Þjóðviljinn - 06.09.1985, Side 9

Þjóðviljinn - 06.09.1985, Side 9
Suður-Afríka Óeirðir í hverfi tivítra Jóhannesarborg - í fyrsta sinn síðan yfirstandandi iota hófst fyrir 19 mánuðum náðu óeirðirnar í Suður-Afríku inn í borgarhluta þar sem hvítir menn búa. Gerðist það í Höfð- aborg i fyrrinótt þegar uþb. 100 unglingar af blönduðu litarafti réðust inn í hverfi hvítra manna og fleygðu bensín- sprengjum og grjóti að heimil- um hvítra. íbúarnir hröktu unglingana á burt með skothríð úr haglabyss- um og skammbyssum. Tveir særðust. f öðrum hluta borgar- innar börðust unglingar við lög- reglu eftir að þeir höfðu kveikt í bálkesti á mikilli umferðargötu. Að sögn lögreglu féll enginn í óeirðunum síðasta sólarhring en 36 voru handteknir á ýmsum stöðum í landinu. Þetta líka... Rúmenska stjórnin hefur kom- ið á nýju afkastahvetjandi launakerfi í lykilgreinum. Fari framleiðsla fram úr áætlun geta starfsmenn átt von á 10- 20% kaupauka en nái þeir ekki að framleiða upp í áætlun eiga þeir á hættu að missa allt að helmingi launa sinna. Gildir nýja kerfið til áramóta. Bólivía Verkfallið lýst hafa farið í Bretlandi síðan í síðari heimsstyrjöldinni. Lögreglumenn með gasgrímur bíða átekta. Lyfgegn kmbba í beinum og ristli? London - Á alþjóðaráðstefnu um krabbameinsrannsóknir sem haldin er í London skýrði Robert Baldwin sem stundar rannsóknir við háskólann í Nottingham frá því að honum og aðstoðarmönnum hans hefði tekist að lækna mýs af tveimur tegundum krabba- meins sem fram til þess hafa verið taldar ólæknandi. Baldwin sagði að þeir hefðu læknað bein- og ristilkrabbamein í músum með sérstakri lyfjagjöf sem drepur illkynjað æxli en lætur heilbrigðan vef ósnortinn. Nú væri ætlunin að hefja tilraunir með slíka lyfjagjöf á mannfólki sem þjáðist af þessum tegundum krabbameins. Beinkrabbi og krabbamein í ristli hefur fram til þessa verið talin ólæknandi nema þeirra yrði vart á forstigi og þá aðeins með skurðaðgerðum. Ristilkrabbi er næstalgengasta tegund krabba- meins á eftir lungnakrabba. Baldwin sagðist ætla að gera til- raunir með samskonar lyfjameð- ferð gegn lungnakrabba. Hins vegar mætti búast við að amk. fimm ár gætu liðið þangað til þessi meðferð væri komin í al- menna notkun. Bandarískir sérfræðingar skýrðu einnig frá því á ráðstefn- unni að þeir hefðu náð góðum árangri í leit að meðferð við hvít- blæði og stæði til að hefja tilraun- ir á sjúkrahúsum með lyfjagjafir gegn þeim sjúkdómi á næsta ári. HEIMURINN ologlegt Að sögn breska blaðsins New Statesman hefur breska stjórnin gert neyðaráætlanir ef til stríðs kæmi og samkvæmt þeim er gert ráð fyrir því að bandaríska hernum verði falin stjórn ákveðinna landshluta. Segir blaðið að ætlunin sé að láta reyna á þessar áætlanir á heræfingum sem hefjast nú um helgina. í þeim taka þátt 65 þúsund breskir hermenn og 1.000 bandarískir og eru þetta mestu heræfingar sem fram REUTER Umsjón: ÞRÖSTUR HARALDSSON Andóf Hvar er Sakharof? Köln - Sovéski andófsmaður- inn Lev Kopeléf sem búsettur er í Vestur-Þýskalandi skýrði frá því í dag að svo virtist sem nóbelsverölaunahafinn And- rei Sakharof og kona hans, Je- lena Bonner, væru horfin frá Gorkí þar sem þau hafa verið í útlegð og vissi hann ekkert um hvar þau væru niðurkomin. Kopeléf sagði að þau hjónin hefðu ekki sést í íbúð sinni í meira en þrjár vikur og svo virtist sem íbúð þeirra væri mannlaus og myrkvuð. Einnigværi vaktmaður sem vanalega stóð andspænis götunnar hættur að sjást. Kopeléf bætti því við að móðir Jelenu sem átti afmæli 18. ágúst sl. hafi ekki fengið afmælisskeyti frá dóttur sinni en það hefur aldrei brugðist hingað til. Stjúp- sonur Jelenu, Alexei Semjonof, sem býr í Bandaríkjunum hóf á föstudag hungurverkfall nærri sendiráði Sovétríkjanna í Was- hington til þess að mótmæla þeirri ákvörðun sovéskra yfir- valda að neita Sakharof um leyfi til að flytjast úr landi. La Paz - Á síðari degi allsherj- arverkfallsins í Bólivíu mættu starfsmenn sumra verslana og banka til vinnu eftir að forseti iandsins, Victor Paz Est- enssero, hafði lýst því yfir að verkfallið væri ólöglegt. Leiðtogi verkalýðssambands Bólivíu, Jose Justiniano, sagði að þessi yfirlýsing forsetans væri ekki sanngjörn í ljósi þess að hann hefði sjálfur gerst brotlegur við stjórnarskrá landsins þegar hann greip til efnahagsráðstafana í síðustu viku en þær voru kveikjan að verkfallinu. Justiniano sagði að yfirlýsing Victor Paz Estenssoro forseti Bólivíu - tók við vonlausu efnahagsástandi og glímir nú við verkalýðinn. Frakkland Sprengjur gegn Suður-Afríku París - Frönsk hermdarverka- samtök sem nefna sig Action Directe lýstu á hendur sér ábyrgð á fjórum sprengjutil- ræðum í París í fyrrinótt en þau beindust öll að fyrirtækjum sem sögð eru eiga í við- skiptum við Suður-Afríku. Sprengjurnar sprungu svo til samtímis kl. 2 að staðartíma í fyrrinótt. Þær ollu verulegum skemmdum á skrifstofum fyrir- tækjanna fjögurra en engu manntjóni utan hvað tveir hlutu minniháttar meiðsl. Fyrirtækin sem tilræðunum var beint gegn voru Renault- bílaverksmiðjurnar sem selur ár- lega 10 þúsund bíla til Suður- Afríku, innflutningsfyrirtæki sem flytur inn kol frá Suður-Afríku, Pechiney-álhringurinn sem kaupir þúsundir lesa af hráefnum frá Suður-Afríku árlega og bygg- ingarfyrirtæki sem tók þátt t byggingu kjarnorkuvers í Koe- berg í S-Afríku fyrir þrern árum. í yfirlýsingu sem Action Dir- ecte skildu eftir á tröppum frétta- stofu einnar í París er gefið í skyn að vænta megi fleiri tilræða og þar eru talin upp ýmis fyrirtæki sem eigi hagsmuna að gæta í Suður-Afríku, svo sem bankar, námufyrirtæki og varnarmála- ráðuneyti landsins. Chile 6 féllu í mótmælaaðgerðum Santiago - Að minnsta kosti sex manns létu lífið, tugir manna særðust og 577 voru handteknir í víðtækum mót- mælaaðgerðum gegn herfor- ingjastjórninni í Chile í fyrri- nótt. Til átaka kom í öllum helstu borgum landsins þegar lögregian reyndi að stöðva mótmælaaðgerðir sem boðað- ar höfðu verið. Tilefni aðgerðanna var að Augusto Pinochet einræðisherra hafði hafnað áætlun um endur- reisn lýðræðis og stjórnmálafrelsis í landinu sem nokkrir stjórnmálaleiðtogar lögðu fyrir hann. Leiðtogarnir sem flestir eru miðju- og hægri- menn hvöttu almenning til að mótmæla friðsamlega og undir- rita mótmælaskjöl en samtök vinstrimanna hvöttu fólk til að fara út á göturnar og láta í sér heyra. 1 höfuðborginni Santiago var verslunum lokað snemma í fyrra- dag og samgöngur lögðust niður. Skólar hættu og þegar myrkvaði Washington - Sendinefnd á vegum vesturþýsku ríkis- stjórnarinnar er nú í Bandaríkj- unurn til þess að ræða hugsan- lega þátttöku vesturþýskra vísindastofnana í rannsóknum sem tengjast áætlunum Reag- ans forseta um „stjörnustríð.“ Mikill áhugi ríkir hjá báðum ríkisstjórnum á því að samvinna takist um þessar rannsóknir en þó er óvíst hvort samningar nást. Það veltur einkum á þvf hvort fór rafmagnið af mestallri borg- inni. Formaður bannaðra verka- lýðssamtaka lýsti því yfir að að- gerðirnar hefðu tekist vel. bandaríkjamenn verða við þeirri kröfu vesturþjóðverja að þeir fái aðgang að niðurstöðum rannsóknanna. Sagt er að banda- rísk stjórnvöld séu lítt hrifin af þeirri hugmynd að deila þeirri tækniþekkingu sem út úr rannsókninni kemur með öðrum. Mörg evrópuríki hafa lýst efa- semdum vegna áætlana Reagans en þær togast á við ótta evrópu- ríkja við að heltast úr lestinni í tækniþróuninni ef þeir taka ekki þátt í rannsóknunum. Stjörnustríð Þjóðverjar vilja vera með Föstudagur 6. september 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 forsetans hefði að öðru leyti haft lítil áhrif. Allar verksmiðjur, námur og olíulindir væru lamaðar og sama máli gegndi um ríkis- bankana, járnbrautir, flugsam- göngur og skóla. Justiniano varaði stjórnvöld við þvt að reyna að hindra fjölda- göngur sem fyrirhugaðar eru í landinu þegar verkfallinu lýkur. „Við verkamenn eru andvígir of- beldi, en sé okkur ögrað munum við verja okkur með valdi ef þörf krefur," sagði hann. í fyrradag var helmingurinn af hernum séttur í viðbragðsstöðu til þess að aðstoða lögreglu ef hún missti stjórn á gangi mála og í gær var afgangurinn af hernum settur í viðbragðsstöðu. Herinn í Bóli- víu er ekki óvanur afskiptum af stjórnmálum því herforingjar hafa tekið völdin að meðaltali einu sinni á ári síðan landið hlaut sjálfstæði árið 1825. Mikið efnahagsöngþveiti ríkir í landinu. Verðbólga hefur þotið upp á við úr 123% í 14.000% á þremur árum, ekki hefur verið greitt af erlendum skuldum landsins síðan í mars í fyrra og samdráttur í þjóðarframleiðslu varð 6,2% í fyrra en því er spáð að hann nemi 7,2% í ár. Ritskoðun Bannaður þáttur á dagskrá á ný London - Stjórn breska ríkisút- varpsins, BBC, hefur ákveðið að sýna umdeildan sjónvarps- þátt þar sem leiðtogar öfga- samtaka á Norður-íriandi fá að viðra sjónarmið sín einhvern tíma í endaðan október. Þáttur þessi olli miklu fjaðra- foki þegar stjórn BBC lét undan þrýstingi frá Thatcher forsætis- ráðherra og tók hann af dagskrá í síðasta mánuði. Allir fréttamenn BBC, 4.000 að tölu, sem og starfsbræður þeirra á öðrum sjónvarpsstöðvum í Bretlandi lögðu niður vinnu í einn sólar- hring í mótmælaskyni við rit- skoðun stjórnvalda.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.