Þjóðviljinn - 07.05.1985, Blaðsíða 3
Samningar
Tími og innihald í samhengi
s
Asmundur Stefánsson: Samningar í voryrðu bráðbirgðalausn. Telji
Þorsteinn Pálsson ríkissjóð þola skattalœkkanir, þá erþað vel...
ASÍ-VSÍfundur í dag
Forseti ASI tekur mjög dræm-
lega í hugmyndir VSI-manna
og ríkisstjórnarinnar um samn-
inga til langs tíma nú í vor. „Verði
gerðir samningar í vor til að leysa
þann bráða vanda sem við blasir í
sumar er óraunhæft að miða við
annað en nokkra mánuði“, sagði
Ásmundur Stefánsson við Þjóð-
viljann í gær. í dag klukkan tíu
munu forystumenn ASI og VSI
funda um tiliögu miðstjórnar AI-
þýðusambandsins að kauphækk-
un í vor til að afstýra kaupmáttar-
hrapi í sumar. .
Ásmundur sagði að af hálfu
ASÍ væri litið á samninga í vor
sem „bráðabirgðalausn". Um
„samningaviðræður í heild sinni“
sagði Ásmundur að lengd samn-
ings hlyti að fara eftir því hvaða
kaupmátt væri miðað við og
hvernig samningurinn yrði
tryggður: „Við hljótum að skoða
samningstíma í samhengi við
innihald. En áður en nokkur
samtöl hafa verið milli okkar og
atvinnurekenda tel ég tilgangs-
lítið að fara í hávaðadeilur um
samningstíma.“
Um miðjan mánuð hittast for-
ystumenn landssambanda innan
ASÍ og taka afstöðu til þeirra til-
lagna miðstjórnarinnar að um
kaupmátt og kaupmáttartrygg-
ingu verði samið sameiginlega,
en samböndin semji sérstaklega
um sérmál sín. Ákvörðun um
kröfugerð í viðræðum við VSÍ
verður ekki tekin fyrren eftir
þann fund, enda eru samninga-
mál í höndum einstakra félaga
ASÍ.
Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins segir í Morg-
unblaðinu á sunnudag að hann
líti svo á að „skattarnir geti orðið
veigamikill þáttur í lausn máls-
ins“. Um þetta sagði Ásmundur í
gær: „Ég hef ekki séð neinar hug-
myndir af hálfu stjórnvalda um
lausnir í skattamálum. Ef Þor-
steinn Pálsson metur fjárhag rík-
issjóðs þannig að svigrúm sé til
skattalækkunar, - þá er það vel,
og við hljótum að skoða það.“
Stykkishólmur
Nyflugstöð
Stöðin hefur verið áfjórða ár í byggingu og
kostar um 8 miljónir króna
Um síðustu helgi var opnuð ný
og glæsileg flugstöð í Stykkis-
hólmi. Byrjað var á smíði stöðv-
arinnar 1982, sem og flugstöðv-
unum á Þingeyri og Patreksfirði
en þær eru allar eins og hafa allar
verið teknar í notkun á þessu ári.
Stöðin í Stykkishólmi er 250
fermetrar að grunnfleti, með
veitingaaðstöðu og einu gistiher-
bergi sem ætlað er fyrir starfs-
menn Flugmálastjórnar. Kostn-
aður við byggingu stöðvarinnar
er um 8 miljónir króna, að sögn
Péturs Einarssonar flugmála-
stjóra.
Þegar stöðin var opnuð flutti
sóknarpresturinn í Stykkishólmi
séra Gfsli Kolbeins stutt ávarp og
bæn. Pétur Einarsson flugmála-
stjóri lýsti byggingu hússins,
Matthías Bjarnason samgöngu-
ráðherra flutti smátölu og
sveitarstjórinn í Stykkishólmi
sömuleiðis. Síðan tók til máls Jó-
hann Rafnsson, sem alla tíð hefur
verið mestur baráttumaður í
Stykkishólmi fyrir flugsam-
göngum. Hans þrotlausa barátta
fyrir bættum flugsamgöngum
hefur orðið til þess að í Stykkis-
hólmi er kominn ágætur flug-
völlur og svo þessi myndarlega
flugstöð. Jóhanni til heiðurs lét
Flugmálastjórn stækka ljósmynd
af honum og var hún hengd uppá
vegg í nýju flugstöðvarbygging-
unni. - S.dór.
Nýja flugstöðin á opnunardaginn. Mynd: S.dór.
Samningar
Sameiginlegar kvennakröfur
Skýrsla sýnir verulegan launamun eftir kynjum. Samstarfsnefnd
kvenna vill breyta vinnubrögðum við samninga og „leysa upp samtryggingu karla“
Fundur sem Framkvæmda-
nefnd um launamál kvenna
hélt nú á laugardag með konum í
stjórnum og samninganefndum
stéttarfélaga hvatti til að konur í
öllum stéttarfélögum setji fram
sameiginlegar kröfur í næstu
samningum. Fundurinn vill
stofna samstarfshóp kvenna úr
Adolf J E Petersen latinn
Adolf JE Petersen fyrrum verk-
stjóri hjá Vegagerð ríkisins er
látinn, 78 ára að aldri. Hann var
fæddur á Akureyri 10. maí 1906
og voru foreldrar hans Emil Pet-
ersen verkamaður og kona hans
Þuríður Gísladóttir. Fósturmóðir
hans var Guðrún M. Jóhannes-
dóttir frá Vatnsenda í Olafsfirði.
Adolf réðst til Vegagerðar
ríkisins og varð þar aðalverk-
stjóri 1941. Vann hann löngum
að félagsmálum vegagerðar-
manna og verkstjóra og sat lengi í
stjórn Verkstjórasambands Is-
lands. Var hann sæmdur fyrsta
gullmerki þess árið 1977.
Adolf Petersen varð varabæj-
arfulltrúi fyrir Alþýðubandalagið
í Kópavogi 1974 og sat hann um
skeið sem aðalfulltrúi í bæjar-
stjórn. Hann vann ýmis nefndar-
störf fyrir Kópavogskaupstað og
ber þar hæst störf hans í náttúru-
verndarnefnd bæjarins, en hann
lét náttúruvernd mikið til sín
taka. Var hann hafsjór af fróðleik
um örnefni og náttúru lands síns
og annaðist m.a. örnefnaskrá
fyrir Kópavogskaupstað á árun-
um 1979 og 1980.
Mikið af rituðu máli, lausu og
bundnu, liggur eftir Adolf JE
Petersen. Gaf hannm.a. útljóða-
bækurnar Rímur aldarinnar og
Vorljóð á hausti. Hann annaðist
vísnaþátt í Þjóðviljanum um
langt skeið. Þá ritaði hann all-
mikið um söguleg efni og annað-
ist m.a. ritstjórn 1. bindis að sögu
Kópavogs sem Lionsklúbbur
Kópavogs gaf út. Adolf var einn
stofnenda Sögufélags Kópavogs
og mun lsta árbók félagsins
koma út innan skamms undir rit-
stjórn Adolfs.
Eftirlifandi kona hans er
Hólmfríður Benediktsdóttir.
Þjóðviljinn vottar aðstandendum
Adolfs JE Petersen samúð sína
og þakkar honum stuðninginn
við blaðið.
Ritstjórn.
öllum heildarsamtökum launa-
fólks í þessu skyni.
Á vegum framkvæmdanefnd-
arinnar hafa þær Esther Guð-
mundsdóttir og Guðrún Sigríður
Vilhjálmsdóttir safnað saman
upplýsingum um launamál
kvenna og sýnir skýrsla þeirra
mikinn mun á launum karla og
kvenna hvar sem borið er niður.
í ályktun fundarins á laugardag
er skorað á stéttarfélögin að
breyta vinnubrögðum og skipu-
lagi við samningagerð, semja
fyrir opnum tjöldum, og „leysa
upp samtryggingu kala“. Megin-
markmið í sameiginlegri kröfu-
gerð kvenna telur fundurinn eiga
að vera: endurmat starfa í hefð-
bundnum kvennagreinum, að
leiðrétta mun á launum kvenna
og karla fyrir sambærileg störf í
næstu samningum, að konur njóti
endurmenntunar á fullum
launum, dagvinnulaun nægi til
framfærslu fjölskyldu, nægt dag-
vistarrými, samfelldur skóladag-
ur, skólamáltíðir.
í Framkvæmdanefnd um
launamál kvenna eru nítján kon-
ur. Þar sitja fulltrúar allra
stjórnmálaflokka og -samtaka,
fulltrúar verkalýðssamtaka og
-félaga og fulltrúar nokkurra
samtaka kvenna.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Bjórfrumvarp
Tillaga um
þjóðaratkvæða-
greiðslu
Eftir margra vikna bið kom
„Bjórfrumvarpið“ til umræðu í
neðri deild Alþingis á síðdegis-
fundi í gær.
Hafði Pálmi Jónsson framsögu
fyrir meirihluta Allsherjarnefnd-
ar deildarinnar sem leggur til að
frumvarpið verði samþykkt.
Rakti Pálmi í ræðu sinni noíckrar
röksemdir fyrir áliti meirihlutans
og lagði áherslu á að með
breytingunum yrði lokið því
tímabili tvískinnungs sem staðið
hefði um árabil þar sem bjór væri
fluttur til landsins, bruggaður og
smyglað til landsins í verulegum
mæli.
Ólafur Þ. Þórðarson hafði fram-
sögu fyrir áliti minnihlutans sem
styður skoðun sína þeim rökum
að með breytingunni myndi áf-
engisneysla stóraukast í landinu.
Taldi Ólafur rök meirihlutans
ekki haldbær.
Gunnar G. Schram gat þess að
nú þegar drykkju landsmenn 15-
20 lítra á mann af löglega inn-
fluttu og smygluðu öli og bjórlíki.
Gunnar hefur skrifað undir álit
meirihlutans með fyrirvara.
Forseti frestaði fundi þannig
að ekki gafst tækifæri til að fjalla
um nýja breytingartillögu Kar-
vels Pálmasonar um þjóðarat-
kvæðagreiðslu um málið.
hágé.