Þjóðviljinn - 09.10.1985, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 09.10.1985, Blaðsíða 4
____________LEIÐARI________ Kosningar hið fyrsta Síöustu vikur hefurforysta Sjálfstæöisflokks- ins reynt aö túlka veruleikann þannig aö ástæöa þess aö Þorsteinn Pálsson þyrfti aö komast inní ríkisstjórnina væri sú, aö fjárlaga- frumvarpiö væri ónýtt. Þaö fjárlagafrumvarp sem alger samstaöa náöist um milli ráöherra og þingflokka Sjálfstæðisflokksins og Framsókn- arflokksins var sem sagt orðið handónýtt plagg 10 dögum síðar á miöstjórnar- og þingflokks- fundi Sjálfstæöisflokksins í Stykkishólmi. Á fundinum í Stykkishólmi var fullyrt aö niöur- stööur þjóðhagsáætlunar heföu borist efnislega svo seint aö þær heföu breytt forsendum fjár- lagafrumvarpsins og áliti Sjálfstæðisflokksins á því. Þess vegna þyrfti aö kollvarpa frumvarpinu og Þorsteinn Pálsson aö fara inní ríkisstjórnina til aö stjórna verkinu. Einnig þetta reynist vera rangt. Páll Péturs- son þingflokksformaður Framsóknarflokksins afhjúpar í DV í gær, aö niðurstöður þjóöhagsá- ætlunar heföu verið báöum flokkum kunnar í öllum meginatriöum um miðjan ágústmánuö, - áöur en fjárlagafrumvarpið var samþykkt í þing- flokkum ríkisstjórnarinnar. Þannig reynist engin stoö vera undir kenningum flokksformannsins um fjárlagafrumvarpið né ráðherraskiptin sem hin nýja vitneskja um þjóöhagsáætlun átti aö leiða af sér. En það er athyglisvert aö ástandið og horf- urnar í efnahagsmálum voru morgunljósar í ág- ústmánuði, en svo skemmtilega vill til að einmitt í þeim mánuöi hvíslaöi Geir Hallgrímsson því aö Þorsteini Pálssyni aö hann væri í fórnarlund sinni reiðubúinn aö standa upp úr ráðherrastól. Og þegar kom aö hinu dramatíska augnabliki í þingflokki Sjálfstæðisflokksins að Þorsteinn Pálsson ætti aö skýra frá niðurstöðum sínum um ráðherraskipti og uppstokkun, þá var þaö ekki Þorsteinn sem sté á stokk eins og í Stykkis- hólmi á dögunum, heldur Geir nokkur Hall- grímsson sem endurtók ummæli sín; einu sinni á ágústkveldi. Eins og í farsa. í gær fékk svo Þorsteinn leyfi til þess aö hrókera á taflborðinu eftir aö peöinu haföi verið fórnaö. Þaö breytir engu, ráðherrarnir eru allir á svörtu reitunum. Meira aö segja Morgunblaöiö kann ekki aö meta þessa hirðsiði flokksforystunnar og hirtir hana í leiðara í gær. Þar er Sjálfstæðisflokknum líkt viö ormagarö og kveðið á um aö „margir hefðu talið heppilegast að rjúfa þing og efna til kosninga, til þess að línur yrðu skýrari og Alþingi fengi nýtt umboð frá kjósendum til að takast á við aðsteðjandi vanda“. Togstreitan innan ríkisstjórnarinnar minnkar ekki við það aö einn strákur komi þar til viðbótar og heiðursforseti Nató hætti aö sitja ríkis- stjórnarfundi, hann var hvort eö er á flandri útí heimi. Stefna ríkisstjórnarinnar miöast hér eftir sem hingaö til viö frekari kjaraskerðingu, niður- skurð framkvæmda og félagslegrar þjónustu eins og bent er á í miðstjórnarályktun Alþýðu- bandalagsins um sl. helgi. Og þar segir enn fremur: „Miðstjórn Alþýðubandalagsins telur óhjákvæmilegt að ríkisstjórnin segi nú þeg- ar af sér og að efnt verði til kosninga hið fyrsta“. Vertu með Umferðarvikan í Reykjavík hófst á mánudag- inn og lýkur nk. föstudag. Þessi vika er jákvætt framlag Umferöarnefndar Reykjavíkur, lögregl- unnar, barna og unglinga sem taka virkan þátt í þessari upplýsingastarfsemi auk allra þeirra sem nú fara gætilegar í umferðinni. Reynslan hefur sýnt, aö umferðarslysum fækkar í réttu hlutfalli við aukinn áróður og upplýsingar. Þess vegna er allt sem gert er í þágu áróöurs og upplýsinga í umferðinni af hinu góða. Sú staöreynd blasir og við að íslendingar gjalda umferðinni háan toll í mannslífum og slysum. Þess vegna skorar Þjóðviljinn á alla aö verða við áskorun Umferðarvikunnar í Reykja- vík í þessari og á öðrum tímum; vertu meö. Bægjum frá slysum og komumst hjá manns- látum á öld hraöans. Förum okkur hægar. Ver- um varkár í umferðinni. -óg. Þorsteinn í ríkisstiórn Heiðursforseta Nató sparicað >t --Víiivuvii Ull 1 uo . KLIPPT OG SKORIÐi Ríkisstjórnin haldirósinni ■ \ |mM11* 'kkslU I ‘I 'I' I. , kl '.t 11 I I I kl'-l I' •! ........ II. lí.t l»V»•! •• lllll - I „Fáðu þér sæti Þorsteinn“! ■'lk-ll.tlliti S,.,lM.,-,Vll,.U. Mlir ráðhcrrar Sjálfsteðisflokksins fá ný ráðuncyti: Þeir segja í Staksteinum Morg- unblaðsins í gær að nú sé fjör á Fróni og eiga þar við pólitíkina. Svo gæti reyndar sýnst af frétt- um. En kannski er ekki úr vegi að minnast á það, að eitt er fjör og annað óróleiki og taugaveiklun sem gengur út á það að sýnast vera nýr og ferskur og eldhress án þess nokkuð hafi gerst. Flokkur fer í kerfi Tökum til dæmis Bandalag jafnaðarmanna sem upplifði mikla sláturtíð á opnum lands- nefndarfundi um helgina. Um allangt skeið hefur sá flokkur notið 6-8% fylgis í skoðanakönn- unum út á það að hann væri á móti „kerfinu", væri nýr og fersk- ur og til margs góðs vís þess vegna. Þegar menn hafa bent á margar furðulegar þverstæður í málatilbúnaði þess flokks (eins og þær, að boðuð er valddreifing með því að kjósa valdamikinn forsætisráðherra beint) þá hafa menn látið slíkt sem vind um eyrun þjóta. Líka það, að einmitt sú tilhögun BJ að forðast fulltrúa- lýðræði leiddi varla til annars en þess að mestallt vald í flokkunum safnaðist á hendur þingmanna einna. Og svo er ævintýrið skyndilega búið og upp kemur að það sem nýtt var í flokki þessum verður ekki til annars en gera hann fullkomlega óstarfhæfan um leið og á bjátar og ágreiningur kemur upp. Og loks er eins og ekkert hafi gerst. Að vera og sýnast Svipað má reyndar segja um þá „andlitslyftingu" í ríkisstjórninni sem fjölmiðlar hafa staðið á önd- inni yfir dögum saman. Sá gaura- gangur hefur reyndar haft í för með sér vissa skemmtun og til- breytingu, eins og þegar þeir slógu því upp í NT að nú væri þvflíkur móður hlaupinn í þing- menn Sjálfstæðismanna að þeir heimtuðu „breytingar á ráðherr- um Framsóknar“. Eins og von- legt var fór ímyndunaraflið fljótt og vel af stað í vangaveltur um hugsanlega lagfærslur á eðli og útliti Steingríms og Halldórs og Alexanders og Jóns. En svo sprakk blaðran í fyrra- dag. Þorsteinn Pálsson hafði fengið alræðisvald til að stokka upp ríkisstjórnina og það var til- kynnt að hann kæmi inn vegna þess að Geir væri svo vænn mað- ur og kurteis að hann væri tilbú- inn að ganga um áramót úr starfi sem honum þó þykir skemmti- legt. Og landslýður klóraði sér í hausnum og vissi ekki hvort hann átti að nenna að hlægja. Morgunblaðið lætur reyndar að því liggja í gær að meira standi til. Það á að reyna að gera Albert að iðnaðarráðherra, Matthías Bjarnason að viðskiptaráðherra, Ragnhildi að heilbrigðisráðherra og Sverri Hermannsson að menntamálaráðherra. Sem þýðir væntanlega að Þorsteinn Pálsson verði fjármálaráðherra og Matt- hías Matthíasson utanríkisráð- herra. Eða eitthvað svoleiðis. En til hvers? Það veit í rauninni enginn. Og enginn kenning haldbærari en sú, að þreytt ríkisstjórn þurfi að sýn- ast ný í þeirri von að hún taki sig eitthvað betur út í fjölmiðlahas- arnum mikla. Eða eins og frans- menn segja; Allt breytist til þess að ekkert breytist. Það er ekki einu sinni víst að það stólaboðhlaup sem Morgun- blaðið er að boða gangi upp. Eða hvað segir Albert Guðmundsson í samtali við NT í gær? Hann segir, að það sé nauðsyn að hafa formann Sjálfstæðisflokksins innan stjórnar. En hann tekur það skýrt fram í leiðinni að „ég get ekki ímyndað mér að Þor- steinn komi með einhverja þá til- lögu um skipan ráðherra sem ég get ekki sætt mig við“. Semsagt: Þorsteinn má koma inn fyrir dyrnar, en hann á að vita það fyrirfram, að hann má ekki ráða neinu sem heitir. Rósemdar- menn Hitt er svo annað mál, að Framsóknarmenn virðast skemmta sér vel yfir öllu saman. Þeir segjast hafa það mannval að þeir þurfi engar breytingar að gera hjá sér. NT finnst mál til komið að taka við þeim landsföð- urlega tóni sem Morgunblaðið telur sig venjulega hafa einkarétt á og skrifar feiknarlega ábyrgan leiðara sem heitir „Ríkisstjórnin haldi ró sinni“. Boðskapurinn er þessi: Engan æsing piltar, jafnvel þótt Sjálfstæðismenn ætli af göflum að ganga, þá er til sú hrygglengja í þjóðarlíkamanum sem óhagganleg er með öllu og það er Framsóknarflokkurinn. Pólitísk tíska er skrýtin. Kannski fer það að verða álitlegt aftur að vera hundleiðinlegur kerfisflokkur og rósemdin upp- máluð? í ormagryfju Svo mikið er víst, að eitthvað það hefur gerst, sem Morgun- blaðið sættir sig ekki við. Það skrifar leiðara um stólaleik ráð- herranna í gær. Og getur ekki stillt sig um að veita nokkra ráðn- ingu sínum mönnum fyrir þá „innri veikleika í starfi“ sem blaðið telur bersýnilega ekki lítinn andlegan og pólitískan heilsubrest. „Hreinskipti þarf að ríkja milli manna í Sjálfstæðisflokknum. ...Svona merkur stjórnmála- flokkur má ekki breytast í orma- gryfju“. Það er semsagt „fjör á Fróni“ eins og segir í Staksteinum. Og eins víst að við megi bæta að nú „frýs í æðum blóð“ þeirra sem í ormagryfjunni sitja og reyna að halda eiturkvikindum frá sér með söngli nokkru. ÁB DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis og verkalýöshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergman, össur Skarphéðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Öskar Guðmundsson. Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, Þór- unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Ljósmyndir: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útllt: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Símvarsla: Sigríður Kristjánsdóttir. Husmæður: Agústa Þórisdóttir, Olöf Húnfjörð. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrif8tofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Utbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir. Auglýslngastjórl: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð I lausasölu: 35 kr. Sunnudagsblað: 40 kr. Áskrift á mánuði: 400 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 9. október 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.