Þjóðviljinn - 11.09.1985, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 11.09.1985, Blaðsíða 8
} \ Hinn vissi árlegi passi Septem-hópurinn í Kjarvalssal Septem-hópurinn sýnir enn einu sinni, þótt höggviö sé stórt skarö í raðir hans með fráfalli þeirra Sigurjóns Ólafs- sonarog Þorvalds Skúla- sonar. Það hefuróneitanlega lækkað risið á hópnum, en um leið er eins og baráttuviljinn hafi blossað upp á ný, því margt ágætt er hægt að segja umþessa sýningu. Auk þeirra tveggja sem fallnir eru frá, vantar Karl Kvaran, en hann hefur verið einn sá sterkasti í hópnum; listamaður sem vex með hverri sýningu. En í staðinn er Guðmundur Benediktsson myndhöggvari kominn í hópinn, hvort sem það er til frambúðar eða til skammrar dvalar. Víst er að hópurinn væri snöggtum fá- tækari án myndhöggvara. Svo sem oftast nær stendur Kristján Davíðsson eins og klett- ur upp úr hópnum, en Jóhannes Jóhannesson fylgir fast eftir með betri myndum en ég hef séð hann sýna á fyrri sýningum Septem. Pessir tveir listamenn sanna hvor með sínum hætti að til einhvers er að halda þessu sýningarformi áfram. Valtýr kemur einnig á óvart með betra pródúkt en hann hefur nokkru sinni sýnt síðan hópurinn var endurskapaður. Valtýr hefur verið að batna í lit og hefur eitthvað gerst sem veldur stökk- breytingum til hins betra. Allt lit- aspil hans er orðið dempaðra og blæbrigðaríkara og eituráhrifun- um og innþornuninni hefur hann varpað fyrir róða. Um Guðmundu Andrésdóttur hef ég svo oft fjallað að á það er ekki bætandi. Hún virðist ekkert hafa skánað og er það miður þar sem hún er vinnusöm og dregur ekki af sér við maleríið. Guðmundur Benediktsson sýnir ágæta skúlptúra úr gipsi og einn úr tré. Guðmundur er vand- aður listamaður og lætur ekki frá sér fara slappan hlut. Bitnar það ögn á frelsi hans til að spretta úr spori og staðfesta sig sem þrótt- mikill myndhöggvari en engu að síður má virða afstöðu hans sem tryggir jafnan og góðan árangur. Tveir gestir eru á þessari sýn- ingu Septem-hópsins. Eru það Hafsteinn Austmann og Jens Urup glerskurðarmaður. Urup sýnir tíu verk, þar af 8 steinda glugga fyrir Sauðárkrókskirkju og eru þetta vandlega og fínlega unnin verk. Hafsteinn Austmann sýnir olíu- og vatnslitamyndir, fleiri verk samanlagt en nokkurt hinna. Samt hefur hann ekki ár- angur sem erfiði því olíumyndirn- ar eru orðnar innantómar og vatnslitamyndirnar segja lítið meðofhlæði sínu. Hafsteinn virð- ist ekki bera gæfu til að brydda upp á nýjungum í verkum sínum, jafnvel þótt sá stíll sem hann iðk- ar nú dugi honum illa til átaka. Ef litið er yfir hópinn í heild verður þó að segja að fleira gott er að þessu sinni sýnt en oftast áður og fleiri virðast heimta góða uppskeru. Þrátt fyrir það er vafa- samt að halda áfram svo tíðum sýningum. Karl Kvaran hefur gert rétt í því að fresta ögn þátt- töku, enda sýndi hann í fyrra verk sín við góðan orðstír í Listmuna- húsinu og sama er upp á teningn- um hjá honum nú. Færi ekki illa á því ef fleiri úr hópnum gerðu hlé á þessum samsýningum til þess að sýna einir og sérr í betra tómi. Menn verða að hafa góðar og gildar ástæður til að sýna, aðrar en þær að það sé gert af gömlum vana. HBR ísafjörður Landslag í Slunkaríki Á ísafirði er sýningarsalurinn Slunkaríki og þar stendur yfir sýning á verkum Sólveigar Aðalsteinsdóttur. Myndimar eru allar af íslensku landslagi, unnar í koparstungu, vatnslit, teikningu og þurrkrít. Sýningunni lýkur 19. september. MENNING Tónlist Samkeppni um hönnun tónlistar- húss hafin Norrœnum arkitektum boðin þótttaka. Húsinu valinn staðurí Laugardal Samtökin um byggingu tón- listarhússá íslandi hafa efnttil samkeppni um hönnun húss- ins og boðið arkitektum á öllum Norðurlöndunum þátt- töku. Tilgangur keppninnar er að fá fram sem besta lausn á tónlistarhúsi á íslandi og ráða arkitekt. Þrennum verðlaunum verður úthlutað, samtals að upphæð 2.6 miljónirísl. króna. „Samkeppnin er dýrt fyrirbæri, „sagði formað- ur samkanna Ármann Örn Árn- asson,“ en flytur okkur vonandi viðunandi lausn. Leitað er til alla íslendinga um fjárstuðning en tónlistarhúsið verður byggt ef ís- lenska þjóðin vill. Samtökin töldu sig ekki í stakk búin til að fara út í fjársöfnun fyrr en skriður væri kominn á málið, en nú hafa samtökin fengið lóð og hafið samkeppni um hönnun hússins. Fyrsta þrepið í fjáröfluninni er landshappdrættið. Samtökin hafa fengið óvæntan stuðning er- lendis frá en við miðum við að byggja okkar hús fyrir okkar fé“. Samtökin hafa gefið út forsögn fyrir teikningu hússins sem byggir á tveggja ára undirbúningsstarfi forsagnarhóps sem skoðaði og kynnti sér hin margvíslegustu tónlistarhús og starfi dómnefn- dar. Dómnefndina skipa fjórir arkitektar, hljómburðarfræðing- ur, tónlistarmaður og byggingar- maður. Dómnefndin ræddi við einstaklinga og hópa úr tónlistar- lífinu og kynnti sér aðstæður og gerði síðan forsögnina að tillögu sinni. Tónlistarhúsinu var valinn staður í Laugardal, og er kepp- endum ætlað að staðsetja húsið, en lóðin gefur mikla og frjálsa möguleika. Húsið verður 30 til 35 þúsund rúmmetrar eða tæpir 5 þúsund fermetrar sem er svipuð stærð og Þjóðleikhúsið. Tónlistarhúsið er ætlað fyrir tónlist af allri gerð og lögð er áhersla á að það verði tónlistar- hús með sveigjanlegum notkun- armöguleikum. Gert er ráð fyrir góðri aðstöðu fyrir upptöku hljóðs og myndar og er því ætlað að vera aðsetur Sinfóníuhljóm- sveitar íslands. Þá er húsinu ætl- að að hýsa fundi og ráðstefnur. í því skyni verða innbygðir þýð- endaklefar og verður þetta fyrsta húsið á íslandi sem getur tekið við stórum ráðstefnum. Aðalsalur hússins á að rúma 1400 manns með hugsanlegum stækkunarmöguleikum út í and- dyri. Svið hans er ráðgert á pallal- yftum svo að hljómsveitargryfja verði til staðar þegar á þarf að halda fyrir óperur, söngleiki og þvílíkt. Það að auki verður minni salur fyrir 300 manns. „Þetta hús getur orðið mikil lyftistöng fyrir íslenskt tónlistarlíf ef vel tekst til og þörfin á slíku húsi er mikil því hvergi nokkurs staðar í heiminum er eins almenn þátttaka í tónlistarlífí og hér á landi“. -aró Sögusteinn /íttartölur Snóksdalíns Bókaforlagið Sögusteinn, sem sérhæfir sig í útgáfu ætt- fræðirita, hefurgefið út í Ijósriti ættartölusafn Olafs Snóks- dalín í þremur bindum, alls um 2.100 síður. Talið er að Ólafur Guðmunds- son Snóksdalín, verslunarstjóri og bóndi, f. 1761, d. 1843, hafi gert a.m.k. 8 handskrifuð afrit af þessu ættartölusafni og er þessi útgáfa sennilega sjöunda afritið. Það er varðveitt í Handritadeild Landsbókasafns íslands, Lbs. 451-453 fol. Þetta eintak eignað- ist Jón Pétursson, háyfirdómari, og lét binda það inn með auðum innstungublöðum. Hann byrjaði að færa inn á þau viðbætur og leiðréttingar, en síðan eignaðist Hannes Þorsteinsson, þjóðskjal- avörður, handritið og er stærsti hluti viðbóta og leiðréttinga eftir hann. Hannes hefur sagt um þetta handrit að það sé „eitthvert hið allra áreiðanlegasta og fullkomn- asta ættarsafn íslenskt“ og víst er að með viðbótum Hannesar á þessi umsögn fyllilega rétt á sér. Undirbúningur útgáfunnar, sem gerð var með sérstöku leyfi Handritadeildar Landsbókasafns íslands, reyndist afar tímafrekur og mikið nákvæmnisverk. Hand- ritið var illa farið, óhreint og slitið, og reyndar fyrir alllöngu óhæft til útlána í lestrarsal. Kunnáttumenn hafa lokið lofs- yrði á verkið í sinni endanlegu mynd - það er fagurlega inn- bundið og því fylgir endurgerð nafnaskrá og grein um Ólaf Snóksdalín og verk hans eftir Sig- urgeir Þorgrímsson. Þar sem mikil vinna liggur að baki hvers eintaks ættarsafnsins þótti ekki gerlegt að gefa það út nema í 75 eintökum. Verð bók- anna þriggja er samt ekki nema 18 þús. krónur (19.600 með af- borgunarkj örum). Áhugafólk getur skoðað bæk- urnar hjá Sögusteini að Týsgötu 8, á mánudögum og miðviku- dögum milli kl. 4 og 6. Hallgrímskirkja Kantötur Bachs Mótettukór Hallgrímskirkju er um þessar mundir að hefja fjórða starfsár sitt. Síðustu vikur hefur Mótettukórinn sungiðjólalög innáplötu ásamt Kristni Sigmundssyni, en það er bókaforlagið Örn og Örlygur sem gefur út. Upp- tökum er nú lokið og framund- an er hefðbundið vetrarstarf kórsins. Hátíðatónleikar verða haldnir sunnudaginn 27. október og verða þá fluttar þrjár kantötur. Eru þessir tónleikar eins konar lokaframlag Mótettukórsins á Bach-árinu. Fleiri tónleikar eru ráðgerðir eftir áramótin og verð- ur síðar í haust tekið til við að æfa nýja og fjölbreytta efnisskrá með mótettum frá ýmsum tímum. Söngfólk vantar nú í allar radd- ir Mótettukórsins þar sem ákveð- ið hefur verið að stækka kórinn. Skilyrði fyrir inntöku er að menn hafi einhverja reynslu af kór- starfi, séu á aldrinum 16 til 40 ára og æskileg er kunnátta í nótna- lestri. Æfingar eru á miðviku- dagskvöldum og laugardags- morgnum. Hörður Áskelsson söngstjóri Mótettukórs Hall- grímskirkju veitir nánari upplýs- ingar í síma 32219. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 11. september 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.