Þjóðviljinn - 23.07.1985, Qupperneq 13
Þetta bam kom í heiminn með opið sár á hrygg og mun ekki lifa af. Búist er við að
hundruðvanskapaðrabarnamuni fæðast í Bhopal á naestunni.
höfðu indversk- stjórnvöld þver-
tekið fyrir að framleiðsla yrði þar
hafin að nýju. Þá er m.a: spurt
um það, hvað verður um það fólk
sem áður hafði lifibrauð sitt af því
að starfa við þennan háskasam-
lega iðnað. Forystumenn ind-
verskra verkalýðsfélaga telja að
Union Carbide beri skylda til að
sjá fyrir því fólki sem er eftir
skilið á vonarvöl. En auðhringur-
inn þvær hendur sínar - og rey nist
nógu erfitt til að fá hann til að
viðurkenna eigin ábyrgð gagn-
vart fórnarlömbum slyssins og
aðstandendum þeirra.
Union Carbide hefur látið fara
fram rannsókn á slysinu á eigin
vegum og hefur það rækilega
komið fram að öryggisráðstafanir
allar voru mjög í skötulíki í verk-
smiðjunni. En Union Carbide
varpar allri sök á hina indversku
stjórn útibúsins í Bhopal, hún
hafi sýnt glæpsamlega vanrækslu
að því er öryggisráðstafanir varð-
ar. Stjórn verksmiðjunnar heldur
að sínu leyti stíft fram sakleysi
sínu gagnvart indverskum
stjórnvöldum - hún heldur því
fram að „móðurfyrirtækið" í
Bandaríkjunum hafi aldrei gert
nokkrum manni á Indlandi grein
fyrir því hve hættulegt eitrið var
sem framleitt var í Bhopal. Og
hafi Union Carbide sparað mjög
öryggisráðstafanir - ekki síst í
samanburði við það sem gert er
til öryggis í verksmiðjum í
Bandaríkjunum sjálfum.
Indversk verkalýðsfélög fninna
á það, að þegar fyrir tveim árum
hafi þeir varað eindregið við því
hættuástandi sem ríkti í verk-
bandarískra lögfræðinga, sem
hafa fengið umboð frá ættingjum
allmargra hinna látnu til að reka
skaðabótamál fyrir þeirra hönd
fyrir bandarískum dómstólum -
og ætla sér sjálfir að græða óspart
á öllu saman.
A meðan berjast hin örsnauðu
fórnarlömb slyssins í Bhopal af
miklum vanmætti fyrir rétti sín-
um til þeirra skaðabóta og þeirrar
neyðarhjálpar sem hefur verið
boðin til þessa. Þetta fólk bjó
flest í hreysahverfi sem smám
saman hefur verið að vaxa og
þokast nær og nær verksmiðjunni
- með samþykki yfirvalda. Og
flest verður til að leggja stein í
þess götu.
Eftir slysanóttina skelfilegu
voru hundruð líka husluð í fjölda-
gröfum. Engu að síður krefjast
indversk yfirvöld af hverjum
þeim sem sækir um hjálp dánar-
vottorðs ættingja eða læknisvott-
orðs. Mikill er fjöldi þeirra sem
ekki geta með nokkru móti lagt
fram slíka pappíra og fá því ekki
þær tíu þúsund rúpíur (ca 33 þús-
und krónur) sem greiddar eru til
ættingja þeirra sem létu lífið, eða
þær ca. 500 krónur sem greiddar
eru alvarlega slösuðum.
Spílling og svik
Um nokkurra mánaða skeið
hefur verið úthlutað ókeyþis
mjólk til bágstaddra í Bhopal.
Það er hluti neyðarhjálpar ind-
verskra stjórnvalda. En þessi
mjólkurpeli á dag á hvern fjöl-
skyldumeðlim, einatt blandaður
India telur, að þær fjölskyldur
skipti þú^undum sem fá ekki einu
sinni þesáa aðstoð. Sykur og mat-
arolía og annað, sem átti að fylgja
með neyðarhjálpinni, sjást varla.
Sarna blað telur að í mörgum
hverfum komi urn þriðjungur
þessarar matvælaaðstoðar aldrei
fram.
Læknisaðstoð og lyf eru þó
ókeypis fyrir alla en mjög er
undir hælinn lagt hvaða aðstoð er
veitt - og sjúkrahúsin yfirfull.
Enginn virðist vita hve margir
þeir eru sem biðu varanleg ör-
kuml í slysinu - sumir segja tíu
þúsund, aðrir segja ekki færri en
sextíu þúsund.
Allir hafa brugðist þessu fólki,
segir í grein í Stern um þetta mál:
Hjálparstofnanir sem litu á slysið
sem einskonar náttúruhamfarir
eins og flóð, sem líður hjá eftir
fáeina daga, og gerðu ekki ráð
fyrir því að nauðsynlegt væri að
búa til hjálparáætlun til lang-
frama; Indversk stjórnvöld, sem
og duglegu „tölvustrákarnir"
hans Rajivs Gandhi, hafa og leitt
hjá sér að taka málið föstum
tökum; Og náttúrlega höfuð-
sökudólgurinn, auðhringurinn
Union Carbide, sem reynir að
fela sig á bak við lagakróka til að
komast hjá því að greiða þá miklu
skuld sem hann hefur stofnað til.
Og enn er fólk hrætt í Bhopal.
Upp af verksmiðjunni mann-
lausri lagði hvítan reyk fyrir
nokkru - og fólk í grennd flúði í
dauðans ofboði. Talsmenn fyrir-
tækisins sögðu, að engin hætta
Eiturslysið mesta:
Vansköpuð böm fæðast í Bhopal
Langur eftirmáli— Union Carbideþvœr hendursínar—
Allir hafa brugðistfórnarlömbunum
Rúmu hálfu ári eftir
eiturslysið mikla í Bhopal á
Indlandi heldur fólk áfram
að deyja af völdum eitrunar
og það sem verra er: þeim
börnum fjölgar sem fæðast
vansköpuð eða andvana. I
þessu máli hafa allir brugð-
ist þeim íbúum fátækra-
hverfa, sem bjuggu í nám-
unda við efnaverksmiðju
Union Carbide, þar sem 40
tonn af eitri láku út - hjálp-
arsöfnunin, indversk
stjórnvöld og að sjálfsögðu
auðhringurinn sjálfur.
í Bhopal eru þess dæmi, að
börn fæðist andvana augnalaus,
handalaus og með hnýtta fætur.
Og sum þeirra barna sem þar
fæðast lifandi eru með skelfilega
fæðingargalla eins og t.d. barn
sem fæddist með opið sár á baki,
sem stöðugt blæðir úr. Og ind-
verskir læknar óttast að hér sé
aðeins um upphaf á því að hundr-
uð eða þúsundir örkumla barna
fæðist í Bhopal á næstu mánuð-
um.
Skelfilegt eitur
Talið er víst að það sé eiturefn-
ið MIC,sem haft er í skordýra-
eitur, valdi þessum fósturskaða -
en ekki var áður vitað að það
hefði þessi áhrif. Það var eitur
þetta sem slapp út úr verksmiðju
dótturfyrirtækis auðhringsins
Union Carbide í Bhopal í des-
ember leið, fjörutíu smálestir af
því breiddust yfir borgina eins og
dauðaský. 2500 manns létu þegar
lífið og um 200 þúsundir urðu
fyrir alvarlegu heilsutjóni, margir
urðu blindir, en flestir urðu fyrir
miklum skaða í lungum.
Staðaryfirvöld telja að síðan
hafi um 5000 manns látið lífið af
völdum eitrunar sem þeir urðu
fyrir slysdaginn. Hér er um að
ræða versta „iðnaðarslys" sem
sögur fara af. Eitrið reyndist
skaðvænlegra en flesta hafði
grunað og hefur valdið ólækn-
andi heilsutjóni í meiri fjarska en
áður var talið hugsanlegt. Með
þessum dapurlega hætti verður
Bhopal að einskonar
rannsóknarstöð á langtímavirkni
eiturgass - og fylgir það sögunni
að bandarískir sérfræðingar í
eiturhernaði hafi ferðast þangað
til að „læra“.
Spurt um
ábyrgð
Union Carbide hefur nú lokað
verksmiðjunni í Bhopal, enda
smiðjunni - en ekkert hafi verið
gert. Ganesh Pandley, fulltrúi
viðkomandi verkalýðssambands,
minnir á það, að um skuggalegt
samspil hafi verið að ræða milli
Union Carbide og yfirvalda í rík-
inu Madja Pradesh. Sá orðrómur
gekk síðustu misseri fyrir slysið,
að Union Carbide ætlaði að flytja
framleiðslu sína til Indónesíu, og
fylkisstjórnin vildi ekki missa
spón úr sínum aski og lét því hjá
líða að fylgja eftir kröfum verka-
lýðsfélaganna um strangar varúð-
arráðstafanir í verksmiðjunni.
Hér er semsagt, eins og víðar,
spurt um þau tök sem auðhringur
hefur á vanmáttugum stjórnvöld-
urn sem eru honum háð.
Skaðabætur
og neyðarhjálp
Hér er líka spurt um mikla pen-
inga. Union Carbide ætlaði að
leysa sig frá skaðabótakröfum
með því að bjóða fram „af frjáls-
um vilja" tiltölulega smáa upp-
hæð. Samningar um þetta við
indversk stjórnvöld hafa farið út
unt þúfur og búist er við löngum
og ströngum málaferlum. Þá
koma einnig við sögu málsins
„hákarlar" úr hópi harðsnúinna
vatni, fæst ekki nema gegn vott-
orðum, og þau liggja ekki á lausu
sem fyrr segir. Blaðið Times of
væri á ferðum, og urðu barasta
hissa þegar enginn trúði þeim.
AB tók saman.
Þriðjudagur 23. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17