Þjóðviljinn - 24.07.1985, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 24.07.1985, Blaðsíða 8
ST. JOSEFSSPITALI, LANDAKOTI Lausar stöður: Röntgenhjúkrunarfræðingur-röntgentæknirósk- ast sem fyrst viö röntgendeild. Upplýsingar veitir deildarstjóri kl. 11 - 12 og 13 - 14 alla virka daga. Hjúkrunarfræðingar á handlækningadeild 1-B, 11- B, lyflækningadeild 11-A, barnadeild. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist hjúkrunarforstjóra kl. 11 - 12 og 13 - 14 alla virka daga. Skrifstofa hjúkrunarforstjóra. Óskum eftir að ráða þroskaþjálfa og annaö starfsfólk að dagheimilinu Lyngási frá og með 1. ágúst eöa 1. september. Upp- lýsingar veitir forstöðukona í síma 38228. Styrktarfélag vangefinna. Laus embætti SS er forseti íslands veitir Meö lögum nr. 61 27. júní 1985 var stofnað embætti dýralæknis fisksjúkdóma, er skal undir stjórn yfirdýra- læknis sinna vörnum, sjúkdómsgreiningu og reglu- bundnu eftirliti á sviöi fisksjúkdóma. Embætti þetta er hér meö auglýst laust til umsóknar. Laun greiðast samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu hafa aflað sér sérmenntunar á sviði fisksjúkdóma. Umsóknir ásamt upplýsingum um námsferil og störf sendist landbúnaöarráöuneytinu fyrir 20. ágúst n.k.. Landbúnaðarráðuneytið, 22. júlí 1985. Herstöðvaandstæðingar - friðarsinnar - kjarnorkuvopna- andstæðingar Tilkynnið þátttöku í Friöarbúðirnar sem fyrst í síma 17966 eða að Mjölnisholti 14, 3. hæð, Reykjavík. Skrifstofan er opin alla daga og flest kvöld. Brýnt er að sem flestir tilkynni sig, hvort sem um lengri eða skemmri þátttöku er að ræða. Samtök herstöðvaandstæðinga. Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir júní mánuð 1985, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. ágúst. Fjármálaraðuneytið, 19. júlí 1985. Móðir okkar og tengdamóðir Margrét Einarsdóttir Hjallalandi 24 verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. júlí kl. 15. Einar Kristjánsson Ingileif Eyleifsdóttir Matthías Kristjánsson Hjördís Magnúsdóttir Oddný Kristjánsdóttir Ragnar Bjarnason Sigurður E. Kristjánsson Hólmfríður Sigmunds Alúðarþakkir og góðar óskir sendum við venslafólki og vin- um, starfsliði Sjúkrahússins á Akureyri og öðrum er veittu hjálp, sýndu hlýhug og samúð við fráfall eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður, Eyjólfínu Eyjólfsdóttur frá Heiðarseli á Síðu. Árni Sigurðsson Þórunn Árnadóttir Rafn Jón Jónsson Halldóra Sigurrós Árnadóttir Rafn Valgarðsson Guðrún Áslaug Árnadóttir Pálmi Andrésson Elín Gíslína Árnadóttir Kristjón Guðbrandsson MENNING Réttur Kjarnorkuvetur Páll Bergþórsson skrifar um afleiðingar kjarnorkustríðs í 2. hefti tímaritsins Réttar Nú er komiö út 2. hefti 68.ár- þessu hefti kennir eins og oft gangsaf tímaritinu Rétti. í áðurýmissagrasa. Forsíðumynd Réttar: „Afleiðingarnar”, grafíkmynd eftir Francisco Goya úr myndaröðinni Hörmungar stríðsins. Meðal efnis í blaðinu má nefna grein eftir Helga Guðmundsson um íbúðakaup sem nefnist „Eigin íbúð. Frelsun eða hlekkir?” Páll Bergþórsson skrifar um áhrif kjarnorkustríðs á veðurfar og af- leiðingar þess. „Kennaradeilur 1984 og 1985” heitir grein eftir Heimi Pálsson um þær vinnu- deilur sem kennarastéttin á ís- landi hefur átt í á undanförnum misserum. Soffía Guðmunds- dóttir fjallar um Alexöndru Koll- ontay, líf hennar og baráttu. Þá er í Rétti fjórði hluti greina- flokks um Mið-Ameríku sem spannar tímabilið frá byltingunni á Kúbu og fram á 8. áratuginn. Einar Olgeirsson skrifar grein um uppgjör Nasista 1945 og „Endurminningar úr Bröttugötu- salnum.”. Og ekki má gleyma er- lendri og innlendri víðsjá og neistum sem eru á sínum stað. Ristjóri Réttar er Einar Ol- geirsson og kostar heftið 125 krónur. -aró KVIKMYNDIR Tveggja heima hasar Vitnið/The Witness Bandaríkin 1985 Leikstjóri: Peter Weir Handrit: Robert Dillon Leikarar: Harrison Ford, Kelly McGillis, Lukas Haas o.fl. Sagan sem hér er sögð er bæði óvenjulega skemmtileg og vel upp byggð. Saman við glæpa- söguna fléttast gagnmerk lýsing á Amish-fólkinu í Ffladelfíu, sem sjálfviljugt býr við tæknivæðingu fyrri alda og brúkar þarmeð hest- vagna í stað bfla og kemst vel af án síma, útvarps, sjónvarps, dag- biaða, skotvopna eða nokkurra annarra vondra véla andskotans. Amishar þessir eru afkomendur þýskra og svissneskra mennoníta sem fluttust vestur um haf á 17. öld undan ofsóknum brennu- glaðra meðbræðra sinna. Fróðleiksfúsum lesanda má hér benda á grein Árna Bergmanns um fólk þetta í síðasta Sunnu- dagsblaði (21.7.). Þarna í Ffladelfíu lifa Amish- arnir í dýrlegu sakleysi langt frá heimsins vígaslóð og ugga ekki að sér þegar spilling í nærliggjandi stórborg ryðst inn í tilveruna á skítugum skónum. Hinn göfugi lögreglumaður, sem ágætlega er leikinn af Harrison Ford (Indiana Jones), fer sumsé í felur hjá fólki þessu undan fjendum sínum. Þarna hefði hann auðveldlega geta dvalist til hárrar elli ef hann hefði getað samið sig að siðum fólksins og er það til marks um ágæti handritsins hve smávægileg hliðarspor lögreglumannsins vísa óvinum hans veginn. Það sem einna helst angraði mig á þessum ágæta stað var hve fólkið virtist hvert öðru líkt, sem reyndar er skiljanlegt miðað við aðstæður. Hópsálin virðist hvergi afdráttarlausari en hjá ofsatrúar- flokkum sem láta leiðtoga sína og spámenn eða fyrirmæli einhverr- ar ritningar stjórna nánast allri tilverunni. Bókstafurinn blífur og er honum fylgt út í hörgul. Þetta drepur andann í dróma. Flitt er svo önnur saga, hvort þeir sem ekki eru bundnir á klafa sem þennan, noti frelsi sitt ekki einmitt til þess að láta múlbinda sig á enn verra spil. Efnistök ástralska leikstjórans Peter Weirs (Picnic at Hanging Rock, The Year of Living Dang- erously), kvikmyndatökumanns- ins og tæknimanna eru með mikl- um ágætum. Skemmtilegt er að fylgja myndavélinni þegar hún er látin vera í augnhæð snáðans sem er vitnið í myndinni. Og þó atburðarásin sé hægari en hasar- myndaneytendur eiga að venjast þá er spennan því meiri og of- beldið magnaðra þegar það brýst fram. Lokauppgjörið er með betri útfærslum sem ég hef séð af þessu tagi. Ástarsagan ómissandi er ansi smekkleg eins og annað í þessari mynd og sannast enn hið forn- kveðna að erótík þarf ekki að vera eintómar uppáferðir. Það er ekki daglegt brauð að heyra og sjá vel sagða og spennandi sögu. Því er ég harla hress með þessa bíómynd. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 24. júlí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.