Þjóðviljinn - 07.05.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 07.05.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Þriðjudagur 2. maí 1985 101. tölublað 50. árgangur UÚÐVmiNN Hvalur h/f Býður 120 miljónir í Júní Kristján Loftsson: Þetta er allt í deiglunni, vona aðþettafari að skýrast. Nýtafrystigeymslurfyrirtækisins íHafnarfirði ogaðra aðstöðufyrirtogarann. Við erum að tala við bæjaryfir- vðld. Það er ýmsilegt í þessu sem þarf að njörva betur niður“, sagði Kristján Loftsson forstjóri Hvals h/f sem nú stendur í samn- ingaviðræðum við bæjaryfirvöld í Hafnarfirði um kaup á skuttog- aranum Júní. Hvalur hefur boðið nær 120 miljónir fyrir skipið sem er hæsta boðið sem barst en þrír aðrir aðil- ar sýndu togaranum mikinn áhuga. „Ég man ekki þessar tölur, þetta er nokkuð flókið reiknisdæmi", sagði Kristján í gær er kauptilboð Hvals var borið undir hann. „Já við höfum haft áhuga ef verðið er ekki alveg uppi í skýj- unum. En það er ýmislegt sem þarf að skoða betur. Það stóð til að funda um helgina en því var frestað. Þetta er allt í deiglunni. Ég vona að þetta fari að skýrast. Hvalur hyggst breyta Júní í frystitogara, og sagði Kristján að ýmis aðstaða sem fyrirtækið hef- ur í Hafnarfirði svo sem frysti- geymslur myndi nýtast fyrir út- gerð skipsins, en menn gengu að því vísu að nú færi síðasta hvalveiðivertíðin í hönd. Auk Hvals buðu í Júní útgerð- araðilar frystitogaranna Hólma- drangs og Akureyrar auk ís- lenskra matvæla í Hafnarfirði sem voru í samvinnu við erlenda aðila. Eins og Þjóðviljinn hefur áður bent á er b/v Júní skráður á 31,2 miljónir í eignarmati en trygging- armat togarans er uppá 116 milj- ónir. -lg- Skák Tveir nýir alþjóða- meistarar Karl Þorsteins og Sœvar Bjarnason komnir í hópinn. Tryggðusér lokaáfangann í Borgarnesi. Eigum nú 3 stórmeistara og 7 alþjóðlega. íslenskir skákmenn bættu enn einu sinni skrautfjöðrum í hatt sinn, þegar þeir Karl Þorsteins og Sævar Bjarnason tryggðu sér titil alþjóðaskákmcistara á opna skákmótinu í Borgarnesi sem lauk um helgina. Karl hlaut 6Vi vinning og Sævar 6 af 11 mögu- legum á þessu sterka skákmóti sem 6 stórmeistarar tóku þátt í. „Nei ég myndi ekki segja að þetta hafi verið erfitt en það var dálítið álag í restina“, sagði Sæ- var Bjarnason í samtali við Þjóð- viljann. Sævar varð að fá 2Vi vinning úr síðustu þremur skák- unum til að tryggja sér lokaáfang- ann. „Já ég stefndi markvisst að þessum áfanga. Það var alveg klárt að ég ætlaði að ná í þennan titil. Þetta var sterkt mót en Meistarajafntefli: Nýbakaðir alþjóðameistarar tóku eina lótta hraðskák fyrir Þjóðviljann í blíðunni í gær. Þeir sömdu um jafntefli eins og í Borgamesi á dögunum. Mynd -E.OI. skemmfilegt", sagði Sævar. „Þetta var ekki erfiður áfangi. Ég þóttist nokkuð öruggur um að ná honum. Það þurfti aðeins að tefla uppá öryggið, tapa helst engri skák og tryggja sér 2-3 vinn- inga á þeim veikari. Þetta gekk upp“, sagði Karl Þorsteins sem lengi hefur beðið eftir síðasta á- fanganum. Karl er að byrja í prófum í Háskólanum og tók með sér námsbækurnar í mótið. „Ég reyndi að líta í þær fyrstu dagana, en síðan urðu þær að liggja óhreyfðar. Næst er það opið mót í Vestmannaeyjum eftir prófin, en síðan held ég að maður taki sér smá frí frá skákinni“, sagði hinn nýbakaði meistari. -Ig- Kvikmyndahátíð Útvarpsráð Biskup íhugar mótmæli Páfi á bœn gegn Godard-kvikmynd. Hinrik biskup: r Akvikmyndahátíð í Reykjavík seinna i maí á meðal annars að sýna síðustu mynd franska leikstjórans Jean-Luc Godard, Je vous salue, Marie/Heill þér Mar- ía. Kvikmyndin hefur vakið ólgu meðal strangtrúaðra kaþólikka og bárust þær fréttir frá Róm nú um hélgina að páfi hefur skorið upp herör gegn kvikmyndinni og lagst á bæn við Postulakirkjuna í Róm til heiðurs Maríu guðsmóð- ur og fyrir sálarheill þeirra sem hafa „afskræmt andlega þýðingu kristinnar trúar“. Kaþólski bisk- kaþólikkar sárir upinn yfir íslandi, Hinrik Fre- hen, sagði við Þjóðviljann í gær að hann íhugaði að mótmæla í tilefni af sýningu myndarinnar hér. „Ég veit að efni myndarinnar særir alla sanna kaþólikka“ sagði biskup en kvaðst mundu bera sig saman við kvikmyndasérfræðing og kaþólska leikmenn áður en hann bregst við sýningum hér- lendis. í mynd Godards er María dóttir bensínstöðvarstjóra og Jósef leigubílstjóri. María kemur fram nakin í nokkrum mynd- skeiðum. Biskup sagðist einnig mundu byggja afstöðu sína á áliti annarra kaþólskra jafningja sinna. Hann hefði undir höndum yfirlýsingar ýmissa biksupa í Frakklandi, Sviss og víðar og væru þær flestar neikvæðar í garð myndarinnar. Salvör Nordal framkvæmda- stjóri Listahátíðar sem heldur kvikmyndahátíðina sagði í gær að engar athugasemdir hefðu borist við sýningar myndarinnar frá ka- þólsku kirkjunni eða kaþólskum leikmönnum. -m Þrefalt vantraust Meirihluti útvarpsráðs tekur að sér að ritstýra efni hljóðvarpsins þvertávilja dagskrárstjóra. Meirihluti útvarpsráðs hnekkti þremur dagskrártil- lögum frá dagskrárstjóra á síð- asta fundi sínum, - og fór þannig inná verksvið dagskrárdeildar hljóðvarps. Eins og Þjóðviljinn greindi frá á laugardaginn hafnaði ráðið til- lögu deildarinnar um frétta- tengdan laugardagsþátt undir umsjón Ævars Kjartanssonar og Ólafs H. Torfasonar. Inga Jóna Þórðardóttir stakk upp á rabb- þætti undir umsjón Páls Heiðars Jónssonar og Ólafs H. Torfa- sonar. í staðinn létu þær Ingi- björg Hafstað og Gerður Óskars- dóttir bóka mótmæli sín við þess- ari ákvörðun sem sýni starfs- mönnum útvarpsins dæmalausa lítilsvirðingu og vantraust. Meirihlutinn réði einnig Sverri Diego til að sjá um síðdegisþátt án þess að það kæmi fyrir dag- skrárdeild sem var með aðrar til- lögur í smíðum. I þriðja lagi bætti meirihluti út- varpsráðs við umsjónarmanni að þætti um málefni kvenna, sem þær Margrét Oddsdóttir og Sig- ríður Árnadóttir höfðu ætlað að taka að sér. Ráðið hafði ekkert samráð við viðkomandi um hinn þriðja umsjónarmann. -úg Sjá leiðara bls. 4.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.