Þjóðviljinn - 05.06.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 05.06.1985, Blaðsíða 3
FRETTIRl Höfuðborgarumferðin Stefnir í algert óefni Yfir 60% umferðar og bílaflota en aðeins 15% af framkvœmdafé til höfuðborgarsvœðisins. Geir Gunnarsson: Þarfverulega aukið fjármagn til vegagerðar efástandið á ekki beinlínis að versna Ahöfuðborgarsvæðinu er um 60% af bflaflota landsmanna staðsettur og ríflega helmingur alls akstur á þjóðvegum landsins er innan höfuðborgarsvæðisins. Á hinn bóginn fer á þessu ári að- eins 15% af nýframkvæmdafé Eftir skákirnar í gærkveldi á al- þjóðlega skákmótinu í Vest- mannaeyjum er Lombardy efst- ur. Hann gerði jafntefli við Helga og er því með 5V2 vinning. Karl og Helgi fylgja fast á eftir með 5 vinninga hvor. Skákirnar fóru að öðru leyti þannig: Jón L. sigraði Braga, Karl vann Plaskett, skák Ásgeirs og Short fór í bið, Guð- mundur og Jóhann gerðu jafn- tefli, skák Lein og Tisdall fór í bið og sömuleiðis skák Björns og Ingvars. H.Kr. Milli stjórnar og stjórnarand- stöðu tókst ekki heildar- samkomulag í húsnæðismálum en í ýmsu hefur ríkisstjórnin tekið tillit til óska stjórnarandstöð- unnar einsog kom fram í greinar- gerð frá andstöðunni sem kynnt var á blaðamannafundi í gær. Þau Guðrún Agnarsdóttir, Stefán Benediktsson, Jóhanna Sigurðar- dóttir og Svavar Gestsson kynntu málið og sögðu m.a. að stjórnar- andstaðan hefði lagt til að ijáröfl- unarleiðir sem skila ættu hús- næðiskerfinu 1.7 miljarði til við- bótar, en tillögur ríkisstjórnar- Leiðrétting í þættinum Hvernig endast launin víxlaðist texti í viðtölum við þær Súsönnu Torfadóttur starfsstúlku og Björgu Sigurvins- dóttur fóstru. Við biðjumst af- sökunar á mistökunum. vegaáætlunar til vegafram- kvæmda á höfuðborgarsvæðinu og Reykjaneskjördæmi öllu. „Þegar umferðarþunginn er orðinn svo mikill á svo þröngu svæði sem höfuðborgarsvæðinu Við erum bjartsýnir á að sam- komulag takist áður en til boðaðs verkfalls kemur, þann 10. júní, sagði Friðrik Haraldsson formað- ur Félags leiðsögumanna, þegar hann var inntur eftir deilum fél- agsins við ferðaskrifstofurnar. Deilurnar snúast um kaup og innar ganga út á fjáröflun sem nemur einum miljarði króna sem viðbótarfjármagn. í greinargerð andstöðunnar kom m.a. fram að ástæður hús- næðisvandans væru fyrst og fremst vegna þess að kaupgjalds- vísitalan hefði verið tekin úr sam- bandi á sama tíma og lánskjara- vísitalan hækkaði hrikalega, og vegna þess að vextir hefðu hækk- að gífurlega. í ljósi þessa hefði stjórnarandstaðan lagt fram til- lögur um stórfellda fjáröflun til húsnæðismála og um breytta út- lánastefnu. Meðal ítarlegra til- laga andstöðunnar voru eignask- attsauki á fyrirtæki og stóreignir, húsnæðisgjald á fyrirtæki í versl- un og þjónustu, hækkun áfengis og tóbaks, skattfrjálsa sparnað- arreikninga, lækkun vaxta þann- ig að þeir yrðu aldrei hærri en 3% af húsnæðislánum, víðtæka greiðslujöfnun, misgengi vísit- alna launa og lána yrði leiðrétt í og einkum í Reykjavík sjálfri, þá verða slík umferðarvandamál ekki leyst nema með afar dýrum mannvirkjum. Það eru mörg slík verkefni óleyst og verður að leysa á næstu árum ef ekki á að stefna í óefni í umferðinni. Þessi vanda- kjör. Félag leiðsögumanna hefur sett á oddinn hækkun dagvinnu- launa, sem eru nú á bilinu 15.700 - 17.000 krónur. Félagið hefur krafist breyttra viðmiðana á þann veg að miðað verði í auknum mæli við fræðslustéttir í landinu. Þá hafa leiðsögumenn sett fram formi skattaafsláttar, lánshlutfall til þeirra sem byggja eða kaupa í fyrsta sinni yrði hækkað veru- lega, lög um húsnæðissamvinn- ufélög yrðu afgreidd á þessu þingi, skipuð yrði milliþinga- nefnd serrí endurskoðaði allt húsnæðiskerfið og gerði tillögur um nýja húsnæðisstefnu - og áætlun til aldamóta. Niðurstaða ríkisstjórnarinnar tekur nokkurt mið af þessum málatilbúnaði stjórnarandstöðu: stjórnin féll frá hugmyndum um aukin erlend lán, féllst á tillögur um eignaskattsviðauka en hafn- aði frekari skattlagningu á fyrir- tækin, féllst einnig á að skipa milliþinganefnd, gefur fyrirheit um sérstakan skattaafslátt til hús- næðiskaupenda á næsta ári, út- víkkar greiðslujöfnunarhug- myndina. Ástæður þess að htildar- samkomulag tókst ekki, segir í greinargerð stjórnarandstöð- mál verða ekki leyst með ámóta fjárhæðum og fengist hafa með þeirri skiptingu fjármagns sem verið hefur á vegaáætlun heldur þarf að koma til verulega aukið fjármagn“, sagði Geir Gunnars- son m.a. um Vegaáætlun á al- þingi á dögunum. Geir benti á að núverandi ríkis- stjórn hefði aldrei staðið að fullu við fjárveitingar til vegamála samkvæmt langtímaáætlun. Á þessu ári ætti að verja 2.4% af þjóðarframleiðslu til vegamála samkvæmt langtímaáætlun en búið væri að skera þá tölu niður í 1.87%. Framkvæmdafé til ný- framkvæmda væri skorið niður um 135 miljónir og til viðhalds vega um 23 miljónir. „Þess sjást ótvíræð merki að ástand vegamála og umferðar hefur batnað mjög verulega víð- ast úti á landsbyggðinni á undan- förnum árum, en á sama tíma blasir við að verulega aukið fjár- magn þarf til framkvæmda í vega- málum á höfuðborgarsvæðinu ef ástandið á ekki beinlínis að versna með hverju ári á þessu mesta umferðarsvæði landsins þar sem meira en helmingur alls aksturs í landinu á sér stað“, sagði Geir Gunnarsson. kröfu um að tungumálakunnátta þeirra og sá fróðleikur sem þeir flytja á erlendum tungum verði einhvers metin við útreiknings kaups. pv unnar, eru þær að stjórnarflokk- arnir kusu að gera söluskatts- hækkun að meginuppistöðu í tekjuöflun, en andstöðuflokk- arnir eru slíkri skattlagningu andsnúnir. Stjórnarflokkarnir höfnuð tillögum um vaxtahækk- un, vildu ekki tryggja afgreiðslu Búsetafrumvarpsins, vildu ekki tryggja endurgreiðslur þegar á þessu ári, höfnuðu því að taka hagnað Seðlabankans inní bygg- ingasjóðina og fleira. Stj órnarandstöðuflokkarnir telja engu að síður að miðað við aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í þessum málum og áform hennar um erlend lán, hafi nokkur ár- angur náðs. Hins vegar valdi nkisstjórnin tekjuöflunarleið sem andstaðan getur ekki sætt sig við. Þrátt fyrir talsverðan árang- ur er niðurstaðan því engu að síður ófullnægjandi, segja tals- menn stjórnarandstöðuflokk- anna á alþingi. -óg. HVERNIG ENDAST LAUNIN? Vilborg Vilmundardóttir frystihús- starfsmaður og húsmóðir „Betra að lækka vörurnar“ „Launin endast engan veginn, við hjónin spörum allt við okkur en engu að síður þá er maður skuldum vafinn. Ég held að það væri betra að lækka vörurnar en láta kaupið standa í stað, því að reynslan hef- ur sýnt að ef kaupið hækkar þá hækkar allt í samræmi við það. É’g bý á Hólmavík og hef því ekk- ert viðmið í sambandi við vöru- verð við höfum bara kaupfélagið hvort sem okkur líkar betur eða verr.“ -sp Bragi Guðmundsson smiður „Launin endast ágætlega...“ „Launin endast ágætlega, ég er sjálfstæður atvinnurekandi svo ég þarf ekki að kvarta yfir laununum. Ég geri mér grein fyrir vanda- málum launamanna, og myndi ég ekki treysta mér til að lifa á þeim launum sem fólki er boðið upp á. Það hefur sýnt sig að launataxtar eru að engu hafðir og gildir frum- skógarlögmálið í yfirborgunum. Ég finn mikinn mun á því að vera sjálfstæður atvinnurekandi og launamaður, því ég byrjaði auðvitað á þvf að vera launamað- ur.“ -sp Sigvaldi Einarsson nemi og verslun- armaður. Verkföll hafa ekkert upp á sig „Þau rétt endast fyrir húsaleigu og mat, síðan er enginn afgangur þó að við vinnum bæði hjónin úti. Ég tel að verkföll hafi ekkert upp á sig, því að tekjurýrnunin, þegar maður er t.d. í 5 vikna verkfalli, er svo mikil að Vi af kauhækkuninni fer í að rétta sig af. Staða launþega er erfið í þjóðfélaginu í dag, þjóðfélagið bíður ekki upp á hærri laun, því að þjóðarinnkoman er ekki meiri. í dag getur fólk ekki eignast neitt." -sp Tölvur og hross... ( gær sprettu úr spori 150 starfsmenn tölvufyrirtækisins IBM á Norðurlöndum sem hér eru á ráðstefnu. Hestamannafélagið Fákur skipulagði reiðtúrinn og sá um að allt færi vel. Ljósm. E.ÓI. Lombardy efstur Félag leiðsögumanna Bjartsýnir á samkomulag Hafa boðað verkfalllO. júní Húsnœðisvandinn Miljarður til viðbótar Miðvikudagur 5. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.