Þjóðviljinn - 09.10.1985, Qupperneq 8
MENNING
Alþýðuleikhúsið
Þulur af
Akraborginni
Alþýðuleikhúsið sýnir:
Rím við bláa strönd
eftir Valgarð Egilsson.
Leikgerð og leikstjórn: Svanhildur
Jóhannesdóttir.
Leikmynd og búningar: Ragnhildur
Hrafnkelsdóttir.
Hfjóðlist: Lárus Halldór Grímsson.
Það er dálítið kyndugur texti
sem Valgarður Egilsson hefur
gert í tilraun sinni til að endur-
vekja þuluformið. Hann yrkir
eins konar þulubálk um ferðalag
með Akraborginni frá Reykjavík
upp á Skaga, lýsir því sem fyrir
augun ber, farþegum, eyjum,
fjöllum, bílum. Og svo er sérstak-
ur kafli sem greinir frá fiskunum í
sjónum. Valgarður skyggnist því
nokkuð víða um í þjóðlífinu í
þessum stutta texta og hefur uppi
margháttaðar spaklegar athuga-
semdir um mannlífið almennt og
líf okkar hér og nú sérstaklega.
En þulur hans eru kannski fyrst
og fremst leikur með orð og rím,
sums staðar allhaglega gerður,
sums staðar aftur býsna flatn-
eskjulegur. En það er gaman að
þessum kveðskap, gaman að
menn skuli fást við að leika sér
með gömul og góð form og takast
að gera þau ný og lifandi.
Hitt er annað mál hvert erindi
þessi texti á upp á svið. Hann er
ekki leikrænn, heldur frásagnar-
kenndur, og þó að í honum
bregði fyrir röddum og persónum
þá er það allt næsta óljóst, eins og
kemur skýrt í ljós þegar hann er
sviðsettur. Þó er leikgerð Svan-
hildar að mörgu leyti hug-
kvæmnislegt verk og sviðsetning-
in mjög snotur, en leikararnir eru
að fara með texta, ekki túlka per-
sónur, þannig að hér er á ferðinni
Svanhildur Jó-
hannesdóttir (í
miðið) leikstjóri,
Ragnheiður
Tryggvadóttir (t.v.)
og Kristín Á. Ólafs-
dóttir (t.h.), tveiraf
leikururum sem
koma fram í Ferju-
þulum Valgarðs
Egilssonar.
Ljósm. E. Ól.
ljóðaflutningur, ekki sjálfstætt
leikverk.
En það má vissulega hafa
ánægju af leikrænum ljóðaflutn-
ingi, einkum þegar hann er felld-
ur inn í smekklegan ramma eins
og ágæta leikmynd og búninga
Ragnheiðar Hrafnkelsdóttur, og
framsögnin er með eins miklum
ágætum og hjá leikurunum
Kristínu Ólafsdóttur, Ragnheiði
Tryggvadóttur, Guðnýju Helga-
dóttur og Eyþóri Árnasyni. Eink-
um hefur Kristín alveg sérstak-
lega blæbrigðaríka og skýra fram-
sögn.
En þó manni leiddist ekki
þennan rúma hálftíma sem sýn-
ingin stendur yfir verður manni á
að spyrja á eftir: var þörf á þessu?
Alþýðuleikhúsið er húsnæðis-
laust leikhús sem berst í bökkum.
Til þess að tryggja tilverurétt sinn
þarf það að halda áfram að sanna
að það sé ómissandi, og það gerir
það einungis með því að set j a upp
sýningar sem við finnum sterkt
fyrir að hafi verið nauðsynlegt að
setja upp. En það þótti mér ekki
um þessa sýningu.
Sverrir Hólmarsson.
Tónskáldakeppni
Þrjú verk bám aff
Verðlaun afhentítónskóldakeppni ríkisútvarpsins fyrir
tónskóld yngri en 30 óra
Atli Ingólfsson hlautfyrstu
verðlaun, 100 þúsund krónur
fyrir verk sitt Kvintett í E-moll í
tónskáldakeppni ríkisútvarps-
ins fy rir tónskáld yngri en
þrjátíu ára.
Önnur verðlaun 50 þúsund
krónur fékk Mist Þorkelsdóttir
fyrir verk sitt Þrenning og Kjart-
an Ólafsson hlaut þriðju verð-
laun 25 þúsund krónur fyrir tón-
verkið Dimma. Verðlaunaaf-
hendingin fór fram í útvarpssal á
Iaugardag og voru tónverkin síð-
an flutt í beinni útsendingu.
Dómnefndinni sem Guðmund-
ur Emilsson, Halldór Haralds-
son, John Speight og Hjálmar H.
Ragnarsson skipuðu, bárust alls
14 verk öll undir dulnefni. Þótti
dómnefnd þessi þrjú verk bera af
og komst að einróma niðurstöðu
um að veita þeim verðlaun.
Verðlaun afhent: Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri, Kjartan Ólafsson, Atli
Ingólfsson og Mist Þorkelsdóttir tónskáld og Jón Örn Marinósson tónlsitarstjóri
útvarps. Ljósm. Sig.
Daði Harðarson.
Glit
Iðnhönnuður
Daði Harðarson hefur verið
ráöinn iðnhönnuður hjá Glit hf. og
verður verksvið hans vöruþróun
og mótagerð.
Daði mun einnig sjá um gler-
unga hjá fyrirtækinu en hann hef-
ur sérhæft sig á því sviði. í loka-
verkefni sínu í Myndlista- og
handíðaskólanum notaði Daði ís-
lensk gosefni í glerunga og hefur
haldið þeim tilraunum áfram síð-
an.
Gallerí Borg
Hólmfríður sýnir pappírsverk
Hólmfríður Árnadóttir opnar
sýningu á pappírsverkum á
morgun 10. október.
Hún kemur úr Myndlista- og
handíðaskólanum 1951 - síðar
nemandi Kurt Zier. Hólmfríður
hefur stöðugt unnið við listir síð-
an, bæði á einkavinnustofu og
sem lektor við K.H.Í. og farið
utan í margar náms- og kynnis-
ferðir. Hún hefur sýnt á mörgum
samsýningum hérlendis og er-
lendis en þetta er 2. einkasýning
hennar á pappírsverkum en sú
fyrri var í Listmunahúsinu 1983.
Laugarneskirkja
Barnakór stofnaður
Á morgun fimmtudag verður
stofnaður barnakór við Laug-
arneskirkju og geta börn frá 8
ára aldri orðið meðlimir.
Stjórnendur kórsins verða org-
anistar Laugarneskirkju þau
Þröstur Eiríksson og Ann Toril
Lindstad. Innritun fer fram í
kirkjunni milli klukkan 17 og 18 á
fimmtudag og verða æfingar
vikulega.
Listahótíð
Safnskrá oa miðasala
v== □ -7'
□
□
Listahátíð kvenna hefur látið
gera sérstaka safnskrá sem nú er
til sölu á öllum megin sýningar-
stöðum hátíðarínnar og í bleika
garðhýsinu, Vesturgötu 3. Safn-
skráin hefur að geyma bæklinga
yfir allar þær sýningar sem staðið
hafa yfir á vegum listahátíðar.
Eru þeir allt frá einni opnu að
stærð og upp í 40 síður. Flestallir
veglega myndskreyttir og hafa að
geyma ýmiskonar upplýsingar
sem hvergi annars staðar eru til á
prenti. Um útlit og hönnun sá
auglýsingastofan Krass með að-
stoð sigríðar Bragadóttur. Þessi
heimild um haustlistahátíðina
1985 er seld á kostnaðarverði og
kostar kr. 500.
í bleika garðhýsinu fer sömu-
leiðis fram miðasala hátíðarinnar
og eru þar seldir miðar á tónlist-
ar- og leiklistarviðburði þá sem á
annað borð kostar eitthvað inn á.
Listahátíð kvenna hófst 20. sept.
og mun standa til 20. okt.
í garðhýsinu Vesturgötu 3 er
ennfremur upplýsingaþjónusta
listahátíðar. Þar er opið milli kl.
15.00 og 19.00 og er síminn þar
19650. Ennfremur er hægt að fá
upplýsingar um listahátíð í síma
21500 allan daginn.
□
Bleika garðhýsið. Myndin er eftir Gylfa Gíslason myndlistarmann.
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 9. október 1985