Þjóðviljinn - 24.07.1985, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 24.07.1985, Blaðsíða 5
■ \ ♦ < ,Við þurfum ekkert útvarp. Sjávarniður og fuglasöngur fæst ekki á rás tvö“. Einar og Orri ofan í skemmugólfinu. Mynd: eik. „Hér gengur enginn aftur“ Litið við á Stóru-Borg, þar sem umfangsmesti tornleifauppgröftur Þjóðminjasafnsinsstendur yfir „Nei, við erum ekkert farin að lengja íslands- söguna íannan endann, - ekki ennþá, hvað sem verður. Við höfum nóg að gera við að skoða þessar 3 til 4 aldirsem mannvistarieifarnar héráStóru-Borg spanna. Þaðsem er einna skemmtilegast við þennan uppgröfter allt þetta hversdags dót sem við höfum náð í, alltfrá vettlingum í nöguð þorskbein. Með þessum uppgreftri fæst innsýn í daglegt líf manna en lítið hefur veriðgrafið uppfrá þessum tímatil þessa“, sagði Mjöll Snæsdóttir, fornleifa- fræðingur, sem við heimsóttum austur á Stóru-Borg. Það var raunar heppni að sólin skein glatt, þegar komið var nið- ur á sandhólinn, sem geymir rúst- irnar af bæ Önnu á Stóru-Borg og aðrar eldri og yngri rústir, því ár og sandbleyta gera svæðið erfitt yfirferðar og ekki sést í rústirnar fyrr en komið er alveg niður undir fjöruna. Uppgröfturinn á Stóru-Borg er umfangsmesti uppgröftur Þjóð- minjasafnsins og hefur nú staðið yfir í 7 sumur og er ekki nærri lokið. Fimm manns vinna við uppgröftinn og er unnið á hverju sumri í 6-10 vikur eftir því hvern- ig viðrar. „Hér hefur verið gott að búa, húsin eru vel reist og varð- veisluskilyrði ágæt. Ég er mest hissa hvað húsagerðin hefur lítið breyst í gegnum aldirnar", segir Mjöll og sýnir okkur ofan í rústir sem trúlega eru af skemmu. „Það er vegna þess að bændur í Rangárvallasýslu eru svo íhalds- samir“, segir Orri Vésteinsson, sem er að skafa skemmugólfið með múrskeið og fægiskúffu. „Láttu ekki nokkurn mann heyra þetta“, segir Mjöll og bætir við: „Þeir hlóðu að minnsta kosti fallega. Já, þetta er góður hóll og mikið af góðum húsum í honum. Bara að okkur takist að Ijúka við upp- gröftinn áður en sjórinn tekur þetta allt til sín“. Við setjumst niður til að fá okkur kaffisopa, en nestið er smurt ofan í hópinn uppi í Drangshlíð. Anna á Stóru-Borg, sú fræga kvenhetja, er fyrsti nafngreindi ábúandinn á Stóru-Borg, en meðal hluta sem fundist hafa er snældusnúður sem á er letrað nafnið Anna. Hvort það er sú eina sanna Anna er ekki vitað, en líklegt er að nafnið hafi loðað lengi við ættina. Þá hefur fundist rúna- „Þetta er góður hóll“, segir Mjöll Snæsdóttir, fornleifafræðingur. Miðvikudagur 24. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.