Þjóðviljinn - 24.08.1985, Page 7
HEIMURINN
Suður-Afríka
Ganga til Mandela
Ólögleg kröfuganga að Pollsmoor-fangelsi í nœstu viku.
Sex látnirí viðbót
Johannesburg - Einn leiðtoga
blökkumanna í Suður-Afríku
tilkynnti í gær að á miðvikudag
í næstu viku yrði farin kröfu-
ganga að fangelsi Nelsons
Mandeia í Pollsmoor nálægt
Höfðaborg. Hann sagði að
gangan yrði friðsamleg og
skoraði á stjórnvöld að efna
ekki til átaka með því að reyna
Happdrætti
560 milljónir
á þrjá miða
New York - íslensku happ-
drættin hrósa sér af vænum
vinningum en hætt er við að
viningshöfum í fylkishapp-
drættinu í New York þætti lítið
til koma:- hæsti vinningurinn í
öflugasta happdræti sögunnar
skiptist í gær á þrjá miða og
koma tæplega 575 milijónir ís-
lenskra króna í hlut hvers
Þriggja.
Happspilið er í „lótó“-formi
þarsem þátttakendur velja sér af
handahófi tölur og er vinnings-
töluröðin síðan ákveðin með sér-
stökum drætti. Sá, (eða þeir) sem
hefur tölurnar réttar fær síðan all-
an vinnings-„pottinn“ í sinn hlut.
Einn af vinningsmiðum í
drættinum í gær var sameign 21
starfsmanna í prentsmiðju: hver
hafði keypt miða fyrir einn dal og
skyldu þeir deila ágóða ef einhver
yrði. Vinningshafarnir mættu
ekki í vinnuna í gær en voru að
sögn í sjöunda himni.Allir nema
einn innflytjendur, og fá hérmeð
ameríska drauminn beint í æð.
REUTER
Umsjón:
MÖRÐUR ÁRNASON
Petta
líka...
að stöðva göngumenn. Kröfu-
göngur eru bannaðar í landinu
ásamt öðrum pólitískum sam-
komum blökkumanna.
„Við höfum þegar krafist þess
með orðum að Mandela verði
látinn laus, - á miðvikudaginn
krefjumst við þess með fótun-
um,” sagði Alan Boesak við blað-
tunenn þegar hann tilkynnti um
gönguna. Boesak er formaður
Alþjóðaráðs mótmælendakirkna
og einn af leiðtogum Sameinuðu
lýðræðisfylkingarinnar, UDF,
tveggja ára bandalags fjölmargra
samtaka gegn aðskilnaðarstefn-
unni í landinu.
Nelson Mandela er leiðtogi
Afríska þjóðarráðsins sem er
bannað í Suður-Afríku og berst
gegn stjóminni með vopnavaldi.
Hann hefur verið í haldi í 23 ár og
Moskva/Washington - Formleg
mótmæli hafa fari milli ríkis-
stjórna Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna vegna njósna-
duftsins sem hinir síðar-
nefndu segja stráð á sendi-
ráðsmenn sína í Moskvu til
njósna.
Kremlarmenn bregðast við
illa, neita öllu duftstali og segja
Túnis/Kairó - Mikil spenna ríkir
nú á landamærum Túnis og Lí-
banon. Túnismenn segja að
Gaddafi Líbíuleiðtogi hafi hót-
að að beita valdi eftir að 283
líbíumenn voru reknir úr landi.
Nýlega ákváðu líbísk
stjórnvöld að reka úr landi um 30
þúsund verkamenn frá Túnis og
um 100 þúsund egypska verka-
hinni. Þetta þykja ein skástu sam-
skipti ríkjanna um langt skeið.
...Kólumbískir kókaínfurstar hafa
flúið lögregluaðför í heimalandinu
og lagt undir sig strjáibýlt land-
svæði í norðurhluta Perú. Perúher
er kominn á staðinn.
hefur nýlega hafnað því boði Bot-
ha forseta að láta hann lausan
gegn loforði um að taka ekki upp
vopn.
Sex létust í Norður-Aliwal á
Höfða í fyrrinótt þegar lögregla
skaut að mannfjölda í óeirðum.
Lögregla beitti auk skotvopna
gúmmíkúlubyssum og táragasi,
mannfjöldinn steinum og mólót-
offkokteilum. Yfir 630 hafa nú
farist síðan óeirðaaldan hófst
fyrir rúmu hálfu öðru ári.
í Soweto fór lögregla um og
handtók nemendur sem ekki
höfðu mætt í skóla, - 500 í gær og
300 í fyrradag. Þeim var sleppt
aftur eftir yfírheyrslur.
Um þúsund manns eru í haldi
án ákæru samkvæmt neyðarlög-
unum. Alls hafa yfír 2200 verið
handteknir síðan lögin voru sett.
málið tilbúning í því skyni að
undirbúa slúðurherferð gegn So-
vét áður en leiðtogamir Reagan
og Gorbatsjoff hittast í Genf í
nóvember. Þessu neita grafalvar-
legir ráðuneytismenn í Washing-
ton og segjast fyrst og fremst vera
að hugsa um heilsufar starfsliðs
síns. Njósnaduftið er að sögn
stökkbreytiefni og kynni að valda
krabbameini.
menn, að sögn til að verða sjálf-
bjarga um vinnuafl, og hefur síð-
an verið enn stirðara milli Líbíu
og grannríkjanna.
Mubarak Egyptalandsforseti
segir að ástæðan sé sú að Líbía sé
að verða gjaldþrota og sakar
Gaddafí um að reyna að snúa
efnahagskreppu sinni í pólitíska
kreppu. Túnismenn segja að
Gaddafí sé með brottvísununum
að reyna að grafa undan stjórn-
inni í landinu.
í Líbíu hafa unnið hundruð
þúsunda erlendra verkamanna
við ýmiskonar framkvæmdir
kostaðar af olíusölu sem nú er
ekki sami gróðavegur og áður.
Njósnaduftið
Sovétmenn hundfulir
Líbía - Túnis
Spenna á landamærum
Gagn-gagnnjósnir
Kominn yfir múrinn
Tiedge biður um hœli sem pólitískur flótta-
maðuríDDR
Bonn/Berlín - Austurþýsk yfir-
vöid tilkynntu í gær að Hans
Joachim Tiedge deitdarstjóri í
vesturþýsku gagnnjósna-
stofnuninni hefði beðið um
hæli í Austur-Þýskalandi sem
pólitískur flóttamaður. í Bonn
er talið að upp sé komið skæð-
asta njósnamál í aldarfjórð-
ung.
Ekki er enn ljóst hvort Tiedge
var að koma inn úr kuldanum eða
fór austur fyrir múr af einhvers-
konar persónulegum ástæðum,
en skaðinn er samur að sögn vest-
urþýska embættismanna. Tiedge
var yfirmaður þeirrar deildar sem
sér um að fást við austurþýska
njósnara og hafði starfað við
stofnunina í 19 ár.
Þriggja annarra meintra njósn-
ara er saknað og taldir vera
komnir austurum. Þeir eru Sonja
Lúneburg ráðgjafi Martin
Bangemanns efnahagsmálaráð-
herra, Ursula Richter starfsmað-
ur samtaka flóttamanna frá svæð-
um sem sovétmenn og pólverjar
lögðu undir sig eftir heimsstyrj-
öldina síðari, en þau samtök eru
nátengd Kohl kanslara, og Lor-
enz Betzing sem vann í drei-
fingarstöð hersins og þaráður
meðal annars við að grafa kjar-
norkuskýli sem vesturþýska
stjórnin ætlar sér að nota í styrj-
öld.
Dagblöð í Austur-Berlín sögðu
frá þvx í dag að á síðasta hálfu
öðru ári hafi komist upp um 168
vesturþýska njósnara í DDR, og
líta menn vestanmegin svo á að
þessar fréttir séu sagðar í tengsl-
um við njósnamálið í Bonn.
Málið er talið áfali fyrir stjórn-
ina í Bonn og rifja vesturþýskir
fjölmiðlar óspart upp njósnaferil
Gúnther Guillaume sem varð
ráðgjafi Willy Brandts kanslara.
Brandt sagði af sér árið 1974 af
þeim njósnasökum.
Flugslys
1511 dánir
á árinu
London - Eftir flugslysið í
Manchester í gær er tala lát-
inna í flugslysum á árinu kom-
in í 1511.
Samkvæmt bresku flugtímariti
eru helstu flugslysin þessi:
1. janúar - Boeing 727 (Eastern
Airlines) í fjöllum Bólivíu, 29 lét-
ust;
19. febrúar - Boeing 727 (Iberia)
í Bilbao, Spáni, 148 létust;
23. j úní - Boeing 747 (Air India) í
Atlantshafi, 329 létust;
2. ágúst -Tristar (Delta Airlines)
í Dallas, Texas, Bandaríkjunum,
133 létust;
12. ágúst - Boeing 747 (Japan
Airlines) nærri Tókíó, 520 létust;
22. ágúst - Boeing 737 (British
Airtours) í Manchester, 54 létust.
í fyrra dóu „aðeins” 450 í flug-
slysum.
...Ungverskt dagblað sagði í gær
nauðsyn á bættum samskiptum
landsins við Rúmeníu, og taldi
æskilegt að ungverska þjóðar-
brotið í Rúmeníu og það rúmenska
í Ungó væru einskonar menning-
arlegur milliður í samskiptum
landanna. Ungverjar telja farið illa
með frændur sína handan
landamæranna en á það er yfirleitt
ekki minnst opinberlega í Ungó til
að spilla ekki tengslum ríkjanna.
...Konu var vikið úr kviðdómi í Nor-
egi í gær. Konan segist vera miðill
og þótti ekki mjög traustvekjandi í
kviðdómnum þegar hún lýsti því
yfir að hún hefði þegar tekið
ákvörðun, - hafði nefnilega „séð“
glæpinn framinn. Fyrir réttinum
var klögumál manns sem eyrað
var skorið af í ölteiti.
...Þýskur þjófur gaf sig fram við
lögreglu í gær. Hann hafði þrifið
með sér Ijósmyndavélar og annað
lauslegt úr Ijósmyndabúð, en áður
látið taka af sér tvær passamyndir
og gætti þess ekki að taka þær
með. Lögga í Frankfurt sagði að
þetta væri örugglega vitlausasti
þjófur sem hún hefði kynnst.
...Fulltrúar ríkisstjórna Kóreuríkj-
anna hafa ákveðið að leyfa um
þúsund manns úr hvorri Kóreunni
að heimsækja fjölskyldur sínar í
...í gær var samkvæmt öllum listar-
innar reglum endurháð orrustan
við Bosworth í Leicesterhire í Eng-
tandi. Þar börðust árið 1485 herir
Henry Túdors og Ríkarðs þriðja,
og var það lokaorrustan í Rósa-
stríðunum svokölluðu. í leikriti
sínu um Ríkarð lætur Shakespeare
orrustuna enda með því að Rík-
harður býður falt konungdæmi sitt
fyrir hross.
...Brúðgumi nokkur í Nýja-Sjálandi
vildi ekki hefja búskapinn með
tvær hendur tómar, gekk því inná
pósthús tveim stundum fyrir brull-
aup og rændi umþaðbil 50 þúsund
íslenskum. Hinsvegar vildi brúð-
urin ekkert með hann hafa þegar
hún frétti á hvaða hátt hann skaff-
aði og vinurinn situr nú inni
dæmdur til að minnsta kosti
tveggja ára bakvið rimlana.
...Þegar verið var að grafa fyrir frá-
rennsli í þorpi einu í Andesfjöllum
nýlega komu grafarar niður á
mannvistarieifar sem talið er aö
séu frá því árið 1000 fyrir okkar
tímatal. Leirkofar, leifar af fötum
og bein eru meðal þess sem
fannst. Þessi fornleifafundur er
ekki langt frá hinni fornu háborg
Inkaríkisins, Machu Picchu í
suðurhluta Perú.
Afmœli
Sungið glatt um Xiaoping
Deng Xiaoping hefur einn um áttrætt: kínamenn valhoppa
syngjandi á gulibrúm yfir lótuslæki sósíalismans.
Peking - Kínverski leiðtoginn Deng Xiaoping
er 81 árs í dag.
Deng tók við helstu völdum 1979 í ríkinu í mið-
ið, og hefur síðan meðal annars leitast við að
kveða niður persónudýrkun sem áður var landlæg
kringum formennina Mao Tsetung og arftakann
Hua Guofeng. Ánægja þjóðarinnar yfir núverandi
oddvita sínum brýst þó fram á ýmsan hátt - og í
gær birti kínverskt dagblað ljóð við afmælislag
dagsins. Hljóðar sá texti svo í lauslegri snörun:
Þau bros sem eittsinn brustu eru vöknuð
og brúnum augna lyftum ég og þú,
og höft af fótum reyrðum eru röknuð
á rás er tekið eftir gullinbrú
frá öllum brjóstum ómar, - laus við söknuð,
áður kœfður gleðisöngur dæll:
Heill þér Sjáping, Sjáping komdu sœll
Heill þér Sjáping, Sjáping komdu sœll
Laugardagur 24. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7