Þjóðviljinn - 09.10.1985, Blaðsíða 1
9
október
1985
miðviku-
dagur
232. tölublað 50. órgangur
DJðÐVIUINN
MANNUF
MENNING
Ráðherraskiptin
Hrókað stutt
og peði fómað
Sú er niðurstaða ráðherraskiptanna hjá
Sjálfstœðisflokki. Albert Guðmundsson lýsiryfir
megnri óánœgju með að skipta úrfjármála- yfir í
iðnaðarráðuneyti. Sverri Hermannsson segist munu
huga að z-málinu sem öðrum málum sem
menntamálaráðherra
Eftir að hafa fórnað peði í
stöðunni í fyrradag, hrókaði
Sjálfstæðisflokkurinn stutt í gær,
en samt virðist staðan ekkert hafa
batnað og tap blasa við í skákinni.
Eftir aðeins 7 mínútna þing-
Valddreifing
Kosið um
klósett
Vaduz - íbúar Vaduz, höfuð-
borgar smáríkisins Lichtenstein,
ganga síðar í þessum mánuði að
kjörborðinu og greiða atkvæði
um það hvort borgarráðinu skuli
heimilað að setja upp almenn-
ingssalerni i miðborginni.
Deilan um salernið hefur stað-
ið í þrjú ár en hún hófst árið 1982
þegar borgarráð kunngerði þá
ætlan sína að reisa listamiðstöð í
borginni en í henni átti að vera
almenningssaierni. Þetta þótti
mörgum þegnum Vaduz fulllangt
gengið og kröfðust allsherjarat-
kvæðagreiðslu um salernið.
Borgarráð lagði áætlanir um
listamiðstöð á hilluna en ákvað
þess í stað að leggja fram fé í al-
menningssalerni sem vera skyldi í
verslunarmiðstöð í miðborginni.
Dómstóll ákvað síðan að skylt
væri að efna til allsherjarat-
kvæðagreiðslu um málið og þar
við situr.
Einhverjum hlýtur að vera
orðið illa mál í miðbænum.
-ÞH/reuter
flokksfund í gær var tilkynnt um
hvernig ráðherrum hefur verið
hrókað til innan ríkisstjórnarinn-
ar hjá Sjálfstæðisflokki. Lending-
in hjá hverjum og einum er með
þessum hætti.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins fer með
fjármálaráðuneytið og Hagstofu
fslands. Albert Guðmundsson fer
með iðnaðarráðuneytið. Matthí-
as Bjarnason fer með samgöngu-
ráðuneytið og
viðskiptaráðuneytið. Ragnhildur
Helgadóttir fer með heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytið. Sverrir
Hermannsson fer með mennta-
málaráðuneytið. Geir Hallgríms-
son fer með utanríkisráðuneytið
þar til í janúar 1986 er hann lætur
af ráðherrastörfum að eigin ósk.
Matthías Á. Mathiesen lætur af
störfum viðskiptaráðherra en
tekur við embætti utanríkisráð-
herra af Geir Hallgrímssyni í jan-
úar 1986.
Ég þarf að hugsa um þá hluti
alla vandlega eins og margt fleira,
sagði Sverrir Hermannsson verð-
andi menntamálaráðherra að-
spurður um hvort hann myndi
berjast fyrir því að zetan yrði aft-
ur tekin inní ritmálið, enn hann
var sem kunnugt er harðasti and-
stæðingur þess að hún væri tekin
út á sínum tíma.
Albert Guðmundsson sagði
iðnaðarráðuneytið ekki sítt upp-
áhaldsráðuneyti, enda vissi hann
ekkert hvað biði sín þar. Hann
sagðist ekki hafa viljað yfirgefa
fjármálin, en um annað hefði
ekki verið að ræða. Albert sagð-
ist heldur hefði viljað fara í við-
skiptaráðuneytið hefði hann mátt
velja en um það hefði ekki verið
að ræða.
-S.dór
VfsaA á dyr. Albert Guðmundsson fjármálaráðherra varð á endanum að
sætta sig við það hlutskipti að víkja úr fjármálaráðuneytinu fyrir Þorsteini
Pálssyni. Ljósm. E.ÓI.
Skattrannsóknarmenn
Anægðir með úthlaupið
Garðar Valdimarsson skattrannsóknarstjóri: Náðum
til allra sem við œtluðum að skoða. Niðurstöður
kynntar mjög bráðlega
Reykjavík
17000 án
heimilis-
læknis
17000 Reykvíkingar hafa eng-
an heimilis- eða heilsugæslulækni
en við hliðina á þessum tveimur
kerfum er að spretta upp hið
þriðja: einkareksturinn sem
væntanlega telur sig hólpinn eftir
hrókeringar frjálshyggjúnnar í
dag. Matthías Bjarnason sem
lætur af embætti heilbrigðisráð-
herra í næstu viku er hins vegar
ekkert of ánægður með hug-
myndirnar um einkarekstur í
heilbrigðiskerfinu. Sjá bls. 5-6.
Starfsmenn skattrannsóknar-
deildar ríkisskattstjóra hafa
nýlokið skyndiheimsóknum í nær
400 þjónustufyrirtæki í Reykja-
vík, á Reykjanesi og í Norður-
landskjördæmi eystra þar sem
könnuð voru bókhaldsgögn fyrir-
tækjanna og athugað hvort farið
væri að lögum um útgáfu á
greiðslukvittunum fyrir selda
þjónustu.
„Þetta úthlaup gekk bæði hratt
og vel fyrir sig og við náðum til
allra þeirra sem við ætluðum að
skoða“, sagði Garðar Valdimars-
son Skattrannsóknarstjóri í sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
Garðar sagði að móttökur hjá
forsvarsmönnum fyrirtækjanna
hefðu yfirleitt verið góðar. At-
hugunin hefði gengið hraðar fyrir
sig, menn hefðu þorað að vona og
væntanlega yrðu niðurstöður
kynntar fyrir almenningi mjög
bráðlega.
„Það er verið að vinna úr nið-
urstöðum og það á eftir að koma í
ljós hvort við þurfum að fylgja
málum eftir í einstökum tilfell-
um. Það er því ekki hægt að segja
á þessu stigi hvert framhaldið
verður fyrr en við sjáum endan-
lega hvernig ástandið er í einstök-
um greinum og hjá einstaka
mönnum“, sagði Garðar Valdi-
marsson. -•g-
Ráðherrastólar
Sjálfstæðisflokkur eins og ormagryfja
Leiðari Morgunblaðsinsígœr: Veikleikar í Sjálfstœðisflokknum.
Margir hefðu heldur viljað þingrofog kosningar. A ugljósþreytumerki á ríkisstjórninni
„Svona merkur stjórnmála-
flokkur má ekki breytast í orma-
gryfju“ segir í leiðara Morgun-
blaðsins í gær um ráðherra-
skiptin og andrúmsloftið í Sjálf-
stæðisflokknum. „í innra starfl
Sjálfstæðisflokksins eru veik-
leikar sem alltaf eru fyrir hendi í
öllum stórnmálaflokkum en hafa
aldrei verið meira áberandi í
starfi Sjálfstæðisflokksins og nú“,
segir enn fremur í leiðaranum.
Gleði Morgunblaðsins yfir ráð-
herrastóli Þorsteins Pálssonar og
missi Geirs Hallgrímssonar er
greinilega galli blandin. „Ríkis-
stjórnin hefur sýnt á sér augljós
þreytumerki síðustu mánuði
raunar svo mjög að margir hefðu
talið heppilegast að rjúfa þing og
efna til kosninga til þess að línur
yrðu skýrari innan flokka og
utan, og Alþingi fengi nýtt um-
boð frá kjósendum til þess að tak-
ast á við aðsteðjandi vanda“.
-óg
Sjá bls. 4.