Þjóðviljinn - 07.05.1985, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 07.05.1985, Blaðsíða 15
FRÉTTIR Jökulfellið Sérhannað fyrir Sambandið Nýjastaflutningaskipflotans tekur bœðifryst- an fisk og gáma. Mikil hagrœðing og aukin nýting. Jökulfellið nýjasta skip Sam- bandsins er nú í sinni fyrstu ferð til Bandaríkjanna fulllestað frystum fisk og að auki með gáma sem skipið flytur frá Evrópu vest- ur um haf. Skipið sem kom til landsins á dögunum var smíðað í Englandi. Það er sérstaklega byggt eftir til- lögum starfsmanna Skipadeildar Sambandsins og er einstakt að mörgu leyti. Jökulfellið er bæði búið til flutnings á frystum varn- ingi á pöllum í lestum, svo og á varningi í gámum á þilfari. Hægt er að afþýða frystilestar og nýta skipið eingöngu til gámaflutn- inga. Hér er því um tvö skip að ræða í einu og hefur þetta mikla hagræðingu í för með sér þar sem frystiskipin sem siglt hafa á Bandaríkin hafa nýst illa til flutn- inga heim aftur. Jökulfellið kostaði 320 miljón- ir. Það er rúmar 3000 lestir af burðargetu og tæpir 94 metrar á lengd. Aðalvél er finnsk, rúm 4000 hestöfl og brennir þykkri svartolíu. Fjórir stórir kranar eru á skipinu og getur skipið því sjálft annast affermingu og lestun og skipið er sérstaklega hannað til að geta athafnað sig í þröngum höfnum á stöndinni. Skipstjóri á Jökulfellinu er Heiðar Kristinsson og yfirvél- stjóri Björn Björnsson en alls eru 12 í áhöfn. -Ig Útgáfa Læra að beita rikisvaldinu alþýðunni í hag Einar Olgeirsson íforystugrein Réttar: Kominn tími til aðfagleg og pólitísksamtök alþýðu læri það af yfirstéttinni að ná meirihlutavaldi á alþingi. En nú er tími til kominn að öll samtök alþýðu, fagleg og póli- tísk, læri það af yfirstéttinni að ná meirihlutavaldi á alþingi tU þess að hækka laun sín eða vernda, afla sér frekari mannréttinda eða verja þau, sem til eru, - og beita alþingi og ríkisvaldi alþýðunni í hag, segir Einar Olgeirsson m.a. í forystugrein Réttar sem nýlega er kominn út. „ASÍ - BSRB - FFSÍ - BHM - og fleiri samtök hins vinnandi fólks hafa innan sinna vébanda yfir 80 þúsund manns og í sam- starfi við vinveitt stjórnmála- samtök væri hægðarleikur fyrir þessar vinnandi stéttir íslands að ná sjálfar meirihlutavaldi á al- þingi og nota það vald vinnandi fólki til hagsbóta og svo til að stjórna landinu af viti sem yfir- stéttinni er ósýnt um af því hún glápir í sífellu einvörðungu á það hvernig hún geti grætt á kostnað alþýðu“. I Rétti eru m.a. grein eftir Gerði Óskarsdóttur um stöðu kvenna við lok kvennaáratugar, smásaga eftir Elísabetu Þorg- eirsdóttur, Innan eða utan kerfis,' - þar er birt erindi Inga R Helga- sonar um einkarekstur - opinber- an rekstur, sem Ingi Ragnar flutti á ráðstefnu Stjórnunarfélagsins í fyrra og vakti mikla athygli. Þá er tí Rétti grein eftir Einar - ísland „farsældar Frón“ eða amrísk ár- ásarherstöð og nýlenda á ný? Enn fremur eftir Einar grein um byitingarhreyfinguna 1905 og um Jónas frá Hriflu. Smásagan Ga- malt járn eftir kúbanska rithöf- Einar Olgeirsson. Á næsta ári verða 60 ár trá því að hann tók við Rétti af Þórólfi frá Baldursheimi. undinn Cardosa í þýðingu Ingi- bjargar Haraldsdóttur er í tíma- ritinu og þriðji hluti greinaflokks um Mið-Ameríku. Þá eru hefð- bundir þættir í Rétti Neistar, er- lend og innlend víðsjá á sínum stað. Með þessu riti hefst 68. ár- gangur Réttar, sem Þórólfur frá Baldursheimi stofnsetti og Einar Olgeirsson hefur haldið úti frá ár- inu 1926. Tveir árgangar hafa dottið út, árið 1945 og 1956, en annars hefur Réttur komið út á hverju ári. Á næsta ári á því tíma- ritið sjötugsafmæli auk þess sem Einar Olgeirsson hefur haldið Rétti úti í 60 ár og hlýtur það að vera einsdæmi í heiminum að sami maðurinn hafi verið ritstjóri sama tímaritsins jafn lengi. -6g Þriðjudagur 7. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 Jökufeli, hið nýja og glæsilega fjölhæfnisskip Sambandsins. FERÐAVASABOK FJÖLVÍS 1985 OMISSANDI I FERÐALAGIÐ! Meðal efnis t.d.: 40 íslandskort - Kort af öllum hringveginum - Heimshluta- kort - Sendiráð og ræðismannaskrif- stofur um allan heim - Ferðadagbók - Ferðabókhald - Öryggiskort - Gjald- eyristöflur - Kaupstaðakort - Evrópu- vegirnir - Neyðar- og viðgerðaþjón- usta - Vegalengdatöflur - Bandaríska hraðbrautakerfið - o.m.fl. sem of langt er upp að telja. Við höfum meira en 30 ára reynslu í útgáfu vasabóka, og sú reynsla kemur viðskiptavinum okkar að sjálfsögðu til góða. Og okkur hefur tekist einkar vel með nýju Ferðavasabókina okkar og erum stoltir af henni. Þar er að finna ótrúlega fjölbreyttar upplýsingar, sem koma ferðafólki að ómetanlegu gagni jafnt heima sem erlendis. tasinqar hverjum degi eru á boröum í Goöheimum, veifingasal okkar. Viö bjóöum: Sfaögóöan morgunverö, létfan hádegisverö og glœsilegan kvöldverö. Einnig miödegis- og kvöldkaffi meö bœjarins bestu tertum og kökum. Goöheimar er tilvalinn áninga- staöur, þegar veriö er i verslun- arleiöangri eöa þreytandi útréttingum. 4-lóteN-lok Rauöarárstig 18 , Sími 28866 \

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.