Þjóðviljinn - 01.09.1985, Blaðsíða 15
Sæluhúsið er nú orðið mjög hrörlegt og brotið. Ljósm.: GFr.
menn í landi. Um næsta flæði
losnaði báturinn af skerinu og var
þá haldið rakleitt út fjörðinn og
norður í Hrafnsfjörð í Jökul-
fjörðum. Þar var Lehrmann sett-
ur á land, en Svanur hélt til ísa-
fjarðar.
Lehrmann lagði nú á fjallið og
hélt norður yfir og náði til Furu-
fjarðar. Þar hitti hann tvo menn á
túninu, var annar þeirra Vagn
bóndi. Kannaðist hann við loforð
sitt að veita Þjóðverjanum for-
beina og tók hann í bæ sinn.
Hafði Lehrmann þá meðferðis
tösku með einhverju af fötum í,
lítinn ferðaprímus, kaffiketil og
lítið tjald.
Lehrmann dvaldist svo þarna
um tveggja mánaða skeið. Var
hann mikið inni eða heima við
bæinn, en fór aldrei út af bænum
og hafðist ekkert að, er bent gæti
á njósnir. Bóndi reyndi þó jafnan
að sjá svo um, að Lehrmann væri
ekki úti við, er gesti bar að garði.
En nokkurt samneyti hafði hann
við motbýlisfólk Vagns, en þar
var tvíbýli.
Vildi vitavörðurinn
losna við hann
Dag einn seint í
september-mánuði kom Vagn úr
Furufirði á litlum vélbáti til ísa-
fjarðar og skilaði Lehrmann af
sér.
Hlutust þá enn vandræði út af
dvöl hans á ísafirði og þótti illt í
efni til frambúðar, en fólk virtist
hafa stofnað til hjálpar við Lehr-
mann ýmist af vorkunnsemi eða
kunningsskap, en naumast af
öðrum hvötum.
Fór Lehrmann nú fyrst til frú
Hásler og dvaldist hjá henni
nokkurn trnia. En um þær mund-
ir hitti Jóhann Eyfirðingur að
máli Þorberg Þorbergsson, vita-
vörð í Keflavík við Súgandafjörð,
og bað hann að skjóta skjólshúsi
yfir Lehrmann í tvær til þrjár vik-
ur.
Þjóðverjinn fór nú til Keflavík-
ur og dvaldist þar vetrarlangt.
Vildi vitavörðurinn losna við
hann er dró að áramótum, en
tókst ekki, svo að komið var fram
í apríl, þegar hann fór alfarinn úr
Keflavík. Á þessum tímabili
hafði Þjóðverjinn þó farið tvisvar
til ísafjarðar og hitt hjálpendur
sína, í desember og marz, en snú-
ið aftur til Keflavíkur, þegar ekki
raknaði úr til annarra bjargráða.
Vitavörðurinn tók nú mjög að
ugga um hag sinn, þar eð hann
hafði tekið manninn í greiðaskyni
um stundarsakir, en hafði að
öðru leyti óhug á framferði
þessu.
Þegar Lehrmann kom til ísa-
fjarðar að þessu sinni, var vor og
sumar framundan. Hann fór því á
kreik og hélt vestur á bóginn.
Fóru svo leikar, að hann var
handtekinn 21. maí vestur í Pat-
reksfirði, svo sem fyrr segir.
Tveir piltar urðu varir við
manninn uppi í fjalli við Patreks-
fjörð. Var hann þar í tjaldi. Vildi
hann ekkert við piltana tala, en
svaraði þó kveðju þeirra og bauð
„góðan daginn" á íslenzku. En
mjög þótti þeim hátterni hans
undarlegt.
Piltarnir sögðu frá þessum ein-
kennilega manni í fjallinu og var
Bretum tilkynnt, að þarna væri
grunsamlegur náungi. En í þann
mund gaf Lehrmann sig fram við
þýzka konsúlatið á Patreksfirði.
Var Bretum þegar tilkynnt um
komu hans og brugðu þeir skjótt
við, handtóku manninn og sendu
flugvél eftir honum til Patreks-
fjarðar.
Farangur Lehrmanns var held-
ur fátæklegur, en 260 krónur
hafði hann enn í fórum sínum.
Lehrmann hafði þá dulizt Bret-
um og íslenzkum stjómvöldum í
rúmlega eitt ár.“
Fjölda-
handtökur
Svo segir í Virkinu í norðri.
Ekki kemur fram að Lehrmann
hafi hafst við í sæluhúsi á
Steingrímsfjarðarheiði en eftir
lýsingunni að dæma gæti það hafa
verið fyrstu þrjár vikurnar sem
hann var á flótta. Hefur hann þá
farið norður Strandasýslu og
gengið síðan yfir Steingrímsfjarð-
arheiði í átt að Arngerðareyri.
Þess skal að lokum getið að
þeir sem handteknir voru af Bret-
um á ísafirði þann 8. júní 1941 og
fluttir utan voru Tryggvi Jóa-
kimsson vararæðismaður Breta
og frú hans, Margarethe Hásler
Jóakimsdóttir, sem var þýsk, Jó-
hann J. Eyfirðingur kaupmaður
og Sigurlaug, dóttir hans, frú
Gertrud Hásler og Ilse Hásler,
kjördóttir hennar 17 ára sem var
fædd hér á landi og íslensk í báðar
ættir. Ennfremur var handtekinn
Þorbergur Þorbergsson vitavörð-
ur en þessir atburðir urðu
kveikjan að leikriti Jónasar
Árnasonar, Skjaldhömmm.
-GFr
Stúdenta-
leikhúsið
á hringferð með rokk-söngleikinn
EKKO
GUÐIRNIR UNGU
eftir Claes Andersen.
Þýðing: Olafur Haukur Símonarson.
Tónlist: Ragnhildur Gísladóttir.
Leikstjórn: Andrés Sigurvinsson.
Búðardalur.........31. ágúst kl. 21
Patreksfjörður.......2.sept. kl. 21
Þingeyri.............3. sept. kl. 21
Bolungarvík..........4. sept. kl. 21
Hnífsdalur...........5.sept. kl. 21
Hvammstangi..........6. sept. kl. 21
Blönduós.............8. sept. kl. 21
Eftirlit með innréttingum
Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli vill
ráða eftirlitsaðila með innréttingu flugstöðvarinnar.
Verkið sem nefnist innréttingar FK 5 var boðið út 26.
ágúst 1985 og er ráðgert að opna tilboð 19. nóvember
1985 og að verkinu liúki 1. mars 1987. Verkið nær
m.a. til:
a) Innréttinga og frágangs byggingarinnar.
b) Hreinlætislagna, vatnsúðunarkerfis, hitakerfis og
loftræstikerfis.
c) Raflagna.
Byggingarnefndin leitar eftir einum ábyrgum eftirlits-
aðila sem hefur á að skipa hæfu starfsliði til verksins.
Einstök atriði sem meðal annarra verða lögð til grund-
vallar við val á eftirlitsaðila eru: (1) Reynsla við eftirlit
með sambærilegum framkvæmdum. (2) Hæfni við
stjórnun margþættra framkvæmda, þar með talin á-
ætlanagerð. (3) Umsögn fyrri verkkaupa. Góð ensku-
kunnátta starfsmanna er áskilin.
Verkfræðistofum sem áhuga hafa á verkefninu er
boðið að senda auglýsingar til Varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
eigi síðar en 16. september 1985 kl. 12.00. Fyrirspurn-
um verði beint til skrifstofu byggingarnefndar á Kefla-
víkurflugvelli, sími (92) 1277.
Byggingarnefnd flugstöðvar
á Keflavíkurflugvelli
Sinqer
MagiC
í spori
iramar
f 29. ÁGÚST-8
SEPTEMBER
í LAUGARDALSHÖLLINNI
SYNINGAR -
AFSLÁTTUR
^ SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 SlMI 687910