Þjóðviljinn - 11.09.1985, Síða 4
LEIÐARI
Vitlausasta hugmynd ársins
Sjávarútvegsráðherra, Halldór Ásgrímsson,
þótti á sínum tíma nokkuð efnilegur sem gæslu-
maður sjávarútvegs á íslandi. Nú virðist hins
vegar allur glans af honum runninn. Menn eru
samdóma um, að hann hefur gjörsamlega
misst tökin á sjávarútvegsmálum þjóðarinnar.
Um það er ekki einungis skrafað og skeggrætt í
öðrum flokkum en hans eigin, heldur gera nú
harðir Framsóknarmenn sér þann dagamun að
samþykkja mergjuð mótmæli gegn þeirri stefnu
em Halldór hefur rekið. Ekki nóg með það, held-
ur lýsa jafnvel samráðherrar - og það úr hans
eigin flokki - því skorinort yfir í blöðum að þeir
telji stefnu hans kolranga.
Þetta kom einstaklega vel fram í ályktunum
frá kjördæmisþingi Framsóknarflokksins um
síðustu helgi. Flokksmenn Halldórs Ásgríms-
sonar lýstu því þá vafningalaust yfir í harðyrtri
ályktun að kvótastefna ráðherrans sé óalandi
og óferjandi. Og það er til marks um hversu
djúpt sú skoðun nær í Framsóknarflokknum, að
sjálfur forsætisráðherra, Steingrímur Her-
mannsson, sat ráðstefnuna og andmælti ekki
ályktun vestfirskra framsóknarmanna. í viðtali
við Þjóðviljann í gær bætti svo forsætisráðherra
um betur og lýsti því yfir, að hann vildi hverfa frá
kvótaskiptingu Halldórs svo fljótt sem auðið
væri!
Það má ef til vill fallast á, að það eru nokkuð
undarleg vinnubrögð hjá forsætisráðherra að
vera með nöldur og karp í fjölmiðlum gagnvart
verkum samráðherra síns, og kann að segja
sína sögu um hvers eðlis samvinnan er meðal
ráðherra stjórnarinnar. Hitt er sönnu nær, að
Steingrímurog vestfirskir Framsóknarmenn eru
í samfylgd obba íslensku þjóðarinnar í fordæm-
ingunni á kvótakefinu.
Það er nefnilega staðreynd, að þó þau vernd-
unarsjónarmið sem liggja kvótastefnunni að
baki séu virðingar verð, þá hefur framkvæmd
hennar algerlega farið í handaskolum. Þar er
fráleitt hægt að sakast við nokkurn annan en
Halldór sjálfan. Þessu til staðfestu er rétt að rifja
upp atburði sumarsins:
Afburða fiskgengd leiddi til þess að um tíma
var landburður af afla. Þetta leiddi til þess, að
fólk í landi hafði ekki undan að vinna fiskinn.
Hann lá undir stórskemmdum, bæði um borð í
togurunum útí sjó og þó sérílagi í frystihúsunum;
þar voru menn um tíma að vinna vöru, sem var
hreinlega hálfúldin. Manneklan leiddi til þess að
aflinn var unninn í ódýrustu pakkningarnar. Af
því hlaust auðvitað stórtap á alla vegu, ekki síst
vegna þess að dýrari pakkningarnar sem halda
uppi hinum verðmæta Ameríkumarkaði fengust
ekki. Við borð lá, að sá mikli markaður okkar
stórskemmdist fyrir bragðið. Á meðan á þessu
stóð var stöðugt á það bent, bæði hér í Þjóðvilj-
anum og annars staðar, að með þessu yrðu
afleiðingarnar ekki einungis hrikalegt tap á sjáv-
arútveginum, heldur væri líka fyrirsjáanlegt að
kvótinn myndi á mörgum stöðum yrjast upp fyrir
tímann. Atvinnuleysi landverkafólks myndi þá
að sjálfsögðu sigla í kjölfarið. Hér í Þjóðviljanum
var meðal annars bent á, að sjávarútvegsráð-
herra gæti auðveldlega stemmt stigu við þess-
ari ósvinnu með því að gefa út reglugerð sem
takmarkaði aflamagnið sem bærist á land í
aflahrotum sem þessari. Við þessum varnaðar-
orðum okkar og fleiri ábyrgra aðila skellti Hall-
dór Ásgrímsson eyrum skolla, enda var hann
um þær mundir upptekinn við að sitja útí Eng-
landi á fánýtri ráðstefnu að röfla um hvali.
Afleiðingin er að koma í Ijós núna: aflinn er að
verða búinn á fjölmörgum stöðum út um allt
land, atvinnuleysi blasir við og rústun heilla
byggðarlaga.
Gegn þessu hrikalega ástandi sem vofir yfir
mörgum byggðarlögum hefur Halldór Ásgríms-
son af ótrúlegu hugviti teflt fáránlegustu hug-
mynd ársins: hann vill láta þá sem klára kvótann
fyrir tímann byrja að nota kvóta næsta ársl! Það
er svona álíka og ætla sér að stinga upp í
launþega með því að borga þeim fyrirfram laun
næsta árs, og leyfa þeim svo að éta það sem úti
frýs.
Hugmynd Halldórs Ásgrímssonar verð-
skuldar svo sannarlega sæmdarheitið vit-
lausasta hugmynd ársins!
-ÖS
Eðli mannsins
Er sterkasta hvöt mannsins
ágóðahvötin og er ástæðan fyrir
því að félagshyggjumenn vilja
sporna gegn markaðshyggjunni
óheftri sú ein að henni fylgir
öfund sem er af hinu illa? Þessi og
reyndar margar aðrar spurningar
leita á hugann við lestur helgar-
viðtals DV við Magnús Ólafsson
fyrrum NT-ritstjóra. Þar gefur
hann m.a. þá lýsingu á sjálfum
sér að hann sé markaðshyggju-
maður „vegna þess að hann telji
manninum það eðlislægt að fá að
kaupa og selja á því verði sem um
semst“!
Margt hefur nú verið sagt í
gegnum tíðina um „eðli“ manns-
ins og t.a.m. hafa frjálshyggju-
postular nútímans klifað á því að
samkeppnisandinn sé í samræmi
við „eðlið“ en ekki samhjálpin.
Ýmsir þeirra seilast svo langt að
vitna í Darwin sáluga máli sínu til
stuðnings og tengja þá hugsjónir
sínar um samkeppni og sjálfs-
bjargarhvöt ásamt skeytingar-
leysi um hag náungans við kenn-
ingu hans um „The survival of the
fittest", eða úrval hinna hæfustu.
Þetta er reyndar orðið slagorð í
munni frjálshyggjumanna sem
hins vegar hafa ekki haft fyrir því
að kanna hvað liggur að baki fyrr-
greindri kenningu.
Vinstri
markaðshyggja
Allt um það er hér komin ný
skýring á ,.eðlinu“. „Ágóðahvöt-
in er sterkasta hvöt mannsins.
Það er hvöt sem leiðir til aðgerða
og framkvæmda", segir Magnús.
Hins vegar segist hann einnig
vera vinstri maður: Óheft við-
skiptafrelsi hafi ýmsar óæskilegar
aukaverkanir, svo sem óeðlilega
tekjumismunun, sem aftur leiði
til öfundar sem sé stórhættuleg
hvöt. í litlum þjóðfélögum séu
þessar aukaverkanir hættulegri
en ella og því álítur hann að opin-
berar hliðarráðstafanir séu nauð-
synlegar samfara markaðsfrels-
inu. „Að því leyti er ég vinstri
maður“, segir Magnús.
Stjórnmálamenn
og fjölmiðlar
Magnús segist ekki geta tekið
undir gagnrýni Ingvars Gísla-
sonar um að íslenskir blaðamenn
heiðri jafnan skúrkinn en geti
þess lítt sem vel sé gert. Hann
nefnir þá Davíð, Albert og Jó-
hannes Nordal sem brautryðj-
endur í umgengni við fjölmiðla.
„Þeir geta fundið einhver eftir-
tektarverð viðfangsefni sem fjöl-
miðlar slá svo upp - og þeir njóta
svo góðs af tilstandinu. Við þetta
finnst mér ekkert að athuga. Það
eru breyttir tímar og vinnubrögð-
in eru ný. Þegar menn hafa lært á
þessi vinnubrögð fjölmiðla geta
þeir notfært sér þá“, segir Magn-
ús. Hann segir Framsóknarmenn
t.d. ekki hafa komið auga á þá
staðreynd að það sé sama hvað
pólitíkusar geri, sé ekki sagt frá
því í fjölmiðlum þá skipti það
engu máli. Þeir forðist eins og
heitan eldinn að taka upp eftir-
tektarverð og vinsæl mál: „Hver
man eftir framsóknarmanni sem
gerir eitthvað sniðugt - eins og
Davíð, eins og Albert, eins og
Jón Baldvin? Um þetta snúast
nútímastjórnmál“.
Nú kann það að vera satt en
einhvern veginn hélt klippari að
nútímafjölmiðlun snerist um
annað en einstaka blöðrur sem
stjórnmálamenn kjósa að blása
upp og sprengja sjálfum sér til
framdráttar.
Steinrunninn
flokkur
í augum klippara er vandinn
sem sé ekki fólginn í því að
stjórnmálamenn kunna ekki að
notfæra sér fjölmiðlana á þennan
hátt heldur hinu, að fjölmiðlarnir
láta nota sig þannig. Magnús rek-
ur hins vegar fylgistap Framsókn-
ar til þess að forystan kunni ekki
á nýja stílinn. Hann telur reyndar
að Framsóknarflokkurinn eigi
enn eftir að minnka: „Miðað við
ríkjandi ástand á hann heldur
ekki annað skilið enda nær
steinrunninn flokkur. Og það er
synd vegna þess að innan flokks-
ins eru margir mjög hæfir menn“,
segir hann og nefnir eftir nokkra
umhugsun fjögur stykki: Guð-
mund Bjarnason, Finn Ingólfs-
son, Steingrím og Halldór.
„Flestir aðrir hafa nákvæmlega
engan skilning á nútímastjórn-
málum og notkun fjölmiðla. Það
er hreint ekki einkennilegt að
fylgi flokksins er eins og það er.“
NT og DV
Ekki er mikið fjallað um NT í
viðtalinu en þeim mun meira um
ágæti DV. Magnús segist aldrei
hafa litið á NT sem málgagn
Framsóknarflokksins enda hafi
það ekki verið það. Ástæðan fyrir
því að NT rak vinstri pólitík þessa
17 mánuði segir Magnús ekki
hafa verið þá að bjarga Framsókn
frá algeru hruni. „Ég áleit að það
væri stærri markaður fyrir frétta-
blað á vinstri vængnum. f öðru
lagi var ég sem Framsóknarmað-
ur þeirrar skoðunar að hættulega
lítil skil væru milli flokkanna í
augum almennings", segir hann.
Klippari getur ekki verið sam-
mála Magnúsi um að DV sé hið
óháða fréttablað sem það gefur
sig út fyrir að vera. Fjölmiðlar
eru fyrst og síðast háðir eigend-
um sínum og það fékk Magnús
reyndar sjálfur að reyna þegar
hann var látinn fara af NT eftir 17
mánaða ritstjórn.
Markaðurinn
ráði
Að lokum látum við flakka hér
smákafla úr viðtalinu:
DV spyr: - Ert þú vinstri mað-
ur í Framsóknarflokknum?
„Bíddu nú hægur - sjáðu til: í
eðli mínu er ég markaðshyggju-
maður.“
- Sem þýðir þá væntanlega að
sem ritstjóri myndirðu reyna að
selja blað sem daðraði við þá for-
dóma sem þú telur lesendur hafa
- ekki satt?
„Áttu við að ef ég teldi að kyn-
þáttafordómar væru ríkjandi hér
- að ég myndi þá daðra við að-
skilnaðarstefnu eða eitthvað í þá
áttina?“
- Já.
„Þétta er náttúrlega aldagömul
spurning, - en markaðurinn
verður að fá að ráða.“
- Til þess að blaðið lifi?
„Já, til þess að blaðið lifi.“
-ÁI
DlðÐVIUINN
Málgagn sósíálisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéöinsson.
Rltstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttaatjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Páll Valsson, Sigríður Pétursdóttir, SævarGuð-
björnsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndlr: Einar ólason, Valdís öskarsdóttir.
Útllt og hönnun: Filip Franksson, Svava Sigursveinsdóttir.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir. Utkeyrsla, afgreiftsla, auglýsingar, ritstjórn:
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Síftumúla 6, Reykjavík, síml 81333.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Umbrot og setning: Prentsmiftja Þjóftviljans hf.
Utbreiftslu8tjóri: Sigríður Pétursdóttir. Prentun: Blaftaprent hf.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga f lausasölu: 35 kr.
Clausen. Sunnudagsverft: 40 kr.
Afgreiftslustjóri: Baldur Jónasson. Askriftarverft á mánufti: 400 kr.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttit, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Jenny Borgedóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
Húsmæftur: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnflörð. frá kl- 9 fil 12- b®'00 sími: 81663.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 11. september 1985