Þjóðviljinn - 11.09.1985, Side 15
ÍÞRÓTTIR
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
Stjörnuliðið
Guómundur
fyrir
Guðmund
Með góðum leik í Keflavík ýtti
Guðmundur Þorbjörnsson úr Val
Framaranum Guðmundi Torfasyni
útúr Stjörnuliði Þjóðviljans. Það er
eina breytingin á liðinu frá því í 16.
umferð og fyrir lokaumferðina lítur
það því svona út, stjörnufjöldi í svig-
um:
Markvörður:
Þorsteinn Bjarnason, IBK (12)
Varnarmenn:
Guöni Bergsson, Val (16)
Freyr Sverrisson, (BK (14)
Valþór Sigþórsson, (BK (14)
Tengiiiðir:
Karl Þórðarson, (A (15)
Siguróli Kristjánsson, Þór (16)
Ómar Torfason, Fram (20)
Ámi Sveinsson, lA (15)
Framherjar:
Guðmundur Þorbjörnsson, Val (14)
Ragnar Margeirsson, fBK (18)
Halldór Áskelsson, Þór (16)
Þeir Guðmundur Torfason, Fram,
og Guðjón Guðmundsson, Víði, hafa
fengið 14 stjörnur hvor og standa
næstir liðinu. Guðmundur Steinsson,
Fram, kemur þar á eftir með 13
stjörnur en síðan koma fjölmargir
leikmenn með 10-12 stjörnur.
-VS
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
England
Reid byrjar
Isafjörður
Engin skipting
,4 fyrrakvöld var haldinn aðalfundur knattspyrnudeildar IBI og þar
tóku við stjórnartaumunum sjö valinkunnir menn sem lcngi hafa stutt
knattspyrnuna á ísafirði með ráðum og dáð. Það kemur aldrei til að
IBI verði skipt í Hörð og Vestra i knattspyrnunni og stjórnin mun
kappkosta að gera upp skuldir dcildarinnar eins fljótt og hægt er“,
sagði Ólafur Helgi Ólafsson, formaður ÍBÍ, í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Knattspyrnuáhugamenn á ísafirði geta því varpað öndinni léttar en
eins og Þjóðviljinn skýrði frá í gær voru komnar á kreik hugmyndir um
að ÍBI hætti í 2. deild og Hörður og Vestri færu í 4. deildina í staðinn.
Skuldir knattspyrnudeildar ÍBf vegna kostnaðarsamra ferðalaga í 2.
deild eru miklar og útfrá því voru hugmyndirnar um skiptinguna
sprottnar. _y§
Knattspyrna
Þeir voru hressir í gær, þrátt fyrir rigninguna, piltarnir í unglingalandsliðinu og
eru staðráðnir í að veita hinu sterka liði Englendinga harða keppni. Mynd: E.ÓI.
Landsleikur
Island-England
Evrópuleikur á Laugardalsvelli
Stein lést
í Cardiff!
eftir að Skotar höfðu gert jafntefli við Wales.
Wales úr leik nema Island taki stig á Spáni
Peter Reid frá Everton leikur í
kvöld sinn fyrsta „alvörlandsleik"
fyrir Englands hönd - gegn Rúm-
eníu á Wembley í undankcppni
HM í knattspyrnu. Rcid, sem er
29 ára gamall, stóð sig mjög vel í
Ameríkuferð landsliðsins í júní
og í framhaldi af því gefur Bobby
Robson landsliðseinvaldur hon-
um tækifæri til að festa sig í sessi.
Glenn Hoddle, miðvallarspil-
arinn snjalli frá Tottenham, fær
nýtt tækifæri til að sanna sig en
hann stóð sig einnig vel í ferðinni.
Lið Robsons er þannig skipað:
Peter Shilton, Southampton
Gary Stevens, Everton
Kenny Sansom, Arsenal
Mark Wright, Southampton
Terry Fenwick, QPR
Glenn Hoddle, Tottenham
Bryan Robson, Man. Utd.
Peter Reid, Everton
Gary Lineker, Everton
Mark Hateley, AC Milano
Chris Waddle, Tottenham
Englendingar eru með mjög góða
stöðu í 3. riðli og ættu að vera öruggir
með annað af tveimur efstu sætunum
sem gefa rétt til þátttöku í lokakeppn-
inni í Mexíkó. Ekki spillir fyrir að þeir
eiga eintóma heimaleiki eftir. Staðan í
riðlinum er þessi:
England.............5 3 2 0 15-1 8
Rúmenía.............5 2 2 1 8-4 6
N-lrland............5 3 0 2 7-5 6
Finnland............7 2 2 3 6-12 6
Tyrkland............4 0 0 4 1-15 0
Tyrkland og Norður-írland mætast
einnig í kvöld.
-VS/Reuter
ísland og England mætast í
unglingalandsleik í knattspyrnu á
Laugardalsvellinum í dag. Liðin
eru skipuð leikmönnum 18 ára og
yngri og er þetta fyrsti leikurinn í
síðari umferð Evrópukeppninn-
ar.
ísland tapaði 5-3 fyrir Eng-
lendingum ytra og 2-0 gegn
Skotum og 2-1 gegn írum hér
heima í fyrri umferðinni. í seinni
umferðinni er nánast skipt um
lið, eldri leikmenn ganga upp og
eru ekki gjaldgengir en í staðinn
koma piltar sem voru í 16-ára
landsliðunum. í íslenska liðinu
eru aðeins tveir eftir frá því í fyrri
umferðinni, KR-ingurinn Sigurð-
ur Valtýsson og Skagamaðurinn
Stefán Viðarsson.
Lið Englendinga er eingöngu
skipað leikmönnum sem komnir
eru á samning hjá ensku atvinnu-
félögunum. Þar er fremstur í
flokki Tony Daley frá Aston
Villa, eitt mesta efni sem fram
hefur komið í ensku knattspyrn-
unni síðustu árin. Nokkrir íslend-
ingar sáu hann leika með Aston
Villa í 1. deildinni í haust og eiga
vart orð til að lýsa hæfileikum
hans.
Leikurinn hefst kl. 17.30 og er
fyllsta ástæða til að hvetja knatt-
spyrnuáhugamenn til að mæta og
sjá framtíðarleikmenn íslands og
Englands eigast við.
-VS
Jock Stein, landsliðseinvaldur
Skota í knattspyrnu, lést í Cardiff
í Wales í gærkvöldi eftir að
Skotar höfðu gert jafntefli þar við
Walesbúa, 1-1, í undankeppni
HM. Stein var einn litríkasti
framkvæmdastjóri í skosku
knattspyrnunni um áraraðir og
var lengst við stjórnvölinn hjá
stórliðunum Celtic og Rangers.
Mark Hughes kom Walesbú-
um yfir eftir 12 mínútna leik og
staðan var 1-0 allt þar til 10 mín-
útur voru til leiksloka. Þá fengu
Skotar vítaspyrnu og úr henni
jafnaði David Cooper. Rétt fyrir
leikslok reis Jock Stein á fætur og
stuggaði við ljósmyndara sem
hafði angrað hann allan leikinn.
Á leið sinni til sætis á ný hné hann
niður og lést síðan á leiðinni á
sjúkrahús.
Stðan í 7. riðli eftir leikinn:
Skotland............6 3 1 2 8-4 7
Wales...............6 3 1 2 7-6 7
Spánn...............5 3 0 2 7-7 6
ísland..............5 "1 0 4 3-8 2
Spánverjar þurfa sigur gegn ís-
lendingum í Sevilla þann 25. sept-
ember til að komast í lokakeppn-
ina í Mexíkó. Lið númer tvö í
riðlinum leikur aukaleiki við sig-
urvegarann í riðli Ástralíu, Nýja-
Sjálands, ísraels og Taiwan um
sæti í lokakeppninni í Mexíkó.
Tapi ísland á Spáni er því Wales
úr leik - en nái íslenska liðið stigi
eða stigum fara Skotar beint í
lokakeppnina og Walesbúar í
aukaleikina. -VS/Reuter
Knattspyrna
Belgía
Gerets valinn á ný!
Rúmu ári eftir að hafa verið dœmdur íþriggja ára bann
Eric Gerets, fyrrum landsliðs-
fyrirliði Belga í knattspyrnu sem
dæmdur var í þriggja ára keppn-
isbann í fyrra eftir mútumálið
fræga hjá Standard Liege, er á ný
kominn í belgíska landsliðið og
leikur með því gegn Pólverjum í
dag.
Gerets fékk fljótlega bannið
stytt niður í 15 mánuði og í mars
sl. aflétti FIFA, Alþjóða knatt-
spyrnusambandið, banninu
algerlega. Guy Thys,
landsliðseinvaldur Belga, fylgdist
með Gerets í leik með PSV Ein-
dhoven í hollensku 1. deildinni á
sunnudag. Þar leikur hann stöðu
„sweepers“ en Thys ætlar samt
sem áður að láta hann leika í sinni
gömlu stöðu sem bakvörður í
dag.
Leikur Pólverja og Belga
ræður úrslitum um hvort liðið
kemst beint í lokakeppni HM í
Mexíkó. Liðin eru jöfn með 7 stig
úr 5 leikjum en Pólverjar hafa
betri markatölu. Þeim dugar því
jafntefli í dag en Belgar þurfa
sigur. Liðið sem verður númer
tvö í riðlinum leikur aukaleiki við
Hollendinga um sæti í loka-
keppninni.
Leikurinn í dag fer fram í
„nornapottinum“ í Chorzow í
Póllandi en leikvangurinn, Siles-
ia, er kallaður það vegna ærandi
hávaðans sem 70 þúsund áhorf-
endur þar framleiða.
-VS/Reuter
Socrates í
Flamengo?
Nú bendir allt til þess að Flam-
engo, brasilíska liðið sem hinn
snjalli Zico leikur með, kaupi
Socrates frá ítalska félaginu Fior-
entina.
Ekkert varð af kaupum Ponte
Preta á brasilíska landsliðsfyrir-
liðanum þrátt fyrir að allt benti til
þess að þau næðu fram að ganga.
Forseti Flamengo sagði í gær að
hann vonaðist eftir því að geta
gefið nánari upplýsingar um mál-
ið innan tveggja sólarhringa.
-VS/Reuter
Frjálsar
Stórveldin í Japan
Bandaríkin, Sovétríkin og Jap-
an heyja landskeppni í frjálsum
íþróttum í Tókíó, höfuðborg Jap-
ans, dagana 21.-22. september.
Beðið er eftir kcppninni mcð
mikilli eftirvæntingu þar sem
reiknað er með því að bæði stór-
veldin sendi sín sterkustu lið.
Carl Lewis og Calvin Smith
verða í fararbroddi hjá Banda-
ríkjamönnum en að vísu verður
Grand Prix meistarinn Mary
Slaney fjarri góðu gamni.
Heimsmethafarnir Sergei Bubka
og Yuri Sedykh verða í fremstu
víglínu Sovétmanna ef að líkum
lætur.
-VS/Reuter
Miðvíkudagur 11. september 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Spánn
Erfitt hjá Hercules
Spœnskt blað gagnrýnir kaupin á Pétri og Kempes
Frá Sigurdóri Sigurdórssyni
fréttamanni Þjóðviljans á Spáni:
Hercules, íið Péturs Péturs-
sonar, á greinilega erfiðan vetur
framundan í hinni hörðu 1.
deildarkeppni í knattspyrnu. Ég
sá leik Osasuna og Hercules í
sjónvarpi nú um helgina og hann
lofaði ekki góðu fyrir framhaldið
hjá liðinu.
Osasuna er ekki hátt skrifað í
spænskri knattspyrnu en liðið
hafði mikla yfirburði gegn
Hercules og sigurinn, 1-0, var
alltof lítill. Pétur Pétursson og
Argentínumaðurinn frægi Mario
Kempes sáust varla í leiknum,
enda fengu þeir sáralítið til að
vinna úr vegna stanslausrar sókn-
ar Osasuna.
Eitt spænsku blaðanna
Pétur Pétursson er strax kominn á
milli tannanna á spænsku pressunni.
gagnrýndi nú á dögunum harka-
lega kaup Hercules á þeim Pétri
og Kempes. Blaðið sagði að
Hercules hefði fengið 280 miljón-
ir peseta til umráða til kaupa á
tveimur erlendum leikmönnum
en hefði ekki nýtt þær viturlega.
Pétur hefði kostað aðeins 5 milj-
ónir peseta (27 þúsund pund) og
félagið hefði hæglega getað varið
peningunum betur.
Það verður því greinilega mikil
pressa á Pétri á næstunni. Út-
lendingar í spænsku knattspyrn-
unni eru litnir gagnrýnari augum
en heimamenn, enda eðlilegt þar
sem fjöldi þeirra hjá hverju liði er
takmarkaður. Ekki bætir yfirvof-
andi fallbarátta úr skák og nú
reynir virkilega á Skagamanninn
að standa fyrir sínu.