Þjóðviljinn - 24.07.1985, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 24.07.1985, Blaðsíða 12
ALÞÝÐUBANDALAGK) Tilkynning til miðstjórnarmanna Alþýðubandaiagsins Framkvæmdastjórn Alþýöubandalagsins hefur ákveöiö að haust- fundur miöstjórnar verði haldinn í Reykjavík dagana 21 .-22. sept- ember n.k. Meginefni fundarins verða utanríkismál. Miöstjórnarmenn eru beönir aö festa sér þessa dagsetningu í minni og hafa í huga að berist óskir um aö á dagskrá verði tekin mörg mál gæti orðið að hefja miðstjórnarfundinn föstudagskvöldið 20. september. Þá er miðstjórnarmönnum bent á ráðstefnu um Þjóðviljann og ný viðhorf í fjölmiðlun sem ákveðið hefur verið að halda eftir hádegi sunnudaginn 22. september, en gert er ráð fyrir að Ijúka miðstjórn- arfundinum fyrir hádegi sama dag. - Flokksskrifstofan. Alþýðubandalagið í Reykjavík Sumarferð ABR 17. ágúst Árleg sumarferð Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður laugar- daginn 17. ágúst. Að þessu sinni verður ekið um Hvalfjörð og áð við Saurbæ og á Akranesi við kútter Sigurfara. Þaðan verður ekið aö Leirá. FráLeirá verðurfarið um Svínadal og að Reykholti. Síðan verður ekið um Uxahryggi og áð í Biskupsbrekku á Kaldadalsleið. Þaðan verður ekið um Þingvelli til Reykjavíkur. Fararstjórn að þessu sinni verður í höndum Árna Björnssonar og Kjartans Ólafs- sonar. Áningastaðir og allt fyrirkomulag ferðarinnar verður nánar kynnt í Þjóðviljanum síðar en ferðanefnd hvetur alla flokksmenn og stuðn- ingsmenn að panta miða tímanlega til að auðvelda allan undirbún- ing. Skráning farþega er í síma 17500. - Ferðanefnd ABR. Vesturland - Sumarferðalag - Verslunarmannahelgin Eins og undanfarin sumur efnir Alþýðubandalagið á Vesturlandi til útivistar og ferðalags um verslunarmannahelgina. Nú verður farið um Snæfellsnes og Nesið skoðað undir leiðsögn gagnkunnugra heimamanna. Gist verður í tvær nætur I svefnpokaplássi á Lýsu- hóli í Staðarsveit. Brottför er frá Akranesi kl. 9 og frá Borgarnesi kl. 10 á laugardagsmorgni 3. ágúst. Heimkoma síðdegis á mánudegi, 5. ágúst. Þau sem í ferðalagiö ætla að fara, láti skrá sig sem fyrst §á einhverjum eftirtalinna: löfu - síma 8811, Grundarfiröi, Jónu - síma 1894, Akranesi, Grétari - síma 7506, Borgarnesi, Skúla - síma 6619, Hellissandi, Jóhannesi - síma 6438, Ólafsvík, Þórunni - síma 8421, Stykkis- hólmi, Kristjóni - síma 4175, Búöardal. Nesti, góðir gönguskór og viðlegubúnaður þarf að vera með í för. Það er margt sem alltaf er nýstárlegt og gaman að skoða á Snæ- fellsnesi. Gengið verður á Eldborg ef veður leyfir. Þetta er fjöl- skylduferðalag. - Allir velkomnir. - Kjördæmisráð. ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Friðarbúðir 7.-10. ágúst Ailir í friðarbúðirnar ÆFAB efnir til hópferðar í friðarbúðirnar í Njarðvík miðvikudaginn 7. ágúst og eru allir eindregið hvattir til að nota þetta einstæða tækifæri til andófs gegn helstefnu og hermangi á íslandi. Allir sem áhuga hafa á að taka þátt í undirbúningi fyrir ferðina 7. ágúst eða vilja kynna sér þetta nánar er bent á að áhugasamir friðarsinnar ætla að koma saman að Hverfisgötu 105, fimmtudaginn 25. júll kl. 20 og rabba saman um væntanlegar aðgeröir. Æskulýðsfylkingin í Reykjavík. Starfsmaður óskast í fullt starf tímabilið 29. júlí til 11. ágúst nk. við undir- búning og framkvæmd Friðarbúða og Hafnarfjarðar- göngu. Nánari upplýsingar í síma 17966. Samtök herstöðvaandstæðinga. Nei, Jói, ... því miöur, en það er soldið mikil fita á þessu. SKUMUR Láttu ekki svona, - við hverju býstu í grillbúllu? - það er alltaf soldið klístrað af fitu. ASTARBIRNIR Birna, er það virkilega rétt að engir snákar séu til á íslandi? En sorglegt, kannski við ættum að gangast fyrir samskotum og kaupa nokkra handa þeim. GARPURINN FOLDA í BLÍÐU OG STRÍÐU 1 2 3 • 4 5 6 7 m 8 . . . e 10 □ 11 12 13 □ 14 • n 15 ' 18 n 17 18 . n 19 20 t 21 n 22 23 □ 24 * n 25 KROSSGÁTA NR.5 Lárétt: 1 smyrsl 4 hristingur 8 fólin 9 skaut 11 firra 12 gabbar 14 guð 15 úrill 17 marklaus 19 sefi 21 mark 22 umhyggja 24 lögun 25 bað. Lóðrétt: 1 ákafi 2 styrkja 3 drykk- ur 4 miklu 5 ílát 6 æðir 7 þvoði 10 klaufsk 13 blása 16 fjölda 17 tóns 18 hreyfist 20 trylltu 23 eins. Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 hóar 4 afla 8 seinlát 9 ekki 11 dóna 12 tvista 14 ið 15 torg 17 iðkun 19 eir 21 sin 22 náið 24 snák 25 agni. Lóðrétt: 1 hvet 2 aski 3 reistu 4 andar 5 fló 6 láni 7 ataðir 10 kvíð- in 13 tonn 16 geig 17 iss 18 kná 20 iðn 23 áa. 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 24. júlí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.