Þjóðviljinn - 09.10.1985, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 09.10.1985, Blaðsíða 14
VIÐSKIPTI RIKISSPITALARNIR Lausar stöður Staða yfirlæknis við syklarannsoknadeild Staða yfirlæknis við sýklarannsóknadeild Landspítal- ans er laus til umsóknar. Umsóknir sendist stjórnarnefnd ríkisspítala fyrir 22. október 1985. Reykjavík 7. október 1985. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast við Barnaspítala Hringsins. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Landspítalans í síma 29000. Hjúkrunarfræðingur óskast á morgun- og kvöldvaktir á öldrunarlaekninga- deild Landspítalans. Úrvalið í H-húsinu Auðbrekku 9 í Kópavogi er geysimikið. Þessar tvær blómarósir sjá um að afgreiða viðskiptavinina. Ljósm. E.ÓI. Sjúkraliði óskast á fastar næturvaktir á öldrunarlækningadeild. einnig óskast sjúkraliðar á allar vaktir á öldrunarlækni- ngadeild. Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunar- framkvæmdastjóri öldrunarlækningadeildar í síma 29000. Fóstrur óskast sem fyrst eða eftir samkomulagi á dagheimilið Stubbasel við Kópavogshæli. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 44024. Starfsmenn óskast nú þegar við dagheimili Landspítalans við Engihlíð. Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilisins í síma 29000-591. Læknaritari óskast við krabbameinslækningadeild Landspítalans. Stúdentspróf eða sambærileg menntun áskilin ásamt góðri vélritunar- og íslenskukunnáttu. Upplýsingar veitir læknafulltrúi krabbameinslækn- ingadeildar í síma 29000. Starfsfólk óskast til vinnu við þvottahús ríkisspítalanna Tungu- hálsi 2. Boðið er upp á akstur til og frá vinnustað að Hlemmi. Upplýsingar veitir forstöðumaður þvottahúss í síma 671677. Starfsfólk óskast til vaktavinnu við Tjaldanesheimilið í Mosfells- sveit. Upplýsingar veittar í símum 666147 og 666266. Starfsmenn óskast á allar deildir og við ræstingar á Kópavogshæli. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 41500. Reykjavík 8. október 1985. VGSKULYÐSFYLKINGIN Miðvikudagur 9. okt. Undirbúningsfundur Á miðvikudaginn kl. 20 ætla fulltrúar ÆFR á landsfund AB að hittast að H-105 og undirbúa sig fyrir fundinn. Þeir sem vilja taka þátt í þessu eru velkomnir með tillögur og áþendingar. Verkalýðsmálaráð ÆFAB Opinn fundur verður í Verkalýðsmálaráði ÆFAB fimmtudaginn 10. okt. nk. kl. 20.30. Einar Olgeirsson mun koma á fundinn og ræða um sögu verkalýðshreyfingarinnar og tengsl flokksins við hana. Fjölmennum og mætum öll hress og jákvæð til umræðu um ofangreint má|efn|. stjómin. Kaffihús-Rauða risið Næsta sunnudag verður áfram haldið hinu vinsæla kaffihúsi að Hverfisgötu 105, efstu hæð, Rauða risinu. Dagskráin að þessu sinni er með þeim hætti að kl. 14.00 verður húsið opnað og létt músík líður um salinn. Kl. 15.00 les Silja Aðalsteinsdóttir úr verkum kvenna. Þá ræða þær Margrét Björnsdóttir og Gerður G. Ósk- arsdóttir um efnið: Kvenréttindi, jafnrétti, forréttindi - Hvað viljum við? Kl. 19.00 verður húsinu lokað og allir fara heim. ÆFR Ný verslun í Kópavogi H-húsið með útsölur Nýstárleg verslun tók nýíega til starfa í Kópavogi að Auðbrekku 9. Hún heitir H-húsið og þar er útsala í gangi allt árið um kring. Ástæðan er sú að H-húsið selur umframbirgðir frá verksmiðjum, heildsölum og verslunum á afar hagstæðu verði og í frétt frá versluninni segir að þar sé hægt að gera afar hagstæð kaup. I H-húsinu geta menn sparað verulegar fjárhæðir með hag- stæðum innkaupum og meðal vörutegunda má nefna hand- klæði, sængurverasett, skó, skyrtur, snyrtivörur, nærföt, gallabuxur, b'arnaföt, skartgripi, sælgæti, leikföng og búsáhöld. H-húsið er opið virka daga frá kl. 10-20. Síminn er 44440. Mikið fjölmenni var á fjölskylduhátíöinni Kjötdögum sem Afuröasala Sambandsins efndi til 21 .-22. september sl. Happdrœtti Goða- vinningar Dregið hefur verið í happdrætti Goða úr þeim númerum sem dreift var meðal gesta á fjöl- skylduhátíðinni „Kjötdögum" sem haldin var helgina 21. og 22. sept. s.l. íhúsi Afurðasölunnarað Kirkjusandi í Reykjavík. Vinningar eru tíu og eru tvær hátíðarsteikur frá Goða í hverj- um vinningi. Vinningar komu upp á eftirtalin númer: 378, 891, 1500, 2115, 2312, 3080, 3511, 3903, 4304, 4750. Vinningshafar vinsamlegast hringi í síma 686366. Heimsfræg myndavál afhent á Lækjartorgi Nýlega afhenti ACO hf. auglýsingastofunni Svona ger- um við nýja grafíska myndavél af gerðinni Eskofot. Vélin er sú fullkomnasta sinnar tegundar hérlendis, m.a. með al- sjálfvirkum stærðarstillibúnaði, stillingum fyrir myndun texta og ljósmynda. En það er ekki nóg með að nýja myndavélin hjá Svona gerum við sé sú fyrsta og fullkomnasta á landinu. Hún er jafnframt fræg- asta eintak sinnar tegundar í heiminum. Þegar vélin var sett saman og prófuð í húsakynnum ACO við Nóatún varð geysiöflug sprenging sem stafaði af því að perur í lýsingarbúnaði vélarinnar voru 110voltístað220volta. AUGLfólNG UM INNLAUSNARVERD VERÐTRYGGÐRA SFARISKÍRTEINA RÍKISSJÓDS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*> Á KR. 100,00 1980-2.fl. 25.10.1985-25.10.1986 kr. 768,42 1982-2.fl. 01.10.1985-01.10.1986 kr. 332,09 *> Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu Seölabanka Islands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. c Reykjavík, september 1985 SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.