Þjóðviljinn - 15.10.1985, Blaðsíða 14
Nóbel
Rannsóknir á
kólesteróli
verðlaunaðar
Stokkhólmi - Tveir bandaríksir
læknar, Michael S. Brown og
Joseph L. Goldstein, sem báð-
ir eru prófessorar við Texashá-
skóla fengu í gær nóbelsverð-
launin í læknisfræði fyrir rann-
sóknir og uppgötvanir sem
tengjast „stjórnun efnaskipta
kólesteróls" í blóði mannslík-
amans.
Talsmaður Karolinska Instit-
utet sem veitir verðlaunin sagði
að starf þeirra félaga hefði valdið
byltingu í meðferð sjúkdóma sem
orsakast af of miklu kólesteróli í
blóðinu. Einkum nýtist það til að
meðhöndla og koma í veg fyrir
fituhrörnun en einkenni þess
sjúkdóms er að slagæðar þrengj-
ast vegna fitumyndunar og veldur
það hjartaslagi eða blóðtappa.
Fituhrörnun er í mörgum til-
vikum arfgeng og stafar af því að
líkamann skortir ákveðið efni
sem hraðar upptöku kólesteróls
úr blóði. Þetta efni verður til í
lifrinni og í umsögn Karolinska er
vitnað til aðgerðar sem gerð var á
sex ára stúlku í Bandaríkjunum í
fyrra. Skipt var um lifur í stúlk-
unni og við það snarminnkaði
kólesterólið í blóðinu.
Upphleðsla kólesteróls í blóð-
inu gerist á mörgum árum.
Helstu orsakavaldar, auk erfða-
þátta, eru háþrýstingur, mikil
neysla á dýrafitu, streita og
reykingar. Talsmenn Karolinska
sögðu að þeir Brown og Gold-
stein hefðu unnið undirbúnings-
starfið, nú væri það hlutverk ann-
arra vísindamanna og lyfjafyrir-
tækja að finna upp þau lyf sem
þarf til að framlag þeirra nýtist.
REUTER
Umsjón:
ÞRÖSTUR HARALDSSON
HEIMURINN
Belgía
Stjómin hélt velli
Brussel - Stjórn Wilfried Mart-
ens í Belgíu heldur velli eftir
þingkosningar sem fram fóru í
landinu á sunnudag. Fiokkarn-
ir fjórir sem mynda stjórnina
bættu við sig 2 þingsætum
samaniagt og hafa nú 16 sæta
Pólland
Deilt um
þátttöku
kjósenda
Varsjá - Pólsk stjórnvöld gáfu í
dag til kynna að þátttaka í
þingkosningum helgarinnar
hefði ekki verið eins mikil og
vonir stjórnarinnar stóðu til.
Hún hafði fyrir kosningar sett
sér það mark að kosningaþátt-
takan yrði ekki undir 80% en
hin ólöglegu verkalýðs-
samtök, Eining, hvöttu kjós-
endur til að sitja heima.
Blaðafulltrúi pólsku stjórnar-
innar, Jerzy Urban, sagði í gær að
samkvæmt bráðabirgðatölum
væri þátttakan aðeins undir 77%.
Hann benti hins vegar á að hún
væri talsvert meiri en í sveitar-
stjórnarkosningum í fyrra en þá
var þátttakan 75%. Kvað hann
þessar tölur sýna að mikill meiri-
hluti pólverja væri hlynntur þjóð-
félagskerfinu og stefnu stjórnar-
innar.
Leiðtogi Einingar, Lech Wa-
lesa, var ekki sáttur við tölur
stjórnarinnar og sagði að sam-
kvæmt talningu fulltrúa Einingar
í þremur Eystrasaltsborgum
hefði þátttakan verið 45-47% í
Gdansk og 35-43% í Gdynia og
Sopot. Kaþólska kirkjan tók
undir hvatningu Einingar og Ur-
ban viðurkenndi að aðeins fjórð-
ungur presta hefði skilað sér á
kjörstaði. Vonaðist hann til að
geta kunngert endanlegar kosn-
ingatölur í dag, þriðjudag.
meirihluta á belgíska þinginu
en þar eru 212 þingmenn.
Nokkrar tilfærslur urðu milli
flokkanna fjögurra. Flokkur
Martens, kristilegir í Flandern,
bætti við sig 6 sætum og er nú
stærsti flokkur þingsins með 49
þingmenn. Systurflokkurinn í
Walloníu bætti við sig 2 þingsæt-
um og hefur nú 20. Frjálslyndir
fóru verr út úr kosningunum, þeir
flæmsku töpuðu 6 þingsætum og
hafa nú 22 en þeir vallónsku
héldu sínum hlut, 24 þingsætum.
Flæmski sósíalistaflokkurinn
bætti stöðu sína og vann 6 þing-
sæti, hefur nú 32. Vallónskir sósí-
alistar héldu sínum 35 þingsæt-
um. Umhverfisverndarmenn
bættu við sig 5 þingsætum og hafa
nú 9 en kommúnistar duttu út af
þingi þar sem þeir höfðu tvo
menn fyrir kosningar.
Helstu tíðindi kosninganna
voru þau að smáflokkar yst á
köntunum og svo þeir sem biðl-
uðu til fólks á grundvelli tungum-
álaþrætunnar í landinu fóru hal-
loka en stóru flokkarnir bættu við
sig.
Baldvin konungur kallaði
Martens á sinn fund í gær og var
búist við því að konungur myndi
fela honum stjórnarmyndun en
svo verður einhver annar forsæt-
isráðherra. Myndun stjórnar gæti
þó tekið drjúgan tíma, hún tók
td. tæplega 4 mánuði árið 1978 og
deilur hafa ríkt innbyrðis milli
stjórnarflokka undanfarið.
Aflimun
Hann
virkaði!
Sydney - 34 ára gömul kona í
Sydney í Ástralíu hlaut í gær
þriggja ára fangelsisdóm fyrir
að hafa skorið getnaðarliminn
af eiginmanni sínum. Gaf hún
þá skýringu á verknaðinum að
maðurinn hefði hótað að yfir-
gefa hana.
Hinn afskorni limur hafnaði í
ruslafötu sjúkrahúss en þaðan
var honum bjargað og skurð-
læknar eyddu mörgum klukku-
tímum í að græða liminn á mann-
inn aftur. Þetta gerðist í júlí og
nokkrum vikum seinna birtist
maðurinn í sjónvarpi og kvaðst
hafa kannað það með heimsókn
til vændiskonu hvort ágræðslan
hefði heppnast.
- Það var allt í fínu standi, sagði
maðurinn.
Svíþjóð
Skipt um utanríkisráðherra
Stokkhólmi - Olof Palme lagði í
gær fram ráðherralista nýrrar
stjórnar í Svíþjóð en hann hélt
velli sem forsætisráðherra í
þingkosningum í síðasta mán-
uði. Það sem mest kom á óvart
var að Paime hefur skipt um
utanríkisráðherra.
Lennart Bodström fráfarandi
utanríkisráðherra má nú láta sér
nægja ráðuneyti kennslumála.
Hann kom stjórninni í talsverðan
bobba í vetur þegar hann ve-
fengdi þá niðurstöðu sænska
hersins að sovéskir kafbátar
hefðu rofið landhelgi Svíþjóðar.
Palme kom honum til bjargar og
forðaði honum frá því að fá sam-
þykkta á sig vantrauststillögu.
Nýi utanríkisráðherrann er
Sten Andersson, 63 ára, fyrrum
ritari flokks sósíaldemókrata og
gegndi embætti félagsmálaráð-
herra. Hann hefur löngum verið
talinn til róttækari arms flokksins
og var mjög virkur í andófi gegn
stríðsrekstri Bandaríkjanna í
Víetnam á sínum tíma. Stóð hann
ma. fyrir því að safna undirskrift-
um 3,5 miljóna svía gegn stríð-
inu. Hann tók þátt í að skipu-
leggja fyrstu mótmælin gegn að-
skilnaðarstefnunni í Suður-
Afríku á 6. áratugnum og vann
mikið að því að treysta böndin
milli sænskra jafnaðarmanna og
frelsishreyfinga í Rómönsku Am-
eríku og Afríku.
Aðrar breytingar voru minni-
háttar tilfærslur sem snertu sex
embætti af 21. Af þeim má nefna
að Palme skipaði blindan mann í
embætti aðstoðarráðherra félags-
mála.
Bengt Lindquist sem er 49
ára les þingræður sínar af blindra-
letri og mætir til þings með
Ieiðsöguhundi.
Og þetta líka...
...14 ára drengur og 26 ára karlmaður
hafa verið ákærðir fyrir morðið á lög-
regluþjóninum sem framið var í hita
götubardaganna í Tottenhamhverf-
inu í London í síðustu viku. Auk þess
hefur 15 ára drengur verið ákærður
fyrir aðild að morðinu. Allir þrír eru
blökkumenn. Yfir 220 lögreglumenn
urðu fyrir meiðslum í óeirðunum, þar
af eru nokkrir með skotsár...
...Borgaryfirvöld í Teheran, höfuð-
borg írans, hafa lagt að velli 40 þús
að því að bæta heilbrigðisástandið í
borginni. Hundarnir voru grafnir fjarri
mannabyggðum. Ekki var herferðin
með öllu áfallalaus því smali einn var
skotinn í misgripum fyrir hund...
...Elísabet englandsdrottning fer á
næsta ári í opinbera heimsókn til Kína
og dvelur þar í vikutíma. Hefur þetta
heimboð verið í gildi í nokkur ár en
ekki var talið heþpilegt að af
heimsókninni yrði fyrr en löndin höfðu
sett niður deilur sínar um framtíð
Hong Kong...
Sjórán
Hverjum hentar rónið á Achille Lauro?
ftalska stjórnin komst í mestu klípu þegar farþegaskipinu Achille Lauro var
rænt með rúmlega 400 manns innanborðs. Italir hafa reynt að halda góðu
sambandi við palestínuaraba en þegar skiþinu var rænt sendu þeir herskip
á vettvang.
Meðan ítalska farþegaskipið
Achille Lauro lónaði um Mið-
jarðarhafið með rúmlega 400
manns innanborðs veltu menn
því mikið fyrir sér hverjir sjó-
ræningjarnir væru og hvað
vekti raunverulega fyrir þeim.
Sjálfir sögðust þeir vera úr
samtökunum PLF - Frelsis-
fylking Palestínu - sem eiga
aðild að heildarsamtökum pal-
estínuaraba, PLO. Aðalkrafa
þeirra var sú að 50 palestínskir
skæruliðar sem sitja i fangels-
um í ísrael skyldu látnir lausir.
Nú er það ekki alveg einhlítt til
skilnings þótt vitað sé að sjóræn-
ingjarnir tilheyri PLF. Þau
samtök klofnuðu nefnilega í
þrennt árið 1983. Einn hlutinn
hélt áfram stuðningi við PLO og
Arafat sem laut forystu Abu
Musa og fylgdi sýrlendingum að
málum en var á móti Arafat.
Þessar tvær fylkingar sem og
PLO tóku strax harða afstöðu
gegn sjóráninu.
Það gerði þriðji klofningshóp-
urinn hins vegar ekki. Sá hefur
höfuðstöðvar í Tripoli, höfuð-
borg Lýbíu, og nýtur að sögn
bæði pólitísks sem fjárhagslegs
stuðnings Gaddafis forseta Lý-
bíu. Hvort sem það voru þessi
samtök eða ekki sem stóðu að
baki sjóráninu tókst þeim að
varpa miður góðu ljósi á PLO og
Yasser Arafat sem stendur í
margháttuðum tilraunum til að
styrkja stöðu palestínuaraba.
Sjóránið kemur sér einkar illa
fyrir þær tilraunir til friðarsamn-
inga sem nú eru í gangi. Fyrir það
fyrsta bitnaði það mest á ítölum
sem hafa verið heldur vinsam-
legir PLO að undanförnu og eg-
yptum sem standa í afar flóknum
og viðkvæmum tilraunum til að
ná sáttum við stjórnina í Túnis og
þar með afganginn af hinum
arabíska heimi, en egyptar voru
settir út af sakramentinu fyrir sex
árum þegar þeir gerðu friðar-
samninga við Israel. Egyptar eru
að reyna að koma því til leiðar að
höfuðstöðvar PLO verði fluttar
frá Túnis - þar sem ísraelsher
gerði árás á þær nýverið - til Ka-
író. Egyptar hafa einnig veitt
Hussein konungi í Jórdaníu
stuðning í friðartilraunum sem
hann hefur staðið í.
Sjóránið kemur sér illa fyrir
allflesta þá sem flæktir eru í þær
tilraunir sem eiga sér stað og hafa
frið í Mið-Austurlöndum að
markmiði. Þeir sem geta hlakkað
yfir óförum egypta, ítala og PLO
eru erkifjendurnir Lýbía og ísael.
Kannski var það engin tilviljun
að sjóránið var gert sama dag og
lýbíumenn minntust þess að 15 ár
voru liðin frá því ítölskum þegn-
um var byggt út úr Lýbíu.
ísraelsmenn geta líka fylgst
með egyptum, ítölum og PLO
klóra sig út úr þeim vanda sem
sjóránið hefur komið þeim í og
bent á að þarna sýni það sig og
sanni hvað menn hafi upp úr því
að manga til við hryðjuverka-
menn. En á hinn bóginn er ekki
víst að ísaelsmenn hagnist svo
mjög á þessum viðsjám þegar til
lengri tíma er litið. Þeir hafa fylgt
þeirri stefnu af mikilli ákefð að
gjalda líku líkt og segja að það
eina sem arabar skilji sé hefnd og
ofbeldi. En sjóránið og morðin á
ísraelsmönnum þremur á Kýpur
á dögunum sýna að ofbeldi kallar
á meira ofbeldi þannig að víta-
hringurinn er enn við lýði og eng-
ar líkur á að hann rofni í bráð.
- ÞH - byggt á Information.
PLO
Viðræðum
aflýst
London, New York - Breska
stjórnin tilkynnti í gær að hún
hefði aflýst fyrirhuguðum við-
ræðum við fulltrúa PLO um
friðarhorfur í Mið-
Austurlöndum og stöðu pal-
estínumanna. Að sögn Howe
utanríkisráðherra er ástæðan
sú að fulltrúar PLO hafa neitað
að undirrita yfirlýsingu þar
sem ofbeidi er fordæmt.
fsraelska stjórnin fagnaði ákaft
þessari ákvörðun bresku stjórn-
arinnar.
Þá var ákveðið í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna að draga til
baka tillögu þess efnis að Yasser
Arafat leiðtoga PLO. yrði boðið
að taka þátt í 10 daga hátíðar-
höldum í tilefni af 40 ára afmæli
samtakanna en þau hófust í gær.
Ástæðan fyrir því að tillagan var
dregin til baka var sú að fulltrúi
Bandaríkjanna hjá SÞ hafði beitt
sér eindregið gegn henni og hót-
að ma. að hundsa veisluna.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 15. október 1985