Þjóðviljinn - 01.09.1985, Side 9
Otrúlega
poppuð popplög
Það er mikið á seyði hjá
hljómsveitinni Kukl um þessar
mundir. Fyrr í sumar sló hún í
gegn á Roskilde-hátíðinni í
Danmörku. í næstamánuði
kemur út ný LP-plata frá
hljómsveitini sem heitir „The
Naughty Nought“ og er gefin
út hjá enska Crass-merkinu.
Um svipað leyti heldur Kuklið í
aðra Evrópureisu sína og
mun spila á Norðurlöndum, í
Þýskalandi, Sviss, Hollandi
ogjafnvel víðar. Síðasten
ekki síst er Kukl farið að vinna
með Megasi og gefstfólki
kostur á að heyra afrakstur
þeirrarsamvinnu átvennum
tónleikum í Gamla bíói um
næstu helgi, 6. og 7. sept-
ember.
Megas hefur heldur ekki setið
auðum höndum upp á síðkastið
því að hann er nýbúinn að vera á
hljómleikaferð hringinn í kring-
um landið, Ég hitti Megas og
nokkra Kuklara að máli til að
spyrjast fyrir um þetta samkrull
og ýmislegt fleira. Talið barst
fyrst að nýju plötu Kuklsins.
„Við höfum haldið þeirri
stefnu að vera með átta valin-
kunn lög á hverri plötu. Þessi
nýja plata er gjörólík þeirri fyrri,
bæði hvað lögin, heildarstrúktúr-
inn og hljóminn varðar. Einna
mest er þó byltingin í hljóminum.
Hljóðblöndunin er gjörólík enda
þótt músikin sé áfram í hinum
eina og sanna Kukl-anda. Penny
Rimbaud (trommuleikari Crass)
stjórnaði upptökunni í samvinnu
við okkur og hann sá algjörlega
um hljóðblöndunina. Þetta er í
fyrsta sinn sem við vinnum á
þennan hátt með upptökustjóra.
Þar sem við tökum öll mikinn
þátt í músikinni er gott að fá ein-
hvern utanaðkomandi sem mixar
svo að við séum ekki öll með
puttana í þessu í einu. Penny hef-
ur góða yfirsýn yfir þetta efni
okkar. It takes a Penny to make a
pound.“
Núll-
heimspekl
Hvað er fólgið í þessu nafni á
plötunni, The Naughty Nought?
„Stafir. Orðaleikur íhuganum.
Kannski verður undirtitillinn
„Holidays in Europe". Naughty
Nought er núllta núllið, núll í
núllta, 0°. Það eina sem virkar á
núll er núll þannig að núll er ekki
tala. Núll í núllta er einn, sköpun
úr tóminu. Núllið er uppspretta
logaritma sem er grundvöllur
allrar hreyfingar. Við erum búin
að redúsera heimsmyndina niður
í eitt núll, tómið. í dag eru allir að
rembast við að vera eitthvað
meira en núll, að vera ekki núll
og nix. Við sættum okkur hins
vegar alveg fullkomlega við að
vera núll því að það er heimurinn
okkar. í dag þekkist einstakling-
urinn af nafnnúmeri og er með-
höndlaður sem tala og óbreytan-
leg staðreynd. En ef við skoðum
einstaklinginn sem núll þá bend-
um við á að hann hefur óendan-
lega möguleika til sköpunar. Um
leið og einstaklingurinn fer að
skynja sig sem heild tekur hann
örlög sín í eigin hendur.
Öll lögin á plötunni hafa ein-
hvern vott af þessu í sér. Eitt
lagið ætluðum við að kalla Núll
en þá var okkur bent á að á ara-
Kuklan Kuklan &
Urdan Bíttan Ijúka
upp leyndar-
dómum núllheim-
spekinnar,
sœd-realismans og
kampalampanna
bísku er orðið fyrir núil zaro og
þaðan er komið enska orðið zero.
En eins og kunnugt er voru arab-
arnir alltaf heilir á sönsum, komu
með mikla menningu til Evrópu,
kenndu okkur t.d. að reikna.
Zaro þýðir líka sæði. Þetta lýsir
vel kjarnanum í Naughty No-
ught, sæði, sköpun úr engu. Því
má bæta við að það er arabi sem
syngur í þessu lagi, J amil Sairah. “
Guðlaugur: „Ég er að skrifa
handbók í stærðfræði fyrir fram-
haldsskóla þar sem gengið er út
frá núll-heimspekinni. Ég er bú-
inn að redúsera alla stærðfræði
niður í núllið sem gerir hana mjög
einfalda og symmetríska."
Einar Örn: „Það þarf bara að
gera núll-sjónvarps- og útvarps-
þætti. Ég hef ákveðnar hugmynd-
ir um þá. Þeir verða geysilega
fjörugir. Síðan koma núll-bækur,
núll-sælgæti og núll-föt, núll-
vörur sem sagt. Þegar ég er kom-
inn í núll-veröldina mína kostar
Texti: Árni Óskarsson
ekkert ekkert. Þá kostar eitthvað
ekkert. Þar með eru þetta orðnar
núllvörur og þá verður nóg af
öilu. Eignarrétturinn verður
samt áfram í fullu gildi því að það
eiga allir allt sem þeir vilja eiga.“
Uppskeru-
hátíð
Á þessu ári hafið þið spilað á
tveimur stórum tónlistarhátíðum
úti í heimi, fyrst í Hammersmith
Palais í London með Pysychic
T.V. og fleirum og síðan á
Roskilde-hátíðinni. Hver var
reynsla ykkar af því?
„Evróputúrinn okkar í fyrra
var óplægður akur en þessir kons-
ertar uppskeruhátíð eftir hann.
Þarna sáum við árangurinn af
ferðinni okkar í fyrra. Við upp-
götvuðum það á þeirri mínútu
sem við byrjuðum að spila að við
áttum þúsundir aðdáenda. Það
var stórfurðulegt. Þetta var eins
og stjórnmálafundur, fólk mætti
þarna með Kukl-borða og -flögg.
Sumir kölluðu nöfnin okkar og
aðrir sungu með.“
Þar ó ég
heima
Megas, þú ert búin að gera víð-
reist hérna innanlands. Hvernig
var hringferðin?
„Þetta var frábær túr. Þegar
maður sér fólkið sem kemur finn-
ur maður vel hvað maður stendur
föstum fótum í hefðinni. Maður
sér fólk söngla með, veðurbarið
og gráhært, með barnabörnin á
hné sér, þrýstandi eyrunum fram
svo að þau missi ekki af nokkurri
hendingu. Ég er mjög hamingju-
samur með þessa hringferð og
hún var orðin tímabær. Fyrir utan
þessa hringferð er ég búinn að
fara á Vestfirði, í Atlavík, Húna-
ver, Bíldudal og Hrísey.“
Komu þessar viðtökur þér á
óvart?
„Það mundi hæfa að segja að
þessar viðtökur hafi komið mér
afskaplega mikið á óvart. En
innst inni átti ég von á því að þetta
mundi gerast. Löngu áður en
þessi hljómleikaferð hófst var ég
byrjaður að syngja:
hjá yður, þingeyingar,
þúfnabanar,
þar finn ég loks
að á ég heima.
Það er með þennan túr eins og
guðspjöllin sem eru uppfylling á
því sem spáð var í Gamla testa-
mentinu."
Hver voru tildrög þess að
Megas og Kukl ákváðu að leiða
saman hesta sína?
Birgir: „Gagnkvæm ást.“
Einar Örn: „Það byrjaði á því
þegar ég spurði þig í Félagsstofn-
un 1981 hvort ég ætti að kalla þig
Magnús eða Megas. Og þú svar-
aðir: „Hvort heldur þér þykir
betra.“ Svo ég kallaði þig bara
Þránd.“
Svo var það hann Páll B. B. sem
sagði: „Hvernig væri það að Kukl
og Megas ynnu einn konsert?"
Þetta er mjög rökrétt eins og allt
sem við gerum. Fólkið í Kukl
byrjaði að hugsa um músik í
kringum 1980 nema Gulli sem var
byrjaður fyrr. Síðan er Kukl
uppstokkun eftir nýbylgjuna. Og
Megas er ennþá útvörður útúr-
stefnumannanna, útherji fram-
herjanna. Hvað er réttara en að
þessir tveir pólar leiði saman
skaut sín? Við ræðum ekki hér
hver er plúsinn og hver er mínus-
inn.
Við Kuklarar erum með öðru-
vísi vinnubrögð í þessari sam-
vinnu en áður sem við vildum
prófa. Þetta er svolítið léttara en
áður, gengur hraðara fyrir sig.
Hingað til höfum við iðulega ver-
ið marga mánuði að fullhæfa
sama lagið. Megas er að kenna
okkur að blúsa. Það hafa bara
tveir í Kukli blúsað áður. Kukl er
fyrst núna að skynja grundvöllinn
í þeirri músik sem við höfum ver-
ið að spila. Við erum í kennslu-
stund hjá Megasi og hann er í
kennslustund hjá okkur.“
Að hvaða leyti er þetta sam-
starf ólíkt því sem þú hefur áður
fengist við, Megas?
„Það liggur aðrJIega í vinnu-
brögðunum. Áður samdi ég líne-
ar ballöður. Núna reyni ég að láta
grunninn að lögunum gusast út í
einni bunu án þess að rökhugsun
þvælist fyrir, svo vinnum við
þetta í sameiningu. Oft er það
bara textahrynjandi sem lagt er
út af. Síðan kemur Sigtryggur
með trommurnar og þvínæst
bassi, gítar og hljómborð. Tex-
tarnir sem við vinnum upp eru
gerðir í anda sæd-realisma. Þetta
er tímalaus veruleikakokkteill."
Einar Örn: „Samanber yfir-
skrift tónleikanna: Sjáðu hað ég
sé. Undirtitillinn er svo: Allt á að
seljast."
Allir: „Þegar Megas kemur til
okkar og við til hans kemur upp
þessi möguleiki að það eru komn-
ir þrír söngvarar, SAVOK. Það
opnar milljón dyr svo ekki sé
meira sagt. Það gefur möguleika
á að hrinda í framkvæmd ótrú-
lega poppuðum popplögum. Það
býður upp á sjónrænar kræsing-
ar, Krás 2. Við verðum í skart-
klæðum og það verður söngur og
dans. Þetta verður eins konar N-
Jörfagleði.
Við erum sjö en spilum á milli
okkar á tólf hljóðfæri sem þýðir
að það er engin tónlistarstefna
óhult fyrir okkur. Jafnvel Tobbi
Túba fær ekki að liggja óhreyfður
í gröf sinni. Við erum hvergi
smeyk né banginn. Við spilum
hreinræktaða popptónlist. Þetta
verðuf ofsapopp, hin mesta
skemmtun. Við rennum okkur
upp og niður frumefni vinsældar-
listanna. Við tökum eitt upphit-
unargigg í Breiðholti á næstu
dögum undir dulnefninu Kuklan
Kuklan & Urdan Bíttan. Uppá-
haldslitir okkar eru ljósbleikur og
fölgrænn. Uppáhaldsmatur okk-
ar er jarðarber og kampalampar,
nema Bjarkar sem er meira fyrir
ofnbakaða kindakæfu með che-
erios. Þetta er gott samstarf sem á
eftir að hafa varanleg áhrif. Þetta
er söguleg stund.“