Þjóðviljinn - 01.09.1985, Blaðsíða 20
Seldu
skriðdreka
fyrir tvo
vodkakassa
Áhöfn sovésks skriðdreka
hvarf sporlaust á heræfingu í
Tékkóslóvakíu hausið 1984. Þeir
fjórir menn sem voru á skriðdrek-
anum fundust fyrst tveimur
dögum síðar, þar sem þeir lágu, -
sofandi af sér timburmenn úti í
skógi. Skriðdrekann höfðu þeir
selt fyrir tvo kassa af vodka.
Þetta átti sér stað á heræfingu'
einn grámyglulegan haustdag, í
myrkri, þoku og grenjandi rign-
ingu. Ofan á þetta allt hafði her-
inn skorið grimmt niður vodka-
kvóta hermannanna í tilraun til
þess að hemja alkóhólnotkun
þeirra.
Um níu-leytið þetta kvöld kom
skriðdrekinn skröltandi inn í
smábæ og stansaði bakvið'
þorpskrána. Tveimur tímum
seinna komu hinir fjórir sovésku
hermenn skjögrandi út úr kránni
Klámhundurinn Prince.
Ekkert
klámí
popp-
textum!
I bandarískum poppiðnaði er
nú byrjað að prenta aðvaranir á
umsiag poppplatna sem hafa að
geyma texta þar sem kynlíf ber of
opinskátt á góma. Aðvaranirnar
eru í anda þeirra sem eru utan á
sígarettupökkum: Þessi texti get-
ur verið hættulegur heilsu þinni.
Þessi uppákoma er tilkomin
vegna þiýstings frá nýstofnuðu
foreldraráði sem er hreyfing sem
skorið hefur upp herör gegn erót-
ískum glennuskap í nútíma
popptextum. Það er sagt að
margar af virðulegri þingmann-
afrúm Washingtonborgar standi
á bakvið þessa hreyfingu. For-
eldraráðið vísar til að mynda til
lagsins „Darling Nikki“ eftir
Prince, sem miklu víti til varnað-
ar.
Foreldraráðið vill meina að
það sé sjálfsagður réttur þeirra að
vita á hverju unglingarnir nærast í
gegnum vasadiskótækin sín og
því beri að merkja plöturnar/
kassetturnar eftir innihaldi. Það
hefur líka gert kröfu um að text-
arnir verði prentaðir á bakhlið
umslaganna til þess að létta for-
eldrum eftirlitið. Að auki megi
ekki láta sérlega grófar plötur
iiggja frammi í verslunum.
Þessum kröfum hafa talsmenn
bandarísks poppiðnaðar vísað frá
sér, en það er aldrei að vita hvað
gerist ef baráttumönnum fyrir
„hreinna" poppi vex fiskur um
hrygg. (pv eftir Ny Tid)
með vodkakassana tvo, sardínur
og fleira ljúfmeti. Skriðdrekinn
varð eftir og hefur ekkert til hans
sést síðan. Vertinn hafði nefni-
lega snör handtök og bútaði hann
allan niður og seldi í brotajárn.
(pv. eftir NyTid)
Sovéskur skriðdreki sem sumir meta til jafns við tvo vodkakassa.
nmr
Nýja sunnudagsjógúrtin
sér fýrir því - þykk og íburðar-
míkíl. Gædd ávöxtum og öðmm
Qörefnum í ríkum mæli.
Tegundímar em tvær;
eín með jarðarberjum og banönum
- önnur með kryddlegnum rúsínum.
Sunnudagsjc
-Gleðileg viðbót við góða skapíð.
50ÁRA
AUK hf. 3.148