Þjóðviljinn - 11.09.1985, Blaðsíða 13
________________HEIMURINN_____
Bretland
Biimmgham í logum
Birmingham - Miklar óeirðir
urðu í fyrrinótt og aftur í gær-
dag í hverfinu Handsworth í
Birmingham sem er næst-
stærsta borg Bretlands. í það
minnsta tveir létu lífið en lík
þeirra fundust í rústum húsa
sem brennd höfðu verið til
grunna.
Ekki er fullljóst hvernig
óeirðirnar hófust en þær lýstu sér
í því að hópar unglinga fóru um
stræti hverfisins, reistu vega-
Luxemborg - Utanríkisráðherr-
araðildarlanda EBE komu sér í
gær saman um takmarkaðar
refsiaðgerðir gegn stjórn hvíta
minnihlutans í Suður-Afríku.
Um leið og þær verða opinber-
lega tilkynntar verður stjórn-
inni í Pretoríu afhent yfirlýsing
þar sem ma. er hvatt til þess að
stjórnin taki upp viðræður við
kjörna leiðtoga blökkumanna.
Breska stjórnin vék sér þó
undan því að undirrita
samkomulagið.
Að sögn fransks embættis-
manns sem sat fund ráðherranna
felur ákvörðun þeirra í sér bann
við allri vopnasölu og kjarnorku-
búnaði, olíusala verður stöðvuð
og bann er lagt við öllum sam-
skiptum á sviði menningarmála
og íþrótta. Loks gerir ákvörðunin
ráð fyrir því að hernaðarsérfræð-
ingar sendiráða aðildarlandanna
í Suður-Afríku verði kallaðar
heim. Breska stjórnin áskildi sér
þó rétt til að fara ekki eftir því
síðastnefnda. Á það vildi franski
ráðherrann ekki fallst og gerði
kröfu til þess að allir kölluðu
hernaðarfulltrúa sína heim. Á-
kvað þá breski fulltrúinn að und-
irrita ekki samkomulagið en hinir
ráðherrarnir níu standa áfram að
refsiaðgerðunum.
Ráðherrarnir vildu hins Vegar
ekki fallast á tillögur Frakka um
bann við innflutningi á
tálma sem þeir kveiktu í, hentu
bensínsprengjum, brutust inn í
og rændu verslanir og kveiktu í
bflum og húsum. Aðeins 12 lög-
regluþjónar voru í hverfinu þegar
óeirðirnar hófust í fyrrinótt en
þeim var fjölgað upp í 600 á
skömmum tíma.
Eftir nokkurra tíma átök tókst
lögreglu að stilla til friðar en í
gærdag blossuðu þau upp aftur.
Ástæðan var heimsókn innanrík-
isráðherrans, Douglas Hurd, í
hverfið þar sem einkum býr
gullmyntinni Krugerrand, og þeir
vildu heldur ekki banna nýjar
fjárfestingar í landinu né hætta að
veita útflytjendum til Suður-
Afríku lánafyrirgreiðslu. Margt
af því sem ráðherrarnir ákváðu í
gær er þegar bannað í ýmsum að-
blökkufólk og fólk ættað frá
Asíu. Tekið var á móti ráðherr-
anum með grjótkasti og brátt
logaði allt í óeirðum aftur þar
sem bflum var velt og kveikt í
húsum.
Þetta eru verstu óeirðir sem
orðið hafa í breskri borg síðan
sumarið 1981 þegar mannskæðar
kynþáttaóeirðir urðu í 20 borgum
landsins. Handsworth er fátækt
hverfi þar sem ríkir mikið
atvinnuleysi, að meðaltali 55-
60% sem er fjórfalt meira en
ildarríkjum EBE.
Embættismenn í Luxemborg
sögðu að þessi ákvörðun væri
fyrst og fremst táknræn til þess að
undirstrika óþolinmæði banda-
lagsins með hve hægt miðar að
afnema aðskilnaðarstefnuna. í
landsmeðaltalið. Harðast bitnar
atvinnuleysið á unglingum sem
hafa lítið við að vera annað en að
hanga í sjoppum og á krám og
svelgja í sig eitur og áfengi.
Um það bil 30 lögreglumenn
slösuðust í átökunum en enginn
þó alvarlega. Lögreglan sagði að
ástandið hefði einna helst líkst
borgarastyrjöld þar sem hún
hefði þurft að fikra sig áfram götu
eftir götu til þess að koma á friði
aftur.
yfirlýsingunni sem send verður til
Pretoríu verður stjórnin þar
hvött til að sleppa úr haldi öllum
pólitískum föngum, þmt. Nelson
Mandela, og taka upp viðræður
við kjörna fulltrúa blökku-
manna.
Kína
Enginn
stalínismi í
Britannicu
Peking - Kínverjar hafa gefiö út
fyrstu þrjú bindin af hinni
þekktu alfræðiorðabók Enc-
yciopaedia Britannica á kín-
versku. Útgáfan er að mestu
leyti óbreytt frá ensku frumút-
gáfunni að því undanteknu að
kaflanum um stalínismann er
sleppt og kaflarnir um helstu
leiðtoga Kínaveldis eru auknir.
AIls verður orðabókin gefin út
í tíu bindum og til að byrja með
verður upplagið 65 þúsund bindi
en af þeim fara 50 þúsund á inn-
lendan markað og afgangurinn á
erlendan markað.
Ritstjórí kínversku útgáfunn-
ar, Xu Weizeng, sagði að rit-
stjórnin hefði ekki treyst sér til að
birta kaflann um stefnu og störf
Stalíns þar sem hann hefði þótt
„of umdeilanlegur". Kaflar sem
fjalla um Kína og kínversk mál-
efni hafa verið umskrifaðir og
bætt við kaflana um kínverska
leiðtoga. Til dæmis er kaflinn um
Deng Hsiao Ping uþb. þrefalt
lengri en í ensku útgáfunni en þó
heldur styttri en kaflinn um Pétur
mikla rússakeisara.
REUTER
Umsjón:
ÞRÖSTUR HARALDSSON
Þetta líka...
...ísraelski herinn lét í gær lausa
119 fanga og voru það síðustu
fangarnir sem handteknir voru
meðan á hernámi ísraelsmanna
stóð í Suður-Ltbanon og enn voru í
haldi. Alls handtók ísraelski her-
inn uþb. 10 þúsund manns í
Suður-Líbanon á þeim þremur
árum sem hernám hans stóð...
...Sovéskt skip bjargaði þremur
fiskimönnum frá Jamaíca úr
hafsnauð á Karíbahafi en þeir
höfðu verið níu daga á reki eftir að
utanborðsmótor á bátnum þeirra
sökk. Fiskimennirnir sögðu að tvö
bandarísk skip hefðu siglt framhjá
þeim án þess að rétta þeim hjáip-
arhönd og skipverjar á öðru þeirra
hefðu mas. hlegið að þeim...
Subur-Afríka
EBE fer að fordæmi Reagans
Bretar véku sér undan að taka þátt í sameiginlegum refsiaðgerðum
síðasta mánuði sendi EBE þrjá utanríkisráðherra og einn háttsettan embættismann í „kynnisferð“ til Suður-Afríku. Þeir
mæltu heimkomnir gegn sameiginlegum refsiaðgerðum bandalagsins en nú hafa slíkar aðgerðir verið samþykktar, að
vísu afar takmarkaðar.
Noregur
Kare er ekkert yfir sig hrifinn
Vinstriflokkarnir eru sigurvegarar kosninganna en geta bölvað kosningakerfinu
Oslo - Það ríkti enginn fögn-
uður í herbúðum norsku
stjórnarinnar í gær þótt henni
hafi tekist að merja eins þing-
sætis meirihluta yfir vinstri
flokkunum. Káre Willoch for-
sætisráðherra sagði í gær-
morgun að nú yrði mjög erfitt
að stjórna Noregi. Síðan
óskaði hann Verkamannaflok-
knum til hamingju meö góðan
árangur í kosningunurn.
Verkamannaflokkurinn bætti
við sig tæplega 4% atkvæða og
fimm þingmönnum og var
aukningin mest í dreifbýlinu sem
hefur orðið útundan í þeirri upp-
sveiflu sem olíugróðinn hefur
leitt yfir norskt atvinnulíf. Sósíal-
íski vinstriflokkurinn má lfka vel
við kosningaúrslitin una, flokk-
urinn bætti ekki við sig ýkja
miklu fylgi en vann tvo þingmenn
og hefur nú sex. Sú aukning veg-
ur upp brotthvarf Vinstriflok-
ksins af þingi.
Samtals hlutu vinstriflokkarnir
þrír-49,4% atkvæða og 77 þing-
menn kjörna. Borgaraflokkun-
um nægðu hins vegar 48,9% at-
kvæða til að hljóta 80 menn
kjörna. Þessu veldur norska
kosningakerfið sem hefur engin
uppbótarsæti og býður því heim
talsverðu misvægi atkvæða og
þingstyrks. Til dæmis fékk SV
5,4% atkvæða og 6 menn kjörna
en Miðflokkurinn 6,6% atkvæða
og helmingi fleiri þingmenn.
Kristilegi þjóðarflokkurinn tap-
aði rúmu prósenti í atkvæðahlut-
falli en bætti samt við sig manni.
Eins og fram hefur komið í
fréttum þarf Willoch eftirleiðis
að reiða sig á stuðning hins erki-
hægrisinnaða Framfaraflokks í
ýmsum málum og sagði Willoch
að sú staða væri ekki það sem
hann hefði helst óskað sér. Hann
hefur svarið þess eið að gera enga
samninga við Carl Hagen for-
mann Framfaraflokksins en að
sögn Willochs er stefna hans í
efnahagsmálum „fullkomlega
ábyrgðarlaus".
Willoch sagði líka í gær að það
væri óhugsandi að fylgja eftir ein-
hverri stefnu í öryggismálum án
þess að hafa tryggan meirihluta
fyrir slíkri stefnu. Hann kvaðst
samt bjartsýnn á að honum tækist
að halda stjórnarliðinu saman í
mikilvægustu málum sem snerta
samstarf Noregs og Nató.
Það gæti reynst hægara sagt en
gert. Fyrir kosningar hafði Will-
och sjö þingsæta meirihluta yfir
vinstriflokkunum og ef einhverjir
úr hans liði brugðust gat hann
reitt sig á stuðning Framfara-
flokksins. Nú má ekkert út af
bera til þess að hann lendi ekki í
minnihluta með þá stefnu sem
hann fylgir og vinstrimenn segja
að sé afar vinsamleg Bandaríkj-
unum. í flokki kristilegra eiga
sum stefnumál Verkamanna-
flokksins talsverðan hljómgrunn,
td. krafan um kjarnorkuvopna-
laus Norðurlönd og um stöðvun á
framleiðslu og tilraunum með
kjarnorkuvopn.
Á sviði efnahagsmála gæti
Willoch einnig þurft að sveigja af
sinni fyrri stefnu því í Miðflokkn-
um og Kristilega þjóðarflok-
knum hefur gætt vaxandi ó-
ánægju með niðurskurð Willochs
á ríkisútgjöldum, ekki síst á sviði
heilbrigðismála.
Ekki er búist við því að Willoch
geri neinar meiriháttar breyting-
ar á ráðherraliði sínu. Þó að því
undanteknu að hann þarf að
finna sér nýjan utanríkiráðherra
þar sein Svenn Stray hefur hætt
afskiptum af stjórnmálum. Einn-
ig gæti hann þurft að láta undan
kröfum samstarfsflokkanna um
mikilvægari ráðherraembætti þar
sem þeir bættu við sig þingsætum
en Hægriflokkurinn tapaði.
Endanleg úrslit í norsku þingkosningunum urðu þessi (tölur
i -i flOI Innrvn
frá 1981 innan sviga);
Verkamannaflokkurinn
SV
Vinstri
Kristilegir
Miðflokkurinn
Hægriflokkurinn
Framfaraflokkurinn
%
40,9 (37,1)
5,4 (5,0)
3.1
8.2
6,6
30,4
3,7
(3,9)
(9,3)
(6,6)
(31,8)
(4,5)
þingsæti
71 (66)
6 (4)
0 (2)
16 (15)
12 (11)
50 (53)
2 (4)
Aðrir flokkar og samtök fengu innan við 1 % atkvæða en auk
ofannefndra flokka buðu fram maóistar, moskvukommar og
klofningsbrot út úr Vinstriflokknum auk staðbundinna fram-
boða. Alls voru greidd 3.098.153 atkvæði og samsvarar það að
kjörsókn hafi verið 82,7% sem er tæpu prósenti meira en árið
1981.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13