Þjóðviljinn - 24.08.1985, Side 1
246 djöðviuinn
SUNNUDAGS-
BLAÐ
MENNING
HEIMURINN
Kennarasambandið
Veikir samtakamáttinn
Fulltrúaráð KÍítrekaði ígœr að úrsögn taki gildi á áramótum.
Kristján Thorlacius formaður BSRB: Kennarar veikja með þessuBSRB, Kennarasambandið
og launþegahreyfinguna alla. ValgeirGestssonformaðurKÍ.Sátturviðþessa afgreiðslu.
Ný atkvœðagreiðsla myndi vekja upp nýjar deilur
Það er örlagarík ákvörðun að
afsala sér verkfalls- og samn-
ingsrétti og með úrsögn eru kenn-
arar að veikja BSRB, Kennara-
sambandið og launþegahreyfing-
una sem heild. Stjórn BSRB
álftur þessa úrsögn ólöglega og
hún mun fjalla um þá hlið málsins
á næstunni, sagði Kristján Thorl-
acius formaður BSRB í samtali
við Þjóðviljann í gær eftir að
fuUtrúaráð Kennarasambands
íslands hafði ítrekað fyrri sam-
þykkt sína um að frá áramótum
muni KÍ vera utan BSRB.
Kristján óskaði eftir því að fá
að vera viðstaddur fundinn í gær
og haft var eftir Valgeiri Gests-
syni formanni KÍ í útvarpi á
fimmtudaginn að svo myndi
verða. í gær brá svo við, að Val-
geir sjálfur bar upp þá tillögu fyr-
ir fundinn að Kristján fengi að
vera viðstaddur með fullu mál-
frelsi. Tillagan var samþykkt með
miklum meirihluta. „Mér þykir
það fullkomlega óeðlilegt að það
þurfi að bera mig upp sem for-
mann BSRB á slíkum fundi, sér-
staklega með hliðsjón af orðum
Valgeirs í útvarpi,” sagði Krist-
ján.
Krístján Thorlacius gengur á fund fulltrúaráðsins eftir aö það hafði samþykkt setu hans á fundinum. Ljósm. E. Ólason.
Flugstöðin
Á fundinum hélt Kristján svo
ræðu og brýndi þar fyrir kennur-
um, sem ávallt hafi barist fyrir
grundvallaratriðum í kjarabar-
áttu sinni, að halda hópinn með
heildarsamtökunum og vinna
þannig að því sem engir sér-
hagsmunahópar gætu náð.
„Ég er sáttur við þessa af-
greiðslu. Við stefnum til framtíð-
ar og treystum því að við eigum
þann félagslega styrk sem þarf til
að leggja út í óhjákvæmilega bar-
áttu. Ný atkvæðagreiðsla myndi
einungis valda nýjum deilum að
mínu mati og það væri að fara úr
öskunni í eldinn,” sagði Valgeir
Gestsson í samtali við blaðið í
gær.
Aðspurður hvort hann héldi að
málið myndi fara fyrir dómstóla
kvað Valgeir nei við. Hann sagð-
ist ekki trúa því að Kennara-
sambandið eða BSRB hefði
áhuga á því.
í tillögunni sem samþykkt var á
fundinum með 21 atkvæði gegn 7
er skorað á stjóm BSRB að
viðurkenna úrsögn KÍ úr BSRB
enda séu engar félagslegar for-
sendur fyrir áframhaldandi aðild
eftir jafti ótvíræða viljayfirlýs-
ingu félagsmanna og úrslit at-
kvæðagreiðslunnar séu. Enn
fremur lýsir Kennarasambandið
yfir vilja sínum til samstarfs með
BSRB og öðrum samtökum
launafólks.
Eftir að þessi tillaga hafði verið
samþykkt var borin upp önnur
tillaga um að óska eftir úrskurði
kjörstjómar Kennarasambands-
ins.
-gg
Afþakkaði boð í reisugildið
Hreppsnefnd Misneshrepps ístríði við utanríkisráðherra. Krefst500þúsund króna
byggingargjalds fyrir Flugstöðina. Ráðuneytið neitarað borga. Lögtakskrafa
í undirbúningi. Jón K. Ólafsson sveitarstjóri: Stöndum hörð á þessu máli.
Hreppsnefnd Miðneshrepps í
Sandgerði sendi varnarmála-
skrifstofu utanrikisráðuneytisins
í gær skeyti þar sem afþakkað var
boð um að mæta í reisugildi nýju
Flugstöðvarinnar. Hreppsnefnd-
in á í miklu stríði við utanríkis-
ráðherra og varnarmáladeildina
og undirbýr nú lögtakskröfu á
hendur þessum aðilum fyrir ó-
greitt byggingarleyfisgjald vegna
Flugstöðvarinnar. Krafan hljóð-
Skúlagötuskipulagið
Amar fundur?
Er ekki möguleiki á því að halda
annan fund bráðlega um þetta
mál þar sem fundarmcnn væru
ekki bundnir við það að bera að-
eins fram fyrirspurnir heldur
gætu tjáð sig betur um skipu-
iagstillöguna?
Þessa fyrirspurn bar Geirharð-
ur Þorsteinsson arkitekt fram á
fundi sem Borgarskipulag boðaði
til á fimmtudagskvöldið á Hverf-
isgötu 105. Þar var kynnt skipu-
lagstillaga að Skúlagötusvæðinu
svonefnda.
Nánar er sagt frá þessum fundi
á bls. 2 ih
ar uppá rúma hálfa miljón en
ráðuneytið neitar að borga.
„Við afþökkuðum reisugildið.
Við stöndum hörð á þessu máli
því það er ekki endalaust hægt að
Íeyfa byggingar á Vellinum án
þess að greidd séu af þeim lög-
boðin gjöld. Byggingaverktakar
hafa greitt að fullu aðstöðugjöld
til hreppsins vegna Flugstöðvar-
byggingarinnar og ríkið á auðvit-
að að borga sín gjöld einnig,
sagði Jón K. Ólafsson sveitar-
stjóri í Miðneshreppi í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Nýja flugstöðin er reist í landi
Miðneshrepps en hreppsnefndin
hefur hvergi fengið að koma ná-
lægt skipulagsmálum á Vellinum
frekar en aðrar sveitarstjómir á
Suðumesjum, en samkvæmt
lögum heyrir allt skipulag á Vell-
inum undir sveitarstjómirnar,
þar sem Keflavíkurflugvöllur er
ekki sérstakt sveitarfélag.
„Það er byggingarnefnd starf-
andi á Vellinum sem vinnur eftir
reglugerð frá utanríkisráðu-
neytinu. Þessi nefnd hefur fengið
að vinna óáreitt, þrátt fyrir mót-
mæli sveitarfélanna á Suðurnesj-
um. Okkur finnst óeðlilegt að
verið sé að skipuleggja svæði
þarna inni á Vellinum án þess að
leita leyfis hjá réttum aðilum.
Við krefjust þessara byggingar-
gjalda á þeirri forsendu að þarna
sé um íslenska byggingu að ræða
og ríkið á ekki að vera undanþeg-
ið neinum gjöldum," sagði Jón
K. Ólafsson.
-lg-
Sjá ennfremur
leiðaraopnu í
sunnudagsblaði.
Spánn
Nýra
fyrir
vinnu!
Atvinnulaus spánverji hefur
boðist til að láta annað nýra sitt f
skiptum fyrir atvinnu.
José Fransisco Pastor Tortaja-
da hefur verið atvinnulaus í þrjú
ár og tilkynnti fréttamönnum í
gær að hann væri reiðubúinn að
láta nýrað, - „gæti verið slæmt
fyrir heilsuna, en mér er alveg
sama“. Móðir hins atvinnulausa
bíður við símann eftir tilboðum.
Atvinnuleysi á Spáni er um 20
prósent, hið mesta í Vest-
ur-Evrópu.
-m/reuter