Þjóðviljinn - 11.09.1985, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 11.09.1985, Qupperneq 2
FRET71R Akureyri Iðnaðaimenn flýja suður Heimir Ingimarssonformaður byggingarnefndar: Ástandið í byggingariðnaði afar bágborið. Gísli Konráðssonframkvœmdastjóri ÚA: Gœtumþurft að segja okkarfólki upp Astandið í byggingariðnaði hér á Akureyri er afar bágborið og iðnaðarmenn hafa flúið stað- inn í stórum stíl á undanförnum misserum vegna samdráttar hér fyrir norðan. Ætli þeir fari ekki í þensluna fyrir sunnan í staðinn, sagði Heimir Ingimarsson for- maður byggingarnefndar á Akur- eyri í samtali við Þjóðviljann fyrir helgina. „Markaður fyrir íbúðarbygg- ingar virðist vera orðinn mettur. Umsóknir um lóðir eru fáar og framkvæmdir hefjast seint á þeim lóðum sem veittar eru. Skýringin á þessu gæti hugsanlega verið sú, að á síðasta áratug og framá þennan var ofþensla í byggingar- iðnaðinum og þessi samdráttur bara rökrétt framhald á henni. Nú er miklu meiri eftirspurn eftir leiguhúsnæði en áður. En ég trúi ekki öðru en að við séum komnir á botninn. Þetta gæti hugsanlega versnað enn í vetur en við förum að stefna upp á við með vorinu og þá fáum við þessa menn aftur norður", sagði Heimir. Ástand í atvinnumálum Akur- eyringa er nú mjög ótryggt. Tog- ÁTVR Sjalfs- afgreiðsla í nýja miðbænum Keypt verslunarpláss í Hagkaupshöllinni fyrir rúmar36 miljónir. Útsölum í Laugarási og við Snorrabraut verður lokað. Stækkað við Lindargötu. Framkvæmdum í Mjóddinnifrestað Ríkissjóður hefur keypt 727 ferm. verslunarpláss í mark- aðshöll Hagkaupa í nýja miðbæn- um sem nú er að rísa úr jörðu, fyrir rúmar 36 miljónir króna. Þar á að setja upp áfengisverslun með sjálfsafgreiðslu. í Mjóddinni í Breiðholti hefur Póstur og sími og ÁTVR staðið í byggingaframkvæmdum og er búið að steypa sökkul fyrir 3ja hæða húsi sem m.a. á að hýsa áfengisútsölu og lager fyrir ríkið. Þeim framkvæmdum hefur verið slegið á frest að sögn Snorra Ol- sens í fjármálaráðuneytinu. Hann sagði að verslunarplássið í Hagkaupahöllinni þætti nokkuð dýrt en ákveðið hefði verið að festa kaup á því eftir mikla leit að hentugu húsnæði fyrir áfengisút- sölu miðsvæðis í borginni. Ákveðið hefur verið að loka áfengisútsölunum í Laugarási og við Snorrabraut þegar útsalan í Hagkaupahöllinni verður opnuð um mitt þarnæsta ár. Þá er verið að undirbúa stækkun á áfengis- útsölunni við Lindargötu og er ætlunin að koma þar upp sjálfsaf- greiðslu. Enn er óvíst hvenær út- salan í Mjóddinni tekur til starfa en þar mun ÁTVR hafa yfir að ráða rúmum 1700 ferm. -íg- arar Utgerðarfélags Akureyringa eru að verða búnir með kvóta sinn í ár, Harðbakur, Sléttbakur, Svalbakur og Kaldbakur eiga all- ir mjög lítið eftir' af kvóta. Hrímbakur sem áður hét Bjarni Herjólfsson er á sóknarkvóta, en það þýðir að ekki er hægt að flytja óveiddan kvóta hans yfir á Hótel Djúpavík er nýtt hótel, var opnað í júní. Hlutafélagið Hannibal Magnússon hf. á hótelið en hjónin Ásbjörn Þorgilsson og Eva Sigurbjörnsdóttir eru í for- svari fyrir því. Hótelreksturinn gengur mjög vel en að sögn Ás- bjarnar eru kerfiskarlar í Reykjavík að svíkja þau og pretta svo verið getur að þau verði að hætta rekstrinum. Þau eru að kanna möguleikana á því að reka þarna fiskeldisstöð. Norska fyrir- tækið Marinor as. hefur sýnt mikinn áhuga á samstarfi. Þjóð- viljinn talaði við Ásbjörn Þorgils- son. „Þegar við fengum þá hug- mynd að setja á fót hótel á Djúpuvík var okkur bent á að við yrðum að láta gera kostnaðar- áætlun. Það kostaði stórfé en við gerðum það samt. Við vorum hálfpartinn hvött af ferðamálar- áði og framkvæmdastofnun að fara út í þetta og því sóttum við um 900 þúsund kr. lán úr Byggða- sjóði, sem við fengum, og 2 milj- ónir og 276 þúsund úr Ferðam- álasjóði. Við fengum seint og um síðir 1 miljón og síðan ekki sög- una meir. Þeir voru einnig svo vantrúaðir á þetta fyyirtæki að þeir kröfðust 1 miljónar kr. veðs í húsi í Reykjavík en ekki á Djúpu- vík, til þess að vera stikkfrí ef illa gengi hjá okkur. Nú, þar sem við fengum ekki það stofnlán sem okkur vantaði þá eiga þau skyld- menni okkar sem lánuðu okkur veð í húsunum sínum á hættu að missa þau“, sagði Ásbjörn. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN hin skipin. Að sögn Gísla Kon- ráðssonar framkvæmdastjóra gengur ekkert að fá keyptan kvóta annars staðar frá og ekki er að vænta lausnar frá Halldóri Ás- grímssyni sjávarútvegsráðherra. „Ef fer sem horfir má búast við að við verðum að segja okkar fólki „Ef við hefðum fengið allt stofnlánið hefði þetta fyrirtæki vel getað borgað sig. í sumar hef- ur alltaf verið fullt hjá okkur. Við erum með 60 manna matsal og 9 tveggja manna herbergi. Um 2000 manns hafa komið í sumar. En ekki einn einasti kjaftur úr Ferðamálaráði eða Fram- kvæmdastofnun hefur komið og skoðað þetta eftir að allt varð til- búið. Við erum í stórlegum van- skilum og líklega verðum við að hætta hótelrekstrinum og nota hundruð manns vinna hjá fyrir- tækinu. Um síðustu mánaðamót voru 90 manns á atvinnuleysisskrá á Akureyri og eitthvað hefur bæst við síðan. Hlutfall karla á atvinnuleysisskrá hefur hækkað síðan í júlí, en þá voru mun fleiri konur á skrá en karlar. gg. húsið fyrir starfsmenn fiskeldis- stöðvar sem við erum að hugsa um að setja á stofn í samráði við norska fyrirtækið Marinor as.. Menn frá þessu fyrirtæki hafa komið hingað og skoðað staðinn og segja að hann hafi upp á margt að bjóða. Norðmennirnir hafa einnig boðist til þess að kosta ungt fólk sem ynni við fiskeldis- stöðina hér til náms í fiskeldi í Noregi, ef allt gengur vel hér í Djúpuvík", sagði Ásbjörn Þor- gilsson að lokum. - SA. Fyrst sjálfsafgreiðsla er á döf- inni hjá Ríkinu hlýtur að fara að styttast í sjálfsalana. SVR Nýr litur prófaður Enn er verið að gera tilraunir með nýja liti á strætisvögnum Reykjavíkur og í gær kom á göt- una vagn með nýjum lit. Er sá litur valinn að ráði sérfræðinga sem segja að hann eigi að sjást við verstu aðstæður betur en aðrir litir. Fer nú að styttast sá tími sem stjórn SVR og borgarbúar hafa til að skipta um lit á vögnum sínum því taka verður ákvörðun fyrir 15. október. Þá verða nýir Scania vagnar, sem nú eru í smíðum, málaðir en þeir munu síðan koma á götur borgarinnar á næstu mán- uðum. Lambakjöt Komið á markað Stefnt að slátrun frá ágústlokum til jóla Fyrir skömmu voru haldin tvö námskcið fyrir sláturhússtjóra, í Borgarnesi og á Hvammstanga. Fyrir námskeiðunum stóð Bú- vörudeild SÍS en það hefur verið fastur liður í starfsemi hennar undanfarin ár að gangast fyrir slíkum námskeiðum. Markmiðið með námskeiðun- um er að samræma vinnubrögð í sláturhúsum kaupfélaganna og koma þar að þeim nýjungum sem á döfinni kunna að vera hverju sinni. Leiðbeinendur á nám- skeiðunum voru tveir: Sigurður Örn Hansson, forstöðumaður Rannsóknarstofu Búvöru- deildar, og David Jennings frá Nýja-Sjálandi, en hann er sér- fræðingur í pökkun og meðferð lambakjöts. - mhg. Einvígi Jafntefli í 20 leikjum Moskvu -1 gær tefldu þeir Karp- of og Kasparof þriðju skák sína í einvíginu um heimsmeistaratitil- inn og iyktaði henni með jafntefli eftir 20 leiki. Skák þessi var á dag- skrá á laugardaginn en þá fór heimsmeistarinn Karpof fram á frestun. Áskorandinn Kasparof var með hvítt og lék fram drottning- arpeði. í þriðja leik vék hann sér undan nimzo-indverskri vörn sem tefld var í fyrstu skákinni. Karpof svaraði með drottningar- bragði sem er sígild vörn og kom oft fyrir í einvíginu sl. vetur. Skákskýrendur sem fylgdust með skákinni í gær létu sér detta í hug að hvöss taflmennska Kaspa- rofs í fyrstu skákinni hafi haft þann tilgang að koma heims- meistaranum á óvart en að nú sé áskorandinn byrjaður að kanna þolrifin í Karpof. Greinilegt þótti að Kasparof hefði lesið sér vel til um byrjanir því í 7. leik bryddaði hann upp á nýjung sem Karpof þyrfti að hugsa lengi um. Þessi nýjung reyndist fremur hættulaus en svo virtist sem Kasparof hefði tekist það sem hann ætlaði sér: að þenja eilítið taugakerfið í heimsmeistaranum. í 18. leik hófust uppskipti og að þeim afstöðnum var harla lítið eftir annað en að takast í hendur ogsemja um jafntefli. Við birtum skákina: Hvítt: Kasparof Svart: Karpof 1. d4 - Rf6 2. c4 - c6 3. Rf3 - d5 4. Rc3 - Be7 5. Bg5 - h6 6. Bxf6 - Bxf6 7. Db3 - c6 8. e3 - Rd7 9. Hdl - 0-0 10. Bd3 - b6 11. cxd - cxd 12. e4 - dxe4 13. Bxe4 - Hb8 14. 0-0 - b5 15. Hfel - Db6 16. Bbl - Bb7 17. Dc2 - g6 18. d5 - exd5 19. Rxd5 - Bxd5 20. Hxd5 - Hfd8 Jafntefli. — ÞH/rcuter upp“, sagði Gísli. Hátt í þrjú Hótel Djúpavík á Ströndum hefur verið vinsælt í sumar. Hótelstjórinn kveðst þurfa að hætta rekstri vegna tregðu ferðamálayfirvalda á að veita aðstoð. Ljósm.: jis. Djúpavík Kerfið sveik okkur Tilraun gerð með hótelrekstur á Djúpuvík á Ströndum i sumar. Ásbjörn Porgilsson hótelstjóri: allt útlitfyrir að við verðum að hœtta rekstri vegna þess að kerfiskarlar íReykjavík hafa ekki veitt okkur lán. Fiskeldisstöð íundirbúningi

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.