Þjóðviljinn - 16.10.1985, Blaðsíða 5
Iþing-
byrjun
í þessari viku hefjast þingstörf
fyrir alvöru, nokkru síðar en
venja er vegna stólaskipta
Sjálfstæðismanna. Síðasta
þing þótti meðenedmum: Það
var ekki fyrr en undir lok
þingsins að ríkisstjórnin setti
fram öll sín stefnumarkandi
mál og lauk þingi ekki fyrr en
rétt undir slátt. í þingbyrjun
hafði Þjóðviljinn tal af þing-
mönnum Alþýðubandalags-
ins og spurði þá fyrst um stöðu
ríkisstjórnarinnar eftir upp-
stokkunina, síðan á hvað Al-
þýðubandalagið myndi leggja
áherslu á í þingbyrjun og loks
hvaða mál þeir sjálfir hefðu
undirbúið og hygðust beita sér
fyrir. Sem betur fer eru þing-
menn AB svo margir að þeir
komast ekki allir fyrir í þessu
blaði, en viðtölin við aðra
munu birtast n.k. föstudag.
-ÁI
Sjá einnig bls. 6.
§ ■ * co«
& \ < '
C'
c
Þingflokkur Alþýðubandalagsins á setningardegi alþingis s.l. fimmtudag. Frá
vinstri: Svavar Gestsson, Guðmundur J. Guðmundsson, Ragnar Arnalds,
Svavar Gestsson:
Brýnast að koma
stjóminni fiá
„Fólk hefur fylgst með þessum
stólaleik í sumar og haft í flimt-
ingum, en nú tekur alvaran við.
Þjóðin þarf að gera sér Ijóst að
þetta er ekki farsi heidur grjót-
hörð pólitík! Þorsteinn Pálsson
hefur látið breyta stjórninni og
farið sjálfur í fjármálaráðuneytið
tilþess að knýja fram niðurskurð
á félagslegri þjónustu, m.a. skóla-
og heilbrigðiskerfinu“, sagði
Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins. „Ástæðan til
þess að hann færir menn til milli
ráðuneyta er sú að hann vill
veikja varnir fagráðuneytanna
gegn árásum fjármálaráðuneytis
á þá þætti sem þau bera ábyrgð á.
Bersýnilega er ætlunin, hvað sem
verður, að innleiða hér á landinu
nakinn Thatcherisma, hægri
stefnu sem forystuliðið í Sjálf-
stæðisflokknum hefur gert kröfur
um allt frá því þessi stjórn var
mynduð.“
„Aðalmál okkar í þingbyrjun
verða auðvitað kjaramál“, sagði
Svavar. „Þegar þingið fór heim í
vor lágu fyrir nýgerðir kjara-
samningar og yfirlýsingar frá for-
mönnum stjórnarflokkanna um
að ríkisstjórnin tæki ábyrgð á
kjarasamningunum og kaup-
mætti þeirra. Nú liggur fyrir að
stjórnin hefur ekkert gert í þessu
efni. Þvert á móti hefur dýrtíðin
magnast. Það liggur fyrir að það
er varasamt að ekki sé meira sagt
að gera samninga við þessa stjórn
nema með skýlausum ákvæðum
um verðtryggingu.
Það ætti þess vegna að vera
öllum launamönnum ljóst að
brýnasta verkefni komandi mán-
aða er að koma ríkisstjórninni frá
Skúli Alexandersson, Steingrímur J. Sigfússon, Guðrún Helgadóttir, Helgi
Seljan, Garðar Sigurðsson, Hjörleifur Guttormsson og Geir Gunnarsson.
Ljósm. Sig.
og efna til kosninga. Þessi mál
munu setja mikinn svip á þingið í
vetur og jafnframt sveitarstjórn-
arkosningarnar í vor.“
„Ef ég nefni þau mál sem ég er
með sérstaklega, þá eru það fyrst
atvinnumálin í framhaldi af um-
ræðu okkar um nýja sókn í avinn-
ulífinu. Þau mál munu koma
fram í þinginu eftir landsfund AB
en auk þess mun ég sem þing-
maður auðvitað flytja ýmis önnur
mál og get nefnt sem dæmi þrjú
mál úr ólíkum greinum þjóðlífs-
ins: Tillögu um rannsókn á inn-
flutningsversluninni, breytingu á
reglum um örorkumat sem snert-
ir alla fatlaða í landinu og tillögu
um starfskjör myndlistarmanna.
Þá tel ég brýnt og mun beita mér
fyrir því að alþingi taki til með-
ferðar dómsmál og réttarkerfi
m.a. íljósi þeirrar flokkspólitísku
misnotkunar á veitingavaldi sem
fram hefur komið í vinnu-
brögðum dómsmálaráðherra að
undanförnu, auk annarra mála“,
sagði Svavar Gestsson að lokum.
-ÁI
Svavar Gestsson: Bersýnilega ætl-
unin að innleiða hér nakinn Thatcher-
isma eins og forystulið Sjálfstæðis-
flokksins hefur verið aö heimta frá því
stiórnin var mvnduð.
Ragnar Arnalds
Þyngst áhersla á
efnahags- og kjaramál
Ragnar Arnalds: Landsfundur AB
mun fjalla um tillögur okkar áður en
þær verða lagðar fram.
„Það mátti ekki miklu muna á
þessu hausti að Sjálfstæðisflokk-
urinn gæfist upp á þessari ríkis-
stjórn - það sem þá vantaði var
tilefnið til að skella skuldinni á
aðra en sjálfa sig“, sagði Ragnar
Arnaids, formaður þingflokks
AB. „Úr því þeir ákváðu að
þrauka og stokka upp stjórnina er
nokkuð víst að þeir munu sitja
framá næsta sumar. En eftir
sveitarstjórnakosningarnar í vor
munu þeir áreiðanlega fara aftur
að leita sér að tilefni til að
sprengja stjórnina, þannig að
kosningar gætu vel orðið næsta
haust.“
„Alþýðubandalagsmenn munu
leggja fram mikinn fjölda þing-
mála en augljóst er að efnahags-
og kjaramálin hljóta að fá
þyngsta áherslu", sagði Ragnar.
„Á sama tíma og þjóðarfram-
leiðsla eykst annað árið í röð og
sjávarafli stóreykst eru launakjör
í algeru lágmarki og verðbólga
mjög mikil eða fast að 40%. Er-
lendar skuldir fara líka ört vax-
andi. Við Alþýðubandalagsmenn
munum leggja áherslu á ger-
breytta efnahagsstefnu m.a. með
ýtarlegum tillöguflutningi. Að
vísu munum við ekki snara öllurn
tillögum fram á fyrstu dögurn
þingsins, því landsfundur er eftir
fáar vikur og við viljum gefa
flokksmönnum tækifæri til að
fjalla um ýmsar tillögur okkar
áður en þær eru lagðar fram.
„Augljóst er að skattamálin
verða lykilatriði í umræðunni nú í
haust í tilefni af áformum ríkis-
stjórnarinnar um stórfelldar
skattaálögur til að fylla upp í
fjárlagagatið, sem ríkisstjórnin
ber sjálf alla ábyrgð á eftir allar
skattaívilnanir sínar til stórfyrir-
tækja og fjármagnseigenda."
„Ég mun ásamt þingmönnum
okkar í efri deild leggja aftur
franr frumvarp urn fjárfestingar-
sjóði launamanna. Það er mikið
stórmál sem verður að fá miklu
meiri umræðu. Einnig mun ég
endurflytja tillögu um útboð á
ýmsum almennum fjárfestingum
og neysluvörum til að stuðla að
hagkvæmum innkaupum lands-
manna og lækkun vöruverðs.
Þetta er líka stórmál sem ekki
hefur fengið eðlilega umfjöllun.
Auk þess er ég með fjölmörg mál
í undirbúningi m.a. tillögu um
stjórnarskrárbreytingar sem ég
mun gera nánari grein fyrir
seinna“, sagði Ragnar Arnalds
að lokum.
-ÁI
Mlðvikudagur 16. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5