-
sambandsins. Varð þá vinnu-
stöðvun í Smjörlíkisgerðinni
Svani, sem forstjórinn reyndi að
hundsa.
Ég var þá án atvinnu, - ég hafði
verið rekinn úr Sápugerðinni
Hrein - og fór ég niður í verka-
mannaskýli. Þar var að vanda
margt atvinnulausra manna.
Skoraði ég á þá að koma með mér
og að stöðva verkfallsbrot í
Smjörlíkisgerðinni Svani. Yfir 30
manna hópur gekk til liðs við mig
og fórum við upp í Svan og knúð-
um þar dyra. Dyrnar voru opnað-
ar, en þegar sá sem í gættina kom,
sá hópinn fyrir utan, ætlaði hann
að skella aftur, en við höfðum
komist á milli stafs og hurðar og
ruddumst inn og bárum verkfalls-
brjótana út, bókstaflega bárum
þá út. Stóð þessi hópur síðan
vörð með mér fyrir utan fram til
hádegis. En forstjóri Svans lét sér
ekki segjast. Um hádegið lét
hann bera út smjörlíki í bíl til út-
keyrslu. Ég hljóp niður í Smjör-
líkisgerðina Smára, þar sem Run-
ólfur Pétursson var að vinna.
Runólfur hringdi til Héðins Vald-
imarssonar, sem þá var formaður
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
Dagsbrúnar og baðst liðsinnis
hans. Stuttu eftir að ég hafði aftur
tekið mér stöðu fyrir utan Svan,
kom bíllinn aftur með smjörlíkið.
Við því hafði ekki verið tekið.
Fundur var boðaður í Iðju um
kvöldið. Fundinum barst sú orð-
sending frá Smjörlíkisgerðinni
Svani, að hún hefði gefið for-
manni Félags íslenskra iðnrek-
enda, Eggert Kristjánssyni, um-
boð til að semja fyrir sína hönd.
Niðurstaðan varð sú, að Svanur
gekk refjalaust að samningi okk-
ar við hinar smjörlíkisgerðimar
tvær, en neitaði að taka aftur við
stúlkunum tveimur, heldur
greiddi þeim laun til áramóta.
Kjarasamningur Iðju var látinn
taka gildi hjá iðnfyrirtækjum í
Reykjavík, liðlega 20, með hátt á
þriðja hundrað starfsfólks. Hjá
sumum þeirra hafði kaup verið
mjög lágt, allt niður í 40 krónur á
mánuði hjá konum. Upphæð
launa hjá iðnverkafólki 1935
eigum við skjalfesta á inntöku-
beiðnum í Iðju frá því ári.
- Stofnun Iðju hefur þannig
verið merkur áfangi í sögu verka-
lýðshreyfingarinnar.
Já, það var hún. Annan merk-
an áfanga markaði 1. maí 1936,
en sá dagur var helgaður samfylk-
ingu verkalýðsins. Að því átti ég
nokkurn hlut, en aðrir segja þá
sögu betur en ég. Við skulum láta
hér staðar numið. Við getum
kannski seinna rætt frekar um
verkalýðsmál og þá líka um sam-
vinnu við alþjóðlegu verkalýðs-
hreyfinguna sem mér finnst
margir forystumenn verkalýðsfé-
laga hafa ónógan skilning á.
- Ég þakka þér viðtalið Björn.
Haraldur Jóhannsson
Dömur og herrar athugið
HEF TEKIÐ VIÐ HÁR-
GREIÐSLUSTOFU LOLLU,
MIKLUBRAUT 68, SÍMI
21375.
ALHLIÐA HÁRSNYRTING FYRIR
DÖMUR OG HERRA.
OPIÐ ALLA DAGA KL. 9-6,
FIMMTUDAGA OG FÖSTUDAGA
TIL KL. 8.
OPIÐ LAUGARDAGA.
GUÐRÚN GRÉTARSDÓTTIR (DOLLÝ)
Áður hárgreiðslustofu EDDU og DOLLÝ.
ÍJÍ'IÍKO
Undir þessi orö George Bernard Shaw hafa ótal
ferðamenn tekiö. Dubrovnik er alveg einstakur
staöur - í senn endurnærandi
sólarströnd og ævintýraland
þeirra sem unna náttúru-
fegurðog heillast
af framandi
menningu.
Við bjóðum gistingu í fjórum mjög góðum hótelum,
fjölbreytta og hressilega leikja- og afþreyingardagskrá (t.d.
sund, tennis, útigrillveislur, sjóskíði, siglingar, miðnæturveislur
o.fl. o.fl.). Og siðast en ekki sist fjölda skoðunarferða um
suðurhluta Júgóslavíu, t.d. hið rómaða hérað Montenegró,
sem er ógleymanlegt öllum sem þangað koma.
verð kr. 24.400
(Miöað við 2 í herþ. og 3 vikur)
Innifalið: Flug, gisting með hálfu fæði, akstur til og frá
flugvöllum, íslensk fararstjórn. Möguleiki á aukadvöl í
Amsterdam.
\ Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727
i 'j$k ÍÆL
~ 1 ........ J y—
Auglýsingaþjónustan