Þjóðviljinn - 09.10.1985, Síða 13
HEIMURINN
Kjarnorkuleynd
Ekki hemaðarleg
heldur pólitisk
Koma bandaríska herskipsins Iowa vekur
hvarvetna mótmœlaöldu
Osló - Oryggisgæsla var efld
við bandaríska herskipið þar
sem það liggur við bryggju í
Osló eftir að til átaka kom milli
lögreglu og mótmælenda við
skipshlið í fyrrakvöld. 25
manns voru handteknir.
Ferðum Iowa um norrænar
slóðir hefur nú verið mótmælt í
Noregi, Danmörku og Svíþjóð.
Ástæðan fyrir mótmælunum er sú
að fólk vill ekki una því lengur að
bandarísk herskip komi í heim-
sókn meðan ekki fæst úr því
skorið hvort um borð í þeim
leynast kjarnorkuvopn.
Bandarísk yfirvöld hafa þá
stefnu að játa hvorki né neita til-
vist kjarnorkuvopna um borð í
herskipum. Að sögn bandaríska
friðarrannsóknarmannsins Ric-
hard Fieldhouse er ástæðan ekki
fyrst og fremst hernaðarleg eins
og haldið er fram heldur aðallega
pólitísk. í norska blaðinu Ny Tid
vitnar hann í bandarísk þingskjöl
þar sem fram kemur að óskin um
leynd er komin frá „þeim ríkjum
þar sem kjarnorkuvopnin eru
staðsett“ og ástæðan sögð sú að
bandarísku kjarnorkuvopnin séu
viðkvæmt mál í þessum löndum.
Fieldhouse bætir því við að
leyndin hafi enga þýðingu
gagnvart sovétmönnum því bæði
stórveldin fylgi þeirri reglu að
gera ráð fyrir að kjarnorkuvopn
séu um borð í öllum þeim skipum
sem hafa útbúnað til að taka við
þeim. Iowa hefur útbúnað til að
skjóta á loft svonefndum Toma-
hawk eldflaugum en í þeim er
kjarnorkuhleðsla.
Skipið fer frá Osló á föstudag
áleiðis inn í Eystrasalt til að taka
þátt í flotaæfingum Nató. And-
stæðingar heimsóknarinnar í
Noregi hafa skorað á Ólaf kon-
ung að aflýsa heimsókn um borð í
skipið.
Sjórán
Bandarískir farþegar drepnir
Nicosia - ítalska farþegaskipið
Achille Lauro sem hópur pal-
estínumanna tók á sitt vald í
fyrradag og lónað hefur fyrir
botni Miðjarðarhafs tók síð-
degis í gær stefnuna á Kýpur
eftir að hafa, að því er virðist,
farið fýluferð upp að strönd
Sýrlands. Margt er óljóst um
ástandið um borð en talið var
fullvíst að ræningjarnir hefðu
myrt einn eða jafnvel tvo
bandaríska farþega.
Skipið sem er 23.600 lestir að
stærð var á skemmtisiglingu um
Miðjarðarhaf þegar því var rænt.
Rúmlega 400 manns eru um borð
en á sjöunda hundrað farþega
varð eftir í Alexandríu og ætlaði
að stíga eftur um borð í Port Said.
Ræningjarnir segjast tilheyra
Frelsisfylkingu Palestínu sem er
eitt af fjölmörgum aðildarsam-
tökum PLO. Forysta PLO hefur
svarið af sér hlutdeild í sjóráninu
og nú er skip með nokkrum leið-
togum PLO á leið frá Alexandríu
til móts við Achille Lauro. Ætla
þeir að freista þess að tala ræn-
ingjana til. Fjölmörg önnur skip
eru á lóni í nágrenni við skipið, þ.
á m. ítölsk og bandarísk herskip.
Ekki er fullljóst hvernig
skipsránið bar að. Skipinu var
rænt utan 12 mílna lögsögu Eg-
yptalands þegar það var á leiðinni
frá Alexandríu til Port Said. Eg-
ypsk yfirvöld fullyrða að ræningj-
arnir hafi komið um borð úti á
hafi en sjónarvottur í Alexandríu
telur ekki ólíklegt að þeir hafi
komið um borð þar því engar sér-
stakar öryggisráðstafanir hafi
verið gerðar.
Ránið átti sér stað seinnihluta
mánudags og lengi vel var ekkert
vitað um ferðir þess. Þegar það
fannst var það á leiðinni til Beirut
en sveigði síðan til norðurs og
stefndi að hafnarborginni Tarto-
us á strönd Sýrlands. Þar er talið
að þeir hafi gert kröfu um að
sendiherrar Bandaríkjanna og ít-
alíu í Damaskus miðluðu málum
milli þeirra og stjórnvalda í ísrael
en kröfur sjóræningjanna eru þær
áð 50 palestínumönnum verði
sleppt úr fangelsum í ísrael.
Meðan þeir biðu úrlausnar
sinna mála úti fyrir Tartous virð-
ast þeir hafa myrt einn banda-
rísku farþeganna til þess að
leggja áherslu á að þeim væri al-
vara. Áður höfðu þeir hótað að
drepa alla breska og bandaríska
farþega á skipinu ef ríki Vestur-
landa beittu ekki ísraelsmenn
þrýstingi.
Og þetta
líka...
... Reagan forseti Bandaríkjanna
meinaði í gær kúbönskum stjórn-
arerindrekum að koma til landsins
nema þeir ættu beint erindi í alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna
eða störfuðu fyrir kúbönsku send-
inefndina i Washington. Þetta var
túlkað sem svar Reagans við þeirri
ákvörðun Kubustjornar á dögun-
um að segja upp samningi milli
ríkjanna um innflytjendur til
Bandaríkjanna. Kúbumenn tóku
þá ákvörðun eftir að bandaríska
stjórnin hóf útvarpssendingar til
Kúbu undir nafni kúbönsku þjóð-
hetjunnar Jose Marti ...
... í gær lagði kanadískt strand-
gæsluskip úr höfn í Cork á frlandi
til þess að taka þátt í leiðangri sem
hefur það markmið að bjarga fiaki
indversku farþegaflugvélarinnar
sem fórst úti fyrir írlandsströnd í
júnímánuði sl. Flakið er á 2000
metra dýpi og verður notast við
sjálfvirkan kafbát og vélmenni til
að losa um hluti og festa þá við
krana um borð í skipinu. Leiðang-
urinn segist hafa mánuð til stefnu
því eftir það verði veður orðið of
slæmt til þess að skipið geti at-
hafnað sig ...
... Tyrkneskur prestur mætti í gær
fyrir rétti i Ankara ákræður fyrir að
niðurlægja múhameðstrú. Prest-
urinn hafði unnið það til saka að
gefa út 700 síðna leiðbeiningarrit
um kynlíf. Hann segist hins vegar
einungis hafa tekið sig til og
leiðbeint mönnum um það hvaða
kynlífsvenjur og aðfarir sam-
ræmdust trúnni. Bókin hefur selst
grimmt eftir að ákæran var iögð
fram ...
... Niu kílóa þungt stykki úr hjóla-
búnaði svissneskrar farþegaþotu
losnaði yfir London í gær og braut
sér leið gegnum þakið á stærsta
grænmetismarkaði Lundúna í New
Covent Garden. Mesta mildi var að
engan sakaði en hlunkurinn kom
niður skammt frá hópi fólks ...
REUTER
Umsjón:
ÞRÖSTUR HARALDSSON
Mannréttindi
Ástandið hvorki betra né verra
Aftökumfjölgar íBandaríkjunum. 21 líflátinn ífyrra. Arsskýrsla Amnesty komin út
I ársskýrslu Amnesty segir að öryggissveitir stjórnarinnar í El Salvador beri ábyrgð á dauða flestra
þeirra 40 þúsunda sem látist hafa í margra ára borgarastyrjöld. Líkin eru oftast skilin eftir á víðavangi,
öðrum til viðvörunar.
London - í ársskýrslu samtakanna Amn-
esty International fyrir árið 1984 segir
að í 123 af 172 ríkjum heims hafi
mannréttindi verið brotin og víða hafi
fólk verið ofsótt, sætt pyndingum og
verið tekið af lífi. „Almenningsálitið i
heiminum má ekki lengur umbera að
ríkisstjórnir beiti dauðarefsingu, hvorki
til að leysa pólitískan vanda né til þess
að halda uppi lögum og reglu“, segir í
skýrslunni.
Þar segir ennfremur frá því að í Banda-
ríkjunum hafi 21 verið tekinn af lífi í fyrra
en það er mesti fjöldi síðan árið 1963. Alls
eru skráð 1.500 dauðadómar sem fullnægt
hefur verið víðs vegar um heim en þess er
jafnframt getið að það sé aðeins brot af
þeim fjölda sem hefur verið líflátinn.
Af einstökum dæmum sem nefnd eru í
skýrslunni má nefna að í Suður-Afríku voru
114 hengdir, þar af 111 blökkumenn, auk
þess sem mikill fjöldi fólks hafi verið hand-
tekinn í nafni hinna illræmdu vegabréfalaga
sem brjóti í bága við almenn mannréttindi.
í íran átti sér stað 661 aftaka og þar var
fundin upp sérstök vél til að aflima fólk. í
Súdan og Saudi-Arabíu tíðkast einnig að
aflima fólk í refsingarskyni. í Kamerún
voru stjórnarandstæðingar neyddir til að
skríða naktir um grýtta slóð og ausið hlandi
yfir þá um leið. í Pakistan er algengt að
fangar séu geymdir í hand- og fótjárnum.
Flestir þeirra 40 þúsunda sem fallið hafa
undanfarin ár í borgarastyrjöldinni í E1 Sal-
vador urðu fyrir barðinu á öryggissveitum
stjórnarinnar sem skildu líkin eftir á al-
mannafæri öðrum til viðvörunar. { Kenýa
áttu sér stað fjöldahandtökur, pyndingar og
aftökur á hundruðum eða þúsundum fólks
af sómölskum uppruna og þar voru einnig
að verki öryggissveitir ríkisins.
Þótt stærstur hluti mannréttindabrota sé
framinn í Asíu, Afríku og Rómönsku Am-
eríku fer því fjarri að Vesturlandabúar séu
saklausir af slíkum glæpum. Víða komu þar
fyrir pyndingar, fangelsanir á fólki sem
neitaði að gegna herskyldu af siðferðisá-
stæðum áttu sér stað í Frakklandi, Vestur-
Þýskalandi og Grikklandi. Á Ítalíu hafa
pólitískir fangar setið í gæsluvarðhaldi í allt
að fjögur ár án þess að mál þeirra komi fyrir
rétt. Pyndingar áttu sér stað á Norður-
írlandi og líkur benda til að svo hafi einnig
verið á Spáni þar sem baskar urðu fyrir
Íieim. Breskar öryggissveitir á Norður-
rlandi liggja einnig undir grun um að hafa
skotið fólk til bana af ásettu ráði.
í Austur-Evrópu voru andstæðingar
stjórnvalda lokaðir inni á geðsjúkrahúsum
og aftökur áttu sér stað í Búlgaríu, Ung-
verjalandi, Póllandi og Sovétríkjunum.
Áuk þessa er að finna í ársskýrslunni frá-
sagnir af því hvernig fólk hefur verið pynd-
að og brennt til ólífis, konum nauðgað og
fangar dáið í fangelsum vegna vísvitandi
vanræktar. Niðurstaða Amnesty er sú að
ekki sé hægt að segja til um hvort
mannréttindabrot hafi verið tíðari eða
sjaldgæfari en áður ef litið er á allan heim-
inn.