Þjóðviljinn - 07.05.1985, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 07.05.1985, Blaðsíða 8
MANNUF Sund og önnur líkamsrækt er mikilvægur þáttur í félagsstarfi aldraðra og getur haft mikla þýðingu í baráttunni gegn einmanaleikanum Aldraðir Gegn einmanaleikanum Menningarsamband aldraðra á Norðurlöndum heldur ráðstefnu í Reykjavík um næstu helgi Á fimmtudaginn hefst á Hótei Esju ráðstefna á vegum Menning- arsambands aldraðra á Norður- löndum (Samnordisk Pensio- nárkultur) og stendur í fimm daga. Þingið sækja liðlega 50 út- lendingar og um 20 íslendingar, aðallega fólk sem vinnur við fé- lagsstarf aldraðra. Verndari ráð- stefnunnar er forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir. Það eru tvær konur sem borið hafa hitann og þungann af undir- búningi ráðstefnunnar hér á landi, þær Jónína Kristjánsdóttir úr Keflavík og Anna Sigurkarls- dóttir úr Kópavogi. Þær hafa báðar starfað að málefnum aldr- aðra undanfarin ár og við báðum þær að segja frá þessu starfi. „Menningarsamband aldraðra á Norðurlöndum var stofnað í ág- úst 1982 og þetta er fjórða ráð- stefnan sem það heldur. Formað- ur sambandsins er Finninn Bjarne Lönegren en í stjórn eiga sæti einn fulltrúi frá hverju landi, Söngför Skagfirska söngsveitin til Ítalíu 18 daga ferð sem hefst 28. maí Það var enginn smáræðis hljómur, sem mætti blaða- manni Þjóðviljans þegar hann leit inn á æfingu hjá Skagfirsku söngsveitinni i félagsheimil- inu Drangey kvöld eitt nú fyrir nokkru. Verið var m.a. að æfa nýstárlegt lag eftir Gunnar Reyni Sveinsson, átakamikið og næsta óvenjulegt að gerð miðað við kórlög yfirleitt. - Það kom auðvitað ekki ann- að til mála en að við tækjumst á við þetta lag, sögðu þau Björgvin Þ. Valdimarsson söngstjóri og Lovísa Hannesdóttir, formaður Söngsveitarinnar. - Gunnar Reynir samdi lagið í tilefni af 15 ára afmæli kórsins, við kyndugan texta eftir Halldór Laxness. Lagið er kröfuhart en við erum að vona að okkur takist samt að komast svona sæmilega frá því og það er greinilegt, að söngfólkið hefur gaman af að takast á við nýstárlegt viðfangsefni. Skagfirska söngsveitin var stofnuð fyrir 15 árum og hefur starfað óslitið síðan. Snæbjörg Snæbjarnardóttir stjórnaði henni frá upphafi og þar til fyrir 2 árum, að Björgvin Þ. Valdimarsson tók við. - Við byrjuðum æfingar 1. september í haust og var það óvenju snemmt, sögðu þau Björgvin og Lovísa. En afmælið rak á eftir. Fyrst æfðum við sérs- takt jólaprógramm og fluttum það bæði í Reykjavík og Hverag- Jónína situr þar fyrir íslands hönd. Ráðstefnurnar fara þannig fram að fengnir eru góðir kennar- ar og fyrirlesarar til að fjalla um málefni ellinnar og leiðbeina okkur sem stöndum í að skipu- leggja félagsstarfið. Mest áhersla er þó lögð á að kynna útlending- unum það sem gert er hér heima auk þess sem mikið af starfinu fer fram í hópum. Það verður farið í Norðurbrún þar sem sett verður upp sýning á handavinnu þeirra sem þar búa og í Kópavogi verður haldin leikfimisýning þar sem þátttak- endur eru á aldrinum 70-88 ára. Einnig verður farið í Hveragerði og elliheimilið Ásbyrgi skoðað. Haldin verður tískusýning á föt- um fyrir aldraða og þeir Gylfi Þ. Gíslason og Þórir H. Guðbergs- son halda erindi auk erinda út- lendinganna. Mikið af starfinu fer fram í hópum þar sem fengist verður við leik, söng, handavinnu ofl. Á kvöldin verða kvöldvökur þar sem áhersla er lögð á að fólkið skemmti sér sjálft en sé ekki matað.“ - Á hvaða aldri eru þátttakend- ur? „Þeir eru á ýmsum aldri en í hópnum eru margir sem komnir eru á eftirlaun og starfa að félags- málum aldraðra. Á Norðurlönd- unum er mikið um að fólk fari fyrr á eftirlaun en hér á landi. Á fyrri ráðstefnum hefur komið glöggt í ljós að fólk getur ýmislegt gert þótt það sé orðið gamalt. í Svíþjóð tróð upp hljómsveit níu kvenna sem á yngri árum höfðu allar fengist við hljóðfæraslátt. Þær höfðu tekið sig til og grafið upp gömlu hljóðfærin sín, gítara, mandólín ofl., og voru farnar að leika opinberlega, mas. í ein- kennisbúningum. Og þær voru búnar að fara til Ameríku til að leika þar á tónleikum. Meginmarkmiðið með svona ráðstefnum eins og öllu félags- starfi aldraðra er að virkja fólk svo það verði ekki einmana. Það er svo margt hægt að gera til þess og það þarf ekki að kosta mikinn pening. Svona mót eru mikilvæg fyrir þá sem sinna þessu starfi, þau örva fólk í starfi og veita nýj- um hugmyndum inn í félagsstarf- ið“. Þeir sem hafa áhuga á að fylgj- ast með ráðstefnu Menningars- ambands aidraðra á Norður- löndum eru velkomnir á Hótel Esju meðan á henni stendur. Hún verður sett á fimmtudags- kvöldið kl. 21 og síðan verður dagskrá á hverjum degi frá kl. 8-18 nema sunnudag því þá verð- ur farið í skoðunarferð austur fyrir fjall. Reyndar hefst starfið kl. 7.30 á morgnana því þá gera þátttakendur nokkrar léttar leikfimiæfingar á bflaplaninu bak við Hótel Esju. Ráðstefnunni lýkur á mánudagskvöld. -ÞH erði. Við vorum í einskonar æf- ingabúðum austur í Ölfusborgum í haust og svo aftur í janúar. Var ' sú dvöl hvorttveggja í senn, gagn- leg og skemmtileg. Æfingar hafa verið tvisvar í viku en oftar nú upp á síðkastið. Nú stendur fyrir dyrum önnur utanför Söngsveitarinnar. Hún fór söngför til Kanada 1981 en nú mun leiðin liggja til Íalíu. Er áfor- mað að fara 28. maí og tekur „túrinn" 18 daga. Aðalaðsetur- staðurinn verður Bolsana í Týról, þótt að sjálfsögðu verði sungið víðar, en aJIs verða haldnir 5 tón- leikar. Sigurður Demetz hefur raddþjálfað kórinn og verður hann fararstjóri í utanförinni. Undirleikari er nú sem að undan- fömu, Ólafur Vignir Albertsso Einsöngvarar eru Guðbjö Guðbjörnsson og Halla Jón; dóttir, en bæði eru þau nemend Demetz. Ekki gera kórfélagar ráð fy: því að fá neinn fjárhagsstyrk fararinnar. Þeir verða því bara; treysta á mátt sinn og megin. Ýi islegt hefur verið gert til þess ; afla farareyris. Meðal annars ef til happdrættis þar sem vinning voru ferð fyrir einn með kórnu út og fjögur málverk eftir ska firska listamenn. Auðvitað ver ur þetta dýrt ferðalag en söngfó hefur aldrei vflað fyrir sér að klí þrítugan hamarinn þegar söngi inn er annars vegar. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 7. maí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.