Þjóðviljinn - 24.08.1985, Page 4
LEHÐARI
Lífríki Mývatns í hættu
Um það leyti sem iðnaðarráðherra, fjármála-
ráðherra og menntamálaráðherra voru að
þrátta um keisarans skegg á dögunum, vegna
náttúruverndarmála Mývatns var ríkisstjórninni
fullkunnugt um að lífríki vatnsins væri í mikilli
hættu. Ríkisstjórnin vissi vel að hætta var á
ferðum, en reyndi að þyrla upþ moldviðri um
fjármögnun rannsókna og vera í samkeppni um
að komast í fyrirsagnir í blöðunum í stað þess að
gera strax það sem þeim ber, ákveða ráðstaf-
anir til að bjarga lífríkinu.
í Þjóðviljanum síðustu daga hafa óhugnan-
legar staðreyndir komið í Ijós. „Eitrið sem renn-
ur í Mývatn frá Kísiliðjunni og byggðinni við
vatnið er gífurlega mikið,“ segir Árni Halldórs-
son formaður samtaka um verndun Mývatns í
viðtali við Þjóðviljann. Viðmælendur blaðsins
hafa nefnt nokkur atriði sem hafa getað valdið
þessari röskun á lífríkinu sem gæti kallast hrun. í
fyrsta lagi eitrið Sator, sem leysir upp olíu en er
náttúrunni stórhættulegt í miklu magni. Það
rennur útí hraunið og í vatnið frá verksmiðjunni.
í öðru lagi nefna menn hreinsiefni frá byggð-
inni við Mývatn, sem ásamt skólpi er leitt í rot-
þrær, sem eru svo ófullkomnar að menn telja að|
viðbjóðurinn renni svotil beint í vatnið og rotni
þar. í þriðja lagi hefur mælst mikil aukning á
nitrati og fosfór í grunnvatninu.
Afleiðingarnar af allri þessari mengun eru
m.a. taldar vera:
1) Við það að skolp, hreinsiefni, nitrat og fos-
fór komast útí vatnið, verður óeðlilega mikil
rotnun í því, sem veldur súrefnisskorti.
2) Mýið hverfur. „Það er hugsanlegt að þessi
lífrænu efni sem komast út í vatnið hafi orsakað
þessar stórfelldu breytingar á þörungalífinu og
þarmeð orðið til þess að hrun hefur orðið í mý-
stofninum," sagði Þóroddur Þóroddsson for-
stöðumaður rannsóknarstöðvarinnar við Mý-
; vatn í samtali við Þjóðviljann.
3) Silungurinn sem er í vatninu fær ekki
lengur fæðu, súrefnisskortur og önnur mengun
veldur því að mýið hverfur, silungurinn rýrnar og
veslast upp. Silungsveiði hefur verið sérstak-
lega slök í sumar, segja Mývetningar.
4) Andarurigadauði hefur verið gífurlega mik-
ill undanfarin 3 ár og aðalvarptíminn í sumar
kom afar illa út. Ástandið er verst hjá öndum
sem lifa á vatninu sjálfu meðan þær sem byggja
á Laxánni hafa sloppið. Verst er ástandið hjá
duggönd, skúfönd og hrafnsönd. „Duggönd og
skúfönd má segja að séu aðaltegundirnar á
vatninu, svo þetta er tilfinnanlegt," segir Árni
Einarsson hjá Líffræðistofnun Háskólans.
Þá kemur í Ijós að í starfsleyfi Kísiliðjunnar,
sem gefið er út af heilbrigðismálaráðuneytinu
1981, eru engin skilyrði sett um mengunar-
varnir, sem varða frárennsli úrgangs frá verk-
smiðjunni útí Mývatn. Hins vegar er vísað til
sérstakra ákvæða sem sett verði. Ólafur Pét-
ursson forstöðumaður mengunarvarna Hollust-
uverndar ríkisins upplýsti við Þjóðviljann að
þessi starfsleyfisákvæði hafi enn ekki verið sett.
Þá er þess getið, að komi fram skaðleg áhrif á
umhverfi verksmiðjunnar eða hætta, geti
Heilbrigðiseftirlitið í samráði við Náttúruvernd-
arráð og fleiri stofnanir lagt til við ráðherra að
starfsleyfi verði endurskoðað.
Forstöðumaður rannsóknastöðvarinnar við
Mývatn upplýsir einnig að Náttúruverndarráð
hafi krafist þess að komið yrði upp hreinsibún-
aði við verksmiðjuna, en ekki hafi verið orðið við
því. Sami maður telur einnig að brýnt sé að
rannsaka til hlítar magnið af fosfór og nítrati í
vatninu og rekur vaxandi magn eiturefnanna
einnig til nábýlisins við Kísiliðjuna.
Hvort sem dvalið er lengur eða skemur við
þessar vísbendingar er hitt Ijóst, að ríkisstjórnin
verður að grípa snarlega til ráðstafana til að
vernda lífríkið við vatnið. Það verður að veita
nægilega miklu fjármagni til rannsóknanna, svo
að þær geti farið fram fljótt og vel. Enn fremur
hlýtur að vera lágmarkskrafa að sá hreinsibún-
aður sem Náttúruverndarráð krefst að verði
settur upp við verksmiðjuna sé snarlega pant-
aður. Og honum komið upp strax.
í Ijós hefur komið að þær raddir efasemda og
náttúruverndar sem alla tíð hafa verið sterkar í
Mývatnssveit hafa haft alltof rétt fyrir sér. Var-
færnin er aldrei nógu mikil þegar lífríki er raskað
með verksmiðjurekstri á borð við Kísiliðjuna við
Mývatn. Þjóðin þarf að læra af þessari reynslu
og komast hjá fleiri slysum í sambýli okkar við
þá náttúru sem aldrei verður fyllilega til verðs
metin.
-óg
PJÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Ritatjórnarfulltrúl: Öskar Guðmundsson.
Fréttaatjórl: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Páll Valsson, Sigríður Pétursdóttir, Sævar Guð-
bjömsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndlr: Einar Ólason, Valdís Óskarsdóttir.
Utllt og hönnun: Filip Franksson, Sváva Sigursveinsdóttir.
Handrfta- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrffstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjórl: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýslngar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Sfmavarsla: Jenny Borgedóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð.
innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Útkoyrsla, afgreiösla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavfk, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 30 kr.
Sunnudagsverð: 35 kr.
Áskriftarverö á mánuði: 360 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN | Laugardagur 24. ágúst 1985