Þjóðviljinn - 01.09.1985, Blaðsíða 11
Á þessari mynd sést frá Rauðasandi
og inn að Skor. Þarna inn undir fjöll-
unum eru tóftir bæjarins að Sjöundá
þar sem hinir voveiflegu atburðir
gerðust er urðu Gunnari Gunnars-
syni að yrkisefni í skáldsögunni
Svartfugl. Á vetrum er landslag og
umhverfi á þessum slóðum
kynngimagnað, og notar Gunnar sór
það mjög í sögunni. En fegurðin ríkir
ein á sumrum. Ljósm. Bríet Héðins-
dóttir.
Stjornvöld
eru haldin
rótgróinni
kú Itú rfó bíu
Bríet Héöinsdóttir er leik-
húsmanneskja. Leikari,
leikstjóri og á síöari árum
höfundur rómaöra leik-
gerða. Bríet hefur aö
undanförnu veriö aö semja
leikgerð upp úr hinni klass-
ísku skáldsögu Gunnars
Gunnarssonar, Svartfugl,
og mun setja það sjálf á
sviö í Iðnó á komandi vetri.
En Bríet er nýkomin frá
Englandi þar sem hún m.a.
dvaldist um tíma hjá BBC
og kynnti sér leiklistardeild-
ina þar.
Útvarpsleik-
húsið hefur
sett ofan
„Við vorum þarna þrír íslenskir
leikstjórar í senn: Hallmar Sigurðs-
son (sem raunar var þar á vegum
Ríkisútvarpsins) og við Inga
Bjarnason. Það var tekið fjarska
vel á móti okkur. Við fengum að
vaða þarna um allt, yera viðstödd
upptökur og fundi sem leiklistar-
stjóri heldur með samstarfs-
mönnum þ.e. leikstjórum sínum. í
hverri viku eru t.d. haldnir fundir
um verkefnaval. Það er aðdáan-
legt, hversu vel þeir hlúa að rithöf-
undum sínum og hve mikið þeir
gera til að örva þá til starfa. Þeir
líta greinilega á þetta sem höfuð-
markmið útvarpsleikhússins og eru
stoltir af þessu uppbyggingarstarfi
sínu. Sama verður maður var við
þegar maður les um útvarpsleik-
húsið þýska, sem einnig er eitt það
ffemsta í veröldinni.”
„Margt gæti leiklistarstjóri ís-
lenska útvarpsins af þessu lært.
Raunar rennur manni til rifja
hversu mjög útvarpsleikhúsið okk-
ar hefur sett ofan. Ef maður flettir
samantekt, sem gerð hefur verið
(af Óskari Ingimarssyni) um leikrit
flutt í útvarpi frá upphafi, undrast
maður hve stórhuga og menningar-
legir forsvarsmenn leiklistarinnar
hafa verið allt frá upphafi - 1931;
fljótlega var farið að flytja heilu
verkin og þau ekki af verri end-
anum (Brúðuheimilið, Galdra-
Loftur t.d.) - og þá var allt flutt
beint! Engin segulbönd eða stál-
þráður! Fólk af minni kynslóð man
líka þá tíð, að útvarpsleikhúsið var
hið eiginlega Þjóðleikhús ís-
lendinga: á laugardagskvöldum sat
fjölskyldan, börnin nýböðuð - og
hlustaði á leikritið. Auðvitað
breyttist þetta endanlega með
komu sjónvarpsins. Þá voru leik-
ritin flutt á fimmtudagskýöld - en
nú eru þau aðeins flutt annað hvert
fimmtudagskvöld og aðrir flutn-
ingstímar eru á reiki! Þetta hringl
er slæmt og dregur úr hlustun -
sama segja þeir á BBC: „aldrei að
sleppa föstum flutningstíma, sem
leikritin hafa haft, reynslan sýnir,
að maður fær hann aldrei aftur”.
„Leikhús hugans”
„En hnignun útvarpsleikhússins
okkar er ekki aðeins sjónvarpinu
og breytilegum flutningstímum að
kenna - og ekki verður heldur
áhugaley&i almennings um kennt.
Skoðanakannanir og almanna-
rómur herma, að enn eru útvarps-
leikrit mjög vinsælt efni. Þarna er
lélegri stjórnun um að kenna. Einn
þátturinn í því er sá sem ég nefndi
áðan: skortur á íslenskum verkefn-
um. Ríkisútvarpinu ber beinlínis
skylda til að sinna íslenskri leikrit-
un miklu betur. Auðvitað eru
leikrit tiltölulega dýr dagskrár-
liður, en útvarpsleikrit eru þó lang-
ódýrasta leiðin til að koma leik-
ritum á framfæri við almenning.”
„Útvarpsleikhús getur ekki að-
eins verið klakstöð fyrir verðandi
sviðsleikritahöfunda - heldur hef-
ur það ótvírætt gildi í sjálfu sér;
útvarpsleikrit er sjálfstætt listform.
Það gefur höfundinum mikið frelsi
- með einni setningu eða hljóði er
hægt að fara fram og aftur í bæði
tíma og rúmi - og hlustandinn
skapar allt sem á vantar með
ímyndunarafli sínu, ef það er örvað
á réttan hátt. Þetta er leikhús, sem
hver og einn nýtur út af fyrir sig;
því hver skapar sitt eigið umhverfi í
huganum. Enda hefur útvarpsleik-
húsið oft verið nefnt „leikhús hug-
ans”. Það er það form leiklistar,
sem næst er bókinni.”
Þurfum meiri
klassík
„Ástæðan fyrir því, hve lítt ís-
lenskir rithöfundar hafa sinnt
þessu formi, er áreiðanlega ekki
þeim að kenna - og ég er sannfærð
um, að þessu mætti breyta á
skömmum tíma. Höfundar fengju
þá tækifæri til að ná til stærri hóps á
einu kvöldi, en þeir gera oftsinnis á
mörgum árum! Menn hafa á síð-
ustu árum undrast það, sem hefur
verið kallað „gróska í íslenskri leik-
ritun” hjá sviðsleikhúsunum. Ég
skal segja þér, að þetta hefur ekki
gerst fyrir neina tilviljun. Forráða-
menn leikhúsanna vita bara sem
er, að íslenskt leikhús getur ekki án
íslenskra leikrita verið og hafa lagt
kapp á að afla slíkra verka með
ýmsum hætti - þótt auðvitað mættu
þau alltaf gera betur. En öll slík
viðleitni skilar sér.”
„Reynsla sviðsleikhúsanna sýnir
líka, að aukning innlendra verka
leiðir til aukinna vinsælda - og ekki
veitti útvarpsleikhúsinu af nú orð-
ið.”
„Annað atriði í sambandi við
verkefnaval útvarpsins vil ég líka
endilega minnast á: það er ekki
vansalaust hversu sjaldgæft það er,
að við fáum að heyra sígild erlend
leikbókmenntaverk í útvarpi.
Mörg hafa þegar verið þýdd en
liggja óbætt hjá garði: nægir að
nefna verk Shakespeares í heilu
Iagi, sem Helgi Hálfdanarson er nú
búinn að gefa okkur og bókstaflega
heyrast alls ekki í útvarpi, sem er
þó kjörinn vettvangur til kynningar
á þeim. Með markvissum flutningi
sígildra verka gæti útvarpsleik-
húsið unnið ómetanlegt menn-
ingarstarf í þágu almennings. Auk
þess fengjum við - leikararnir - þá
miklu meiri þjálfun í flutningi slíks
texta (t.d. bundins leikmáls) og
þannig gæti útvarpið lagt fram stór-
an skerf til íslenskrar leikmenntar.
Það er líka haugalygi að fólk hafi
ekki gaman af þessu.”
Útvarpsráð er
skrípa-
samkunda
„Annars er leiklistarstjóra vor-
kunn, sem og öðrum dagskrár-
mönnum útvarps. Þeim er ekki
treyst til að bera ábyrgð á vali sínu
og mannskap, heldur eiga undir
högg að sækja hjá þessari skrípa-
samkundu sem kallast útvarpsráð.
Mikið skammaðist ég mín, þegar
ég þurfti að segja frá því hjá BBC
hér í sumar, og raunar fór ég undan
í flæmingi. Þar þykir það hrein villi-
mennska að pólitískt kjörnir
nefndarmenn ritskoði útvarpsefni
- hvað þá skipti sér af mannaráðn-
ingum! Hugur þeirra kom líka í ljós
nú fyrir skemmstu, þegar þeir fóru
bara í verkfall eins og skot þegar
þeir sættu því, sem á íslandi er dag-
legt brauð. Nú fyrir stuttu er raun-
ar komið á daginn að leyniþjón-
ustan breska virðist hafa þar ein-
hver afskipti af útvarpinu. Ja, mik-
ill andskoti!”
Málfrelsi
minnihlutahópa
„í Ríkisútvarpinu íslenska er
ekkert málfrelsi, sem rís undir
nafni. Það er hvergi kallað „mál-
frelsi” - þótt valdhafar, hvort sem
þeir nefnast „meirihluti” eða
eitthvað annað, geti sagt það sem
þeim sýnist. Það geta þeir í Sovét
og Suður-Afríku líka! Mælikvarði
á málfrelsi, er auðvitað málfrelsi
minnihlutahópa hvers konar, mál-
frelsi allra! Menn sem ekki eru inn
undir h j á ríkj andi st j órnmálaflokk-
um, eða kannski bara engum
stjórnmálaflokki, njóta hvorki
málfrelsis né til dæmis þeirra
mannréttinda að vera kjörgengir í
sömu störf og hinir samkvæmt
menntun sinni og hæfni. Þetta veit
hvert mannsbarn á íslandi. Og
þetta köllum við lýðræði!”
„Ég er hrædd um að allir stjóm-
málaflokkar séu samsekir um það
hvernig útvarpsráð vinnur (þó
virðist Kvennaframboðið eitthvað
vera að reyna að malda í móinn) -
þeir telja sig líklega fulltrúa
mennings og þar með sjálfkrafa
vera orðnir hæstiréttur í öllum
málaflokkum, hvort sem þeir hafa
hundsvit á þeim eður ei. Og hæla
sér af!”
„Haraldur Blöndal sat núna í vor
inni á krá og gumaði af því, að hann
hefði gert athugasemdir við það,
að Gísli Rúnar Jónsson leikstýrði
leikriti eftir Stoppard. Þegar furðu
lostinn sögumaður minn spurði
„hvers vegna”, var svarið „Hann er
ekkert fyndinn”! Hvað ætli Har-
aldur segði, ef honum væru meinuð
lögfræðistörf af nefnd, sem aldrei
hefði nálægt lögfræði komið á ein-
hverjum hliðstæðum forsendum
t.d.: „Hann hefur enga réttlætis-
kennd.” Það skal sagt leiklistar-
stjóra til hróss, að hann mun í
þessu tilviki ekki hafa tekið „rök-
semdir” útvarpsráðsmannsins til
greina.”
Dagskrármenn
beri ábyrgð
„Annars er val á leikstjórum í
útvarpinu svolítið skringilegt. Sem
dæmi má nefna, að einum fremsta
leikstjóra okkar, Þórhildi Þorleifs-
dóttur, hefur aldrei verið boðið að
koma þar í stjórnklefa. Þá má og
nefna einn okkar allra besta út-
varpsleikstjóra, Svein Einarsson,
sem hefur heldur ekki boðist þar
verkefni síðan Jón Viðar tók við.
Hvað veldur?”
„Hins vegar hefur mörgum byrj-
endum gefist tækifæri að undan-
förnu og ber að fagna því. En þó
dagskrármenn geti auðvitað verið
misvitrir eins og aðrir menn, ættu
þeir að sjálfsögðu einir að bera
ábyrgð á vali á efni og mönnum,
samkvæmt lögum og reglugerð og
svara síðan sjálfir til saka, ef þeim
skyldi v'erða eitthvað á í messunni!
Fulltrúaráð almennings, sem
auðvitað væri aðeins ráðgefandi,
mætti skipa allt öðruvísi - ekki
pólitískt! En vald dagskrárstjór-
anna og útvarpsstjóra sjálfs ætti
helst að vera tímabundið.”
„Mikil framför var það, þegar
loksins tókst að lögfesta það, að í
þjóðleikhússtjóraembættið yrði í
hæsta lagi ráðið til 8 ára. Það örvar
opna gagnrýni á störf viðkomandi
stjórnanda innan stofnunarinnar,
kemur í veg fyrir að hann fari að
líta á sig sem eiganda leikhússins í
stað þess að muna að hann vinnur
bara eins og hver annar starfs-
maður í þjónustu eigendanna þ.e.
okkar, hæstvirts almennings. Nýi
fréttastjórinn okkar í Sjónvarpinu
lýsti yfir, er hann fékk embættið:
„nýir vendir sópa best”. Bíðum nú
Bríet Héðinsdóttir í viðtali
við Pál Valsson um leiklist
og útvarp, útvarpsráð og
kúltúrhrœðslu og um
Svartfugl eftir Gunnar
Gunnarsson
bara - eftir tíu ár segir hann áreið-
anlega „Æfingin skapar meistar-
ann” eða eitthvað því um líkt sem
vísar til gildis reynslunnar!
Skammtímaráðningar eru sjálfsagt
örðugar viðureignar í ríkiskerfinu,
eins og er, - en eitthvað verður að
gera!”
Kúltúrfóbían
- En ef við víkjum að leiklistinni
almennt, -stöðu hennar og aðstöðu
á íslandi í dag?
„íslensk stjórnvöld eru haldin
rótgróinni kúltúrfóbíu. í þessari
litlu borg „Stór-Reykjavík”, sem á
eins og kunnugt er, heimsmet í
leikhúsaðsókn, er allt gert til að
drepa þann mikla áhuga. Hús-
næðismál leikhúsanna allra eru í
megnasta ólestri. Jafnvel Þjóðleik-
húsið, sem hefur þó óneitanlega
besta leiksviðið á landinu, (þótt
raunar sé það orðið úrelt miðað við
nýjustu leikhús) hefur búið við
mikil þrengsli fram á þennan dag.
Og enn hefur það ekki fengið fast
húsnæði til að reka „litla leik-
sviðið”, sem því þó ber samkvæmt
lögum. Nú hefur bráðabirgðalausn
fengist með húsi Jóns Þorsteins-
sonar, en hún kvað ekki vera til
frambúðar.”
„Allir vita um ástandið í Iðnó.
Þar rekur eitt elsta menningarfélag
landsins (bráðum 90 ára, sem er
hár aldur á íslenskan mælikvarða)
leikhús, við algerlega óviðunandi
aðstæður í þessum timburhjalli við
tjörnina. Þetta stendur starf-
seminni fyrir þrifum á allan hátt:
salurinn er allt of lítill til að leik-
húsið geti borið sig, leiksviðið er
svo frumstætt og lítið að hver ein-
asta sýning geldur þess - þeir sem
t.d. sáu sýningu Stefáns Baldurs-
sonar á Sölku Völku í Búlgaríu,
sögðu að þá fyrst hefði hún notið
sín, er hún fékk almennilegt leik-
svið, - rými. Ég ætla ekkert að
minnast á aðbúnað leikaranna -
það er í raun aukaatriði hjá þessari
staðreynd. Og þó svo margir góðir
listamenn hafi nánast gert krafta-
verk við þessar aðstæður í Iðnó, er
það engin ástæða til að refsa þeim
með því að halda þeim þarna. Og
ég nenni ekki að hlusta á einhverja
væmni um hvað það sé notalegt í
Iðnó! Þetta er óviðunandi húsnæði
fyrir nútíma leikhús og basta! Við
þurfum Borgarleikhús strax!”
Aðstaðan
stórversnað
„Allir svokallaðir „frjálsir
leikhópar” í Reykjavík - raunar
hef ég aldrei skilið í hverju frelsi
þeirra er fólgið umfram annarra
leikhúsa - eru bókstaflega talað á
götunni. Aðstaða þeirra hefur stór-
versnað á liðnum árum. í gamla
daga fengum við í Grímu þó inni í
Tjarnarbæ ókeypis - það er liðin
tíð. Hafnarbíó var rifið utan af Al-
þýðuleikhúsinu - hvergi er búið
eins illa að leiklistinni og í Reykja-
vík, sem hvergi á sér félagsheimili,
eins og sj álfsagt þy kir að sé í öðrum
bæjum. Leiklistarskóli íslands er á
götunni núna... hvar endar
þetta?!”
„Fjárveitingarvaldið sem hleður
á þjóðina miljónaskuldum með
óarðbærum fjárfestingum fær
móðursýkisleg sparnaðarköst ef
minnst er á leiklist - já, og raunar
allt sem lýtur að menntun okkar og
menningu! Og þó er í reynd um að
ræða smápeninga miðað við hin
ósköpin. - íslensk pólitík er svo
ógeðfelld, að ég hef rökstuddan
grun uní að allt almennilegt fólk
forðist hana í síauknum mæli - eftir
sitjum við með valdasjúka undir-
málsmenn sem ráða yfir okkur.”
Spurningar um
sekt og ábyrgð
- Pú ert að vinna að leikgerð úr
Svartfugli fyrir Leikfélag Reykja-
víkur. Hvað viltu segja mér um
hana?
„Sem minnst. Svona verk er ekki
fullunnið fyrr en á leiksviðinu.
Þetta er ekkert leikrit, heldur
handrit að sýningu. Svartfugl er
heillandi verk. Til grundvallar
handritinu liggur þýðing Gunnars
Gunnarssonar sjálfs, sem við fyrstu
kynni virðist svolítið strembin mið-
að við þýðingu Magnúsar Ásgeirs-
sonar, sem flestir þekkja - en í
málfari Gunnars er einhver seiður
og dramatískur þungi, sem maður
verður altekinn af.”
„Verkið er margslungið - og
margrætt sjálfsagt. En svo mikið
þykist ég skilja, að þetta er ekki
sakamálasaga - í reynd alls ekki
fyrst og fremst sagan af Bjarna og
Steinunni á Sjöundá. Gunnari
hefði verið í lófa lagið að segja
vanalega þriðjupersónusögu af
ástríðu þeirra, sem leiðir þau á
glapstigu. En hann velur sér annað
form og mér dettur auðvitað ekki í
hug að hann geri það af tiiviljun.”
„Sagan snýst í reynd um síra
Eyjólf - þátt hans í Sjöundár-
málunum. Þá sögu notar Gunnar
til að velta upp stórum spurningum
um sekt og sakleysi, afstæði allrar
sekfar, rétt okkar til að dæma með-
bræður okkar, um mannlegt réttar-
far yfirleitt, um ábyrgð okkar á ná-
unganum. Við slíkum spurningum
eru engin einföld svör, enda gefur
Gunnar Gunnarsson þau ekki. Síra
Eyjólfur skýtur endanlega máli
sínu til guðs - en hann og vonandi
við - við lestur bókarinnar - höfum
orðið margs vísari.”
„Þetta er svört bók. Enda voru
þetta svartir tímar. Nasisminn er í
uppgangi þegar Gunnar semur
þetta og mér finnst eins og maður
skynji hvað hann er að fara. Þetta
byggist á því sem er að gerast í hans
samtíma, - skynjun hans á því sem
er að gerast. Ég hitti Gunnar
Gunnarsson einu sinni. Það var í
Þjóðleikhúsinu fyrir mörgum ár-
um. Þetta var ákaflega elskulegur
maður og mér finnst gaman að því
núna þegar ég er að vinna að þessu
- að hafa hitt hann.”