Þjóðviljinn - 06.09.1985, Síða 6
SÆNSKA og NORSKA í stað dönsku til prófs.
Nemendur mæti í Miðbæjarskólann sem hér segir:
9. sept. 5. bekkur kl. 17
6. bekkur kl. 18
10. sept. 7. bekkur kl. 17
8. bekkur kl. 17.30
9. bekkur kl. 18
11. sept. 1. áfangi framhaldsskólastigs kl. 17
2. áfangi framhaldsskólastigs kl. 17.30
3. áfangi framhaldsskólastigs kl. 18
Val á framhaldsskólastigi kl. 18.30
Stöðupróf verður 23. sept. kl. 18.
Dagvistarheimilið
Ægisborg
óskar eftir fóstru og starfsmanni. Upplýsingar gefur
forstöðumaður í síma 14810.
Blaðburðarfólk
Ef þú ert
morgunhress.
Haföu þá samband við afgreiðslu
Þjóðviljans, sími 81333
Laus hverfi:
Fossvogur A-lönd Leifsgötu-Eiríksgötu Laufásveg Efri hluta Laugavegar og Hverfisgötu
Þaö bætir heilsu og hag
að bera út Þjóðviljann
Betrablad
FERÐAVASABÖK
FJÖLVÍS 1985
ÓMISSANDI í
FERÐALAGIÐ!
Viö hófum meira en 30 ara reynslu i
utgafu vasaboka, og su reynsla kemur
viðskiptavinum okkar að sjaifsögðu til
góða. Og okkur hefur tekist einkar vel
með nýju Ferðavasabokina okkar og
erum stoltir af henni. Þar er að finna
otrulega fjölbreyttar upplysingar, sem
koma ferðafólki að ometanlegu gagni
jafnt heima sem erlendis.
Meðal efnis t.d.: 40 íslandskort - Kort
af öllum hringveginum - Heimshluta-
kort - Sendiráð og ræðismannaskrif-
stofur um allan heim - Ferðadagbók -
Ferðabókhald - Öryggiskort - Gjald-
eyristöflur - Kaupstaðakort - Evrópu-
vegirnir - Neyðar- og viðgerðaþjón-
usta - Vegalengdatöflur - Bandaríska
hraðbrautakerfið - o.m.fl. sem of langt
er upp að teija.
Að undanförnu hefur verð á
æðardún farið hækkandi. Lætur
nú nærri að bændur fái 15-16
þús. kr. fyrir hvert kg. af full-
hreinsuðum og fjaðurtíndum
æðardún. Þjóðverjar eru enn
stærstu kaupendurnir en þcir eru
kröfuharðir um hreinlcika dúns-
ins.
Fyrir 15-20 árum voru dún-
hreinsunarmál og gæðamat hér á
landi mjög í molum. Á þeim
árum var Æðarræktarfélag ís-
lands stofnað og lét það þessi mál
þegar mjög til sín taka. Arið 1970
voru sett lög um gæðamat á æðar-
dún og 1972 gaf landbúnaðar-
ráðuneytið út erindisbréf fyrir
matsmenn á æðardún. í lögunum
er kveðið svo á, að sýna þurfi
vottorð frá lögskipuðum dún-
matsmönnum til að fá útflutn-
ingsleyfi fyrir æðardún.
Nokkrir æðarbændur hreinsa
dún sinn sjálfir með góðum ár-
angri, en mikill hluti fram-
leiðslunnar er þó hreinsaður í
Dúnhreinsunarstöð SÍS á Kir-
kjusandi í Reykjavík. Árið 1970
Ein af „kollunum" hennar Sigurlaugar frá Vigur.
Æðardúnninn
Hækkar í verði
15-16 þús. kr. fyrir kg.
var Dúnhreinsunarstöðin flutt frá
Akureyri til Reykjavíkur og þá
um leið endurskipulögð og
endurbætt verulega.
Að gefnu tilefni skal á það
minnt, að samkvæmt lögum um
gæðamat á æðardún frá 1970, á
allur æðardúnn, sem út er fluttur,
að vera veginn og metinn af lög-
skipuðum dúnmatsmönnum. Þá
er ráðherra einnig heimilt að láta
meta dún, sem fer á innlendan
markað.
Æðardúnninn er verðmikil út-
flutningsvara. Því hlýtur það að
vera hagur bæði æðarbænda og
útflytjenda að sem allra best sé
vandað til meðferðar og hreins-
unar á honum og að lögunum um
gæðamat sé fylgt því að skammt
getur reynst í sölusamdrátt og
verðlækkun ef óorð kemst á
vöruna. Það er því eindregin
krafa Æðarrækarfélags íslands til
útflytjenda æðardúns, með allan
æðardún, sem fluttur er úr landi,
verði farið eins og lög segja til
um, svo að vörugæðin verði sem
best tryggð.
-mhg
Sauðfjárbœndur
Opinber rannsókn
á gæmverði
Ályktanir á Hvanneyrarfundinum
Blaðið hefur birt nokkrar af á-
lyktunum þeim, sem stofnfundur
Landssamtaka sauðfjárbænda
samþykkti, en engan veginn allar.
Vinsa mætti úr þær, sem undir-
ritaður sjálfur telur merkastar,
birta þær einar en láta aðrar eiga
sig. Engin trygging er þó fyrir
því, og raunar harla ólíklegt, að
lesendur almennt séu blaðamanni
samdóma um mat hans á tillög-
unum, og gildir það auðvitað um
mat blaðamanna á fréttum yfir-
leitt, þegar velja þarf úr, m.a.
vegna rúmleysis.
Því hefur verið ákveðið að
lauma þessum ályktunum inn í
Landið, þótt það gerist smátt og
smátt, enda hér um þau mál ein
að ræða, sem ekki eru háð augna-
blikinu.
Vöruvöndun
Fundurinn leggur áherslu á að
mjög brýnt er að bæta meðferð
kjöts í sláturhúsum, bæði hvað
varðar hreinlæti og aðra með-
ferð. Helstu leiðir til úrbóta er að
halda vönu starfsfólki, sem vinn-
ur sérhæfð störf, og sjá því fyrir
verkþjálfun. Einnig verði úreltar
reglugerðir ekki látnar koma í
veg fyrir eðlilega markaðsöflun
svo sem um bógbindinguna.
Kjötmatið og
neytendur
Fundurinn... skorar á land-
búnaðarráðherra að flýta því að
koma á kjötmati, sem bæði
neytandi og framleiðandi geta
treyst hvað varðar fituþykkt og
vöðvagæði og tryggt sé að flokk-
unin breytist ekki frá sláturhúsi
til neytandans. Bent er á þá stað-
reynd, að fyrir hendi sé ósam-
ræmi í framkvæmd matsins milli
sláturhúsa og skorað á
landbúnaðarráðherra að beita
sér fyrir úrbótum sem fyrst.
Varðandi heilbrigðisstimpil
bendir fundurinn á hvort ekki sé
hægt að breyta stimplinum því
hann sé villandi fyrir neytendur
og e.t.v. misnotaður af seljend-
um.
Nýting
sláturúrgangs
Fundurinn hvetur til betri nýt-
ingar á sláturúrgangi og bendir á
að hann er nauðsynlegt hráefni í
loðdýrafóður og einnig að fram-
leiðsla á gæludýrafóðri innan-
lands er gjaldeyrissparandi fram-
leiðsla.
Ullarmat
Fundurinn bendir á lágt verð á
ull og gærum og telur að sérkenni
íslensku ullarinnar og hin þjóð-
hagslega þýðing hennar, hafi
ekki skilað bændum þeim tekj-
um, sem gera verður krpfur til.
Þá bendir fundurinn á að til
þess að bændur bæti gæði ullar-
innar verði að færa matið nær
framleiðandanum og tryggja
fljótari greiðslu til bænda en ver-
ið hefur í mörgum tilfellum og
krefst þess að sömu reglur gildi
um staðgreiðslu á ull og kjöti.
Ullarmat í landinu verði sam-
ræmt betur en verið hefur og eðli-
legra sé að ullarmatið verði ríkis-
mat, óháð ullarkaupendum. Þá
bendir fundurinn á að niður-
greiðslur á ull til verksmiðja verði
sem ákveðið hlutfall af verði til
bænda en ekki sem krónutala á
kg án tillits til gæða.
Gæruverð -
opinber
rannsókn
Fundurinn bendir á mjög lágt
verð á gærum og krefst þess að
fram fari opinber rannsókn á
verðmyndun áþeim. Bendir jafn-
framt á að ullin af Mokkagærum
borgi gæruna til bænda. Þá krefst
fundurinn þess að batnandi hagur
sútunarverksmiðjanna skili sér í
hærra verði til bænda.
Grundvallar-
verð
Fundurinn beinir því til ríkis-
stjórnarinnar að tryggja þarf fjár-
magn svo að afurðafélögin hafi
möguleika á að greiða bændum
fullt grundvallarverð fyrir fram-
leiðsluna, eins og þeim ber að
gera samkv. lögum um sölu og
meðferð á búvörum, sem Alþingi
samþykkti 1. júní sl. Einnig telur
fundurinn eitt brýnasta
hagsmunamál sauðfjárbænda
vera að fá verulega hækkun á
rekstrarlánum.
-mhg
6 SÍÐA — ÞJÓÐViLJINN Föstudagur 6. september 1985