Þjóðviljinn - 11.09.1985, Qupperneq 16
Aðalsfmi: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Mlðvikudagur 11. september 1985 208. tölublað 50. örgangur
DJOÐVILJINN
Flugstöðin
Miðneshreppur í mál
Elsa Kristjánsdóttir oddviti: erum orðin langþreytt á varnarmáladeild. Hreppurinn telursig
eiga heimtingu á byggingarleyfisgjöldum afnýju flugstöðinni. Lögtaks krafist í haust?
Sveitarstjórnarmenn á Suður-
nesjum hvar í flokki sem þeir
standa eru orðnir langþreyttir á
varnarmáladeild. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem svona mál eða
svipað kemur upp, en þeir hafa
alltaf haft þennan viðskiptamáta
á, neita að fara að lögum, sagði
Elsa Kristjánsdóttir oddviti
Miðneshrepps í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Miðneshreppur hefur ákveðið
að fara í mál við utanríkisráðu-
neytið vegna þes að varnarmála-
deild neitar að greiða lögboðin
byggingarleyfisgjöld að upphæð
kr. 572 þúsund af nýju flugstöð-
inni, sem er í landi Miðnes-
hrepps. Málið hefur verið falið
Ólafi Ragnarssyni lögfræðingi og
er hann nú að fara í saumana á
því
„Eg lít svo á að þetta muni
Austurland
liýlyng-
tegund
Páll Sveinsson: fann
plöntuna 18. júnísl.
Nýr borgari bættist í gróður-
ríki iandsins þegar Páll Sveinsson
bóndi í Hvannstóði í Borgarfirði
eystra fann nýja lyngtegund í júní
síðastliðnum. Lyngið nefnist
Ijósalyng (Andromeda poiifolia).
Það ber nokkur fölbleik blóm
saman í klasa efst á stöngli. Lyng-
tegund þessi vex bæði í Skandin-
avíu og á Bretiandseyjum.
Páll Sveinsson sagði í samtali
við Þjóðviljann að hann hefði
aldrei lært neitt í grasafræði utan
það sem stendur í íslenskum
bókum. Ég hef mikinn áhuga
fyrir grasafræði, sagði Páll.
„Veðrið var búið að vera mjög
gott þegar ég fann þessa tegund.
Það var 18. júní. En síðan hefur
verið leiðinda veður hér í Borgar-
firði. Ég sá strax að þetta var teg-
und sem ég hafði aldrei séð áður,
því fletti ég upp í stóru Fjölva
bókinni og fann út að þetta er
svonefnt ljósalyng.“ Páll sagði að
lyngið yxi á um tveggja fermetra
svæði. I Borgarfirði eru um 20-30
tegundir plantna sem búið er að
friða, sagði Páll í Hvannstóði að
lokum.
-SA
Noregur
Til lykke!
Svavar Gestsson, formaður
Alþýðubandalagsins, sendi í gær
heillaskeyti til Gro Harlem
Brundtland, formanns Verka-
mannaflokksins í Noregi, og
Hanne Kvanmo, varaformanns
sósíalíska vinstri flokksins, í ti-
lefni kosningasigurs þeirra um
helgina. í skeytinu sagði meðal
annars, að sigurinn væri hvatning
fyrir vinstri öfl hvarvetna til bar-
áttu gegn frjálshyggju hægri
sinna.
-ÖS
verða prófmál fyrir dómstólurn.
Það virðist engin önnur leið en að
innheimta þessa upphæð með
lögsókn og lögtaks verður vænt-
anlega krafist í haust. Það sem
um er að ræða er að íslensk lög og
ákvæði í varnarsamningi stangast
á. En samkvæmt íslenskum
lögum mega sveitarfélög inn-
Fargjöld í Strætisvagna
Rcykjavíkur hækkuðu í gær
um 13,6% að meðaltali. Eftir
hækkun kostar staðgreiðsiufar-
gjald fullorðinna 25 krónur, 26
miða kort kosta nú 500 kr. og lítil
kort, 4 miðar, kosta 100 kr. Þau
kort er hægt að kaupa í vögnun-
um og athygli vekur að með því
að kaupa þau kort borga farþegar
heimta byggingarleyfisgjöld af
öllum byggingum innan þeirra
lögsögu. Varnarmáladeild skýlir
sér á bak við varnarsamninginn,
en staðreyndin er sú að flugstöðin
er ekki hernaðarmannvirki, það
er íslenska ríkið sem byggir en
ekki herinn", sagði Ólafur í sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
jafnmikið fyrir farið og ef stað-
greitt er. Þá hækkuðu barnafar-
gjöld um 1 krónu eða úr 6 kr. í 7
kr.
Guðrún Ágústsdóttir fulltrúi
Abl. í stjórn SVR greiddi atkvæði
gegn fyrrgreindri hækkun. Kvað
hún ekki óeðlilegt að borgarsjóð-
ur greiddi fargjöldin meira niður
því flestir notendur vagnanna
„Svipuð mál sem áður hafa
komið upp hér á Suðumesjum
hafa alltaf verið þögguð niður
eða afgreidd þannig að þau hafa
ekki farið hátt, en svo mun ekki
verða um þetta. Þetta er spurning
um hvaða lög gilda í landinu",
sagði Elsa.
væru tekjulágir. Eftir hækkunina
standa fargjöldin undir um 75%
af rekstri vagnanna.
Á fundinum í gær lagði Guð-
rún einnig til að framhalds-
skólanemendur gætu keypt mán-
aðarkort fyrir andvirði 20 miða
fyrir fullorðna, þ.e. á 500 krónur.
Sagði Guðrún í samtali við Þjóð-
viljann í gær að í
Árbœjarsafn
Styðja
Guðnýju
Gerði
Þrír umsœkjendur um
stöðu borgarminjavarðar
draga umsóknir sínar
til baka.
Þrír starfsmenn Árbæjarsafns
drógu í gær til baka umsóknir
sínar um stöðu borgarminjavarð-
ar. Þær Salvör Jónsdóttir,
Kristín H. Sigurðardóttir og Júl-
íana Gottskálksdóttir lýstu jafn-
framt stuðningi við umsókn
Guðnýjar Gerðar Gunnarsdótt-
ur, sem hefur starfað lengst um-
sækjenda við safnið.
10 sóttu um starf borgarminja-
varðar frá og með 1. nóvember
n.k., þeirra á meðal Ragnheiður
Þórarinsdóttir sem gegnt hefur
stöðunni í ársleyfi Nönnu Her-
mannsson. Auk hennar og Guð-
nýjar Gerðar sóttu eftirtaldir um:
Bjarni Einarsson, Gunnlaugur
Haraldsson, Magnús Þorkelsson,
Sólveig Georgsdóttir og Jóhann
Jakobsson. Ekki er búist við að
ráðið verði í stöðuna fyrir en
Davíð Oddsson er kominn úr
sumarleyfi sínu.
-ÁI
Dagvistir
Enginn vilji
til samráðs
Tillaga um
samráðsnefnd
felld í borgarráði
Tillaga um að þegar í stað yrði
skipuð samráðsnefnd með aðild
fóstra, félagsmálaráðs og for-
eldra barna á dagvistarstofnun-
um var felld í borgarráði í gær.
Tillagan hlaut aðeins 1 atkvæði
flutningsmanns, Sigurjóns Pét-
urssonar, en fulltrúi Kvenna-
framboðs, sem ekki hefur
atkvæðisrétt, lýsti stuðningi við
hana. Framsókn og
Sjálfstæðisflokksmenn sátu hjá.
Sigurjón sagðist í gær hafa vilj-
að láta reyna á þann vilja sem
borgaryfirvöld hefðu marglýst
yfir til að leysa þann alvarlega
vanda sem upp er kominn á dag-
vistarheimilunum vegna skorts á
fagmenntuðu starfsfólki. Sá vilji
væri hins vegar greinilega ekki
fyrir hendi.
Tillagan gerði ráð fyrir að
nefndin hraðaði störfum og
skilaði tillögum til úrbóta fyrir 1.
október n.k.. -ÁI
nágrannasveitarfélögunum tíðk-
aðist það fyrirkomulag og svo
væri einnig í flestum siðm-
enntuðum löndu. Kvað hún það
borginni til vansæmdar að veita
ekki skólanemendum þessa að-
stoð og því hefði hún flutt til-
löguna. Tillaga Guðrúnar verður
afgreidd á næsta fundi stjórnar
SVR. -v
-€g
Tónlist
Við eram bjartsýn!
Guðmundur Emilsson ííslensku hljómsveitinni: stöndum íharðri
samkeppni
Islenska hljómsveitin fer nú
senn að hefja sitt fjórða
starfsár. Af því tilefni átti
Þjóðviljinn örstutt spjall við
Guðmund Emilsson, fram-
kvæmdastjóra hljóm-
sveitarinnar, um þetta áhuga-
verða og sérstæða fyrirbæri,
sem Islenska hljómsveitin ó-
neitanlega er.
„Markmið íslensku hljóm-
sveitarinnar getum við sagt að
hafi verið fjórþætt: Að annast
tónlistarflutning fyrir hljóm-
sveitir, einleikara og kammer-
hópa. Að efla skilning á gildi
tónlistar og auka tónlistará-
huga með þjóðinni. Að
auðvelda ungum hljóðfæral-
eikurum, stjórnendum og
tónskáldum að stunda list sína
hér á landi. Að veita íbúum
landsbyggðarinnar aukna
möguieika á að hlýða á lifandi
tónlist. Hvernig til hefur tek-
ist er kannski frekar annarra
um að dæma en við höfum
ekki ástæðu til að vera óá-
nægð með árangurinn.
Fjárhagurinn? Við stönd-
um í harðri samkeppni. Að-
stoð hins opinbera hefur farið
hlutfallslega síminnkandi. Er
nú svo komið að við greiðum
meira til þess en það lætur af
hendi rakna. Við erum í per-
sónuiegri ábyrgð fyrir miklum
lánum. En við erum bjartsýn-
isfólk. Við trúm á það, sem
við erum að gera.“
-mhg.
Borgin
13,6% hækkun í strætó
Núkostar orðið25 kr. ístrœtó. GuðrúnÁgústsdóttir:
Geri tillögu um að framhaldsskólanemendur fái mánaðrkort eins og tíðkast annars staðar