Þjóðviljinn - 24.08.1985, Side 15
MENNING
Fjórði Norrœni vefjarþríœringurinn:
„My personal shadow“, frá 1985, eftir Þórdís Sigurðardóttir við verk sitt „Appelsínugulur morgunn".
Kirsti Rantanen.
Einstaklingarnir
ráða ferðinni
„Bunker", 1983, eftir Ane Henriksen.
Nú líður senn að lokum Nor-
ræna vefjarþríæringsins, en sýn-
ingin hefur staðið frá byrjun
mánaðarins að Kjarvalsstöðum,
þar sem verkin hafa fyllt alla sali.
Hér má líta 84 textílverk eftir nær
sjö tugi listamanna frá öllum
helstu þjóðum norrænum. (Að
vísu saknar maður Færeyinga,
Grænlendinga og Álandseyinga,
ene.t.v. kemursá dagur er þessar
þjóðir taka þátt í apparatinu sem
fullgildir meðlimir.) Petta er
fjórði þríæringur sinnar tegundar
og samkvæmt venju er hann
skipulagður af undirbúningshóp
og dómnefnd sem í sitja fulltrúar
frá öllum aðildarlöndunum.
Eins og gengur og gerist eru
fulltrúar landanna misjafnlega
margir. Áberandi eru hve Noreg-
ur og Finnland eiga marga full-
trúa, eða 25 og 19, miðað við 11
frá Danmörku og einungis 8 frá
Svíþjóð. íslendingar eiga fimm
fulltrúa að þessu sinni. Þeir eru
Hólmfríður Árnadóttir, Guðrún
Marinósdóttir, Guðrún Gunn-
arsdóttir, Sigurlaug Jóhannes-
dóttir og Þórdís Sigurðardóttir
sem tekur þátt í sýningunni með-
an hún staldar hér við.
Einn
karlmaður
Svo virðist sem aðeins einn
karlmaður sýni í öllum þessum
kvennafans. Það er Daninn Lars
Jórgen Falkenberg sem hefur
brotið ísinn og notar hæfileika
sína til vefnaðar með góðum ár-
angri. Það er satt að segja ein-
kennilegt að ekki skuli fleiri karl-
menn sýna hvað í þeim býr á
þessu sviði, því ekkert er það við
textíl sem gerir hann frekar að
kvenlegri iðn en karlmannlegri.
Reyndar er frægasta og mesta
afrek norrænt á þessu sviði, hinn
margslungni Bayeux-refill, trú-
lega verk karlmanns.
En trúlega verðum við að bíða
enn um stund eftir að karlmenn
taki við sér á þessu sviði, þó svo
að þekkt nöfn á sviði vefnaðar úti
í hinum stóra heimi bendi til að
þar komi karlmenn að einhverju
leyti nærri. Ekki verður þó séð á
vef Falkenbergs að þar fari karla-
komplex, ekki fremur en séð
verði á „Bunker“, verki löndu
hans Ane Henriksen, að þar fari
ímynd kvenhugans.
Annars koma Danir vel út úr
sýningunni, mun betur en Svíar.
Sýnist manni sem þeir hafi jafn-
besta pródúktið og slái þar með
Finnum og Norðmönnum við.
Erfiðara er nú en áður að draga
löndin í dilka, því einstaklings-
framtakið nýtur sín ein-
hvernveginn betur á þessari sýn-
ingu en á fyrri þríæringum. E.t.v.
Þessi minimalismi byggist á
einföldum og sterkum frumform-
um sem oft eru endurtekin á serí-
alískan (raðlægan) hátt. í sumum
tilfellum nær þessi einfaldleiki til-
ætluðum árangri sökum persónu-
legrar úttektar listamannsins, en
alltof oft verður um að ræða áhrif
sem manni finnst vera gömul og
úr sér gengin.
Kirsti Rantanen, Ane Henr-
iksen og Bente Sætrang eru vef-
arar og textíllistamenn þeir sem
undirrituðum fannst að hefðu
eitthvað sérstætt fram að færa,
auk Þórdísar Sigurðardóttur frá
Sámsstöðum sem bjó til „Appel-
sínugulan morgunn“ úti á túni úr
6 metra háum bambus sem mynd-
aði 8 metra kantstóran þríhyrn-
ing með bómullarefni í 26 litum.
HALLDÓR
B. RUNÓLFSSOf
hefur frjálshyggjan margumtal-
aða þrengt sér inn í herbúðir nor-
rænna listamanna. Fyrir vikið
gerir áhorfandinn meiri kröfur til
einstakra listamanna óháð
heildarblæ og þá kemur í ljós mis-
jafn sauður í hinu marga fé.
Minimalismi
Þrátt fyrir það er ákveðinn
heildarblær yfir sýningunni sem
skapast af ákveðinni sameigin-
legri leit að tjáningarformi. Engu
er líkara en minimalisminn í
höggmynda- og málaralist hafi nú
loks þrengt sér inn í norræna vefj-
arlist. Einhvern veginn finnst
manni sem þar sé of seint í rassinn
gripið, því þessi stefna sem setti
svo mjög svip sinn á alþjóðlegt
listalíf á öndverðum síðasta ára-
tug er orðin dálítið þreytt í bili.
Island
Oft hef ég séð betra framlag frá
íslendingum og ferskara. Það
I skortir síst að verk fjórmenning-
| anna séu ágætlega útfærð í sjálfu
II sér, en einhvern veginn vantar
snerpuna að þessu sinni. Það sem
vantar er einfaldlega áræði og
sprengikraftur. Raunar er það
svo að dirfska er ekki aðalsmerki
þessarar sýningar, en þó eru
kröftug verk hér og þar í báðum
sölum. Því miður eru þau ekki
eftir íslensku þátttakendurna.
Einna helst veðja ég á Guð-
rúnu Marinósdóttur og „Form“
hennar; að þau muni segja
mönnum eitthvað úti í heimi. Eg
hef séð þetta áður hjá henni og
finnst margt gott um slík vinnu-
brögð. Hún þarf þó að útvíkka þá
möguleika sem hún bryddar upp
á og finna þeim verðugt fram-
hald. Það er e.t.v. vandamál ís-
lenskrar vefjarlistar í dag að
framhald skortir of oft á góðar
hugmyndir og þess vegna dagar
þær uppi forpokaðar. Því er kom-
inn tími fyrir íslenska veflistar-
menn að blása í nýja herlúðra.
111 Fjöibrautaskólinn
við Ármúla
Nemendur komi í skólann mánudaginn 2. sept. milli kl.
13 og 15.
Þá veröa afhentar stundaskrár og bókalistar gegn
greiðslu kr. 1.000.-
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn
4. sept.
Deildarstjórafundur verður þriðjudaginn 27. ágúst kl.
10.
Kennarafundur verður mánudaginn 2. sept. kl. 9.
Skóiameistari
Ný flugstöð á
Keflavíkurflugvelli
Skoðunarferðir
Almenningi er hér með boðið að skoða nýju flugstöðv-
arbygginguna á Keflavíkurflugvelli laugardaginn 24.
ágúst og sunnudaginn 25. ágúst 1985. Langferðabifr-
eiðar munu flytja gesti ókeypis frá bílastæði við versl-
unina Hagkaup í Njarðvík frá 14.00 til kl. 17.30 báða
dagana.
Byggingarnefnd flugstöðvar
á Kefiavíkurflugvelli
Grundarfjörður
Kennarar - kennarar
Við Grunnskóla Eyrarsveitar, Grundarfirði, eru lausar
almennar kennarastöður. Leitað er eftir kennurum
sem geta tekið að sér: kennslu yngri barna, kennslu
forskólabarna, kennslu í líffræði, eðlisfræði, tón-
mennt, og handmennt (hannyrðir).
Húsnæði í boði (húsnæðisfríðindi), leikskóli á
staðnum. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 93-8619
eða 93-8802.
Skólanefnd
Bandalag kennarafélaga og
Kennaraháskóli íslands
efna til ráðstefnu um
íslenska skólastefnu
laugardaginn 31. ágúst kl. 9.00 til 17.00 að Borgartúni
6, Reykjavík.
Erindi flytja:
Jónas Pálsson, rektor Kennaraháskóla íslands.
Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri í menntamálaráðu-
neyti.
Svanhildur Kaaber, formaður Bandalags kennarafé-
laga.
Dr. Wolfgang Edelstein, prófessor við Max Planck
rannsóknarstofnunina í Vestur-Berlín.
Tilkynnið þátttöku á skrifstofu Kennaraháskólans í
síma 91-686065 fyrir 28. ágúst.
Ráðstefnan er öllum opin.
Kennaranámskeið
í skyndihjálp á
Akureyri og í Reykjavík
Rauði kross íslands heldur kennaranámskeið í
skyndihjálp á Akureyri dagana 6.-16. september
næstkomandi.
Innritun og nánari upplýsingar í síma 96-24402 virka
daga frá kl. 14-17 eða 91-26722 á venjulegum skrif-
stofutíma.
Rauði kross íslands heldur kennaranámskeið í
skyndihjálp í kennslusal RKÍ, Nóatúni 21, Reykjavík
dagana 23. september til 4. október næstkomandi.
Innritun og nánari upplýsingar í síma 91 -26722 á skrif-
stofutíma.
Rauði kross íslands
Laugardagur 2-*. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 15