Þjóðviljinn - 01.09.1985, Blaðsíða 4
Ásta Arnardóttir.
r ■F ¥ *-vtt
■ r
Og hér er allur hópurinn samankominn á sviðinu.
„Erum
að skjóta
Ijóninsem
eftir eru“
7 9 manno hópur frá
Stúdentaleikhúsinu í mánaðar
leikferð með Ekkó
„Meö góöu samstarfi og aö-
stoö fjöldamargra einstak-
linga og stofnana hefurtekist
að hrinda í framkvæmd þeirri
hugmynd aö fara meö ung-
lingasöngleik í landsferð.
Þetta hefur kostað gífurlega
vinnu nú þegar, og hún á eftir að
verða enn meiri. En við erum
bjartsýn og vinnum nú sem óðast
að því að skjóta þau ljón sem eftir
eru á veginum,“ sagði Andrés
Sigurvinsson, leikstjóri sýningar
Stúdentaleikhússins, Ekkó eða
guðirnir ungu. 19 manna hópur
frá leikhúsinu leggur land undir
fót um þessar mundir og fer
hringinn í kringum landið með
viðkomu á 30 stöðum, þar sem
verkið verður sýnt. Þetta er
lengra og strangara leikferðalag
en venja er og langt síðan hópur
atvinnu- eða áhugaleikara hefur
sýnt daglega í heilan mánuð víðs
vegar um landið. Mörg bæjarfé-
lög og sveitarstjórnir hafa lagt
hópnum lið og aðstoð varðandi
ferðir, húsnæði o.fl. „Við tökum
fríin okkar í þetta og erum mjög
spennt sagði einn leikaranna,"
Börkur Baldvinsson, þegar við
hittum þá Andrés að máli. En um
hvað er verkið? Andrés svarar:
„Verkið byggir að nokkru leyti á
gömlu goðsögninni um Ecco og
Narcissus, en gerist í dag. Fjallað
er um líf unglinga, samskipti
þeirra við umhverfi, foreldra,
vini og skóla. Þá er fjallað um
fíkniefnaneyslu og aðrar
freistingar sem á veginum verða,
en verkið er hvorki kennsluleikrit
né predikun.“
„Heldurðu að verkið höfði til
unglinga?“
„Ég vona það. Við vorum með
þrjá unglinga að horfa á æfingu í
síðustu viku og þegar ég spurði
einn þeirra hvort honum fyndist
hann sjá í verkinu unglinga sem
hann kannaðist við, benti hann á
hina tvo áhorfendurna og sagði
,.Ég sá þá báða“. Mér fannst
þetta lofa góðu.“
Ragnhildur Gísladóttir hefur
samið tónlistina sem flutt er í
verkinu, en hljómsveitina skipa
þau Margrét Ornólfsdóttir, Jón
Steinþórsson, Halldór Lárusson
og Agúst Karlsson. Þýðingu
verksins gerði Ólafur Haukur
Símonarson, Karl Aspelund gerir
leikmynd og búninga en Guðný
B. Richards brúður, sem fara
með hlutverk hinna fullorðnu.
Atvinnuleikarar ljá brúðunum
raddir sínar, en að öðru leyti eru
þátttakendur áhugafólk sem allt
hefur þó leikið áður. Þau heita:
Ari Matthíasson, Börkur Bald-
vinsson, Guðmundur Karl
Friðjónsson, Arna Valsdóttir,
Ásta Arnardóttir, Halla Helga-
dóttir, Stefán Jónsson, Svan-
björg Einarsdóttir, Einar Gunn-
laugsson, Anna E. Borg og Soffía
Karlsdóttir. Leikskrá sá Ólafur
Sveinsson um.
Forsýning á leikritinu var í
Tónabæ síðastliðinn þriðjudag,
en hin eiginlega frumsýning var á
miðvikudaginn á Akranesi.
Leikhópurinn sýndi síðan á
Grundarfirði og í Stykkishólmi. í
dag er sýning í Búðardal en hring-
ferðinni lýkur á Laugarvatni 27.
september. Þá verður verkið sýnt
í Reykjavík og nágrenni. -þs
Soffía Karlsdóttir.
Arna'og Ari í hlutverkum Ekkó og Narsa.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. september 1985